Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2001, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2001, Blaðsíða 13
13 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2001 x>v Var James Bond ættaður af Skógarströndinni? Dularfullur Vestur-íslendingur Á sunnudagsmorguninn kl. 10.15 hefst fyrri þáttur Vigfúsar Geirdal á Rás 1 um œvintýra- manninn William S. Stephenson sem varð goðsögn í lifanda lífifyrir hetjuskap og njósnir. Um hann hefur sennilega verió meira fjallað en nokkurn mann af íslenskum uppruna, skrifaöar heilu bœk- urnar og geróar kvikmyndir, meðal annars með David Niven í hlutverki Willi- ams. Ian Fleming, höfundur sagnanna af meistaranjósnar- anum og ofurhetjunni James Bond, starfaói um skeið undir handarjaöri Williams og seinna voru þeir nágrannar á Jamaica. Einn œvisagnahöf- unda Flemings hefur haldið því fram að William Stephen- son sé ein helsta fyrirmyndin aö James Bond. Vist er aó William lagði Fleming til fjöl- margar hugmyndir í njósna- œvintýri Bonds því að ímynd- unarafl hans var svo fjörugt að erfitt er að greina hvað er satt og logið um œvi hans sjálfs. William Stephenson var fæddur 1896 í Kanada og hélt því sjáifur fram að hann væri sonur skoskra innflytjenda. Ýmsar traustar samtímaheim- ildir halda þó fram að hann hafi verið sonur íslenskra inn- flytjenda og sennilegast er að foreldrar hans hafi verið Vig- fus Stefánsson og Kristín Guð- laugsdóttir frá Klungurbrekku á Skógarströnd. Þessa Klungur- brekku var Wiiliam ekki vel við og bærinn er nefndur „Kónga- brekka" í einni heimild, enda segir Vigfús að William hafi hagrætt sann- leikanum al- veg frá upp- hafi. Annað mál er hvers vegna honum fannst hann þurfa þess - nógu ævin- týrarík var ævi hans þó að aðeins sann- leikurinn væri sagður. „Fyrsta bók- in sem skrifuð var um hann heitir The Quiet Canadi- an eftir Hanford Montgomery Hyde og kom út í íslenskri þýð- ingu 1963 undir heitinu Dular- fúlli Kanadamaðurinn," segir Vigfús Geirdal. „Þar er sagt frá því að hann hafi tekið að sér að stjóma njósnum Breta í Vestur- álfú, þ.e.a.s. bæði Norður- og Suður-Ameríku, í seinni heimsstyrjöldinni. í þeirri fyrri hafði William verið stríðshetja, flugás, eins og þeir vom kailaðir árásarflug- mennimir, en tvennum og jafnvel þrennum sögum fer af því hvort hann skaut niður 26, 18 eða 12 óvinaflugvélar! Heimildum ber líka iila sam- an um hvað hann hafi verið lengi flugmaður í fyrra stríði, ein segir að hann hafi gengið í herinn strax 1914, önmu að hann hafi aðeins verið flug- maður fáeina mánuði fyrir stríðslok 1918.“ Vigfús ætlar sér í þáttun- um tveimur að finna mann- inn í þjóðsagnavefnum sem spunnist hefur um hann. í fýrri þættinum verður sagt frá foreldrunum, Vigfúsi og Kristínu, og fjallað um afrek Williams sem flugkappa. í seinni þættinum er fjallað um hvernig hann efnaðist á miilistríðsárunum, með- al annars vegna einkaleyfis á uppflnningu að lita- sjónvarpi, en fyrst og fremst um rekstur hans á umfangsmiklu njósnaneti Breta. William Steph- enson átti stóran þátt í að setja á laggimar leyni- þjónustu Bandaríkjanna á stríðsárunum sem síð- an varð upphaflð að CIA. Voru þau ekki foreldrar hans? Vigfús Stefánsson og Kristín Guö- laugsdóttir frá Klungurbrekku. Þessi mynd af William S. Stephen- son birtist í Voröld, 14. maí 1918. Nafn blaösins er sótt í íslendinga- dagskvæði Stephans G. Stephans- sonar