Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2001, Page 28
tilboAsverA kr. 2.750,-
Merkilega he milistækið
Nú er unnt aö
merkja allt á
heimilinu,
kökubauka,
spólur, skóla-
Rafnort
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport_
Samtök iðnaðarins:
Sex lækkanir
til viðbótar
„Þetta er gott sem fyrsta skrefið
til frekari lækkunar vaxta,“ segir
Sveinn Hannesson, framkvæmda-
stjóri Samtaka
iðnaðarins. Til-
kynnt var á árs-
fundi Seðlabanka
íslands í gær um
lækkun stýri-
vaxta bankans
um hálft pró-
sentustig.
„Það er alltaf
erfitt að segja
hver er rétti tíma-
punkturinn til hækkunar vaxta, en
ég tel að þetta hafi mátt gerast nú,“
segir Sveinn. Hann bendir á að á sið-
ustu tveimur árum hafi vextir í
landinu hækkað sjö sinnum og þvl
vænti hann þess að vaxtalækkunin i
gær sé aðeins sú fyrsta og að sex
slíkar fylgi í kjölfarið. „Meðalútláns-
vextir hér eru nítján prósent og það
er tvöfalt meira en gerist í þeim
samkeppnislöndum okkar þar sem
evran hefur verið tekin upp.“
Nánar á bls. 8 -sbs
Sveinn
Hannesson.
Gin- og klaufaveiki:
Bændur loka
fjósunum
- vísa hópum frá
Bændur sem reka svokölluð
ferðamannafjós hér á landi hafa
ýmist lokað þeim fyrir erlendum
ferðamönnum eða vísað tilteknum
hópum frá til að varna þvi að gin-
og klaufaveiki berist i gripi þeirra.
Stefán Tryggvason á Þórisstöðum
á Svalbarðsströnd, sem rekur
ferðamannafjós, hefur ákveðið að
loka því í sumar. Hann hefur sent
ferðaskrifstofum, sem hann hefur
gert samninga við, viðvörun þessa
efnis.
Ólöf Hallgrímsdóttir, sem rekur
Vogafjós í Mývatnssveit, kvaðst
vera að íhuga málið. Hjá sér yrði
engin áhætta tekin og erlendum
ferðamönnum ekki hleypt í fjósið
eins og málin stæðu nú.
Hanna Sigurgeirsdóttir á Lauga-
bökkum í Árnessýslu sagði að þar
á bæ færi enginn útlendingur í
ferðamannafjósið nema hafa
hreinsað sig með sótthreinsilegi og
klæðst I þar til gerða hlífðarskó,
kápu og húfu. Tveimur hópum
Breta hefði nýlega verið vísað frá.
„Það er eðlileg og skynsamleg
ákvörðun að loka ferðamannafjós-
unum,“ sagði Ari Teitsson, formað-
ur Bændasamtaka Islands.
Ari sagði að hinn almenni kúa-
bóndi hlyti að þurfa að huga að
vörnum ef svo héldi fram sem nú
horfði. Það kallaði á mjög erfiðar
og hertar aðgerðir hérlendis.
-JSS
Forsætisráðherra á ársfundi
„Gera má ráö fyrir aö auka þurfi eigiö fé bankans um nær 14 milljaröa úr 22 milljöröum viö árslok, “ sagöi Davíö
Oddsson á ársfundi Seölabankans í gær.
Yfirdýralæknir heimilar gæludýraverslun innflutning:
Tugir páfagauka
frá Bretlandi
- taliö óhætt þrátt fyrir gin- og klaufaveikifaraldur
Yfirdýralæknisembættið hefur
ákveðið að heimila innflutning á
páfagaukum frá Bretlandi hingað til
lands. Um er að
ræða tugi páfa-
gauka sem gælu-
dýraverslun í
Reykjavík hefur
fengið leyfi til að
flytja inn. Gauk-
amir hafa verið í
sóttkví í London
frá því um miðj-
an janúar.
Gin- og klaufa-
veiki geisar enn á
Bretlandseyjum og í fyrradag höfðu
633 tilfelli greinst frá upphafi.
Sama dag var tilkynnt um 27 ný
tilfelli. Gin- og klaufaveiki hefur
Halldór
Runólfsson.
einnig greinst í Frakklandi,
Holiandi og á írlandi.
Halldór Runólfsson yfirdýralækn-
ir sagði við DV í gær að fáránlegt
væri að halda að búrfuglar og -fisk-
ar bæru gin- og klaufaveiki hingað
til lands. Þessi dýr væru að koma úr
sóttkvíum erlendis. Fuglarnir væru
síðan settir í aðra sóttkví eftir kom-
ina hingað. Tengslin við landbúnað
væru rofin meðan hugsanlegur
hættutími gengi yfir. Dvölin í sótt-
kví væri 6-8 eða 10-12 vikur hér eft-
ir því um hvaða dýr væri að ræða.
Prufur, s.s. salmonelluprufur, væru
teknar af fuglunum áður en þeim
væri hleypt inn í landið.
Yfirdýralæknir hefur jafnframt
veitt undanþágu á banni á innflutn-
ingi gæludýra frá fjórum löndum,
Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og Sviss.
