Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2001, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2001, Side 28
no ----------------------Ena] Verð á 95 okt. bensínl W5 - efmlðað er vlð sjálfdællngu 00 Rólegra í bensíninu Bensínverðið er lægst á Akureyri um þessar mundir. Á OLÍS-stöðinni við Tryggvabraut var verðið á 95 okt- ana bensíni í morgun 91,10 kr. miðað við að neytandi dæli sjálfur á bílinn, Bensínmarkaðurinn er heldur að róast á höfuðborgarsvæðinu. Bensínið er ódýrast hjá Orkunni á Smiðjuvegi í Kópavogi, 91,40, en hærra á nokkrum öðrum stöðvum Orkunnar, eða 94,80. Allar ÓB-stöðvamar eru með 91,60. Á þjónustustöðvum OLÍS er verðið 101,90 en 99,90 ef bíleigandi dælir sjáif- ur. Hjá ESSO er verðið 102,90 og 98,90 og hjá Skeljungi 102,90 en 100,90 dæli bíleigandi sjálfur. -GG Bensínið í botn í Helgarblaði DV á morgun er rætt við Kristin Bjömsson, forstjóra Skelj- ungs, sem segja má að hafi rofið ára- langt samflot olíufélaganna í verðlags- málum og hafið með því verðstríðið sem nú geisar milli sömu félaga. Einnig veröur íjallað ítarlega um Eurovision söngvakeppnina og rætt við keppendur íslands á vettvangi í Kaupmannahöfn. Vala Matt, sjón- varpsstjarnan sem aldrei bliknar, ræðir við Kolbrúnu Bergþórsdóttur og Hildur Tryggvadóttir segir frá leið sinni úr fjósinu upp á svið i óperu- söng. Rætt er við fyrstu konuna sem verður formaður Búnaðarsambands og hiö dularfulla fyrirbæri kynþokki karlmanna er ítarlega skilgreint. BENSINTRUFLANIR! FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ FOSTUDAGUR 11. MAI 2001 — DV-MYND BRINK Útlvistardagar / gær voru útivistardagar hjá Menntaskólanum á Akureyri og fóru nemendur m.a. í ýmsa leiki. Hópur stúdentsefna skoraöi á kennara sína í ýmsa kappleiki og gekk misjafnlega. Hér má sjá þá takast á viö iærimeistarana í reiptogi. Embættismenn kallaðir fyrir vegna skrifstofuhúss Alþingis: Rannsókn á um- framkeyrslunni - ísólfur Gylfi lét bóka athugasemdir í fyrra Rannsókn mun fara fram á ástæð- um þess að framkvæmdir við skrif- stofuhúsnæði Alþingis reyndust miklu kostnaðarsamari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Össur Skarphéðins- son, formaður Samfylkingarinnar, fór fram á sérstaka athugun íjárlaga- nefndar á þessu máli á fundi nefndar- innar í gær. Össur sagði í samtali við DV í morgun að nefndin hefði sam- þykkt tillöguna og mun hún rannsaka málið í næstu viku og kalla fyrir þá embættismenn sem málið varðar. „Þetta er náttúrlega grafalvarlegt mál og ég fæ ekki skilið skýrslu Ríkis- endurskoðunar öðruvísi en að þrenn lög hafi verið brotin, þ.e.a.s. fjárreiöu- lög, fjárlög og lög um opinberar fram- kvæmdir. Þarna virðast allir hafa brugðist sem brugðist gátu og við - Ossur Skarphéöinsson. Isólfur Gylfi Pálmason. þurfum að læra af þessu og skilgreina hvar ábyrgðin liggur. Það er alveg Ijóst að Framkvæmdasýsla ríkisins hefur algjörlega brugðist og maður veltir því fyrir sér í ljósi þessa máls og Þjóðmenningarhússins hvort stjórn þeirrar stofnunar sé boðleg skattborgurunum," segir össur. Nýjar niðurstöður starfshóps um mengunarvarnir: Gjald lagt á nagladekk Tillaga um sérstakt gjald á nagla- dekk var lögð fyrir fund umhverfis- og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur í gær. Þar var fjallað um hana og samþykkt aö vísa henni til umsagnar samgöngu- nefndar. Á síðasta ári lét umhverfis- og heil- brigöisnefnd skipa starfshóp til að vinna að úrræðum til að draga úr loft- mengun í Reykjavík, einkum vegna umferðar og notkunar nagladekkja. Starfshópurinn skilaði tillögum sín- um til nefndarinnar í gær. I þeim seg- ir m.a. að tekið verði til ítarlegrar skoðunar að taka upp gjald fyrir heimild til að aka á nagladekkjum Hrannar B. Arnarsson. þann tíma sem notkun þeirra er leyfð. Leitað verði samstarfs við þá