Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2001, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001
Fréttir
I>V
Hugmyndaríkir heimamenn og bæjarstjóri á Húsavík:
Vilja krókódílaeldi
- yrðu „endurvinnslugæludýr“ sem myndu laða að ferðamenn
Húsvíkingar eru að skoða hvort
leyfi mun fást fyrir krókódOaeldi á
Húsavík. Hugmyndin er að nýta kæli-
vatnslón undir krókódílana og ala þá
í 25-30 gráðu heitu vatni. Bæjarstjór-
inn á Húsavik segir að fyrirhugað sé
að sækja um leyfi til yfirdýralæknis
til að flytja inn krókódílaegg eða jafn-
vel litla krókódilaunga.
Hnattstaða íslands og Húsavíkur
gerir það að verkum að ísbirnir koma
frekar upp í hugann en krókódílar.
Tilraunir með krókódíla hafa þó ver-
ið gerðar á norðlægum slóðum með
ágætis árangri. Þannig hafa Húsvík-
ingar fylgst með krókódílaeldi í
Colorado í Bandarikjunum sem þykir
hafa gefist með ágætum.
“Að öllu gamni slepptu þá er þetta
þannig að við erum hér nokkrir
starfsmenn að velta þessu fyrir okkur
og það er nú aðallega vegna annríkis
-sem við erum ekki enn búnir að
kanna hvort leyfi fáist til að flytja inn
egg eða litla
unga,“ sagði Rein-
hard Reynisson,
bæjarstjóri á
Húsavík, í samtali
við DV í gær.
Upphaf málsins
má rekja til þess
að veitustjóranum
á Húsavík barst
ljósrit af grein um
eldið í Colorado
en greinin birtist
í fagblaði amer-
ísku Orkustofnunarinnar. Aðstæðum
á Húsavík svipar um margt til þeirra
sem lýst er í blaðinu. „Aukinheldur
þurfum við að losna við lífrænan úr-
ang héma, bæði frá fisk- og kjöt-
vinnslu, þannig að okkur dettur ým-
islegt í hug i þeim efnum,“ segir Rein-
hard.
- Emm við þá að tala um einhvers
konar „endurvinnslugæludýr"?
Krókódíllinn spennandi
-Húsvíkingar vilja freysta þess aö
draga ferðamenn á noröurslóöir
með því aö rækta krókódíla.
“Já, við getum kallað þau það. Þau
éta rusl og svo geta menn notið þess
að horfa á þau,“ segir bæjarstjórinn
sem telur að verkun skinna og neysla
krókódílakjöts verði í lágmarki hjá
heimamönnum þótt kjötið sé sagt
bragðgott og svipað kjúklingi.
Bæjarstjórinn segist alveg klár á
því að svamlandi krókódilar geti lað-
að að sér einhvern fjölda ferðamanna
en engum sögum fer enn af hugmynd-
um um öryggisráðstafanir. Reinhard
tekur fram að alls ekki sé ljóst hvort
af hugmyndinni verðu, enda ráði yfir-
dýralæknir að miklu leyti þeirri af-
greiðslu. En veit bæjarstjórinn til að
gin- og klaufaveiki eða kúariða hafi
komið upp í krókðdílum undanfarið?
“Nei, ætli krókódilar séu nokkuð
klaufdýr, þannig að ég er ekki hrædd-
ur við gin- og klaufaveiki og það hef-
ur ekkert frést heldur af kúariðu í
þessum dýrum!“ segir bæjarstjórinn
á Húsavík. -BÞ
Reinhard
Reynisson:
-hugar aö
krókódílaeldi.
Lögbrot bílstjóra:
Áróður hjá
Sleipni
Gunnar M. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sérleyfisbila Akureyr-
ar, kannast ekki við að atvinnurek-
endur þrýsti á bílstjóra um að vinna
meir en lög leyfa á annatímum og
stofna þar með öryggi farþega í
hættu. í DV í gær sagði Óskar Stef-
ánsson, formaður bifreiðastjórafé-
lagsins Sleipnis, að brögð væru að
þessu.
“Þetta er svona áróðursbragð hjá
Óskari, það er enn þá ósamið við þá.
Ég kannast ekki við þetta. Yflrleitt er
það þannig með bílstjórastéttina að
það þarf ekki að ýta þeim til vinnnu og
það er gömul lumma að þeir vinni allt
of mikið. Þetta er bara tiska í dag að
nota svona málflutning af því að þeir
hafa ekki náð samkomulagi við stéttar-
félög,“ segir Gunnar M. Guðmundsson.
Alvarleg slys hafa orðið undanfar-
ið þar sem ýmsar reglur hafa verið
brotnar og m.a. hefur tilskilinn
hvíldartími ekki verið virtur. Fram-
kvæmdastjóri SBA segir hins vegar
að vandinn liggi á öðrum sviðum.
