Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Page 26
34
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001
íslendingaþættir
I>V
Umsjón: KJartan Gunnar Kjartansson
Sextugur
Sjötug
85 ár^
Ingibjörg V. Guömundsdóttir,
Spóastöðum I, Selfoss.
80 ára
Fjóla Sigurjónsdóttir,
Snorrabraut 58, Reykjavík.
Ottó Ákason,
Bankastræti 3, Skagaströnd.
Siguröur Þorberg Auöunsson,
Egilsbraut 19, Þorlákshöfn.
75 ára
Ari Jónsson,
Sólbergi, Akureyri. ,
Hafsteinn Jónsson,
Kirkjuvegi 11, Keflavík.
70 ára
Helgi Hallvarösson,
Lautasmára 1, Kópavogi.
Svava Sigríöur Vilbergsdóttir,
Bólstaðarhlíð 68, Reykjavlk.
Hún verður aö heiman.
60 ára
Helga Alfreösdóttir,
Undirhlíö 14, Sólheimum.
Hún ólst upp hjá móður-
foreldrum sínum í Hrisey
en flutti I Sólheima I
Grímsnesi 1950 og hefur
átt þar heima síðan.
Árni Ólafsson,
Nönnufelli 3, Reykjavík.
Frímann E. Ingimundarson,
Snorrabraut 52, Reykjavík.
Guöný Fríöa Einarsdóttir,
Höfðavegi 9, Vestmannaeyjum.
Hrafnhildur Konráösdóttir,
Langagerði 8, Reykjavlk.
Jón Edward Wellings,
Tunguseli 10, Reykjavlk.
50 ára_________________________________
Finnbogi Sigurösson,
Karfavogi 44, Reykjavík.
Guðbjörg Bjarnar Guðmundsdóttir,
Múlaslöu 3a, Akureyri.
Helgi Magnús Arngrímsson,
Réttarholti, Borgarfiröi.
Hrefna K. Siguröardóttir,
Vættaborgum 76, Reykjavík.
Jón Karl Sigfússon,
Ránargötu 6, Reykjávík.
Jóna Ágústa Lárusdóttir,
Foldahrauni 25, Vestmannaeyjum.
Sigurður Ólafsson,
Bollagörðum 39, Seltjarnarnesi.
Sigurjón Heiöarsson,
Melalind 6, Kópavogi.
Pétur Bjarnason
framkvæmdastjóri SÍBS
Pétur Bjarnason framkvæmda-
stjóri, Suðurgötu 8a, Reykjavík, er
sextugur í dag. 1
Starfsferill
Pétur fæddist á Bíldudal og ólst
þar upp og á Tálknafirði frá fimm
ára aldri. Hann lauk landsprófi frá
Héraðsskólanum að Reykholti 1958
og kennaraprófi 1964.
Pétur kenndi i Reykjavík í tvö ár,
var síðan skólastjóri Barna- og ung-
lingaskólans á Bíldudal 1966-76, að
einu ári undanskildu er hann stund-
aði sjómennsku, var skólastjóri
Varmárskóla í Mosfellssveit
1977-83, var fræðslustjóri Vest-
fjarðaumdæmis frá 1983, forstöðu-
maður Skólaskrifstofu Vestfjarða
frá 1996 og er nú framkvæmdastjóri
SÍBS frá 2000.
Pétur stundaði sjómennsku á
unglingsárunum og á sumrin með
skólanámi og kennslu. Þá stundaði
hann leiguakstur tvö sumur og
fjallaferðir sem bilstjóri og leiðsögu-
maður.
Pétur var oddviti og varaoddviti
Suðurfjarðahrepps 1970-76, sat í
hreppsnefnd Mosfellssveitar
1982-83, var varaþm. fyrir Fram-
sóknarflokkinn á Vestfjörðum
1987-95 og varaþm. Frjálslynda
flokksins á Vestfjörðum frá 1999,
var stjómarmaður og starfaði með
Leikfélaginu Baldri á Bíldudal,
Leikfélagi Mosfellssveitar og Litla
leikklúbbnum á ísafirði. Þá hefur
hann starfaö með ýmsum öðrum fé-
lögum, s.s. Lúðrasveitinni Svani,
Lúðrasveit isafjarðar og Harm-
óníkufélagi Vestfjaröa. Hann var
formaður og síðar stjórnarmaður
Ferðamálasamtaka Vestfjarða og
átti sæti í Ferðamálaráði 1991-94,
var formaður skólanefndar Fram-
haldsskóla Vestfjaröa, nú MÍ,
1992-95.
Fjölskylda
Pétur kvæntist 10.11. 1962 Grétu
Jónsdóttur, f. 3.1. 1942, skrifstofu-
manni. Hún er dóttir Jóns Jónsson-
ar, leigubílstjóra í Reykjavík, og
k.h., Ásbjargar Gestsdóttur húsmóð-
ur sem bæði eru látin.
