Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001 Skoðun Hugsarðu mikið um útlitið? Auöur S. Jónasdóttir söiumaöur: Já, ég reyni aö hugsa sem best um útlitiö. Guðrún Jörgensdóttir barþjónn: Svona passlega mikiö, ég er líka í þannig starfi. Sólveig Ásgeirsdóttir hárgreiöslunemi: Já, þaö fylgir í rauninni starfinu. Heimir Guðjónsson hárgreiöslunemi: Svona mátulega mikiö. Gummi klippari á mojo: Þaö fylgir starfinu. Bretar falla í Blair-gildruna Einar Arnason skrifar: Nú er ljóst að Verkamannaflokk- urinn breski hefur unnið sig upp i að vera við völd þrjú kjörtímabil i einu, nokkuð sem þeim flokki hefur ekki tekist frá upphafi. Þetta er því að vonum mikill sigur fyrir for- mann Verkamannaflokksins, Tony Blair. Áreiðanlega má kenna for- manni íhaldsflokksins um ósigur þess flokks. William Hague er lit- laus stjórnmálaforingi og erfitt fyrir hann að vera sífellt í skugga Mar- grétar Thatcher sem var einhver lit- rikasti stjórnmálaforingi Breta á síðustu öld, að flestra mati. Ég tel að þrátt fyrir sigur Verka- mannaflokksins nú verði Bretar fljótt varir við að flokkurinn stend- ur á braufótum, og auðvitað mest vegna ýmissa mála sem tengjast Evrópusambandinu. Ég myndi orða það svo að Bretar hafi nú fallið í Blair-“gildruna“, sem þýðir að fólk hafl látið glepjast af atorku og krafti Blairs, foringja Verkamannaflokks- ins. Blair er óumdeilanlega afar snarpur í framgöngu og getur verið leiftrandi snjall í ræðum sínum, þegar hann hefur byrinn í bakið. En hann hefur líka sýnst missa móðinn þegar á móti blæs, og má minna á hneykslismál flokksbræðra hans gegnum tíðina, og þá er Tony Blair ekki hnarreistur, jafnvel brjóstum- kennanlegur. Stefna Verkamannaflokksins breska er ekki bein og óskeikul í þeim málum sem nú verða efst á baugi á næstu vikum. Breska pundið er átrúnaðargoð bresku þjóðarinnar og það verður varla látið af hendi gegn evrunni, svona einn, tveir og þrir. Og ESB-umræðan í Bretlandi á eftir að steyta á enn fleiri þáttum en gjaldmiðlinum. Tony Blair á þó fárra annarra kosta völ en að stefna beint á evrópska myntbandalagið úr því sem komið er. En þegar þar að kem- ur verður að bera málið undir þjóð- „Ég tel að þrátt fyrir sigur Verkamannaflokksins nú verði Bretar fljótt varir við að flokkurinn stendur á brauðfótum, og auðvitað mest vegna ýmissa mála sem tengjast Evrópusam- bandinu.“ aratkvæði, þó ekki fyrr en á næsta ári. Þá spái ég að komi að leiðarlok- um Verkamannaflokksins i stjórnar- setu fyrir Breta, því verði það fellt af þjóðinni, hlýtur að verða að boða til kosninga. Hvað þá verður veit enginn nú, og vont að spá svo langt fram í tím- ann. Fyrirsjáanlegt er þó að Verka- mannaflokkurinn og stjórn hans tal- ar ekki mál alls þorra Breta þegar kemur að því að láta gjaldmiðilinn góða fyrir baunadiskana í Brussel og stjóm þar. Jafnvel ekki fyrir þús- und slíka. Þá mun íhaldsflokkurinn hafa fengið nýjan formann og nýtt foruneyti. Óeðlileg hækkun tryggingagjalda Hrafnkell Daníelsson skrifar. Móttekinn greiðsluseðill minn frá vissu tryggingafélagi hér á landi sýnir hvemig iðgjöld hafa hækkað á undanfömum árum. Þetta er meiri hækkun en nokkurs staðar á mark- aðinum, ef bensín er undanskilið. Það er engu líkara en það sé verið að refsa fólki fyrir að eiga ökutæki og nota það. Alla vega er það þannig að ég get ekki séð hvaða tilgangi það þjónar, öðrum