Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2001, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 Útlönd DV Setlð á kjarnorkulestinni Kjarnorkuandstæöingur gefur sigur- merkiö meö fingrunum þar sem hann situr ofan á umdeildri lest sem flytur kjarnorkuúrgang. Stöðvuðu járn- brautarlest með kjarnorkuúrgang Kjarnorkuandstæðingum í norð- urhluta Þýskalands tókst í nótt að stöðva ferð jámbrautarlestar með geislavirkan úrgang um borð með því að hlekkja sig við brautartein- ana, þrátt fyrir mikla öryggisgæslu í kringum lestina. Lögreglan skar mótmælendurna hins vegar lausa og notaði til þess miklar borvélar. Lestin umdeilda flytur nokkra gáma af endurunnu kjamorkuelds- neyti úr þýskum kjarnorkuverum aftur til Þýskalands frá Frakklandi. Svo mikill fjöldi lögregluþjóna sá um að vernda lestina að annað eins hefur ekki sést á friðartímum. Gámana á að flytja til Gorleben. Tölvumynd af Jesú Breska sjónvarpsstööin BBC hefur látiö gera nýtt andlit afJesú í tölvu. Stuöst var viö ýmsar fornleifar. Jesú gefið nýtt andlit í tölvu Breska sjónvarpsstöðin BBC hef- ur með því að láta gera tölvumynd- ir af höfuðkúpum gyðinga frá fyrstu öld eftir Krist skapað nýtt andlit á Jesú. Nýja útlitið er öðruvísi en við erum vön. Á tölvumyndinni er frels- arinn ekki með sítt hár, ljóst hör- und og blá augu heldur með dökkt hár og dökk augu og stuttklippt skegg. Búist er við að heitar umræð- ur verði um þáttaröð BBC um son guðs sem útsendingar hefjast á 1. apríl næstkomandi. Samkvæmt breska blaðinu The Guardian hefur auk höfuðkúpanna verið stuðst viö ýmsar fornleifar og lágmyndir frá Sýrlandi til þess að tölvumyndin af andliti Jesú yrði sem nákvæmust. UPPBOÐ Uppboð mun byrja á skrifstofu embættislns að Bjarnarbraut 2, Borgarnesi, sem hér segir á eft- Irfarandi eign: Helgugata 4, Borgamesi, þingl. eig. Guðni Haraldsson, gerðarbeiðandi sýslu- maðurinn í Borgamesi, föstudaginn 30. mars 2001, kl. 10. SÝSLUMAÐURINN í BORGARNESl Þrír fórust í sprengjutilræði í ísrael í morgun: Skæruliðar Hamas játa á sig ódæðið Hernaðararmur skæruliðasam- takanna Hamas lýsti í morgun yfir ábyrgð sinni á sprengjutilræðum í ísrael, þar á meðal tilræði í morgun þar sem þrír týndu lífi, og sagði að fleiri sjálfsmorðsárásir væru í bí- gerð. Sjálfsmorðsárásarmaður varð sjálfum sér og tveimur öðrum að bana í morgun þegar hann gekk að hópi ungmenna sem biðu eftir skólarútu í miðhluta ísraels, ekki langt frá landamærunum að Vestur- bakkanum. Björgunarsveitarmenn sögðu að þrjú ungmenni á aldrinum tólf til fimmtán ára hefðu slasast alvarlega í tilræðinu og að einn hefði fengið lítils háttar áverka. Sprengjan sprakk nærri bensínstöð við Newe Yamin, skammt frá ísraelska bæn- um Kfar Saba. Naglar úr sprengj- unni stungust inn í ungmennin. Sprengjan í morgun fylgdi í kjöl- far tveggja sprenginga í Jerúsalem í gær þar sem þrjátíu slösuðust og Breitt yfir líkið ísraelskir lögregluþjónar þreiöa yfir líkamsleifar manns sem sprengdi sig í tætlur viö biöstöö strætisvagns í Jerúsalem í gær og særöi 22. þar sem einn maður fórst. Lögregl- an sagði að það hefði verið sá sem bar sprengjuna. ísraelska lögreglan sagði að fyrr í morgun hefði sprengja verið gerð óvirk nærri markaðstorgi í strand- bænum Netanya. Nissim Trasidi var í bil sínum í aðeins um eitt hundrað metra fjar- lægð þegar sprengjan sprakk við Newe Yamin í morgun. „Ég heyrði allt í einu mikla sprengingu og ég bara fraus. Þetta var virkilega öflug sprenging,“ sagði Trasidi í viðtali við ísraelska útvarpið í morgun. Bandarikin beittu í nótt neitunar- valdi sínu i Öryggisráði SÞ til að fella tillögu um að stofnuð yrði al- þjóðleg eftirlitssveit til að vernda óbreytta borgara á Vesturbakkan- um og Gaza. Níu ríki greiddu at- kvæði með tillögunni, fjögur sátu hjá og Bandaríkjamenn voru einir á móti. Fulltrúi Bandarikjanna sagði að tillagan hefði verið óráðleg. Lestarslys i Belgíu Átta létu lífiö og níu slösuöust þegar tvær farþegalestir rákust á í suöurhluta Belgíu í gær. Annar lestarstjóranna, sá sem ók mannlausri lest, er sagöur hafa veriö