Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2001, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 25. MAl 2001 x>v Fréttir Umdeilt ferðalag Mæðrastyrksnefndar til Portúgals: Söfnunarfé fari til málefnisins óheppilegt mál að mati Hjálparstarfs kirkjunnar Oheppileg orlofsferö Mæóur hafa staöiö í löngum biörööum eftir úthlutunum frá Mæörastyrksnefnd. Mikil vinna liggur aö baki vinnu Mæörastyrksnefndar en orlofsferö stjórnarinnar fyrir söfnunarfé þykir orka tvímælis. Framkvæmdastjórar Hjálpar- starfs kirkjunnar og Rauða krossins telja mikilvægt að almenningur geti treyst að þeir peningar sem fólk gef- ur til góðra mála fari óskiptir til málefnisins eða að nákvæmlega liggi fyrir hve mikill hluti Qárins fari i annað. Aðskilja verði rekstur og ráðstöfun söfnunarijár með af- gerandi hætti, burtséð frá því hvort starfsmenn þiggi laun fyrir vinnu sína eða ekki. Ákvörðun stjórnar Mæðrastyrks- nefndar að halda í sólarlandaferð til Portúgals fyrir söfnunarfé hefur sætt ámæli. Rökin með þeirri ákvörðun voru að sögn formanns stjórnar að ódýr ferð hefði boðist og algjörlega væri um ólaunaða vinnu að ræða. Hjá Rauða krossinum eru safnanir mikilvægar og þar eru starfsmenn á fóstum launum en Sig- rún Árnadóttir segir að grundvall- aratriðin verði að vera skýr í þessu efni. „Mér finnst að peningarnir verði að fara til þess verkefnis sem tilgreint er í söfnuninni. Hjá okkur er þetta algjörlega aðgreint," segir Sigrún. Þessu er Jónas Þórisson, fram- kvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkj- unnar, sammála og hann telur að öll neikvæð umræða um ráðstöfun fjár- muna hjá líknarfélögum geti haft áhrif. „Þetta skaðar alla, hvort sem hin neikvæða umræða er sanngjörn eða ekki,“ segir Jónas. Dæmi hafa verið um að óprúttnir aðilar hafi siglt undir fölsku flaggi hvað varðar „góðu málin“ svoköll- uðu og því hafa góðgerðarmál átt undir högg að sækja. Mál Mæðra- styrknefndar er af allt öðrum toga og enginn efast um mikið og óeigin- gjarnt starf þeirra kvenna sem þar starfa að sögn Jónasar. Hann segir hins vegar: „Það er ósköp óheppi- legt að þetta skuli gerast á þennan hátt. Það er miklu einfaldara fyrir almenning að skilja að það kostar að reka hluti. Allir skilja launa- greiðslur, jafnvel þó að taka þurfi einhverjar prósentur af söfnunar- fénu til rekstrar á einhverju en ferðalög eru alltaf viökvæm." Mjög skýrar reglur eru um þessi mál bæði hjá Rauða krossinum og Hjálparstarfi kirkjunnar eins og m.a. má lesa á heimasíðum samtak- anna. -BÞ Arnarnesvogur Hollustuvernd ríkisins vísar alfariö á bug ásökunum Péturs Björnssonar um aö umsögn stofnunarinnar um Arnarnesvog hafi veriö pöntuö af bæjaryfir- völdum. Hollustuvernd vísar á bug ásökunum Péturs Björnssonar: Ekki svaravert Davíð Egilsson, forstjóri Holl- ustuverndar ríkisins, og Helgi Jenssen, forstöðumaður mengun- arsviðs stofnunarinnar, hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Péturs Björnssonar, í Coke og áhugamanns um Arnarnesvog, þess efnis að skýrsla stofnunarinn- ar hafi verið pöntuð af bæjaryfir- völdum til að greiða fyrir því að hægt verði að ráðast þar í fram- kvæmdir við landfyllingu. Segir í yfirlýsingu Hollustuvemdar að þessar fullyrðingar Péturs séu al- rangar og ekki svaraverðar. Þeir Davíð og Helgi ítreka að umrædd skýrsla sé lögbundin umsögn stofn- unarinnar um skýrslu fram- kvæmdaaðila um mat á umhverfis- áhrifum vegna landfyllingar í vog- inum og byggi umsögnin á gögnum sem sett eru fram í þeirri mats- skýrslu. í yfirlýsingunni segir sið- an: „í matsskýrslunni er birt ein greining á styrk mengandi efna í botnseti í Amarnesvogi. Greining- in sýnir mjög háan styrk meng- andi efna í setinu og mælast sum þeirra í styrk umfram það sem greinst hefur áður í sjávarseti hér við land. Þessar staðreyndir liggja að baki eftirfarandi tillögum stofn- unarinnar sem settar voru fram í umsögninni." Eins og fram hefur komið telur stofnunin að frekari mælinga sé þörf og að gerð verði sérstök áætlun um framkvæmdirn- ar áður en í þær verður ráðist. Þá telur stofnunin að gera þurfl meng- unarefnin óvirk hvort sem af fram- kvæmdurm verður eða ekki. Tveir fengu 5 ára fangelsi en einn var sýknaður í 8 kílóa amfetamínmáli: Refsing stytt vegna tafa á rannsókn Gæsluvarðhald sem átta sinn- um var framlengt á meðan á rann- sókn stóð, í samtals 313 daga þang- að til dómur féll á miðvikudag, var eitt af refsilækkandi atriðum í máli ákæruvaldsins gegn tveimur mönnum sem fluttu 8 kíló