en þeim að greiða niður rándýrar auglýsingar á borð við þær sem sýna bíla og hús stórskemmd (ein auglýsingin sýnir bíl sem er ekið í gegnum lokaðar dyr á bílskúr). - Það eina sem sú auglýsing skilaði til min var að „I gegnum tíðina hafa auglýs- ingar frá tryggingafélögunum gefið það í skyn að það sé í lagi að skemma og eyðileggja hluti því að fólk fái þá nánast endurgreidda að fullu. “ tryggja ekki hjá viðkomandi trygg- ingafélagi ótilneyddur. Þama eru skemmdir hlutir fyrir einhver hundruð þúsunda ef ekki nokkrar milljónir, að viðbættum þeim kostnaði sem fór í að gera myndbandið og greiða þátttakend- um. Og síðan sá kostnaður sem fylg- ir því að sýna auglýsinguna á öllum sjónvarpsstöðvum. Á besta tíma hjá aðalstöðvunum tveimur, Stöð tvö og RÚV, kosta 10 sekúndurnar á birt- ingu leikinnar auglýsingar rúmar 34 þúsund krónur. í gegnum tíðina hafa auglýsingar frá tryggingafélögunum gefið það i skyn að það sé í lagi að skemma og eyðileggja hluti því að fólk fái þá nánast endurgreidda að fuflu. Það hefur líka sýnt sig að þær auglýs- ingar hafa skilað þeim árangri að tjónum í umferðinni hefur fjölgað gífurlega á undanförnum árum. Nær væri fyrir tryggingafélögin að gera uppbyggilegar auglýsingar í framtíðinni sem væru fræðandi en ekki auglýsingar á borð við þá sem hér er minnst á, þar sem verðmæti fyrir milljónir eru eyðilögð og neyt- endur látnir borga brúsann. Herra M. er farinn líka Garri Árni M. Mathiesen var maður beygður þegar komst á hreint að hann fengi ekki að vera memm á sjómannadaginn. „Ég fæ ekki einu sinni aö fara í siglingu," sagði hann á ríkis- stjórnarfundi og lagði ennið að öxl Bjöms Bjarnasonar. „Æi, Ámi, gimmí a breik,“ sagði Björn. „Þú ert búinn að vera vælandi í margar vikur út af þessu. Þetta er ekkert svo mikið sport. Þú getur haldið ræðu annars staðar, seinna.“ „En ég var búinn að semja ræðuna,“ sagöi Árni snöktandi. „Sjitt happens," sagði Bjöm, klappaði á öxlina á Árna og gekk út. Bannað að tala „Ég fæ ekki að tala,“ sagði Ámi M. Mathiesen við Freystein Einarsson strætisvagnastjóra nú fyrir helgi. „Ekki neitt, þeir vilja ekki heyra múkk.“ Freysteinn sagði ekkert, benti Áma bara á skiltið: Bannað aö tala við vagnstjóra í akstri. Svo tók Freysi upp gsm-símann sinn og hringdi í móður sína. Og svona liðu dagamir í endalausu miskunn- arleysi. Enginn vildi tala við Áma og því síður hlusta á hann. „Ég heyri ekki einu sinni raddir,“ sagði Árni á leiöinni heim til sín. „Ég á enga vini lengur. ímyndaði vinurinn minn, herra M., er meira að segja búinn að yfirgefa mig.“ Kvæðln fögru Garri veit þetta allt saman vegna þess að Árni sagði honum frá því. Hann hringdi nefnilega í hann á sunnudagskvöldið. „Þú ert mín eina von,“ hvíslaði Ámi. „Hlustaðu að minnsta kosti á mig.“ Garri var frekar þreyttur eftir daginn, með sjóriðu og votur í fætur eftir fullmikla skemmtun niðri við höfn. En hvað gat hann sagt. Ekkert. Svo hann hlustaði. „Ræðan mín átti að byrja á lítilli visu sem ég orti þegar ég var lítill drengur að skottast við höfnina. Þorskurinn á þrettán líf þrettán líf en ekkert víf. Honumfinnst sœtt aó synda um synda um í sjóunum. Þorskurinn er þreyttur mjög á kvöldin þykist hafa yfir lífi völdin. Finnst þér eitthvert vit í því að hafa hafnað mér? Og svo les maður það bara í textavarpinu að niðurlægingin sé fullkomnuö. Þeir fengu konu í ræðuna mína. Ræðuna mína sem átti að enda á fallegu ljóði frá því ég var í menntaskóla og skottaðist við höfnina. Höfnin. Hingaö hefur sjórinn lengi vanið komur sínar. Hér hefur sjóarinn lengi vaniö konur sínar á vasaklúta og viskíkrús. Þeir eru eitthvað klikk, þessir sjóarar. Ég skil þá ekki. Ég er dýralæknir en samt skil ég þá ekki.