Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2001, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2001, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 9 DV Fréttir Vegaskemmdir Einar Freyr Magnússon 10 ára, stendur á veginum niöur á Dyrhólaey þar sem Dyrhólaós er langt kominn meö aö grafa hann í sundur. Vinsæl ferðamannaleið lokast: Vegurinn í Dyrhólaey er nánast uppétinn DV, VlK I MÝRDAL: „Ósinn er uppi sem viö köllum, út- fallið úr honum hefur lokast," sagði Jón Hjálmarsson hjá Vegagerðinni í Vik um lokun á veginum að Dyrhóla- ey. Þama er Dyrhólaós langt kominn með að éta garðinn upp til agna á næstum 200 metra kafla og þar með er öllum bílum ófært á Dyrhólaey. Jón segir að þetta ástand hafi varað undan- famar vikur og ekki óvenjulegt að vatnið í ósnum skemmi veginn, þegar íshrannir skella á honum í rokinu. Framundan er að gera við veginn þeg- ar ósinn hefur náð eðlilegri hæð. í ós- inn renna þrjár litlar bergvatnsár. Reynir Ragnarsson, yfirlögreglu- Lokað Dyrhólaeyjarvegur lokaöur rétt viö bæinn Loftsali í Dyrhólahverfi. þjónn í Vík, sagði fréttamanni DV að lögreglan þyrfti oft að fara til að að- stoða bíla sem lent hafi í vandræðum á þessum slóðum. Vegurinn er samt lok- aður rétt við bæinn Loftsali. -SH/JBP Glæsilega hönnuð og kraftmikil hljómtækjstæða með 2x100W útgangsmagnara, Power Bass hátalara og funkyblárri baklýsingu. Einingar sem auðvelt er að taka sundur, gegnsætt lok fyrir CD spilara og allt það sem þú vilt hafa í alvöru hljómtækjastæðu og meira til. — » HLJOMTÆKI Lágmúla 8 • Sími 530 2800 Misbrestur á Schengen-tilkynningaskyldu erlendra skipa: Flutningaskip nærri lent upp í fjöru - sigldi án vitundar yfirvalda inn í íslenska landhelgi Norska flutningaskipið Arold Var nærri lent upp í fjöru á Djúpavogi á mánudag DV-MYND RAGNAR EIDSSON Einhverjir hnökrar virðast vera á Schengen-samstarfinu varðandi kom- ur erlendra skipa til landsins. Þannig kom norska flutningaskipið Arold óvænt til Djúpavogs á mánudags- morgun án þess að yfirvöld vissu nokkuð um ferðir þess í íslenskri landhelgi. Þá gátu skipverjar með naumindum foröað skipinu frá strandi er þeir renndu að landi án þess að leita aðstoðar hafnsögumanns. Að sögn sjónarvotts mátti engu muna að illa færi þegar skipið kom til Djúpavogs rétt fyrir klukkan 11 í gær- morgun. Skipið kom þangað til að sækja 630 tonn af fiskimjöli hjá Gauta- vík. “Þeir voru rétt komnir upp í harða grjót,“ sagði sjónarvottur. „Það var hásjávað og skipið tómt og það bjarg- aði skipinu frá því að rekast á sker sem þarna eru.“ Skipstjórinn hafði hvorki tilkynnt sig inn í landhelgi eins og nýjar reglur um Schengen- samstarf gera ráð fyrir né kallaði hann eftir aðstoð frá hafnsögumanni. Það var ekki kallað í lóðs fyrr en skip- verjum hafði tekist að snúa frá eftir að hafa nærri strandað skipinu sem er um 60 metrar að lengd. Stefán Guðmundsson hafnarvörður segir allan gang á því hvort menn biðji um aöstoð við að komast að bryggju. „Þeir ætluðu að koma lóðs- lausir inn en það gekk nú ekki hjá þeirn," sagöi Stefán. Þegar hann sá hvernig málum var komið ákvað hann sjálfur að fara um borð. Eftir það hefði gengið áfallalaust að koma skipinu að bryggju. Frá elnum til annars Tilkynningaskylda íslenskra skipa upplýsti að Landhelgisgæslan færi með mál er varðaði tilkynninga- skyldu erlendra skipa i íslenska lög- sögu. Starfsmaður Landhelgisgæsl- unnar staðfesti það í samtali við DV að skipið hefði ekki tilkynnt sig inn í íslenska landhelgi eins og reglur gera ráð fyrir. Vitneskja um skipið hefði borist eftir að það var komið að bryggju. Gæslumönnum hafði þá held- ur engin vitneskja borist um vand- ræði skipsins við að leggjast að bryggju. Hjá utanríkisráðuneytinu vísuðu menn hver á annan þar til bent var á starfsmann í dóms- og kirkjumálaráðuneyti sem sjá ætti um þessi mál. Þar var hins vegar bent á að málið hefði komið til kasta embætt- is Ríkislögreglustjóra. Þar var fyrir svörum Smári Sigurðsson. Hann sagði reglurnar um upplýsingaskyldu skipa mjög skýrar. í reglugerð sem gefin hefur verið út stendur m.a.: “Stjórnandi skips á leið til landsins yfir ytri landamæri skal tilkynna Landhelgisgæslu íslands um komu minnst 12 klukkustundum áður en siglt er inn í landhelgina. Á sama tíma skal einnig tilkynna áætlaða brottfór. Staðfesting á brottfór úr höfn skal tilkynna Landhelgisgæslunni að minnsta kosti sex klukkustundum fyr- ir brottfór." Smári segir að Landhelgisgæslan komi tilkynningum til Schengen-skrif- stofu hjá Ríkislögreglustjóra. Þar eru bornar saman upplýsingar sem fram koma um skip og áhöfn við upplýs- ingakerfi Schengen. Þá er viðkomandi lögreglustjóra, þar sem skipið kemur að landi, tilkynnt um niðurstöðu þess samanburðar. Þeim lögreglustjóra er síðan í sjálfsvald sett hvort hann framkvæmir frekara persónueftirlit eða ekki. Smári segir þetta þó algjör- lega óháð tollaeftirliti. Geta komiö án vitundar yfir- valda Smári viðurkennir að þrátt fyrir aukið eftirlit Schengen-samstarfs sé til í dæminu að skip geti eftir sem áður komið hingað án vitneskju ís- lenskra yfirvalda. Að sögn Smára var haft samband við skipverja á norska skipinu Arold og þótti þeim mjög leitt að hafa ekki tilkynnt sig. Þeir höfðu ekki áttað sig á breytingunum. Engin viðurlög eru þó við því ef tilkynning misferst. Norska skipið átti síðan að láta úr höfn eftir lestun á mjölinu á Djúpa- vogi. -HKr. DV-MYND GUNNAR KRISTJÁNSSON Frá löndun í Grundarfiröi Rótfiskirí á línuna: Skreppa heim í mat áður en þeir fara að vitja um DV, Grundarfiröi:_____________ Það er líflegt við höfnina þótt stóru skipin liggi bundin við bryggju og annar dagur í verkfalli. Smábátamir í Grundarfirði hafa verið að róta upp fiski á línu á firð- inum og ekki spillir veðráttan. Þeir geta farið og lagt línurnar í nokkurra mínútna stím frá bryggju. Síðan er skroppið í land í mat áður en þeir fara aftur út og vitja um. -DVÓ/GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.