Börn Péturs og Grétu eru Lára
Pétursdóttir, f. 31.1.1968, húsmóðir í
Reykjavík, en eiginmaður hennar
er Valdimar Þorkelsson viðskipta-
fræðingur og deildarstjóri hjá ís-
landsbanka og eiga þau tvo syni;
Bjarni Pétursson, f. 26.11. 1969, vél-
stjóri og rafvirki og sjómaður í Bol-
ungarvík, en sambýliskona hans er
Sólveig Sigurðardóttir skrifstofu-
maður og eiga þau tvö börn.
Systir Péturs er Halldóra Bjarna-
dóttir, f. 16.6. 1935, húsmóðir að
Kvígindisfelli í Tálknafirði, gift
Magnúsi Guðmundssyni, bónda og
útgerðarmanni þar, og eiga þau fjög-
ur börn.
Hálfsystir Péturs, sammæðra, er
Birna Jónsdóttir, f. 3.1. 1949, hús-
móðir á Bíldudal, gift Hannesi
Bjarnasyni framkvæmdastjóra og
eiga þau fjögur börn.
Foreldrar Péturs: Bjarni Péturs-
son, f. 26.1. 1909, fórst með mb. Þor-
móði 18.2. 1943, sjómaður á Bíldu-
dal, og Hólmfríður Jónsdóttir, f. 3.2.
1911, húsfreyja á Sveinseyri. Stjúp-
faðir Péturs: Jón Guðmundsson, f.
14.4. 1905, d. 1994, fyrrv. hóndi á
Sveinseyri i Tálknafirði.
Ætt
Bjarni var sonur Péturs, skip-
stjóra á Bíldudal, Bjarnasonar og
Valgerðar Kristjánsdóttur, skipa-
smiðs á Bíldudal, Kristjánssonar, b.
á Veðraá, Vigfússonar. Móðir Krist-
jáns á Veðraá var Þórkatla Ásgeirs-
dóttir, prests I Holti, Jónssonar,
bróður Þórdísar, móður Jóns for-
seta. Móðir Þórkötlu var Rannveig
Matthíasdóttir, stúdents i Vigur,
Þórðarsonar, stúdents í Vigur og
ættfoður Vigurættarinnar, bróður
Ingibjargar, fóðurömmu Jóns for-
seta. Þórður var sonur Ólafs, lög-
sagnara á Eyri og ættföður Eyrar-
ættarinnar, Jónssonar.
Pétur Bjarnason, framkvæmdastjóri SÍBS
Pétur var fræöslustjóri Vestfjaröa og síöan forstööumaöur Skólaskrifstofu
Vestfjaröa á árunum 1983-96. Auk þess hefur hann veriö mjög áhugasamur
um leiklistar- og tónlistarlíf, bæöi í Mosfellsbæ og á Vestfjöröum. Loks er
Pétur mjög pólitískur enda hefur hann verið varaþm. í fjórtán ár, fyrst fyrir
Framsóknarflokkinn og síöan fyrir Frjálslynda flokkinn frá 1999.
Hólmfríður er systir Hermanns á
Ysta-Mói, föður Björns, tollstjóra i
Reykjavík. Hermann var einnig
langafi Friðriks Arngrímssonar,
framkvæmdastjóra LÍÚ. Hólmfríður
er dóttir Níelsar Jóns, verkstjóra á
Bíldudal og bróður Sigrúnar, ætt-
móður Hallbjarnarættarinnar. Níels
Jón var sonur Sigurðar, b. á Hofs-
stöðum í Gufudalssveit, bróður
Guðrúnar, langömmu Hjartar, föður
Jóhanns stórmeistara og langömmu
Sesselju, móður Magnúsar Hregg-
viðssonar, forstjóra Frjáls framtaks.
Sigurður var sonur Jóns, b. í Ás-
garði í Hvammssveit, Brandssonar,
bróður Guðlaugar, lángömmu
Snorra skálds og Torfa, fv. toll-
stjóra, Hjartarsona. Móðir Hólm-
fríðar var Halldóra Magnúsdóttir, b.
á Felli í Tálknafirði, Gíslasonar.
Móðir Magnúsar var Sigriður Ólafs-
dóttir, systir Hólmfríðar, ættmóður
Kollsvíkurættarinnar.
Pétur verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Margrét Ólafsdóttir
40 ára____________________________
Anna Peta Guðmundsdóttir,
Fellsmúla 5, Reykjavík.
Elena Camelra,
Gnoðarvogi 34, Reykjavík.
Ivan Jankovic,
Suðurbraut 24, Hafnarfirði.
ívar Trausti Jósafatsson,
Kambsvegi 28, Reykjavlk.
Jóhanna Kolbrún Þorbjörnsdóttir,
Hásteinsvegi 37, Vestmannaeyjum.
