Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2001, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2001 7 Fréttir Blikur sagðar á lofti í atvinnumálum Vopnfirðinga: ■ •• Ibuar norðan Smjorfjalla sveltir - að mati hreppsnefndar sem vill hitta þingmenn Áhyggjur vegna atvinnumála Vopnfiröingar telja sig afskipta í atvinnumálum þar sem stjórnvöld koma viö sögu. Nýlega var sam- þykkt á fundi sveitar- stjórnar Vopnafjarð- arhrepps sameiginleg ályktun hreppsnefnd- arinnar, Vopnafjarð- arhrepps, forsvars- manna Tanga hf. og atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps en á fundi þessara að- ila þann 3. apríl sl. kom fram að miklar blikur eru á lofti í at- vinnumálum Vopn- firðinga. Fundurinn var sammála því að koma þyrfti á fundi með þingmönnum kjördæmisins hið fyrsta þar sem þeim yrði gerð grein fyrir þeim vanda í atvinnu- málum sem Vopnfirðingar búa við. Bolfiskvinnsla á Vopnafirði hefur að uppistöðu til verið byggð á rússa- fiski og hefur vinnsla þessi veitt um 60 manns stöðuga vinnu fram að þessu. Erfitt hefur verið aö fá slíkan fisk keyptan að undanfórnu á við- unandi verði fyrir vinnsluna. Vinnsla þessi hefur verið einn af meginburðarásum í atvinnulífi Vopnfirðinga og þvi ríkir alger óvissa um starfsöryggi þessa fólks. Síðan segir m.a. í samþykktinni: „Með einhverjum hætti verður að tryggja öryggi í landvinnslunni og jafnhliða þarf að vinna að uppbygg- ingu nýrra atvinnutækifæra til framtíðar. Aðgerðir stórnvalda í virkjana- og stóriðjumálum og sam- göngumálum eru ekki þess eðlis að íbúar norðan Smjörfjalla eygi von í auknum fjölda starfa vegna þessara framkvæmda ef ekki verður gripið til sértækra ráðstafana fyrir þetta svæði. Nú á sér stað mikil atvinnuupp- bygging tengd laxeldi í sjó á Austur- landi þar sem mjög auðvelt er að ná í þekkingu og fjármagn. Vopnafjörð- ur hefur verið útilokaður frá því að vera þátttakandi í þeirri uppbygg- ingu með aðgerðum ríkisvaldsins. Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri segir Vopnfirðinga hafa verið í sam- bandi við þingmenn kjördæmisins og reynt sé að finna tíma sem henti öllum. Fólk sé þó fullt tiltrúar á staðinn og þessa dagana sé m.a. ver- ið að dýpka höfnina en framtíðar- innsiglingin verður innan við Skipshólma og innsiglingarleiðinni milli Skipshólma og Miðhólma síð- an lokað. Aðalfjárveitingarnar til verksins eru hins vegar á árunum 2002 og 2003. Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks í kjör- dæminu, segist nýlega hafa frétt af þessari samþykkt sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps en væntanlega verði hægt að koma fundinum á fljótlega þar sem Alþingi komi ekki saman aftur fyrr en að hausti eða í októbermánuði nk. -GG Loœrutsala 6 fþrétta-eg fóftb®ioflcém Diadora-fotboltaskor Margar gerðir í barna- og fullorðinsstœrðum Verðfrákr. 1.000 Diadora -íþróttaskór Margar gerðir í barna- og fullorðinsstœrðum Verð frá kr. 900 Póstsendum Háaleitisbraut 68 • Sími 568 4240 Kraftvélaveisla , AHNIYERSARY, KOMATSU beltagröfur Þér er boðið á vélasýningu hjá Kraftvélum ehf.r Dalvegi 6-8 Kópavogi, föstudaginn 25. maí frá kl. 17-19 eða laugardaginn 26. maífrá kl. 13-16 KOMATSU minigröfur KOMATSU smáskóflur KOMATSU smágröfur Nýjung DIGGA jarðvegsborar á smágröfur, traktors- og beltagröfur. KRAFTVÉLAR Kraftvélar ehf. Dalvegi 6-8 • 200 Kópavogi • Sími 535 3500 • Fax 535 3501 • www.kraftvelar.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.