Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2001, Side 12
12
MÁNUDAGUR 26. MARS 2001
Skoðun I>V
Spurning dagsins
Hver er uppáhalds sjón-
varpsþátturínn þinn?
Stefanía Ösp Guömundsdóttir nemi:
Buffy the Vampire Slave.
Þórhildur Orradóttir nemi:
Friends og Ally McBeal.
Var lengst af einkennandi fyrir erlendar stórborgir.
Nú til sýnis á Islandi.
Vesalingarnir í borginni
Lára Aradóttir nemi:
Friends.
Edda Rut Þorvaldsdóttir nemi:
Survivor.
Geir R,
Andersen
skrifar:
Klukkan var
rúmlega hálfsex
sl. miövikudag, ég
var að koma úr
vinnu og hugðist
taka SVR heim
frá Hlemmi. Á
bekk úti, til hlið-
ar við inngang-
inn, lá maður af-
velta, augsýnilega
drukkinn. Einn af
fastagestunum
sem oft eru á ferli við þennan
þekkta umferðarstað. Maður hefur
séð þessa menn og ekki geflð þeim
mikinn gaum. Ég gekk inn í salinn
til að kaupa miða, vagninn var rétt
ókominn. Er ég gekk út aftur lá
maðurinn þarna enn, og svaf fast að
því er virtist.
Vagninn kom, ég fór í hann og
settist. Er ég leit manninn út um
gluggann sá ég að hann var að
rumska og reyndi að reisa sig upp
úr láréttri stöðu á bakinu. Hann
reyndi nokkrum sinnum, en tókst
ekki, og hann lagöist aftur út af,
ósjálfbjarga. Fólk gekk fram hjá.
Enginn brást við á nokkum hátt.
Líkaminn,
Vllhjálmur Alfreðsson
skrifar:
í marsmánuði síðastliðnum birt-
ist falleg mynd af ungri konu næst-
um því nakinni á nýafstaðinni kjöt-
kveðjuhátiö í Ríó í Brasilíu. Mig
langar af því tilefni að leggja nokk-
ur orð í belg.
Gamall frændi minn í Glasgow,
William að nafni, sagði einu sinni
að setti maður sokk á fót nakins
kvenmanns þá væri það klám. Al-
veg rétt.
Eftir að Adam og Eva lentu í
vandræðum í Eden forðum fóru þau
Michelle Marie Morris nemi:
Friends.
Daníet Örn Sigurósson nemi:
Friends.
„Hvað á að gera? Taka
vesalingana úr umferð með
skipulegum hcetti - af
hjúkrunarfólki, ekki lög-
reglu, og freista þess að
hreinsa út óvœruna og
koma þeim í gang með ráði
og rænu.“
Ekki frekar en ég. Auðvitað gat
hann á þessu augnabliki verið dauð-
ur í alvöru.
Lögreglan er sögð koma á Hlemm
og víöar þegar hringt er í hana til að
taka einn epa fleiri þessara vesal-
inga. Ekki sjúkrabíll (hvað þá tveir
eins og tíðkast við „vinnuslys" á
súlustöðunum) eða læknavaktin.
Þessir menn eiga afdrep í vörslu lög-
reglu. Þeir eru þó komnir undir
manna hendur. En hver segir að þeir
eigi ekki einmitt að vera í vörslu
heilbrigðiskerfísins umfram allt?
Þetta er ekki neitt nýtt hér í
Reykjavík. Borgin úir og grúir nán-
ast af vesalingum sem eiga ógæfuna
eina að. Hún er ekki besti aðstand-
andinn. Á sumrin versnar þetta. Þá
er hlýrra úti og vesalingarnir
flykkjast út í góða veðrið. Við Aust-
urvöll, f Austurstræti og á Hlemm.
Þetta er vandamál, umhverfis-
vandamál ekki síður en félagslegt.
Það er ekki verjandi að höfuðborgin
stilli út þessum vesalingum til sýn-
is ferðamönnum sem öðrum vegfar-
endum ár eftir ár.
Öll getum við orðið vesalingar að
þessu leyti, en gæfan fer í mann-
greinarálit, og genin gegna sínu
hlutverki. Einstaklingurinn deyr en
genin lifa. Einhverjir vesalinganna
eiga afkvæmi, og þá er ekki að sök-
um að spyrja. Það koma alltaf nýir
vesalingar.
Hvað á að gera? Taka vesalingana
úr umferð með skipulögðum hætti -
af hjúkrunarfólki, ekki lögreglu, og
freista þess að hreinsa út óværuna og
koma þeim í gang með ráði og rænu.