Hann segir málið ekki snúast um að
bílstjórar séu ofhlaðnir störfum yflr
hásumarið. Menn ættu fremur að
horfa til hins almenna öryggisþáttar
svo sem herða ráðningarskilyrði á
starfsmönnum. -BÞ
Stökkpallur á leió á Arnarhól
Hafist var handa í gær viö smíöi stökkpalls fyrir snjóbrettastökkmót sem haldið veröur á Arnarhóli. Þessir rösku smiö-
ir, Guömundur og Guöjón, voru aö störfum inni í Laugardal í gær þar sem þeir höföu sett upp
smíöaverkstæði utandyra. Pallurinn veröur síöan fluttur niöur á Arnarhól í dag en mótiö fer fram á morgun, fimmtu-
dag, kl. 20. Valdir hafa veriö 7 strákar og 3 steipur til þátttöku og má búast viö haröri keppni, enda er hér um úrval
bestu brettamanna landsins aö ræöa.
Starfsmannafélag Akureyrabæjar felldi kjarasamninginn:
Stuttar fréttir
Útvegsmenn semja ekki
Grétar Mar Jóns-
son, formaður Far-
manna- og Fiski-
mannasamband ís-
lands, segist viss um
að útvegsmenn ætli
sér ekki að semja
heldur ætli að fá sett
lög á kjaradeilu sjó-
manna. Hann segir samningaviðræður
hjá ríkissáttasemjara tímasóun. - Vis-
ir.is greindi frá.
Einkaleikskólar fá styrk
Borgarráð samþykkti í dag tillögu
leikskólaráðs um að greiða einkarekn-
um leikskólum húsnæðisstyrk. Styrk-
urinn verður greiddur mánaðarlega og
nemur hann tæplega 400 krónum á fer-
metra.
Keikó úr kvínni
Háhymingurinn Keikó verður flutt-
ur út fyrir Vestmannaeyjar um mán-
aðamótin apríl/maí. Reyna á að láta
hann dvelja lengur en áður utan
Klakksvikur, á háhymingaslóðum.
Sjúkiingar á göngum
Sex sjúklingar lágu á gangi hjarta-
deildar (B-7) Landspítalans í Fossvogi i
morgun, þar af einn í hægindastól.
Þetta hefur verið viðvarandi ástand á
deildinni í tvö ár eftir að einni af
þremur lyflækningadeildum sjúkra-
hússins var lokað. - RÚV greindi frá.
Sendiherra Rússa á teppið
Rússneski sendi-
herrann í Reykjavík
var kallaður í utan-
ríkisráðuneytið síð-
degis eftir að íslensk
stjómvöld höfðu
fengið það staðfest að
Rússar hefðu sett
allsherjarinnflutn-
ingsbann á matvæli, þar með talið fisk
og fiskafurðir hvers konar.
Skiðakappa gengur vel
Guðmundur Eyjólfsson gekk á
þremur dögum frá Brú í Hrútafirði til
Hveravalla. Hann er einn á skíðum á
leið úr Homvík til Vopnafjarðar. Á
fóstudaginn var hvíldist Guðmundur á
Brú eftir erfiða ferð úr Homvík. Guð-
mundi hvíldi sig á Hveravöllum í gær.
Gjaldþrotum fækkar
Gjaldþrotum einstaklinga hefur
fækkað á undanfómum árum að þvi er
fram kom í svari Sólveigar Pétursdótt-
ur dómsmálaráðherra við fyrirspum
Jóhönnu Sigurðardóttur þingmanns
Samfylkingarinnar.
Samstarfið í óvissu
Nýir kjarasamningar Starfsmanna-
félags Akureyrarbæjar, sem áttu að
gOda frá 1. janúar sl., vom felldir i at-
kvæðagreiðslu félagsmanna um helg-
ina. í STAK era 320 félagsmenn, 62%
þeirra greiddu atkvæði um samnings-
tilboðið. 57% sögðu nei, 38% já en 3%
seðla vora auð svo skilaboð félags-
Doppa, Eyja, Flekka, Kotlaug,
Ópera, Skjalda, Skál og Skrauta era
nöfn þeirra 10 heppnu ungkúa sem
komast i undanúrslit í keppninni um
titilinn Ungfrú Gateway 2001. Alls tóku
65 kýr frá 52 bæjum þátt í forvali.
Kýmar era metnar út frá því hversu
líkar þær era Gateway-kúnni frægu
sem er fyrirmynd að vöramerki
Gateway-tölvufyrirtækisins. Að auki
verða kýmar vegnar út frá fagurfræði-
legu sjónarhorni sem og nyt, hvernig
þær era í mjöltun og skapgerð.
Af því tilefni hefúr verið opnuð ný
heimasíða keppninnar þar sem al-
manna STAK era mjög afgerandi.