bæi og borgir i Noregi þar sem slikt gjald sé kom- ið á. Stefnt verði að samstarfi við nágrannasveitarfé- lög Reykjavíkur og lagt til að borgar- lögmanni verði falið að kanna hvaða breytingar á núgildandi lögum séu nauðsynlegar til að heimila gjaldtök- una. Þá gerir hópurinn tillögu um að kannað verði hvemig afla megi heim- ilda til tímabundinnar lækkunar há- markshraða þegar hætta sé á að svifryk nálgist eða fari yfir þau há- marksgildi sem heimiluð eru hverju sinni. Hrannar B. Arnarsson, formaður umhverfis- og heilbrigðisnefndar, sagði að sér litist þannig á að gjald á nagladekk væri skynsamlegasta leiðin til að bregðast við mikilli notkun þeirra. Ef uppfylla ætti kröfur um loft- gæði hér á landi, sem yrðu harðari með hverju árinu, þyrfti að grípa til aðgerða af þessu tagi. -JSS Söngvakeppnin: Frægasti laga- höfundur Dana meö Birtu DV, KAUPMANNAHQFN: „Honum fannst lagið Angel fínt og ég lét hann líka hafa aðra smelli eftir mig í enskri þýðingu og hann hafði áhuga á að skoða þá,“ sagði Einar Bárðarson eftir um klukku- stundarfund með Remi, einum fræg- asta lagahöfundi Skandinaviu, í Parken í gær. Remi er þekktastur fyrir að vinna náið með Max Martin en saman hafa þeir samið smelli fyrir Backstreet Boys, Britney Spears og nú síðast Jon Bon Jovi. Flest lögin sem þeir hafa samið og útsett fyrir þessa listamenn hafa náð toppnum á vinsældalistum viðs vegar um hnöttinn. En hvernig hittirðu Remi? „Þetta er gamall vinur Yesmine en hún tengist þessum tónlistar- heimi mjög vel. Þegar við hittum Remi bauð hann okkur í kaffi,“ seg- ir Einar og bætir því við að auövit- að sé ekkert víst í þessum bransa en engu að síður litur Einar á sig sem lagahöfund og hefði ekkert á móti því að semja smelli fyrir Backstreet Boys eða Britney Spears. „Nú er bara og bíða og sjá til hvort númer- ið mitt kemur upp í lottóinu eftir að keppnin er búin.“ Nánar á bls. 2 og 29 -MT FSA: Starfsmaður grunaður um lyfjastuld Eins og áður hefur komið fram vís- ar hver á annan þegar deilt er um ábyrgð aðila í málinu. Hins vegar virðist sem einhverjar viðvörunar- bjöllur hafi hringt fyrir skýrslu Ríkis- endurskoðunar. Áreiðanlegar heim- ildir DV herma að Isólfur Gylfi Pálma- son, þingmaður Framsóknarflokks, hafi tvisvar látið gera bókanir í for- sætisnefnd vegna málsins varðandi rekstrarkostnað, 21. ferúar í fyrra og aftur 15. maí árið 2000. ísólfur vildi lít- ið tjá sig um málið í samtali við DV í morgun. Kostnaður Alþingis vegna fram- kvæmdanna reyndist 250 milljónir en áætlaður kostnaður var 133 milljónir króna. Verktiminn átti að vera fjórir mánuði en varð 10 mánuðir og lauk verkinu í febrúar sl. -BÞ Lögreglan á Akureyri hefur lokið rannsókn sinni á stórfelldum lyíja- stuldi úr læstum hirslum Fjórö- ungssjúkrahússins á Akureyri. Einn starfsmaður spítalans er grun- aður um stuldinn, karlmaður. DV náði ekki í talsmenn FSA til að fá svör við hvort spítalinn væri búinn að gera ráðstafanir vegna þessa. Lyfium var stoliö í fiórgang af tveimur deildum en það er nú ríkis- saksóknara að meta hvort gögnin eru nægilega sterk til að gefa út ákæru. Samkvæmt heimildum DV liggur játning ekki fyrir. -BÞ Clinton lokað Lögregla lokaði veitingahúsinu Club Clinton við Fischersund um tvöleytið í nótt. Club Clinton, sem er súludansstaður, hefur vínveit- ingaleyfi tU klukkan eitt eftir mið- nætti virka daga. Starfsemi var í fuUum gangi þegar lögreglu bar að garði og um fiörutíu gestum var vís- að út. Eigendur staðarins verða áminntir fyrir tiltækið. -aþ brotherp touch 1250 Litil en STÓRmerkileq merkivél 5 leturstærðlr 9 leturstillingar prentar i 2 linur borði 6, 9 og 12 mm 4 gerðir af römmum Rafport Nýbýlavegi 14 Simi 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport / / / / / / / :

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.