Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Síða 8
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001 Fréttir DV Áhyggjur hjá Meindýravörnum íslands á Húsavík: Refurinn leitar í þjóðgarðana leituðum án þess að finna, segir forstjóri Náttúruverndar ríkisins Ámi Logi Sigurbjömsson, for- stjóri Meindýravarna íslands á Húsavík, hefur áhyggjur af fjölg- un refs og minks í þjóðgörðum landsins og þá helst í Jökulsár- gljúfrum þar sem hann segir krökkt af dýrbítum en bannað að veiða þá: „Refurinn er refur og það er eins og hann sé búinn að finna það út að hann sé óhultur í þjóð- görðunum. Þetta á ekki aðeins við um Jökulsárgljúfur heldur mest- allt miðhálendið sem er að verða einn allsherjar þjóðgarður," segir Ámi Logi og bætir því við að á Hornströndum, sem nú em friðað- ar, sjáist varla fugl lengur - mink- urinn leiki þar lausum hala og éti allt. Ámi Bragason, forstjóri Nátt- úruverndar ríksins, sem hefur með málefni þjóðgarðanna að gera, er ekki sammála meindýra- eyðinum á Húsavík: „Við fengum veiðistjórann á Arni Bragason. Refurinn er refur Leitar þangaö sem hann veit aö engir eru byssumennirnir. Akureyri til að leggja mat á ástandið í Jök- ulsárgljúfrum og niðurstaða hans var að þar væri ekki minkur. Hann fór við sjötta mann ásamt hundum og þeir fundu ekkert. Reyndar leituðu þeir aðeins að mink en ekki ref,“ segir Árni Bragason. Um þetta segir nafni hans á Húsavík: „Það er ekki nema von að þeir hafi ekki fundið ref eða mink. Þeir voru með handónýta fjárhunda sem ég hefði ekki einu sinni treyst til að finna rottu.“ Forstjóri Náttúruverndar ríkis- ins segist hafa fengið það staðfest hjá veiðistjóra að öll gömul refa- greni, sem vitað er um í þjóðgarð- inum í Jökulsárgljúfrum, séu tóm. -EIR íslensku kýrnar komnar í hörkusamkeppni í nyt við þær norsku: Fimm þúsund færri en mjólka eins mikið Mikill keppnisandi virðist hafa hlaupið í íslenskar kýr eftir að þær fréttu af hugsanlegri samkeppni við þær norsku hér á heimavelli. Þótt mjólkurkúm í landinu hafi síðasta áratuginn fækkað um 1/6 eða rösk- lega 5 þúsund var innvegin mjók í mjólkurbúin litlu minni síðustu tvö árin heldur en árið 1990, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. „Fram- leiðniaukning" kúnna síðustu fimm árin er svo mikil að jafnvel mannlega vinnuaílið í landinu má fara að vara sig að láta ekki kýrnar máta sig á því sviði, að ekki sé talað um norsku belj- urnar. Skila nú 500 lítrum meira Mjólkurkúm i landinu fækkaði úr nær 32.300 í upphafi síðasta áratugar niður í rétt rúmlega 27.000 í fyrra og hafði þá fækkað um þúsund tvö ár í röð. Innvegin mjólk eftir hverja kú jókst mjög hægt framan af áratugn- um. En frá 1994 hefur hún aukist um samtals 15% eða um 500 lítra að með- Fleiri mjólkuriítrar á hverja kú - breytingar frá 1990 til 2000 35.000 MJólkurkýr 27.070 30.000 25.000 20.000 4.000 MJólkurlítrar á kú 3.000 3.318 2.000 o<—HHHHHH^HHHHHHHHHHHHLj rsjÞS 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 altali á hverja kú, upp í rúmlega 3.840 lítra í fyrra, samkvæmt tölum Hag- stofunnar. í fyrra bárust mjólkurbú- unum rösklega 104 milljónir lítra af mjólk. í heild hefur nautgripum í landinu fækkað mun hægar en mjólkurkún- um, eða úr tæplega 75 þúsund gripum árið 1990 niður í rúmlega 72 þúsund gripi i fyrra. Enda jókst framleiðsla á nautakjöti um íjórðung á tíunda ára- tugnum. Þar sem mjólkurframleiðslan er svipuð og fyrir áratug þótt lands- mönnum hafi íjölgað um 26 þúsund (10%) er ljóst að neysla mjólkur og mjólkurafurða á mann hefur minnkað verulega og líka breyst. Nýmjólkur- sala hefur til dæmis minnkað úr 29 niður í 16 milljónir lítra í fyrra (að- eins rúman 1 lítra á mann á viku) en léttari mjólk aukist að sama skapi. Sala á mjólk sem hvorki var sykruð né sýrð var komin niður i rúma 37 milljón lítra í fyrra (132 lítra á mann að meðaltali). Sala á