Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2001, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001
Skoðun
DV
Mistúlkun á náðinni
Móöir Teresa
„Fékk mikla athygli sem hún þó bað ekki um. “
Áttu erfitt með að vakna á
morgnana?
Ómar Snævar Friðriksson nemi:
Ekkert mál, vakna kl. 4.30 og fer á
sundæfingu og hef gert síöustu
fimm ár.
Anna Ósk Óskarsdóttir nemi:
Já, frekar, ég fer of seint aö sofa á
kvöldin og sef stundum yfir mig.
Láki Jónsson nemi:
Engan veginn, reyki ekki og er
hraustur drengur.
Berglind Gísladóttir nemi:
Ekkert mál aö vakna á morgnana,
fer samt seint aö sofa á kvötdin.
Alexander Úlfsson nemi:
Nei, alls ekki, vakna viö fyrstu hring-
ingu í klukkunni.
Rut Guðnadóttir nemi:
Stundum erfitt, ekki alltaf. Þaö er
bara svo gott aö sofa.
Þorsteinn Hákonarson
skrlfan
Á hinu kristna menningarsvæöi
eru tvær túlkanir á náð guðs í reynd.
Annars vegar að njóta þeirrar náðar
að hafa fengið að heyra boðskapinn,
ganga með guði og láta gott af sér
leiða vegna þess að það bægi í eðli
sínu því sem vont er frá sjálfum sér
og öðrum. Hin túlkunin sú að með því
að ganga á hönd guði, með miklum
orðskýringum, sé hægt að njóta náðar
guðs, andstætt því að vera á vegum
djöfuisins.
Hin fyrri er fágæt, og þar hefur á
okkar tíma Móðir Teresa fengið mikla
athygli sem hún þó bað ekki um. Síð-
ari túlkunin heldur á stundum uppi
náðarútgerð. Það fylgir að þykjast
framkvæma kraftaverk, að bjóða sam-
veru við guð á samkomu, svipað og
boðið er upp á skemmtun í grísaveisl-
um fyrir ferðamenn. Og það kostar
auðvitað peninga að taka þátt.
Þegar ákveðnar forsendur eru í
hugsun eins og náð guðs þá leiða þær
út í hið daglega líf og daglega verund
fólks. Það fylgir t.d. mörgu efnuðu
fólki að guð sé þeirra megin og þeim
veitist náð, að þvi er tekur til efna.
Þetta er barátta við að halda náðinni
og láta hana ekki af hendi. Og þar
skipta peningar miklu máli. Þetta er
almennt; ef lægstu laun hækka, þá
hækka laun upp allar hærri launatöíl-
ur eins, eignist nágranninn jeppa, þá
þarf líka að fá slíkt tæki. - Og svo
framvegis.
En svo eru líka til vel fjáöir nirflar,
sem eiga fé og safna söfnunarinnar
vegna. Slíkir menn lifa oft fátæklega.
Þeir eru ekki að velta fyrir sér guðs
náð. Samfélagið allt hefur hins vegar í
sér afleiður þeirrar hugsunar að verja
náðina. Og þá er hún varin fyrir þeim
sem eru skilgreindir vondir. Hafa eitt-
hvert „djöflatilheyri", trú, menningu,
útlit eða hætti. Og því þarf að verja
náðina fyrir slíku fólki.
Hið kristna menningarsvæði hefur
komið sér upp fimmtánfaldri yfir-
Jón Guðmundsson
skrífar:
Varðandi staðsetningu forseta-
embættisins að Bessastöðum er fleir-
um en mér alveg fyrirmunað að skilja
hvernig stendur á því að forseta-
embættið er haft á sama stað og
danskir landstjórar höfðu aðsetur
með dýflissu til að pynta þá sem ekki
vildu hlýða dönskum lögum. Ég er
ekki í nokkrum vafa að það er hægt
að finna betri stað fyrir forsetabústaö-
inn. Ég er þess t.d. fullviss að landeig-
andi á Gljúfrasteini myndi glaður
selja embættinu landskika.