og Stephan geröi sitt til aö halda blaðinu úti. Ritstjóri var Sig- uröur Júl. Jóhannesson, læknir og bindindisfrömuöur. Blaðiö var and- stríössinnaö og róttækt. Tónlist Missið ekki aftur af Trio Nordica Fátt eitt verður sagt um tónleika Triós Nordica í Salnum á þriðjudagskvöldið annað en það að þeir voru stórglæsilegir, glæsilegri en tónleikar gerast yfirleitt hérlendis, að öðrum góðum lista- mönnum vorum ólöstuðum. Það er harla sjald- gæft að hlýða á heila tónleika sem ailan tímann hljóma eins og um væri að ræða upptöku á diski, og vonandi hafa tónleikarnir verið teknir upp því þeir gætu sjálfsagt farið beint í fast form eins og þeir hljómuðu þetta kvöld. Ekki virtist það hafa áhrif á tónlistarkonumar þrjár þegar þær stigu fram á sviðið að mæta ein- ungis um þrjátiu andlitum í salnum - sem reynd- ar hljóta öll að hafa hugsað það sama þegar liða tók á konsertinn: Vesalings hinir sem sátu heima. En hverju sætir það annars að ekki vom fleiri í Salnum að hlusta þetta kvöld? Vom þessir tón- leikar ekkert auglýstir eða fer fólk ekki á tónleika frekar en í leikhús í miðri viku á íslandi? Missið að minnsta kosti ekki af næstu tónleikum Tríós Nordica hvar og hvenær sem þeir verða. Konumar þijár, Auður Hafsteinsdóttir, fiðla, Bryndís Halla Gylfadóttir, seOó, og Mona Sand- Leiklist ström, píanó, léku verk eftir þrjár konur, Kar- ólínu Eiriksdóttur, Elfridu Andrée og Klöru Wi- eck Schumann. Það var skemmtilegt að heyra flutt verk eingöngu eftir konur því ekki era þær margar sem markað hafa tónlistarsöguna í gegn- um tíðina þó þeim sé nú að fjölga til muna. Yngst tónskáldanna og sú fyrsta á efniskránni var Kar- ólina Eiríksdóttir. Píanótríó hennar er spennu- þrungið og ólíkindalegt, með sifellt glettnisfúilu ívafi og svo myndrænt er það að kvikmyndagerð- armenn em hér með hvattir til að kynna sér það náið. Ekki var ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur fyrir Tríó Nordica að byija á þessu erflða verki en þær skiluðu því frábærlega vel frá fyrstu nótu og léku sér að öllum andstæðunum sem í því búa. Næst var sænska tónskáldið og organistinn El- frida Andrée (f. 1841) sem samdi yfir hundrað verk, m.a. kammerverk, píanóverk, kórverk og sönglög. Píanótríó hennar í g-moll er rómantískt í anda með gullfallegum melódiskum laglínum og ekki ósvipað síðasta verki tónleikanna, Píanó- tríói í g-moll op. 17 eftir Klöm Wieck Schumann. Klara Schumann samdi píanótríó sitt þegar hún var ófrísk að fjórða bami sínu en alls eignaðist hún átta böm með tónskáldinu Robert Schumann og er það líkast til ein ástæðan fyrir því að ekki liggur eftir hana lengri verkefnalisti en raun ber vitni. Píanótríóið er failegt verk og stenst að fróðra sögn vel samanburð við önnur verk í sama stíl frá sviþuðum tíma. Leikur kvennanna þriggja í þessum tveimur verkum kynsystra sinna var glæsilegur og fór þar allt saman, tæknilegur brill- íans og einstök túlkun. Þær em hver annarri betri hljóðfæraleikarar, þær Auður og Bryndís óskeikulir, tandurhreinir og hámákvæmir strengjaleikarar og Mona Sandström leikur sér að öllum blæbrigðum píanósins af fuiikomnu ör- yggi- í raun er ekkert meira að segja um þessa frá- bæra tónleika en þeir sem misstu af þeim era minntir á að Tríó Nordica gaf út disk árið 1995 þar sem þær leika eitt af umræddum verkum, píanótríóið fagra eftir Klöra Schumann. Hrafnhildur Hagalín Allt í