jógúrt hefur auk- ist um 60%. Skyrið komst í tísku í fyrra og salan jókst um þriðjung. Sala á ostum jókst nær 50% á áratugnum, en viðbitið hefur þokast heldur niður á við. -HEI Barátta upp á líf og dauða í Reykjadal: 6 klukkustunda slagur „Þeir verða að missa sem eiga,“ sagði Ólöf Helgadóttir, húsfreyja á áttræðisaldri í Stafni í Reykjadal, í samtali við DV í gær og bar sig vel þrátt fyrir fjárskaöa. Snorri Kristjánsson, sonur Ólafar og bóndi á Stafni í Reykjadal, var þá búinn að finna 15 full- orðnar ær sem drápust í óveðri síðustu viku og tvö dauð lömb. Ólöf segir að vel geti veriö að fleiri kindur muni finnast dauðar í skurðum þarna í kring. Þeir séu enn full- ir af snjó. Féð var á heimatúnum burðarins þegar brast á Fjarskaöi á Noröurlandi Krafla AKUREYRI áák \ Stafn Stafn er bær á vestanverðri Mývatnsheiði og er fremsti bær- inn f Reykjadal. Þar varö mestur fjárskaöi á landinu í óveðr- inu í síðustu viku. íloksauð- vitlausu veðri og hófust menn með snar- handa við að bjarga því sem bjargað varð. „Þeir voru sex klukkustundir að berja þetta heim því það var svo ofsinn á móti að féð fór ekkert heldur sneri alltaf við undan veðrinu," segir Ólöf. Hún segir eng- an vafa leika á að veðrið hafi verið verra en varð nokkru sinni sl. vetur og einsdæmi í júní. Á Stafni er búið með tæplega 400 íjár en ekki liggur enn fyrir hvort eða hvernig tjónið verður bætt. Hugsanlegt er að Bjargráðasjóður komið að málum en Snorri og Ólöf eru ekki farin að kanna það enda er óljóst enn hve margar kindur drápust. -BÞ I Gæsin leidd brott Lögreglan vildi koma væntanlegri brúöur í öryggi, burtu frá umferöareyjunni. Óheppilegur staður fyrir gæsapartí: Löggan leiddi gæsina burtu Gæsa- og steggjapartí njóta vin- sælda og eru haldin samkvæmt bandarískri fyrirmynd og kannski ganga íslendingar enn lengra í þess- um efnum eins og dæmin sanna enda öfgamenn miklir. Nýlega var brúðgumi hætt kominn á Akureyra- polli i steggjarpartíi. Um helgina þurfti lögreglan að skipta sér af ógáfulegri „gæsun“ í Hafnarfirði. Búið var að gæsa ungu dömuna og var hún á miðju hringtorginu í Hafnarfirði hjá veitingahúsinu A. Hansen, sat við borð og var að fá sér í glas í rólegheitunum meðan vin- konurnar mynduðu hana i bak og fyrir. Þá bar að tvo lipra lögreglu- þjóna sem leystu gleðskapinn upp og leiddu væntanlega brúði burt af staðnum. Bannað er að drekka áfengi á almannafæri, og eins eru umferðareyjar nokkuð fjarri lagi fyrir skemmtanahald. Stúlkan var leidd burtu rólega með skilti á bak- inu: „Síðasti sjens“. Vonandi eru tækifæri hennar í lífinu þó ijarri því þrotin. » f m .-V' a»**:ksíÉí«Ri..jíí ; k rat ..%r% Mannlíf við hafnarbakka Norðurbakkinn í Hafnarfjaröarhöfn. Þegar meöfylgfandi mynd var tekin sigldi hvalaskoöunarskipiö Elding á vit sjávarspendýra sem nú eru svo mjög í um- ræöunni hér á landi. Hafnarfjörður: Rætt um íbúðir viö Norðurbakkann DV. HAFNARFIRDI- Norðurbakki Hafnarfjarðarhafnar mun í framtíðinni fá skemmtilegt hlutverk í bæjarmyndinni. Þessa er farið að sjá stað og bakkinn orðinn blómlegur. Það eru menningar- og ferðaþjónustufyrirtæki sem setja svip sinn á Norðurbakkann þar sem nú liggja við festar hvalaskoðunarskipið Húni II og gamla varðskipið Þór sem nú heitir Thor og er veitinga- og sögu- skip. Hafnarstjórn Hafnarfjarðar sam- þykkti á síðasta fundi sínum að fela formanni og framkvæmdastjóra að ræða við bæjarstjóra um framtíðar- hlutverk Norðurbakkans. Fram hafa komið þær hugmyndir að bakkinn verði nýttur til íbúða, þjónustu- og menningarstarfsemi sem tengjast muni miðbæ Hafnarfjarðar. Við breytta notkun bakkans er ekki ætlunin að vega á nokkurn hátt að þeim fyrirtækjum sem nýta bakkann fyrir hafnsækna starfsemi nú. Leggur hafnarstjórn áherslu á að viðlegu báta og skipa verði ekki fórnað við breyt- ingarnar. -DVÓ/JGR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.