Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2001, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2001, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 Akureyri-Norðurland 7 DV Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og Urður, Verðandi, Skuld: Samstarf um krabba meinsrannsóknir MYND BRINK Viö undirritun samningsins F.v.: Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri hjá Uröl, Veröandi, Skuld, Halldór Jónsson, framkvæmda- stjóri FSA, og Þorvaldur Ingvarsson, lækningaforstjóri FSA. Undirritaður var í gær samn- ingur milli Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri og líftæknifélags- ins Urðar, Veröandi, Skuldar og fjallar hann um væntanlegt sam- starf þessara aðila í Islenska krabbameinsverkefninu. Samning- urinn er gerður í framhaldi af samstarfssamningi FSA og UVS frá 5. október 1999. Samingurinn er til 12 ára. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs- son, framkvæmdastjóri UVS, sagði m.a. við undirritun samningsins að hann væri liður í viðamiklum rann- sóknum á krabbameini á íslandi þar sem markmiðið væri að leita skýringa á hækkandi tíðni krabba- meins og betri meðferðarúrræða við sjúkdómnum. Verkefnið nefndist „íslenska krabbameinsverkefnið" en í því felast m.a. rannsóknir á líf- sýnum úr einstaklingum með krabbamein og skyldmennum þeirra. Áhersla verður lögð á að skilgreina þau líffræðilegu ferli sem tengjast myndum krabbameins en slíkar upplýsingar geta nýst við þró- un nýrra lyfja og greiningaraðferða i tengslum við krabbamein. Rann- sóknir munu í upphafi beinast að krabbameini i brjóstum, legi, leg- hálsi, eggjastokkum, nýrum, þvag- blöðru, eistum, blöðruhálskirtli, skjaldkirtli, vélinda, maga, lifur og galli, brisi, ristli og endaþarmi. í tengslum við samniriginn mun FSA sækja um starfsleyfi til heil- brigðisráðuneytisins til að stofna „Lifsýnasafn FSA.“ Leitað verður eftir skriflegu samþykki þeirra sjúklinga á FSA sem hafa áhuga á aö taka þátt í íslenska krabbameins- verkefninu en slíkt skriflegt sam- þykki heimilar jafnframt varðveislu lífsýna í Lífsýnasafni FSA og Líf- sýnasafni UVS. Samningurinn tak- markar ekki möguleika annarra til rannsókna á krabbameini eða að- gangs að Lífsýnasafni FSA að því tilskildu að rannsóknaraðilar leiti eftir skriflegu samþykki lífsýna- gjafa og að rannsóknaráætlanir þeirra séu samþykktar af Visinda- siðanefnd og persónunefnd. Lífsýna- safn FSA útheimtir sérstakt hús- næði og sérhæfðan tækjabúnað og það skapar nokkur störf við FSA. Um þessar mundir gefa að jafnaði 30 aðilar á dag blóð til að taka þátt í ís- lenska krabbameinsverkefninu en um 7.000 íslendingar eru á lífi i dag sem greinst hafa með krabbamein. Þorvaldur Ingvarsson, lækninga- forstjóri FSA, sagði að samningur- inn væri mikilvægur, hann þróaði og þroskaði alla starfsemi FSA um leið og hann stuðlaði aö aukinni þjónustu við krabbameinssjúklinga á svæði FSA. -GG Merkileg tilraun gerð í Eyjafjarðarsveit: Seyru úr rotþróm breytt í áburð Lífríki Eyjafjaröarár mun ekki stafa nein hætta af þessari tilraun með seyruna. Spáin stóð! Marsspá Veðurklúbbsins á Dal- bæ Dalvík gerði ráð fyrir að eftir 25. mars yrði að vænta breytinga og líklegt væri að vindur yrði meira i norðlægum áttum. Þann 25. mars kviknaði nýtt tungl í há- norðri á boöunardegi Maríu, páskatunglið, og þá gerði Veður- klúbburinn ráð fyrir einhverri snjókomu eða hríðargeyfu um ein- hvern tíma, jafnvel fram að pásk- um. Sú spá virðist ætla að standa. Ef votviðri er riddaradaginn (9. mars) verður gott sumar en hart ef frost er þann dag. Það sem viðrar á boöunardag Maríu (25. mars) mun oftast standa í 30 daga, aðrir vilja meina í 14 daga. Á sunnudag- inn síðasta var sem kunnugt er nokkur gaddur norðanlands en bjart. -GG Akureyri: Framkvæmdir í Borgarhverfi DV, AKUREYRI: Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa ákveðið að taka tilboði frá GV-gröfum í gatnagerðarframkvæmdir í hinu nýja Borgarhverfi. Borgarhverfi er nýjasta íbúðahverf- ið á Akureyri og verður í slakkanum sunnan Borgarbrautar vestan við verksmiðjumar á Gleráreyrum. Húsin verða byggð þar í hlíðinni og verður útsýni frá þeim án efa mjög skemmti- legt - út allan Eyjafjörð og til fjaila bæði í vestri og austri. í hverfinu verða 119 lóðir fyrir einbýlishús og 36 raðhúsaíbúðir. GV-gröfur bauðst til að vinna gatna- gerðina fyrir 31 milljón króna sem var ekki nema 67% af