steik Hjálpsemi er ekki alltaf metin að verðleik- um eins og Jón Jónsson leigubílstjóri kemst að raun um þegar hann kemur gamalli konu sem verið er að ræna til aðstoðar. Viðskiptin við þá gömlu leiða til heimsóknar á slysavarð- stofuna og þar er það Jón sjálfur sem í ógáti gefur upplýsingar sem eiga eftir að valda verulegum vandræðum. Á slysavarðstofunni gefur hann nefnilega upp heimilisfang í Hafn- arflrði en Þrándur lögga, sem ekur honum heim, fer með hann í hús í Breiðholtinu. Þetta á sér reyndar eðlflega skýringu því Jón hefur komist upp með það i nokkur ár að vera kvæntur tveimur konum; Mariu sem hann býr með í Breiðholtinu og Barböru sem hann býr með í Hafnarfirði. Hann lifir sam- kvæmt stundaskrá og deilir tíma sínum bróð- urlega milli eiginkvennanna en þetta litla næturævintýri setur allt úr skorðum. Það er ekki aðeins að stundataflan riðlist heldur fer lögreglan að hnýsast i einkamál Jóns sem næstu klukkustundirnar reynir allt hvað hann getur til að bjarga sinu vel skipulagða en tvöfalda lífi. Þeir sem blandast inn í atburða- rásina auk eiginkvennanna eru Steini Garðars, sem býr á hæðinni fyrir ofan Maríu og Jón, lög- regluþjónarnir Þrándur og Þórður, Bobbi og Steinþór sem búa fyrir ofan Barböru og Jón og blaðasnápur frá DV. Jón berst hetjulega og not- ar öll möguleg og ómöguleg vopn í baráttunni en væntanlegum áhorfendum er látið eftir að komast að því hvemig leikurinn fer. Það var greinilegt að frum- sýningargestir í Borgarleik- húsinu í gærkvöld skemmtu sér konunglega á uppsetningu Þórs Tulinius á Með vífið í lúk- unum. Þar ræður mestu sér- lega vel heppnuð þýðing og staðfærsla Árna Ibsen og ein- vala lið gamanleikara í hlut- verkum. Þar er Eggert Þorleifs- son fremstur í flokki en hann fer með hlutverk Steina Garð- ars og uppskar ófáar hláturs- . Vandræöamyndin sem birtist í DV rokurnar fvrir stórskemmti- Steinn Ármann og Olafía Hrönn í hlutverkum Jóns og Maríu. lega takta. Steinn Ármann Magnússon leikur Jón og tekst sérlega vel að gæða þennan örvæntingarfulla „meðaljón“ lífi. Og Jón fellur greinilega fyrir svipuðum týpum því þær Ólafía Hrönn Jóns- dóttir og Helga Braga Jónsdóttir eru um margt áþekkar. Farsinn býður upp á ýkta túlkun og það notfæra.þær sér báðar, Ólafía Hrönn í trylltum reiðiköstum og Helga Braga í dæmalaust fyndnum tilburðum sem áttu að vísa til kynlífslöngunar, svo dæmi séu tekin. Júlíus Brjánsson var í hlutverki Þórðar rann- sóknarlögreglu og skapaði úr honum bráð- skemmtilega týpu. Gunnar Hansson, Halldór Gylfason og Ámi Pétur Guðjónsson skiluðu sínu líka með prýði þó sjálf sé ég orðin ansi þreytt á þessum klisjukenndu útfærslum á hommum. Með vifið í lúkunum er ágætlega lukkaður farsi en fer dálítið hægt í gang. Seinni hlutinn var mun snarpari en stundum kom fyrir að of lengi var hjakkað í sama brandaranum/atrið- inu. En hlátrasköllin sem glumdu í Borgar- leikhúsinu í gær eru besta sönnun þess að sýningin virkar eins og hún á að gera. Halldóra Friðjónsdóttir Leikfélag Reykjavíkur og íslenska leikhúsgrúppan sýna á stóra sviöi Borgarleikhússins: Með vífið í lúk- unum eftir Ray Cooney. Þýöing og staöfærsla: Árni Ibsen. Hljóð: Baldur Már Arngrímsson. Lýsing: Lárus Björnsson. Leikgervi: Sigríöur Rósa Bjarnadóttir. Búningar: Stefanía Adolfsdóttir. Leikmynd: Stígur Steinþórsson. Leikstjári: Þór Tulinius. ___________Menning Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir Odd Nerdrum fer Fáar sýningar Listasafns Reykjavíkur hafa hlotið jafngóða aðsókn og sýning hins umdeilda norska málara Odds Nerdram. Síðasti sýningar- dagur er á sunnudaginn og þann dag býður Lista- safnið upp á leiðsögn klukkan 15. Á sýningunni má sjá þróun Odds sem málara með sérstakri áherslu á verk frá síðasta skeiði - eftir hina storkandi yfirlýsingu um að hann væri kitschmálari. Kjarvalsstaðir era opnir daglega kl. 10-17. Sinfóníutónleikar Umsjónarmaður menningarsíðu hélt að sinfón- íutónleikar vikunnar væra á fimmtudagskvöldi að venju en þeir era í kvöld, fóstudagskvöld, kl. 19.30 og á morgun kl. 17 í Háskólabíó. En það er sama fina veislan og við boðuðum um daginn, Rachmaninoff, Ravel, Dvorak og hin unga og fall- ega Elizaveta Kopelman við flygilinn. Hringf erðin í Hafnarborg Eydís Franzdóttir óbóleikari og Brynhildúr Ásgeirsdóttir pí- anóleikari halda tónleika í Hafnarborg á sunnudagskvöld- ið kl. 20 og nota tækifærið til að fara með hlustendur i ferðalag um Evrópu að vori. Ferðin hefst á Englandi hjá vatnamyllunni í verki eftir Ronald Binge og hlustað á tifið í engi- sprettunum og suðið í vespunum að hætti Benja- min Britten. Síðan er haldið til meginlandsins, Tékklands, Frakklands, Þýskalands og svo aftur til Englands áður en haldið er heim á leið. Norrænir hlutir Á morgun verður opnuð myndlistarsýningin Norrænir hlutir í Norræna húsinu. Þar sýna frá Danmörku Anna Zadros Hansen, Armen Matinj- an, Khaled D. Ramadan og Miguel Vega Olivares, Christine Candolin og Niran Baibulat frá Finn- landi, Tomasz Ozdowski og Danuta Haremska frá Noregi og Ósk Vilhjálmsdóttir. Sýningin er liður í átakinu „Hin nýju Norður- lönd“ og kl. 14 á morgun hefst opið málþing í tengslum við opnun sýningarinnar þar sem fram- sögumenn verða Libuse Múller, Khaled Ramadan og Ósk Vilhjálmsdóttir. Sýningin verður opin þrið.-sun. kl. 12-17 til 6. ágúst. Vor með Daða Daði Guðbjömsson listmál- ari sýnir verk sín á Myndlist- arvori í Vestmannaeyjum og verður sýningin opnuð á morgun kl. 16 í gamla véla- salnum á homi Græðisbraut- ar og Vesturvegar. Þetta er ijórða og síðasta sýningin á þessu Myndlistarvori. Daði hefur ekki sýnt verk sín í Eyjum áður. Athygli er vakin á því að sýningunni lýkur 4. júní sem er annar í hvítasunnu. Opið frá 14-19, lokað virka daga. Aðgangur ókeypis. Jósúa Við minnum á framflutning á íslandi á óratór- íunni Jósúa eftir Hándel á Kirkjulistahátíð í Hall- grímskirkju á sunnudagskvöldið kl. 20. Þar verð- ur ekkert til sparað svo að gestir megi eiga eftir- minnOega stund: glæsilegur einsöngvarakvartett, Schola cantoram og barokkhljómsveit - og öllu stýrir Hörður Áskelsson styrkri hendi. Das Boot Sunnudags- og mánudagskvöld kl. 22.30 sýnir Filmundur í Háskólabíói eina bestu kafbátamynd allra tíma, þýsku myndina Das Boot eftir Wolf- gang Peterson. Das Boot gerist í seinni heims- styrjöldinni í kafbátnum U-96 sem einna helst minnir á líkkistu og kemst þessi einangrun afar vel til skila í myndinni. Með i ferðinni er blaða- maður sem á að skrásetja hetjudáðir samlanda sinna, en atvik fara á annan veg... Das Boot vakti mikla athygli á sinum tima fyr- ir raunsæja mynd af afleiðingum stríðs, tækni- lega úrvinnslu, kvikmyndatöku, klippingu og hljóðvinnslu. Filmundur sýnir uppranalegu út- gáfúna frá 1981.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.