á röngu spori auk þess sem hann hirti ekki um viövörunarljós. Báöir lestarstjórarnir voru meðal þeirra sem létu lífiö. Táningur, sem var farþegi I hinni lestinni, kvaöst ekkert hafa vitaö af árekstrinum fyrr en hann steig út. Makedóníustjórn varar við skæruhernaði í borgunum Stjómvöld í Makedóníu sögðu í gær að sæi fyrir endann á neyðarástand- inu í borginni Tetovo eftir að stjórnar- herinn stökkti albönskum skærulið- um í hæðunum í kring á flótta. Ráða- menn vöruðu þó við hættunni á borg- arskæruhernaði. „Ég vona að þetta ófremdarástand sem við höfum unnið bug á muni að- éins skilja eftir sig lítils háttar ör til að minna á sig,“ sagði Antonio Milosovski, talsmaður ríkisstjómar- innar, á fundi með fréttamönnum i höfuðborginni Skopje. Hann sagði að ekki væri útlit fyrir annað en að líf myndi senn færast í eðlilegt horf og að hægt yrði að halda áfram viðræðum á pólitískum nótum. Talsmaður innanríkisráöuneytis- ins, Stevo Pendarovski, sagði hins vegar að menn skyldu ekki gera sér of miklar gyllivonir um að allt væri af- Talað í farsímann við Tetovo Makedónskur lögregluþjónn talar í farsímann sinn í hæöunum fyrir ofan borgina Tetovo. staðið. „Það er enn hætta á borgarhryðju- verkum," sagði Pendarovski. Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, heimsótti Tetovo fyrstur vestrænna embættis- manna í vikubyrjun og sagði við það tækifæri að best væri fyrir albönsku skæruliðana að leggja niður vopn. Makedónski herinn hóf stórsókn gegn skæruliðum i hæðunum fyrir of- an Tetovo á sunnudag og hrakti þá á brott frá stöðvum þar sem þeir höfðu haldið til í tólf daga. Friðargæsluliðar í Kosovo sögðu í gær að þeir hefðu tekið i sína vörslu átján menn af rúmlega eitt hundrað sem komu yfir landamærin frá Makedóníu og sögðust tilheyra al- bönskum skæruliðahópi þar. Átján- menningarnir voru hnepptir í varö- hald af því að þeir voru vopnaðir. Neitar að bera vitni Franski dómar- inn, sem rannsakar ásakanirnar um að flokkur Jacques Chiracs forseta hafi tekið við mútum gegn bygginga- samningum, hefur kallað forsetann sem vitni í málinu. Forsetinn neitar að koma í vitnastúku. Búddamunkar fíklar Tíundi hver búddamunkur í Taílandi hefur leitað sér aðstoðar vegna flkniefnaneyslu. Munkarnir eru alls 300 þúsund. Sex prósent þjóðarinnar eru háð fikniefnum. Gíslum sleppt Sex hjálparstarfsmönnum, sem byssumenn rændu í Sómalíu í gær, var sleppt í morgun. Fíórir gíslar voru í morgun enn í haldi ræningj- anna. Zapatistar í þingsal Fjórir grímuklæddir leiðtogar zapatista í Mexíkó munu í dag stíga í ræðustól á þingi og hvetja þing- menn til að samþykkja tillögur um stjórnarskrárbreytingar sem veita frumbyggjum aukna sjálfstjórn. Stefna Bandaríkjunum Hópur gyðinga, sem lifði af hel- forina, krefst nú 40 milljarða dollara af Bandaríkjunum fyrir að hafa ekki varpað sprengjum á Auschwitz í seinni heimsstyrjöldinni. Fordæmir þingræðu William Hague, leiðtogi íhalds- flokksins á Bret- landi, fordæmdi í gær ummæli eins þingmanna sinna um innflytjendur. John Townend sagði að innflytj- endur hefðu grafíð undan hinu eins- leita engilsaxneska þjóðfélagi. Sprengt í Aþenu Öflug sprengja sprakk skömmu eftir miðnætti í úthveri í Aþenu. Sprengjunni hafði verið komið fyrir í bíl utan við herstöð, að sögn lög- reglu. Rútubílstjóri kærður Lögreglan i Kaupamannahöfn hefur kært 22 ára rútubílstjóra fyrir manndráp af gáleysi í kjölfar slyss- ins við Knippelsbrú í febrúar. Tveir létu lífið er þak rútunnar rifnaði af. íhugar dauðarefsingu John Ashcroft, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, kvaðst í gær vera að íhuga að fara fram á dauðarefs- ingu yfir Robert Hanssen sem sak- aður er um njósnir fyrir Rússa. Hanssen seldi Rússum leyndarmál síðustu 15 árin af þeim 25 sem hann var i þjónustu bandarísku alríkislögreglunnar. Eldgos á La Réunion Eldgos varð í gær á frönsku eyjunni La Réunion í Indlandshafi. Spúði eldfjallið Piton de la Fournaise upp hrauni úr Dolomieu- gígnum. Eldfjallið gaus síðast í október í fyrra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.