af am- fetamini til íslands á fyrri hluta sumars á síðasta ári. Mennimir tveir, Ingi Magnússon og Atli Finnbogason, voru dæmdir í 5 ára fangelsi fyrir að hafa tekið við efn- unum í Amsterdam og sent til ís- lands frá Hamborg á nafni Atla. Þriðji maðurinn í málinu, sem sat svo vikum skipti í gæsluvarð- haldi, var sýknaður af ákæru um að hafa skipulagt innflutninginn, látið Atla og Inga í té farareyri og lofað þeim greiðslu fyrir verkið. Þegar efnin höfðu verið þurrk- uð reyndust þau 4,7 kíló. Það sem einnig var virt þeim Atla og Inga til refsilækkunar var að þeir voru ekki taldir höfuðpaurar í þessum skipulagða innflutningi, efnið var veikt og þeir játuðu brot sín greiö- lega. Dómurinn tók einnig, eins og áður segir, mið af því að rannsókn dróst á langinn. Lögreglan, sem á síðari hluta árs 2000 þurfti að und- irgangast eins konar yfirvinnu- bann og vann samtímis að mörg- um fíkniefnamálum, gaf þær skýr- ingar fyrir dómi að drátturinn heföi m.a. stafað af því að aðrir hefðu legið undir grun í am- fetamínmálinu. Hins vegar hefði ekki verið unnt að yfirheyra hina þar sem verið var að rannsaka að- ild þeirra að öðrum fíkniefnamál- um. Á meðan sátu Atli og Ingi í gæsluvarðhaldi. Málsmeðferð ríkissaksóknara taldist ekki löng og heldur ekki meðferð dómsins. Málflutningi lauk um hádegisbilið á mánudag og lýsti dómurinn því þá yfir að dómur yrði upp kveðinn klukkan 15.30 á miðvikudag, aðeins tveim- ur dögum síðar, og gekk það eftir. Vaninn er að dómur í stærri saka- málum gangi innan þriggja vikna. -Ótt Urnsjón: Höröur Kristjánsson netfang: hkrist@ff.is Valtaö yfir Framsókn Kristinn H. Gunnarsson er sagður hafa valdið því að sjávarút- vegsráðherrann Árni M. Mathiesen náði. ekki að koma í gegn málamiðlun-' artillögu um lög I gegn frjálsum veiðum smábáta á | utankvótategund- um. Ráðherrann I mun hafa gengið stíft á Einar ’ Kristinn Guðfinnsson og Einar Odd Kristjánsson um að slá af andstöðu sinni við gildistöku lag- anna. Einar Oddur mun fljótlega hafa slegið til og Einar K. fylgt í kjölfarið með semingi. Kiddi er hins vegar sagður hafa sagt þvert nei við þessum hugmyndum. Hann vildi frestun og engar refjar, enda lögin í andstöðu við samþykkt flokksþings frá í vetur. Ráðherra gerði sér þá lítið fyrir og valtaði yfir stefnu Framsóknar með gildis- töku óbreyttra laga. Menn velta því fyrir sér hvort ekki sé farið að hrikta verulega í stjórnarsamstarf- inu... Erfiður róður Og meira af Kristni H. Gunnars- syni. Sagt er að þreytu sé farið að gæta innan ríkisstjórnarflokkanna vegna erfiðrar sambúðar við þennan fyrrver- andi allaballa að vestan. Hann þyki erfiður í taumi i stj ómarsamstarf- inu og einnig inn- an Framsóknar- lokksins. Benda menn líka á vinnubrögð Kristins sem stjórnarformanns Byggðastofn- unar sem vakið hafa athygli að und- anfornu. Þykir ljóst að Kristinn komi til með að eiga mjög erfiða baráttu fyrir höndum við forystu Ookksins um sæti á lista í nýju norðvestur kjördæmi... Hallbjörn I Evróvísjón Hallbjörn Hjartarson, kántrí- stjaman frá Skagaströnd, er á góðri leið með að verða bjartasta von ís- lendinga á öldum ljósvakans. Ólíkt öðrum íslenskum stöðvum nýtur út- varpsstöð hans nú ómældra vinsæla á „erlendri" grundu, það er að segja á yfirráðasvæði Bandaríkahers á Keflavíkurflugvelli. Sagt er að kán- trímúsíkin að norðan hafi bjargað mörgum hermanninum frá að sökkva í þunglyndi hér norður á klakanum. í ljósi þess að Hallbjörn er ekki síðri lagahöfundur og söngvari sjálfur en þeir flytjendur sem heyrast í stöðinni hans, þá hugsa margir sér gott til glóðarinnar. Þvi er talið meira en liklegt að aðdáendaklúbbar Hall- bjarnar víða um land muni skora á Markús Öm Antonsson útvarps- stjóra að hefja þegar undirbúning að því að senda Hallbjörn í Evróvísjón- keppnina 2003... Heimta svör frá Halldóri Ritstjórar Hrifluvefs framsóknar- manna í Reykjavík hafa sent Hall- dóri Ásgrlmssyni, formanni flokks- Iins, heldur betur tóninn. Heimta ; þeir skýringar á því hvers vegna I frestun laga um s kvótasetningu | smábáta hafi farið j á annan veg en yf- j irlýsingar þing- : flokks Framsóknar- flokksins í fjölmiðlum. Minnt er á að nefndin sem stofnuð var á flokks- þinginu í vetur vegna tillagna Krist- ins H. Gunnarssonar um kvótamál- in hafi ekki enn tekið til starfa. Telja ritstjórarnir málið hið alvar- legasta og virðist alvarlegs klofnings nú gæta meðal framsóknarmanna um sjávarútvegsstefnuna...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.