“ Garri Verðin skoðuð Kaupum ekki lengur hvaö sem er. Verðbólguvæntingar? Jóhann Helgason ^krjfar: Þegar maður les um að heildsalar og smásalar velti nú hver um annan þveran öllum hækkunum vegna geng- isbreytinganna beint út í verðlagið þá spyr maður sjálfan sig hvort þessum mönnum sé raunverulega sama þótt þeir missi fótanna i öllu æðinu. Stað- reynd er að þrátt fyrir gengisbreyting- ar síðustu vikna hefur aðeins fátt eitt breyst af öllum þeim vörutegundum sem við neytendur þurfum á að halda. Mjólkurvörur, ostar, kjöt og flest inn- anlandsframleiðsla hefur ekki orðið fyrir barðinu á gengisbreytingum og gerir ekki fyrr en þá að alllöngum tíma liðnum. Það er engin ástæða fyr- ir kaupmenn eða aðra þjónustuaðila að vænta verðbólguhugarfars hjá fólki, það mun aðeins kaupa í takt við budduna enda engar kauphækkanir komið í þeirra hlut lengi. Við kaupum sem sé ekki lengur hvað sem er. Sjónvarp á hvítasunnu Magnús Ólafsson skrifar: Mynd sem sýnd var á hvítasunnu- dag kl. 19.30, þar sem Paolo Nani (sá er kom fram á Listahátíð hér), lék „listir" sínar er einhver sú mesta vit- leysa sem ég hef séð í Sjónvarpinu. Ef annað sem flutt var á Listahátíð var af svipuðum toga tel ég mig heppinn að hafa ekki keypt mig inn á ein- hverja sýninguna. Ég tel að leita þurfi með logandi ljósi að annarri eins vit- leysu og þarna var sýnd og keyrir nú um þverbak hjá Sjónvarpinu. Fyrir þetta verðum við að greiða afnota- gjöid. Svona á Sjónvarpið ekki og má ekki bjóða okkur, þrátt fyrir að það hafi okkur í vasanum vegna nauðung- aráskriftarinnar. Latabæjargengi Lovlsa hringdi: Hann er ekki af baki dottinn, hann Magnús Scheving sem stendur fyrir Latabæjar-æv- intýrunum við miklar vinsæld- ir krakkanna. Nú er hann kominn með sérstaka seðla til að kaupa fyrir heilsusamleg matföng í verslunum. Þetta er frábært framtak. Mér flnnst ekki réttlátt að leyfa Magnúsi ekki að eiga þetta framtak sitt í friði. Hann er að vinna þarna mikið og sérstakt verk í þágu okkar allra. Og hvað er að því að vera með sérstakt „Latabæjar- gengi" til að efla holla neysluhætti? - Ég hvet yfirvöld til að sjá í gegnum fingur sér með þetta uppátæki Magn- úsar. Magnús með seðlana Þarft framtak, í þágu okkar allra. Tveggja flokka kerfi Örlygur hringdi: Ég tel sterklega koma til greina að kanna hvort hér sé ekki grundvöllur fyrir að kjósendur styðji aðeins tvo flokka í næstu alþingiskosningum og komi þar með því til leiðar að hér verði tveggja flokka kerfi, líkt og í Bretlandi og í Bandaríkjunum. í Bret- landi eru að vísu þrír eða fjórir flokk- ar en aðeins tveir eru í raun virkir og koma hinir aldrei að stjórnvelinum og munu ekki gera. Fjórflokka kerfi eins og hér er stendur stjórnmálum fyrir þrifum og eykur einungis á þá ólgu sem ávallt er í þjóðfélaginu. - Samein- umst um tvo flokka. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.is Eða sent bréf til: Lesendasíða DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar með bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.