Þá vil ég víkja máli mínu að
Reykjavíkurflugvelli. Það er stað-
„Það fylgir að þykjast
framkvœma kraftaverk, að
bjóða samveru við guð á
samkomu, svipað og boðið
er upp á skemmtun í grísa-
veislum fyrir ferðamenn. “
drepsgetu til þess að verja náðina. Því
hún er afstæð bæði innan þess og
utan. Stjómmálaflokkar hafa í reynd
stefnur sem fjalla um hvemig skuli
stjóma til að njóta náðar. Það er að
„Ég er ekki í nokkrum vafa
um að það er hœgt að finna
betri stað fyrir forsetabú-
staðinn. Ég er þess t.d. full-
viss að landeigandi á
Gljúfrasteini myndi glaður
selja embættinu land-
skika. “
reynd að erfítt er að flnna staðsetn-
ingu fyrir flugvöll þar sem vindar og
landslag em hentugir. Kapelluhraun
er t.d. mjög óhentugur staður fyrir
visu ekki eftir Kristi haft, en þetta er
svo í reynd. Allflestir eru að reyna að
gera gott. Glæpamenn eru t.d. að gera
gott fyrir sig. En þessi mistúikun á
kristna menningarsvæðinu hefur leitt
til stuðnings almennings við styrjald-
ir, þótt almenningur hafi ekki valdið
þeim.
En ætli það sé ekki betra að hver
hafi sitt og þá hefur djöflullinn ekkert.
Það er því kominn tími til að leggja af
hugmyndina um afstæða náð. Að
skilja að náð er það að gera öðrum
ekki illt og dæma ekki aðra, því sá
dómur er afstæður og leiðir ævinlega
til deilna, jafnvel strfðs.
flug. Byggð í Vatnsmýrinni myndi
hins vegar styrkja gamla miðbæinn
og koma í veg fyrir að Reykjavík sem
höfuðborg sé einungis ræma sem ligg-
ur frá vesturbænum upp á Kjalarnes.
- Mér þykir það leitt en ég hef það
ávallt á tilfmningunni að ég búi í eins
konar „ræmu“ en ekki í borg.
En svo að ég víki í lokin aftur að
staðsetningu fyrir forsetaembættið
sem nú er þar sem mestu voðaverk Is-
landssögunnar voru framin þá eru
Bessastaðir á Álftanesi sem forseta-
bústaður ekki besta hugsanlega stað-
setningin innan um innanlandsflug
sem um getur, en það er nesið sjálft,
bæði út frá vindum og landslagi.
Flugvöllur og forsetaembættið
Nýja náttúrufræðin
Garri hefur alltaf verið hlynntur endurbótum á
menntakerflnu og þá sérstaklega þeim sem miða
að því að víkka sjóndeildarhring nemenda. Því er
ástæða til að gleðjast yflr framtaki kennarans við
Kennaraskólann sem vhl láta kennara í grunn-
skólum kenna nemendum sínum nýja náttúru-
fræði um kynhneigð homma og lesbía í heimi
örra breytinga. Kennarinn segir að mörg svið
mannlegs lifs séu vanrækt í skólakerfinu og þar
með nýja náttúrufræðin um samskipti samkyn-
hneigðra. Frumkvöðullinn, sem hér á hlut að
máli, er myndarleg kona á miðjum aldri og hún
hefur verið tíður gestur í fjölmiðlum upp á
síðkastið. Garri heyrði fyrst í henni í síödegis-
útvarpinu. Um kvöldið var hún komin í sjónvarp-
ið. Morguninn eftir var hún svo bæði i morgun-
sjónvarpinu og morgunútvarpinu. Nú bíður Garri
eftir að sjá hana á forsíðu helgarblaðanna þar sem
hún skýrir enn og aftur mikilvægi þess að kenna
börnum allt sem skiptir máli um náttúru samkyn-
hneigðra.
Hluti af samfélagsmyndinni
Þetta eru orð f tíma töluð enda hefur samkyn-
hneigðum fjölgað umtalsvert á liðnum árum og þá
sérstaklega lesbíum. Hommar og lesbíur eru orð-
in órjúfanlegur hluti af samfélagsmyndinni og
vægi þeirra skyldi ekki vanmetið. Þetta skilur
kennarinn í Kennaraskólanum. Og þetta verða
grunnskólanemendumir líka að skilja áður en
þeir ljúka samræmdu prófunum.
Ýmsum kann að þykja kennsla sem þessi óvið-
urkvæmileg í grunnskólum. En Garri veit betur.
í raun flokkast þessi nýja náttúrufræði undir al-
menna átthagafræði sem tekin var upp sem nýj-
ung í menntakerflnu skömmu eftir miðja síðustu
öld. Þar var nemendum kennt hitt og þetta um
umhverfl sitt, eins og hvar Esjan væri eða hvert
Akraborgin sigldi. Einstök fyrirbæri í nánasta
umhverflnu skýrð og skilgreind á aðgengilegan
hátt. Líkt er þetta með hommana og lesbíumar.
Þau eru hluti af umhverfinu sem þarf að skýra
fyrir þeim sem ekki skilja - og það eru fyrst og
síðast börnin.
Áfram veginn!
