Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2001, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2001, Page 4
24 MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2001 Sport Úrslitin 5 km ganga kvenna, 16 ára og eldri (frjáls aöferö): 1. Elsa G. Jónsdóttir, Ólafsf. 16:28 mín. 2. Katrína Ámadóttir, ísaf. 17:00 min. 3. Hanna D. Maronsd., Ólafsf,18:50 mín. 10 km ganga karla, 17-19 ára (frjáls aðferð): 1. Jakob E. Jakobsson, ísaf. 28:31 mín. 2. Hjörvar Maronss., Ólafsf. 29:23 min. 3. Rögnvaldur S. Bjömss., Ak.30:44 mín. 15 km ganga karla, 20 ára og eldri (frjáls aöferö): 1. Ólafur Th. Árnason, ísaf. 42:27 min. 2. Baldur H. Ingvarsson, Ak. 42:50 mín. 3. Ámi G. Gunnarsson, Ólafsf. 44:45 mín. 10 km ganga kvenna 16 ára og eldri (hefðbundin aöf.): 1. Katrín Árnadóttir, Isaf. 36:48 mín. 2. Hanna D. Maronsd., Ólafsf. 39:30 mín. 15 km ganga karla 17-19 ára (heföbundin aöferö): 1. Jakob E. Jakobsson, ísaf. 46:53 mín. 2. Hjörvar Maronss., Ólafsf. 47:17 mín. 3. Andri Steinþórsson, Ak. 47:22 mín. 30 km ganga karla 20 ára og eldri (hefbundin aöf.): 1. Baldur H. Ingvarss., Ak. 1:32,20 klst. 2. Ólafur Th. Árnason, ísaf. 1:34,59 klst. 3. Haukur Eiríksson, Ak. 1:39,19 klst. 3x10 km boðganga karla 1. Sveit Ólafsfjaröar 1:41,45 klst. 2. A-sveit ísafjarðar 1:41,55 klst. 3. A-sveit Akureyrar 1:43,50 klst. Stórsvig kvenna 1. Dagný L. Kristjánsd., Ak. 1:52,23 mín. 2. Brynja Þorsteinsd., Ak. 1:56,36 mín. 3. Harpa D. Kjartansd., Brei. 1:56,41 mín. Stórsvig karla 1. Björgvin Björgvinss., Dalv. 2:08,75 mín. 2. Kristinn Magnússon, Ak. 2:10,75 mín. 3. Jóhann F. Haraldss., SLR. 2:11,73 mín. Svig kvenna 1. Harpa R. Heimisd., Dalv. 1:55,57 mín. 2. Brynja Þorsteinsd., Ak. 1:56,51 mín. 3. Helga B. Ámadóttir, Árm. 1:56,75 mín. Svig karla 1. Björgvin Björgvinss., Dalv.l:44,14 mín. 2. Jóhann F. Haraldss., SLR. 1:46,19 mín. 3. Ingvar Stelnarsson, Ak. 1:46,60 mín. Bikarmeistarar 2001 Á Skíðamóti íslands réðust úr- slit í bikarkeppni Skíðasambands íslands og voru Akureyringar í efstu sætum í bæði karla- og kvennaflokki. 1 kvennaflokki sigraði Áslaug Eva Bjömsdóttir, SKA, með 496 stig, önnur varð Ama Arnardóttir, SKA, með 442 stig og þriðja Erika Stefanía Pétursdóttir, Ármanni, meö 381 stig. íkarlaflokki varö Ingvar Stein- arsson, SKA, hlutskarpastur með 650 stig, annar varð Arnar Gauti Reynisson, Ármanni, með 571 stig og þriðji Óskar Örn Steindórsson, SLR, með 380 stig. -ÓK Baldur H. Ingvarsson er 0 íy af miklu göngufólki kominn og sýndi það sannarlega um helgina. I>V Skíðamót íslands í Hlíðarfjalli við Akureyri: Tvöfaldur sigur - i svigi og stórsvigi hjá Björgvini Björgvinssyni frá Dalvik Skíðamóti íslands 2001 lauk á sunnudag með keppni í 10 km göngu kvenna, 15 km göngu pilta, 17-19 ára, og 30 km göngu karla. Færið í Hlíðarfjalli var nokkuð mjúkt á sunnudag og á keppnis- svæðinu i alpagreinum uppi í Strompbrekku var nokkuð blint en gripið var til þess ráðs að strá grenistubbum i brautina og nota litarefni við stangirnar. í