Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2001, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001
11
I
FBI leyndi gögnum í máli sprengjuvargsins í Oklahoma:
Verjendurnir íhuga að
i fá aftökunni frestað
Bandarlsk stjórnvöld viður-
kenndu í gær að alríkislögreglan
FBI hefði leynt gögnum fyrir verj-
endum Timothys McVeighs, sem til
stendur að taka af lífi með eitur-
sprautu í næstu viku fyrir sprengju-
tilræðið við alríkisbygginguna í
Oklahomaborg árið 1995. Lögmenn
McVeighs íhuga nú að fara fram á
frestun aftökunnar.
Dómsmálaráðuneytið í Was-
hington sagði í yfirlýsingu sem það
sendi frá sér að starfsmenn FBI
hefðu uppgötvað fjöldann allan af
skjölum sem verjendurnir hefðu
eldd fengið í hendumar á sínum
tíma.
Embættismaður ráðuneytisins
sagði að stjórnvöld teldu að gögnin
hefðu ekki haft nein áhrif á niður-
stöðu réttarhaldanna. Ekkert kæmi
þar fram sem sýndi fram á sakleysi
McVeighs og Terrys Nichols, sem
einnig var sakfelldur fyrir tilræðið
Vettvangur glæpsins
Svona var umhorfs viö Atfred P. Murrah alríkisbygginguna í Oklahomaborg
eftir sprengjutilræöi Timothys McVeighs undir vor árið 1995.
sem varð 168 manns að bana, versta
hryðjuverk sem framið hefur verið i
Bandaríkjunum.
Og enda þótt McVeigh hafi marg-
sinnis lýst því yfir að hann vilji
ekki áfrýja frekar dauðadóminum
eru lögmenn hans engu að síður aö
meta hvað þeir geti gert í þeirri
nýju stöðu sem upp er komin.
„Við erum að skoða alla mögu-
leika,“ sagði Nathan Chambers, lög-
maður McVeighs, við fréttastofu
Reuters.
Charmbers sagði að það væri
áhyggjuefni að þessi gögn kæmu í
ljós tæpri viku fyrir fyrirhugaða af-
töku. McVeigh hefur verið upplýst-
ur um gang mála.
Mannréttindasamtökin Amnesty
International fóru fram á það við
George W. Bush Bandaríkjaforseta í
gær að hann breytti dauðadóminum
yfir McVeigh. Samtökin sögðu að
slíkt myndi vera sögulegt fordæmi.
Umdeildur frambjóðandi
Sigri Beriusconi í kosningunum á
Ítalíu er refsiaögeröa aö vænta.
Útilokar ekki
refsiaðgerðir
Utanríkisráðherra Belgíu, Louis
Michel, ítrekaði í gær að hann útilok-
aði ekki refsiaðgerðir Evrópusam-
bandsins gegn Ítalíu sigri fjölmiðla-
kóngurinn Silvio Berlusconi, fram-
bjóðandi mið- og hægrimanna, i kosn-
ingunum á sunnudaginn. Stjómmála-
skýrendur höfðu velt því fyrir sér
hvort Michel færi ekki varlega í sak-
irnar vegna meints dómgreindarleys-
is flæmska innanríkisráðherrans Jo-
hans Sauwens er fyrir viku tók þátt í
fagnaði gamalla félaga í Waffen SS í
Belgíu þar sem þeir báru bannaða ein-
kennisbúninga. Sauwens sagði af sér
á miðvikudaginn. Michel segir mál
Sauwens sýna að ástæða hafi verið til
að refsa Austurríki á sínum tíma
vegna stjórnarþátttöku Haiders.
- ' ... \ Wvv í WFrWjj \ 7 V f
Gengið í skrokk á norninni
Bööuil gengur í skrokk á galdranorn úti á götum miðaldabæjarins Sighisoara í miöhluta Transylvaníu i Rúmeníu þar
sem veriö var aö sýna nornaréttarhöld eins og þau tíökuöust í eina tíö. Tilefniö er málþing í bænum um hinn
umdeilda Vlad prins sem er fyrirmynd blóðsugunnar Drakúlu í samnefndri skáldsögu Brams Stokers. Rúmenar ætla
aö reisa sérstakan skemmtigarö þar sem Drakúla veröur í aöalhlutverkinu.
Útlönd
Með tösku fulla af fé
Njósnaforingi Perú flýöi ekki tóm-
hentur.
Montesinos fékk
1,5 milljarða
með sér
Aðstoðarfjármálaráðherra Perú,
Alfredo Jalilie, sagði af sér í gær í
kjölfar blaðafrétta um að hann heföi
verið milligöngumaður í 1,5 millj-
arða króna greiðslu til njósnafor-
ingjans Montesinos nokkrum
klukkustundum áður en hann flýði
land i september síðastliðnum.
Montesinos flýði land um viku eftir
að sýnt var myndband í sjónvarpi
sem sýndi hann múta stjórnmála-
manni. Hefur njósnaforinginn farið
huldu höfði síðan. Alfredo Fujimori,
fyrrverandi Perúforseti, var rekinn
úr embætti í nóvember. Hann var
þá í heimsókn í Japan en hann er af
japönskum ættum.
vi -í-WfflTna.-—-
G\eðilegt suttiat
Öll tæki drifin m. 12 volta
rafmótor. Hleðslutæki fylgir.
Áfram og afturábak /
hæg/hraðar stilling.
Ljós-hljóð-speglar-símar o.fl.
Verð frá kr. 30.000 - 40.000
Dalbrekku 22, Kóp. S. 544 5770
L 1
\
I
I
Tippaðu slrax því nú er
enski potturinn alveg að
springa!
\jið tipputy'