En þá þyrfti einnig að skýra önnur fyrirbæri
mannlegs lífs sem snertir okkur öll en hefur ver-
iö út undan í menntakerfinu, t.d. almennar lygar,
sem eru mjög útbreiddar í þjóðfélaginu og hafa
aldrei verið hluti af pensúminu, eða þá þjófnaði
og spellvirki alls konar sem eru daglegt brauð,
svo ekki sé minnst á hvemig best sé að svindla á
prófum. Allt þetta þyrfti kennarinn í Kennara-
skólanum að taka til athugunar ef frúin vill miðla
veruleikanum sem hefur orðið út undan í skóla-
kerfinu til barnanna. Það dugir ekki að staðnæm-
ast við homma og lesbíur og láta þar við sitja.
Garri veit að náttúra hlutanna er margslungnari
en það. En nýja náttúrufræðin er góð byrjun.
Áfram veginn!
Garri
Lestarsamgöngur
vænn kostur
Sigtryggur hringdi:
Ég las ummæli
Sigrúnar Magnús-
dóttur borgarfull-
trúa í DV nýlega
þar sem hún svar-
aði spurningunni
hvort þrýstingur á
flutning innan-
landsflugs til Kefla-
víkur myndi aukast
með breikkun
Lest til Keflavíkur
Hagkvæm og vist-
væn?
Reykjanesbrautar. Hún taldi svo ekki
myndi verða. Hins vegar benti hún á
að í gangi væri hagkvæmnisathugun á
lestarsamgöngum til Keflavíkur og sú
athugun yrð kynnt í sumar. Þetta líst
mér vel á því þarna er um að ræða
vistvænar samgöngur með rafmagni
sem við eigum nóg af, og eins hitt, að
þetta kann að vera mun ódýrara í
framkvæmd en að breikka Reykjanes-
brautina. Mér finnst að Suðumesja-
menn þurfi að leggja hér orð i belg,
svo mjög sem þeim er málið skylt.
Skýrslan
um flugslysið
Halldór ðlafsson skrifar:
Ég var að reyna að lesa skýrsluna
eða niðurstöður úr skýrslunni frá
Rannsóknarnefnd flugslysa sem birtist
í Mbl. um helgina. Þetta er sannarlega
ekki lesning fyrir sauðsvartan almúg-
ann, slíkar eru tæknifræðilegar út-
skýringarnar. En hins vegar sýnist
mér að full þörf hafi verið á að birta
þessar niðurstöður þótt seint þyki
mörgum þær fram komnar. Það eina
sem ég gat áttað mig á var lýsingin á
flugi flugvélanna í aðdraganda hins
hörmulega slyss og sýnist mér sem
leikmanni þar ekki allt liggja á
hreinu. Ég skil t.d. ekki ástæðu þess
að flugmanni TF-GTI var gert að snúa
frá, ekki einu sinni heldur í tvígang.
Var það í raun nauðsynlegt? Svona
spyr almenningur, en það er lítið um
svör.
Schengen til góðs
Arn6r_hringcn:
Það er ekki víst
að allir íslendingar
séu sér þess meðvit-
andi hve mikii bót
það er fyrir þjóðina
að vera aðilar að
Schengen-samkomu-
laginu. Þótt ekki sé
nema fyrir þá stað-
reynd að misyndis-
fólk, brotlegt í sínu
heimalandi, er hægt
að stöðva og senda til baka samdæg-
urs. Með þátttökunni í Schengen erum
við í raun miklu betur varin gagnvart
flkniefnasölum og smyglurum en áður
því þessu eftirliti fylgir meira aðhald á
öðrum sviðum samhiiða auknu og
skOvirkara vegabréfaeftirliti.
Góðar greinar
Gunnars
Við Schengen-
eftirlit
Meira aðhald og
betur varin þjóö.
Vilhjálmur Alfreðsson skrifar:
í DV birtist hinn 19. mars alveg frá-
bær grein Gunnars Eyþórssonar
blaðamanns um erlend málefni. Grein-
in hét Á landamærum Kosovo. Mér
finnst greinar Gunnars um erlend
málefni bera af öðrum sem skrifa sjálf-
stætt um þessi mál en þeir eru því
miður ekki margir nú. Það er alit of
mikið reynt að rýna í framtíðina í stað
þess að segja frá atburðunum eins og
þeir eru í dag. í Bandaríkjunum, ef ég
man rétt, voru blaðamenn fyrir
nokkrum árum sagðir segja frá málum
í æsingastfl og hefði það áhrif á þjóðlíf
þar i landi. Siíkt ber að forðast. Og það
gerir Gunnar sýnilega. ísienskir blaða-
menn mættu læra að segja frá líkt og
Gunnar Eyþórsson gerir.
DV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangið:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattirtil aö senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.