öllum göngugreinunum var sigurinn nokkuð öruggur hjá þeim Katrínu Ámadóttir, Isaflrði, í 10 km göngu kvenna, Jakobi Einari Jakobssyni, ísaflrði, í göngu pilta, 17-19 ára, og Baldri Helga Ingvars- syni, Akureyri, í 30 km göngu. Katrín Árnadóttir sagði braut- irnar hafa verið finar og sigurinn hefði ekki verið erfiður - nokkur sárabót eftir að piltamir töpuðu boðgöngunni á föstudag gegn Ólafsfirðingum, en Hanna Dögg Maronsdóttir varð í 2. sæti. „Það er ekki skemmtilegra aö vinna neina aðra en Ólafsfirðinga en það hefur verið nokkur rígur milli þessara tveggja staða að und- anfornu á göngubrautunum," sagði Katrín sem má una vel við sinn hlut á þessu landsmóti. Baldur Helgi Ingvarsson, Akur- eyri, varð sigurvegari í erfiðustu göngukeppninni, 30 km, og það kom nokkuð á óvart hversu mikla yfirburði hann haföi yfir Ólaf Th. Ámason frá ísafirði, eða 2,5 sek- úndur. Þriðji varð gamla brýnið Haukur Eiríksson frá Akureyri. Á heimavelli Baldur Helgi sagði það sérstak- lega ánægjulegt að vinna í þessari grein á heimavelli; að þessu heföi verið stefnt, hann hefði verið að hugsa um þessa göngu allt síðan í haust er æfingar hófust af fullum krafti, og hann þekki auk þess brautina út og inn. „Það var þó ekki fyrr en eftir 25 km sem ég hafði það á tilfmningunni að ég mundi vinna þessa grein; átti nóg eftir og þurfti bara að halda mínu striki til þess að innbyrða sigur- inn. Brautin var býsna góð; þeim hefur tekist að þjappa hana vel nið- ur. Það var svolítið blindað hér og það olli svolitlum erfiðleikum nið- ur brekkurnar við að greina braut- irnar frá öðrum snjó. Þegar maður einbeitir sér að því að horfa á brautina er þetta ekkert mál,“ sagði Baldur Helgi Ámason. Sagan frá 1986 endurtók sig Harpa Rut Heimisdóttir, Dalvík, vann sigur í svigi kvenna en Dal- víkingur hefur ekki unnið í svigi síðan Inga Júlíusdóttir vann svigið árið 1986. Þá vann Daníel Hilmarsson sigur í svigi og stór- svigi og nákvæmlega það sama gerðist nú því Björgvin Björgvins- son sigraði bæði í stórsvigi og svigi. Björgvin er unnusti Hörpu og það er örugglega einsdæmi að par vinni svigkeppnina á skíða- landsmóti. „Ég er búin að stefna að þessu síðan í fyrra, er ég fór út til Nor- egs, og það tókst. Þetta er fyrsti sig- ur minn á landsmóti, sem er meiri- háttar tilfmning, en vonandi ekki sá síöasti. Ég var í 2. sæti eftir fyrri umferð, á eftir Helgu Björk Árnadóttur úr Ármanni, svo það varð að gefa allt sem ég átti í síðari umferðinni og það tókst. Ég vissi líka að Brynja Þorsteinsdóttir yrði mjög sterk, enda kom það í ljós að hún fór einnig fram úr Helgu Björk og náði 2. sætinu. Mér gekk ágætlega í fyrri umferðinni í stór- sviginu á föstudag en keyrði út úr í seinni ferðinni, aðallega vegna lé- legs skyggnis. Ég á eftir að keppa á nokkrum mótum í Noregi fram á vor, þá tekur við undirbúningur í sumar, og svo er að koma sterk til leiks næsta vetur,“ segir Harpa. Harpa fótbrotnaði fyrir fimm ár- um og hefur farið í tvær aðgerðir eftir það, en það