Samningar Kjamafélaga, en Kjami er
samflot nokkurra bæjarstarfsmannafé-
laga sem klufu sig út úr Samfloti bæj-
arstarfsmanna, era í atkvæðagreiðslu
um þessar mundir. Húsavík, Siglu-
fjörður og Seltjamarnes hafa sam-
þykkt Kjamasamningmn en enn á eft-
menningi gefst færi á að fara inn og
kjósa. Þar era litmyndir af kúnum og
ýmsar upplýsingar um þær. Menn geta
valið sigurvegara í fyrstu þrjú sætin.
Síðan er vistuð hjá Aco í Skaftahlíð og
er slóðin www.aco.is. Landsmenn geta
tekið þátt i valinu á heimasíðunni til 5.
apríl. Hinar tíu heppnu og umboðs-
menn þeirra fá ýmis verðlaun, svo sem
hreinlætispakka, júgúrúða og kjam-
fóður auk plakats með myndum af ís-
lenskum kúm. Ungfrú Gateway 2001
verður svo valin þann 6. apríl og færir
Aco henni og eiganda hennar tölvu frá
Gateway að verðmæti 180.000 kr.
ir að fjalla um hann og greiða atkvæði
á ísafirði. Ekki er vitað hvaða afleið-
ingar þessi niðurstaða hefur á Kjama-
samstarfið en talsmaður Kjama er for-
maður STAK, Ama Jaköbína Bjöms-
dóttir. Samflot sex bæjarstarfsmanna-
félaga SSB mun hefja samningavið-
ræður við SNR væntanlega eftir helgi.
SSB mun einnig eiga fund með LN
þann 28. mars nk. Fulltrúar SSB munu
hittast á mánudag eftir fund með SNR
til frekari undirbúnings gagnvart LN.
Ama Jakobína Bjömsdóttir, for-
maður STAK, segir enga ákvörðun
hafa enn verið tekna um næsta skref í
kjarasamningamálum, hvorki hvemig
né hvenær. Gamli kjarasamningurinn
verður því áfram í fullu gildi. STAK
hafði samflot með nokkrum öðrum
starfsmannafélögum sem kusu að kalla
sig Kjama og er Ama Jakobína tals-
maður þeirra en í Samfloti bæjar-
starfsmanna verða áfram allnokkur
bæjarstarfsmannafélög. Ama Jak-
obína segir engin áform um að að
ganga til samstarfs við Samflot og hún
viti heldur ekki hvaða áhrif þetta hafi
á Kjamasamstarfið. Samningurinn er
kynntur hjá síðustu félögunum í vik-
unni og á meðan fást efnisatriði hans
ekki uppgefm.
„Fólk hafði meiri væntingar til
beinnar launahækkunar i krónutölu
og við í forystusveit félagsins vissum
af þeim væntingum en samningurinn
innihélt margt annað og við vildum at-
huga hvort það væri ásættanlegt. Það
reyndist svo hreint ekki vera. Þessi
staða er nú rædd á vinnustöðunum en
við munum svo hittast í næstu viku og
taka þá ákvörðun um hvemig og
hvenær við fórum af stað,“ segir Ama
Jakobína Bjömsdóttir.
Aðspurð hvort óánægjan með samn-
inginn beindist að einhverju leyti gegn
henni sem formanni taldi Ama Jak-
obína það ekki vera. „Enda væra það
auðvitað snarvitlaus viðhorf því aðal-
fundur hvers félags á að takast um for-
ystuna, menn eiga ekki að gera það í
gegnum kjarasamninga. Þetta era hins
vegar skýr skilaboð til okkar viðsemj-
enda um að þeir hafi ekki boðið nógu
vel.“ -GG
I hrakningum á Vatnajökli
Tveir jeppar með níu manns innan-
borðs lentu í hrakningum á Vatnajökli
í gærkvöld og vora bílamir orðnir ol-
íulitlir. Björgunarsveitin á Höfn var
kölluð út og fór hún með olíu á bílana
sem vora þá staddir á Skálafellsjökli,
um 3 km frá Jöklaseli.
Haldið til haga
í grein sem birtist í DV i gær um
fikniefnaleit í heimavist Fjölbrauta-
skólan Norðurlands vestra féll út að
um samstarfsverkefni á milli heima-
vistarinnar, tollgæslunnar, lögregl-
unnar á Sauðárkróki og Ríkislögreglu-
stjóra var að ræða. Jafnframt er rétt að
taka það fram að tollverðir komu frá
höfuðborgarsvæðinu með leitarhunda
en ekki rannsóknarlögreglan, eins og
sagði í greininni.
I grein sem birtist í DV í gær um ósk
um lögreglurannsókn á öðru flugi
Leiguflugs ísleifs Ottesens ehf. daginn
sem flugvél flugfélagsins fórst í Skerja-
firði í ágúst siðastlðnum komu fram
rangar upplýsingar um sætisskipan far-
þega. Hið rétta er að bamshafandi kona
sat í sæti, unnusti hennar sat óspenntur
á gólfinu og dóttir flugstjórans sat
óspennt í fangi unnusta síns. -HKr.
10 kýr keppa í fegurð