kostnaðaráætlun. Gatan Klettaborg sem nú er fyrir ofan verksmiðjuhúsin á Gleráreyrum verð- ur framlengd og mun ganga í gegn um nýja hverfið allt vestur að Dalsbraut sem á að tengjast Borgarbraut. -gk DV, AKUREYRI:_________________________ „Þetta er brautryðjandastarf hér á landi og að mínu mati merkileg tilraun. Sorpeyðing Eyjafjarðar hefur kynnt sér hvemig staðið hefur veri að svona mál- um bæði í Færeyjum og Danmörku. Gámaþjónusta Norðurlands sem verður verktaki við þetta hefur kynnt sér þetta líka sérstaklega. Þetta er afmörkuð til- raun sem fer fram á Möðruvallareyrun- um en vonandi gengur þetta vel og vind- ur upp á sig í framtíðinni. Þá hætti menn að farga þessum verðmætum og nýti þetta til þess að bæta jarðveg og til uppgræðslu á stöðum sem em afsíðis og afgirtir!" segir Alfreð Schiöth, heiibrigð- isfullriúi í Eyjafirði, um tilraun sem er að hefjast með móttöku og hreinsun á seyru í Eyjafiarðarsveit en um að ræða tilraunavekefhi til tveggja ára. Farið í öll hús Þetta er í fyrsta skipti sem tilraun á þessu sviði er gerð hér á landi. Farið verður í rotþrær við öll íbúðarhús í Eyjafiarðarsveit og dælt úr þeim á tank- bíla. Bíiunum verður síðan ekið á Núp- áreyrar í landi Möðruvaiia, þar verður dælt úr þeim og seyran kalkblönduð. Seyrunni verður síðan komið fyrir þar og hún geymd þar til hún hefur „brotið sig niður“ og verður tilbúin sem áburð- ur. Almenn sátt virðist um þessa starf- semi í Eyjafjarðarsveit þótt henni kunni að fylgja einhver mengun, reiknað er með að um ólykt geti orðið að ræða timabundið, t.d. á meðan blöndun kalks í seyruna stendur yfir. Greinir á um staðsetningu Staðsetning fórgunarsvæðisins er nánast eina atriðið sem einhver ágreiningur er um og hefur t.d. íbúi sem býr ekki langt frá fórgunarstaðn- um lýst yfir áhyggjum sinum vegna þess að seyran eigi að liggja þarna í gömlum árfarvegi. Alfreð Schiöth heil- brigðisfúlltrúi var spurður út í þetta og þá í leiðinni hvort Eyjafjarðará sem er þama skammt frá stafaði einhver hætta vegna afrennslis frá förgunar- staðnum.„Þetta verður þarna á Möðru- vallareyrunum en ekki í neinum árfar- vegi. Það er algjörlega rangt að segja það. Gamall árfarvegur er þama sunn- an við en seyran verður ekki í honum. Mér er kunnugt um að einn nágranni hefur gert athugasemd við staðsetning- una og fullyrt þetta en það er ekki rétt. Það hefur hinsvegar einhvem tíma flætt þama vatn en þetta er ekki árfar- vegur,“ segir Alfreð. Engin hætta Um það hvort Eyjafiarðará stafi ein- hver hætta af þessari starfsemi segir Alfreð að það sé ekkert þannig að það sé algjörlega hættulaust. „Það sem get- ur gerst er að áburðarefhi berist ofan í jarðveg og næsta víst að grunnvatns- streymi frá þessum stað nái til Eyja- fiarðarár. En það er þá ekki annað en hliðstæöa þess sem gerist með allan húsdýraáburð sem borinn er á öll tún í Eyjafiarðarsveit eða hvar sem er í þúsunda tonna tali. Ég tel ekki að þetta sé nein hætta fyrir lífríki Eyjafiarðar- ár en auðvitað getur þama orðið við- bót á köfnunarefni og fosfór sem berst i ána. Hann segir svæðið á eyrunum muni verða vel varið bæði meö girð- ingu og yfirbreiðsludúk og þá segir hann að vel mætti hugsa sér að tryggja staðinn með lágum jarðvegsgarði um- hverfis haugstæðið og það komi mjög vel til greina.“ -gk Hyundai Sontar GLSi 05/95, hvítur, ssk., ek. 135 þús. km, útvarp/kassettut., rafdr. rúður og speglar, samlæsingar. Verð 590.000. Tilboð 480.000. Ford Escort CLX st. '97, blár, 5 g., ek. 62 þús. km, útvarp/kassettut., rafdr. rúður, samlæsingar. Verð 710.000. Tilboð 590.000. Nissan Almera GX1400 '98, svartur, 5 g., ek. 42 þús. km, rafdr. speglar og rúður, samlæsingar. Verð 900.000. Tiiboð 690.000. Nissan Almera LX1400 '99, grænn, 5 g., ek. 21 þús. km, útvarp/kassettut., samlæsingar, loftp. Verð 940.000. Tilboð 790.000. Subaru Impreza GT turbo '99, svartur, 5 g., ek. 21 þús. km, álfelgur, rafdr. rúður og speglar, samlæsingar, spoiler, leðursæti. Verð 2.060.000. Peugeot 4061800 ‘97 ,rauður, 5 g., ek. 106 þús. km, útvarp/kassettut., samlæsingar, loftp. Verð 950.000. Tilboð 790.000. Honda Civic 1,4 iS 04/97, grænn, 5 g., ek. 70 þús. km, útvarp/kassettut., rafdr. rúður, speglar og loftnet, ABS.samlæs., þjófavörn, spoiler. Verð 890.000. BÍLASALAN <S> SKEIFAN • BILDSHOFÐA 10 • S: 577 2800 / 587 1000 Akureyri: BHasalan Os - Hjalleyrargotu 10 - Simi 462 1430

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.