Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Síða 12
12
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001
I>V
Útför ungs fórnarlambs
Ariel Sharon, forsætisráöherra
ísraels, var í gær viöstaddur útför
fimm mánaöa barns sem varö
fórnarlamb grjótkasts
Palestínumanna.
ísraelar sam-
þykkja friðar-
áætlun CIA-stjóra
ísraelsk yfirvöld samþykktu í
morgun áætlun Georges Tenets, for-
stjóra CIA, leyniþjónustu Banda-
ríkjanna, um vopnahlé til að binda
enda á átta mánaða átök við Palest-
inumenn. Talsmaður Ariels Shar-
ons, forsætisráðherra ísraels,
greindi frá þessu í morgun. ísraelar
sögðust hafa samþykkt áætlunina
til að geta hrint í framkvæmd til-
mælum alþjóðlegrar nefndar undir
forystu Georges Mitchells, fyrrver-
andi öldungadeildarþingmanns í
Bandarikjunum. Búist var við yfir-
lýsingu frá Palestínumönnum um
áætlunina fljótlega. Palestínumenn
lýstu því yfir í gær að þeir
samþykktu allar hugmyndir Tenets
sem ekki væru i andstöðu við
skýrslu Mitchells.
Segjast hafa
hálshöggvið
bandarískan gísl
Uppreisnarmenn múslíma á Fil-
ippseyjum tilkynntu í morgun að
þeir hefðu hálshöggvið einn þriggja
bandarísku gíslanna sem þeir
rændu í síðasta mánuði af ferða-
mannastað. Gloria Macapgal Ar-
royo, forseti Filippseyja, kvaðst
ekki hafa fengið fregnina staðfesta
en hét því aö ganga til bols og höf-
uðs á samtökum uppreisnarmanna.
Mannræningamir sögðust hafa
tekiö Guillermo Sobero af lifi í til-
efni þjóðhátíðardags Filippseyja.
Báðu mannræningjar herinn að
flýta björgunaraðgerðum. Hætta
væri á að enginn fyndist á lífi.
Átökln í Makedóníu flúin
Albanskir flóttamenn viö landamæri
Makedóníu og Kosovo í gær.
Vopnahlé rofið
Timabundið vopnahlé í Makedón-
íu virtist dauðadæmt í morgun eftir
að albanskir uppreisnarmenn skutu
á lögreglubíl og særðu fjóra lög-
reglumenn.
Bæði stjórnarherinn í Makedóníu
og skæruliðar lýstu í gær yfir
vopnahléi eftir að íbúar Skopje, höf-
uðborgar Makedóníu, voru lagðir á
flótta. Uppreisnarmenn höfðu hótað
að gera árás á höfuðborgina. Þeir
eru með bæinn Aracinovo, sem er í
um 10 km fjarlægð frá höfuðborg-
inni, á valdi sínu. Flestir þeirra,
sem flúið hafa Skopje eru Albanar
sem óttast hefndaraðgerðir Slava
geri uppreisnarmenn alvöru úr hót-
un sinni um árás á höfuðborgina.
Eigin stefna í stað Kyoto-sáttmálans:
Bush reynir að
sefa reiði Evrópu
George W. Bush Bandaríkjaforseti
kom í morgun í fyrsta sinn til Evr-
ópu. Fyrsti áfangastaður forsetans er
Spánn þar sem efnt hefur verið til
mótmæla við sendiráð Bandaríkj-
anna vegna aftöku fjöldamorðingjans
Timothys McVeighs í gær. Evrópu-
búar eru einnig reiðir Bush og stjórn
hans fyrir að vilja ekki staðfesta
Kyoto-sáttmálann um takmörkun á
losun gróðurhúsalofttegunda.
Áður en Bush lagði af stað til Evr-
ópu sagði hann í viðtali viö evrópska
fréttamenn að ágreiningur ríkti um
ýmis atriði. Það þýddi þó ekki að
ekki gæti ríkt vinátta milli Banda-
ríkjanna og Evrópu. Forsetinn tók
fram að Bandaríkin hygðust efla
rannsóknir á hvemig hægt væri að
draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda. Hann sagði hins vegar Kyoto-
sáttmálann rangan í grundvallarat-
riðum. Bush viðurkennir nú að losun
gróðurhúsalofttegunda hefur áhrif. 1
stað þvingunaraðgerða vill hann
Lagt upp í Evrópuferð
Bush Bandaríkjaforseti kom í morg-
un í fyrsta sinn til Evrópu. Mun hann
fara vítt og breitt áöur en hann
heldur heim á sunnudag.
samvinnu við alþjóðlegar rannsóknir
á málinu. Búist er við að afstaða
Bandaríkjanna verði eitt aðalmál-
anna á fundi Evrópusambandsins,
ESB, og Bandaríkjanna í Gautaborg á
fimmtudaginn.
í síðustu viku greindi bandarísk
sérfræðinganefnd Bush frá því að
gróðurhúsaáhrifin væru staðreynd
og að grípa þyrfti til aðgerða gegn
þeim. Greinilegt þótti að Bush var að
svara gagnrýni Evrópumanna þegar
hann sagði í gær að Bandaríkjunum
væri ljóst áð þeim bæri að leggja sitt
af mörkum. Bandaríkjaforseti benti
um leið á að um 80 prósent af öllum
gróðurhúsalofttegundum kæmu frá
öðrum löndum en Bandarikjunum.
Flestar kæmu þær frá þróunarlönd-
unum. Bush sagði að Bandaríkin
myndu halda áfram samvinnu innan
ramma Sameinuðu þjóðanna en
reyna að finna leið sem skaðar ekki
efnahag Bandaríkjanna.