er klemmd sin í fætinum. Hún gekk því ekki alveg heil til skógar á skíðamótinu og því er sigurinn enn athyglisverð- ari. Harpa æfir að jafnaði tvisvar á dag með skólanum sem hún er í í Noregi. Björgvin segist vona að Dalvík- ingar fari aftur að láta að sér kveða í alpagreinum á skíðalands- mótum. Björgvin var, eins og Harpa, með 2. besta tímann eftir fyrri umferð en Jóhann F. Haralds- son, Skíðaliði Reykjavíkur, var með besta tímann eftir fyrri um- ferð. Mistökin skiptu ekki máli „Það eina sem komst að í seinni umferðinni var að keyra á þetta. Ég fann að það var gott rennsli á skíðunum en ég gerði mistök í miðri braut. Það skipti þó greini- lega ekki máli því hinir hlutar brautarinnar gengu upp. En ég hafði strax góða tilfmningu fyrir því að mér hefði tekist vel. Það var líka rosalega góð tilfinning að vinna stórsvigið og alþjóðamótið,“ sagði Björgvin. Björgvin hefur æft með sænska skíðalandsliðinu í vetur en fer lík- lega nú til Noregs að keppa þar. Björgvin segir veturinn hafa verið erfiðan, ekki hafi gengið vel fram- an af, en eftir að hann tók í notk- un skíði sem eru 1,60 m aö lengd í stað 1,70 hafl farið að ganga betur. -GG Þeir voru ekki allir háir í loftinu sem reyndu með sér á Skíöamóti íslands og hér má sjá einn ungan keppanda leggja í göngubrautina í Coca Cola-keppni barna. Björgvin Björgvinsson og unnusta hans, Harpa Rut Heimisdóttir, sýndu þaö og sönnuöu um helgina aö þau eru meöal fremstu skíöamanna landsins og aö sjálfsögöu stolt Dalvíkinga. DV-myndir GG Dæmið gekk upp - segir Egill Jóhannsson, formaður SKÍ Egill Jóhannsson, formaður Skíðasambands Islands, var ánægður með að það skyldi hafast að ljúka skíðamótinu. Dæmið hefði gengið upp þrátt fyrir að einn dagur hefði dottið út vegna veðurs, laugardagurinn, þegar keppa átti í svigi. „Maður er alltaf glaður þegar íslandsmót klárast en aðeins tvisvar á síðustu sjö áratugum hefur ekki tekist að ljúka skíðalandsmóti. Það sem stendur upp úr á þessu móti er að mínu mati það hversu vel unglingarnir standa sig og eru að sækja sig. Það er kannski lán í óláni í snjóleysinu í vetur að skíðalandsmótið skyldi haldið hér i Hliðarfjalli, en keppendur hafa sótt hingað til æfinga svo kannski eru þeir flestir á sama plani. Það er þó slæmt hversu lítill snjór hefur verið á höfuðborgarsvæð- inu. Mér brá nokkuð þegar ég heyrði að það væri enginn keppandi frá ísa- flrði í alpagreinunum. Þeir hafa verið að glíma við vandamál eins og snjóflóð á skíðasvæðum, sem tekið hefur lyftur, og það hefur verið þeim mikið áfall. Það er oft þannig að þegar krakkar missa úr einn vetur í íþróttum þá sækja þeir í aðrar íþróttagreinar og þá er erfitt að byrja aft- ur. Bæði felögin og Skíðasambandið hafa verið að auka fræðslustarfsem- ina og undirbúa krakkana fyrr á haustin og það hjálpar. Nú er verið að vinna skipulegar að skíðamálum en oft áður - gott fólk um allt land er að vinna fórnfúst starf," sagði Egill formaður. -GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.