„Samkvæmt áhættumati er mjög
ólíklegt að gin- og kiaufaveiki sé í
þessum löndum og þau hafi alla
burði til þess að halda veikinni frá.
Við megiun ekki ganga of langt þar
sem áhættan er metin engin,“ sagði
Haildór. „Viö verðum að geta rök-
stutt okkar ákvarðanir. í öðrum
löndum erum við taldir ákaflega
stífir en megum ekki ganga út fyrir
öll velsæmismörk."
Halldór sagði að töluverður þrýst-
ingur hefði verið á ráðuneytið um að
opna aftur fyrir innflutning gælu-
dýra frá ofangreindum löndum. Bæði
væri um að ræða ræktendur sem
gengið hefðu frá kaupum á dýrum er-
lendis svo og fólk sem væri að flytj-
ast búferlum heim. -JSS
Fjórar nýjar þotur bætast í flugflotann:
Atlanta aö vaxa yfir Flugleiðir
- komnir með 20 þotur og tvo þriðju af veltu Flugleiða
„Við erum enn undir Flugleiðum
í veltu en með þessum nýju þotum
eru við komnir með 20 vélar í rekst-
urinn og þar af eigum við 6 sjálfir,"
sagði Amgrimur Jóhannsson, eig-
andi Atlanta-flugfélagsins, sem hef-
ur fest kaup á tveimur nýjum
Boeing 767-200 breiðþotum og leigt
tvær til viðbótar. „Auðvitað er mað-
ur á tánum en ég er kominn með
gott starfslið sem tekur af mér mesta
stressið."
Velta Atlanta-flugfélagsins var
um 13 milljarðar í fyrra en með nýju
breiðþotunum má búast við enn
Arngrímur Flugleiöir enda
Jóhannsson. með allt annan
rekstur. Við erum heildsalar sem
leggjum fram vélar og áhafnir en
kaupum til dæmis ekki eldsneyti.
Það kemur í hlut leigutakans. Við
erum ekki að selja sæti eins og Flug-
leiðir og erum ekki með neitt sölu-
batterí eins og þeir,“ sagði Amgrim-
ur.
Stærstur hluti af starfsemi At-
lanta fer fram erlendis sem sést
best á því að aðeins 6 prósent af
veltunni verður til á íslandi.
„Ég er ánægður. Ég hef gaman af
þessu,“ sagði Arngrímur Jóhanns-
son þar sem hann var að lesa í
gamalli bók á heimili sínu í Mos-
fellsbæ snemma í morgun. Og átti
hann þar bæði við bókina og flug-
reksturinn. -EIR
f
i
HER GALA
GAUKAR!
DV-MYND ÞORSTEINN G. KRISTJANSSON
Sprengja í nótinni
Áhöfnin á Sæljóni prísaöi sig sæla
þegar Landhelgisgæslan sótti djúp-
sprengju sem þeir höföu fengiö í
dragnótina hjá sér.
Sæljón RE:
Djúpsprengja
í dragnótina
Áhöfnin á Sæljóni RE 19 fékk djúp-
sprengju í dragnótina laust eftir há-
degið í gær þegar þeir voru að veið-
um skammt undan Grindavík. Telja
má það mikla mildi að ekkert kom
fyrir þvi sprengjan var að öllum lík-
indum virk. Ásgeir Baldursson skip-
stjóri sagði að sprengjan hefði litið
ótrúlega vel út og alveg með ólíkind-
um að hún skyldi koma í nótina
vegna þess að það væri margbúið að
kasta þarna á svæðinu. Hann taldi
það líklegast að sprengjan hefði verið
grafin í sandinn.
Áhöfnin fór strax í land með
sprengjuna. Sprengjusérfræðingar
frá Landhelgisgæslunni komu svo og
tóku sprengjuna með sér til að gera
hana óvirka. Mannskapurinn um
borð i Sæljóni prísaði sig sælan með
að vera laus við þennan ófognuð og
hélt strax aftur á veiðar. Komu þeir
svo í land um kvöldið með rúm 2
tonn af blönduðum afla og sagði Ás-
geir skipstjóri að vel hefði veiðst
undanfarið. -ÞGK
Ljót aðkoma
Eldur kom upp í plastbátnum Antoni
á sjötta tímanum í morgun.
Eldur í bát
Eldur kom upp í 12 tonna plastbáti
Anton GK 68, sem lá við Grindavíkur-
höfn, snemma í morgun. Eldsins varð
vart um klukkan 5.30 í morgun og
hafði slökkvilið bæjarins lokið við að
slökkva eldinn um sjöleytið í morgun.
Að sögn Ásmunds Jónssonar,
slökkviliðsstjóra í Grindavík, var eld-
urinn staðbundinn í stýrishúsinu en
breiddist ekki út um bátinn. Skemmd-
ir eru töluvert miklar í stýrishúsinu.
Báturinn var mannlaus er eldurinn
kom upp og kannaði rannsóknarlög-
reglan upptök eldsins í morgun.
SMK/ÞGK
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001