Þjóðfélagið getur ekki haldið áfram á
þessum nótum sem nú virðist stefna
í. Beint í fenið, í kjölfar íjárdráttar,
falsana, voðaverka og vímuefna-
vanda. - Vesalingarnir í höfuðborg-
inni eru þeir sem eru sýnilegir og
þar er a.m.k. hægt aö byrja.
fegurð sköpunarinnar
„Það bendir einnig ýmislegt
til þess að Adam og Eva
hafi ákveðið að fara norður
á bóginn, þangað sem
kalt loft ríkir. “
að klæða sig. Og hvers vegna?
Vegna þess að mannslíkaminn hef-
ur ekkert með „gott“ eða „illt“ að
gera. Líkaminn er fegurð sköpunar
og enginn á að skammast sín fyrir
eigin líkama.
Það bendir einnig ýmislegt til
þess að Adam og Eva hafi ákveðið
að fara norður á bóginn, þangað
sem kalt loft ríkir. En hvernig
stendur á því að Inúítar í Norðvest-
ur-Síberíu geta sofið aUsnaktir und-
ir berum himni í 30-40 gráða frosti?
Á þessu stigi verð ég að segja, að
það dásamlegasta sem ég hef upplif-
að er að synda aUsber í sjónum.
Hins vegar myndi ég ekki þora að
mæta aUsber í opinberri stofnun tU
þess að borga reikningana mína. Af
þessu má draga ýmsar ályktanir. Og
maðurinn er jú það sem hann hugs-
ar. Ekki rétt?
Gildishleðslumenn á glapstigum
Það er alkunna að enginn er spámaður í sínu
föðurlandi og þó víðar væri leitað. Á því hafa
þjóðhagsspámenn á íslandi, með Þórð Friðjónsson
i fararbroddi, fengið að kenna upp á síðkastið.
Þórður og félagar hafa lengi dundað sér við að
spá og spekúlera í efnahagsmál og eru auðvitað
þrautlærðir í þeim fræðum - og hafa í sjálfu sér
ekki náð verri árangri á þessu sviði en Gunnlaug-
ur stjörnuspekingur (sem reyndar hefur aldrei
spáð rétt um úrslit leikja fótboltafélagsins Ev-
erton) og Nostradamus heitinn. Sem sé, þeir hafa
spáð svo mikið og svo oft að annað veifið hafa
þeir slampast á að segja fyrir um það sem síðar
kom á daginn.
Þjóðhagsspár
Hlutverk Þjóðhagsstofnunar er reyndar alls
ekki það að spá rétt í spilin heldur að spá því sem
kemur stjómvöldum vel á hverjum tíma. Þetta
vita auðvitað allir nema starfsmenn Þjóðhags-
stofnunar sem sitja uppstyttulaust í blóðspreng
við að spá rétt, með reyndar, eins og áður sagði,
misjöfnum árangri. Og væri svo sem í lagi ef þjóð-
hagsspámenn hefðu ekki tekið upp á þeim skolla
fyrir skömmu að fara að gildishlaða spádóma
sína.
Gildishleðsla á þessu sviði er auðvitað forkast-
anleg og hefur raunar um aldir eyðilagt eða i það
minnsta gert tortryggilega marga annars prýði-
lega spádóma. Dæmi um ótímabæra gildishleðslu
er t.d. stjörnuspá sem hljóðar svo: Þú ætlar að
fljúga til Kaupmannahafnar á morgun en kemst
ekki nema hálfa leið því flugvélin hrapar nokkuð
óvænt. Hættu við ferðina.
Þarna er búið að eyðileggja heiðarlegan og hlut-
lausan spádóm með gildishleðslunni í lokin, þ.e.
áskoruninni til spádómsþega um að hætta við
flugferðina. Þarna er spámaðurinn á vítaverðan
hátt að reyna að hafa áhrif á ákvarðanatöku
væntanlegs farþega til Kaupmannahafnar. Sá á
auðvitað sjálfur að ráða því hvort hann vill hrapa
eða ekki, fyrir svo utan það að gildishleðslan get-
ur hugsanlega haft áhrif á farþegafjölda og þar
með afkomu flugfélaga.
Á teppið
Gildishlaðnir dómar og spádómar eiga því ekki
undir nokkrum kringumstæðum rétt á sér. Og því
var ekki kyn þó Davíð Oddsson, vor elskaði leið-
togi, tæki Þórð Þjóðhags á teppið og snupraði
hann opinberlega fyrir gildishleðsluupphlaupiö. I
ljós kom svo að Doddi hefur ekki fattað eigin feil-
spámennsku því hann hefur lýst því yfir að þeir
þjóðhagsspámenn hafi í aungu stundað gildis-
hleðslu heldur eingöngu „yfirvegaða umfjöllun
um efnahagshorfúmar".