GHIEE] HB
gysilj! VI
CH4IS fg
tssnomzi tat
I JÍ*L_E'
! NSkSWI
[I
!L 1J IH III N • ffK
i ú ..$Ki w W f? < t&ðiFl!. ■!
. V-. • \ • |
tV 'r-itm'Bli-tt - \ , 1’ .gl Wk
Reiöir launþegar
Þúsundir S-Kóreumanna gengu um götur Seoul í morgun og hrópuöu slagorö gegn yfirvöldum. Herská stéttarfélög,
þar á meöal stéttarfélag flugmanna viö Korean Airlines, boöuöu til verkfalls í dag.
Blair hækkar launin
sín um 40 prósent
Breskir fjölmiðlar gagnrýndu í
morgun harðlega Tony Blair forsæt-
isráðherra fyrir að hækka laun sín
um 40 prósent. Meira að segja blöð
hliðholl forsætisráðherranum tóku
undir gagnrýnina. Bæði Blair og
ráðherrar hans þáðu lægri laun
fyrra kjörtímabil sitt en þeir áttu
rétt á til að koma í veg fyrir háar
launakröfur opinberra starfsmanna.
Blair lauk uppstokkun á stjóm
sinni í gær og eins og búist var við
var ráðherra Evrópumála, Keith
Vaz, látinn taka pokann sinn. Peter
Hain tekur við embætti hans.
Athygli hafa vakið ummæli ráð-
gjafa Robins Cooks, sem rekinn var
úr embætti utanríkisráöherra, um
að Gordon Brown fjármálaráðherra
hefði neikvæð áhrif á stefnu Bret-
lands gagnvart myntbandalagi Evr-
Harölega gagnrýndur
Fjölmiölar gagnrýna Blair harðlega
fyrir aö hækka laun sín.
ópu. Ráðgjafinn, David Clarke,
sagði í grein í The Guardian í morg-
un aö Blair væri hræddur við að
takast á við fjármálaráðherra sinn i
málinu. Clarke skrifaöi grein sína
áður en Cook var vikið úr embætti
utanrikisráðherra.
Breskir fjölmiðlar fullyrtu einnig
í morgun að Michael Portillo, fjár-
málaráðherra í skuggaráðuneyti
íhaldsmanna, hygðist taka þátt í
baráttunni um formennsku i fhalds-
flokknum. Búist er við að hann
greini frá ákvörðun sinni fljótlega.
Ann Widdecomb og Iain Duncan
Smith hafa bæði lýst því yfir að þau
séu að íhuga framboð.
Portillo var um helgina í
Marokkó og sneri heim til Bret-
lands í gær. Hann kvaðst hafa haft
gott tækifæri til að íhuga málið.
Lögga skaut á höllina
Lögreglumaður á
vakt fyrir utan
Buckinghamhöll
skaut óvart á höll-
ina úr skambyssu
sinni. Þetta er ekki
í fyrsta skiptið sem
skot hleypur úr
byssu varðmanns
Elísabetar drottningar. Enginn
meiddist.
500 mil||ónir í rútu
Lögreglan í Mexíkó sagðist í gær
hafa fundið andvirði meira en 500
milljóna króna í rútu í vesturhluta
landsins. Verið er að rannsaka mál-
ið.
Kynlífshneyksli í Serbíu
Vuk Obradovic, aðstoðarforsætis-
ráðherra Serbíu, sagði af sér í gær
vegna ásakana um kynferðislega
áreitni. Meirihluti þingsins hafði þá
þegar kosið um að setja hann af.
Sjálfur stóð hann fyrir rassíu gegn
spillingu fyrr á árinu.
BBC skrumskældi Elite
Breska rikissjónvarpsstöðin BBC
viðurkennir að hafa málað skratt-
ann á vegginn í þætti sínum um
módelsamtökin Elite árið 1999, þar
sem gefið var í skyn að módelin
væru skipulega notuð til að seðja
kynferðishvatir stjórnenda samtak-
anna. í kjölfarið hafa samtökin hætt
meiðyrðamáli gegn BBC.
Berlusconi í stólinn
Fjölmiðlakóngur-
inn Silvio
Berlusconi tók í
gær sæti sem for-
sætisráðherra ítal-
íu. Hann hlýtur eld-
skírn sína í utan-
ríkismálum á fund-
um Nató og ESB í
vikunni. Þetta er 59. stjórn landsins
síðan 1945.
Rannsaka lát prinsessu
Breska lögreglan rannsakar nú
dauða dóttur fyrrverandi íranskeis-
ara sem fannst látin í hótelherbergi
í Lundúnum. Faðir hennar, Ayta-
tollah Khomeini, var hrakinn frá
völdum i byltingunni 1979.
Draugur konungsins
Nepalskur hindúa-
prestur klæddur eins
og Birendra heitinn
konungur sem myrt-
ur var fyrir
skemmstu lagði upp
í útlegð á fll til
Himalayafjalla í gær.
Athöfninni er ætlað
að koma vofu konungsins burt.
Sama verður gert við draug sonar
hans og morðingja, Dipendra prins.
Fleiri eftir Schengen
í kjölfar þess að Schengen vega-
bréfasamstarflð tók gildi hefur þeim
ijölgað verulega sem stinga upp
kollinum í Danmörku og sækja um
pólitískt hæli.
Fóstureyðingaskip á ferð
Hoflenskt fóstureyðingaskip er
lagt af stað í átt að írlandi. Skipið
mun liggja fyrir utan írska land-
helgi og bjóða þarlendum konum
fóstureyðingar, en þær eru bannað-
ar i landinu.