Þessi viðbrögð sanna í hvurskyns leikfanga-
landi Doddi og félagar starfa. Þeír skilja ekki að
þeirra hlutverk er ekki að fjalla yfirvegað um
efnahagsmál, a.m.k. ekki ef sú umfjöllun gengur í
berhögg viö skoðanir Davíðs og hagsmuni ríkis-
stjómarinnar. Þjóðhagsstofnun á að vera þæg og
þegja ef hún hefur ekkert nema eitthvað neikvætt
til málanna að leggja.
Garri
Lítil hreyfing á markaðnum.
- Allt á niöurleiö?
Frosinn markaður
Ólafur Einarsson skrifar:
Loks kom að þvi að fasteignaverðið
næmi staðar. Það var ekki einleikið að
verðið hækkaði nánast frá mánuði til
mánaðar. Það hlaut að enda með ósköp-
um. Og nú eru „ósköpin“ að dynja yfir.
Þeir sem hafa selt íbúðir sínar og hús-
eignir að undanfómu mega vera ánægð-
ir, svo langt sem sú „ánægja" nær. Þeir
sem keyptu fram að þessu, sérstaklega
þeir sem keyptu í fyrsta sinn, eru ekki
öfundsverðir. Og nú bíða seljendur eftir
viðbrögðum væntanlegra kaupenda sem
halda að sér höndum og „pína“ hina
fyrrnefndu. En héðan af breytist hús-
næðisverð ekki nema til lækkunar. - Og
fer ekki upp í bráð.
„Kirlcjudeildirnar
steindauðu“
Þorsteinn skrifar:
Forsvarsmaður sjónvarpsstöðvar-
innar Omega flutti þar ræðu 21. mars
sl. Orðrétt segir hann: „Flestallar
kirkjudeildir hafa snúið baki við og of-
sótt alla þá sem eiga lifandi trú.“ Hann
talar líka um steindauðar kirkjudeildir
sem hlæja aö orði Guðs. Mér er spurn:
Hveijar em þessar kirkjudeildir? Hann
stærir sig af að hafa hinar einu réttu
opinberanir. Hverjar eru þessar opin-
beranir? Nú skilst mér að fleiri trúar-
hópar flytji boðskap sinn á Omega.
Skyldu þeir hafa sömu opinberanir og
ræðumaðurinn? Getur venjulegur ís-
lendingur treyst því að það sem flutt er
á stöðinni sé í samræmi við Guðs orð?
Þar sem mér fannst þessi ræða vekja
fleiri spumingar en svör væri fróðlegt
að fá skoðanir frá fleirum, t.d. öðrum
hópum sem flytja boðskap sinn á
Omega. Einnig hvað menn „fordæmdu
kirkjudeildanna" hafa um málið að
segja.
Ræður skólastjóri engu?
Fa&ir hringdi:
Þegar maður
les og heyrir um
að skólastjóri í
grunnskóla I
Reykjavik hafi
verið kærður til
fræðsluyfirvalda
fyrir að víkja úr
skóla hans strák
sem kærður var
fyrir árás á yngri
dreng í sama skóla stendur maður sem
eitt spurningarmerki. Ræður skóla-
stjóri engu i sínum skóla. Vill fólk ekki
aga og afnám óknytta og ofbeldis? Er
það skoðað að skólastjóri fari út fyrir
sitt verkssvið að vikja nemanda úr
skóla fyrir óknytti eða ofbeldi? Hvers
konar þjóðfélag er að myndast hér á
landi? Það er ekki von að úr rætist fyr-
ir æskunni þegar ekki má beita refsing-
um fyrir ofbeldi krakka eða agabrot af
grófu tagi.
Góðan dag, takk fyrir...
Ragnar skrifar:
Mér sýnist sem algildar kurteisis-
venjur, sem gilda hvarvetna í ná-
grannalöndunum, séu á undanhaldi
hér á landi. Þó er í flestum stærri fyr-
irtækjum, þjónustu eða verslunar,
haldið í horfinu og t.d. boðið góðan
daginn og sagt „takk fyrir“ að loknum
viðskiptum. Annað er upp á teningn-
um í ýmsum minni þjónustustofnun-
um þar sem gengið er að því vísu að
fólk þurfi að sækja þangað og fari ekki
annað. Þannig kom ég í eina slíka ný-
lega þar sem hvorki var boðið góðan
dag þegar yrt var á afgreiðslumanninn
né þakkað fyrir að greiðslu lokinni.
Þetta er ekki til að auka viðskiptin og,.
á við alls staðar. - Jafnt í fatahreins-
unum sem annars staðar.
[PV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.
Á skólalóöinni.
Leikur er eitt, of-
beldi annaö.