Rannveig Pálsdóttir,
Aöalstræti 82, Akureyri.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir,
ilftarima 9, Selfossi.
'íigurður Sveinn Guömundsson,
ólafsbraut 52, Snæfellsbæ.
Steinþór Friöriksson,
Silfurgötu 2, ísafirði.
Þóra Másdóttir,
Amsturdam 5, Mosfellsbæ.
Smáauglýsingar
DV
Allt til alls
►I550 5000
leikkona
Margrét Ólafsdóttir leikkona,
Laufási 7, Garðabæ, er sjötug í dag.
Starfsferill
Margrét fæddist í Vestmannaeyj-
um og ólst þar upp í foreldrahúsum.
Hún var Barnaskóla Vestmanna-
eyja og lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja.
Margrét fór til Reykjavíkur og
stundaði nám við Leiklistarskóla
Lárusar Pálssonar frá 1948, og siðan
við Leiklistarskóla Þjóðleikhússins
frá stofnun og lauk þaðan leiklistar-
námi, ásamt Valdimar Lárussyni og
Gerði Hjörleifsdóttur, eftir eins árs
nám.
Margrét starfaði við Pósthúsið í
Vestmannaeyjum á unglingsárun-
um og vísaði til sætist í Samkomu-
húsinu í Eyjum.
Að loknu leiklistarnámi lék Mar-
grét við Þjóðleikhúsið frá stofnun
þess og til 1952. Hún hóf að leika hjá
Leikfélagi Reykjavíkur 1953 og hef-
ur leikið þar síðan, en hún á fimm-
tíu ára leikafmæli á þessu ári.
Margrét vann mikið að félagsmál-
um Leikfélags Reykjavíkur, einkum
ýmsum þeim störfum leikara LR er
miðuðu að byggingu Borgarleik-
hússins.
Fjölskylda
Margrét giftist 17.11. 1951 Stein-
dóri Hjörleifssyni, f. 22.7. 1926, leik-
ara og leikstjóra og fyrrv. formanni
Leikfélags Reykjavíkur. Hann er
sonur Hjörleifs Steindórssonar, sjó-
manns í Hnífsdal, og k.h., Elísabet-
ar Þórarinsdóttur húsmóður.
Dóttir Margrétar og Steindórs er
Ragnheiður Kristín Steindórsdóttir,
f. 22.6. 1952, leikkona við Þjóðleik-
húsið, búsett í Reykjavík, en maður
hennar er Jón Þórisson leikmynda-
hönnuður og eiga þau tvö börn,
Steindór Grétar og Margréti
Dórótheu.
Systur Margrétar voru Helga, f.
1925, nú látin, húsmóðir í Vest-
mannaeyjum og eru synir hennar
Ólafur Ragnar Eggertsson, búsettur
í Reykjavík, og Kristján Gunnar
Eggertsson, búsettur í Vestmanna-
eyjum; Kristín, sem dó á þriðja ári.
Foreldrar Margrétar voru Ólafur
Ragnar Sveinsson, f. 25.8. 1903, d.
20.5. 1970, sjóveitustjóri, heilbrigðis-
fulltrúi og sjúkraflutningamaður í
Vestmannaeyjum, og k.h., Ragn-
heiður Kristjánsdóttir, f. 12.1. 1906,
nú látin, húsmóðir.
Ætt
Ólafur Ragnar var sonur Sveins
Jónssonar og Margrétar Þorsteins-
dóttur.
Ragnheiður var dóttir Kristjáns
Gunnarssonar og Helgu Jónsdóttur.
Margrét og Steindór verða að
heiman á afmælisdaginn.
Smáauglýsingar
DV
Þjónustu-
auglýsingar
►I550 5000
Merkir Islendingar
Kristinn E. Andrésson bókaútgefandi
fæddist á Helgustöðum við Reyðarfjörð
12. júní 1901. Hann var sonur Andrésar
Runólfssonar, bónda þar, og f.k.h., Mar-
íu Níelsdóttur Beck. Kristinn var fjór-
menningur við dr. Jakob i Hallgríms-
kirkju og Eystein ráðherra Jónssyni.
Kristinn nam í Flensborg, lauk stúd-
entsprófi frá MR 1922, mag. art.-prófi í
islenskum fræðum frá HÍ og stundaði
framhaldsnám í bókmenntum i Kiel,
Berlín og Leipzig. Hann kenndi um
skeið við Kvennaskólann, Iðnskólann og
við Alþýðuskólann á Hvítárbakka en
sneri sér fljótlega að bókaútgáfu og átti eft-
ir að verða, ásamt Ragnari í Smára, þekkt-
asti bókaútgefandi þjóðarinnar á 20. öid. Hann
Kristinn E. Andrésson
var ritstjóri Rauðra penna, forstjóri bókaút-
gáfunnar Heimskringlu og síðan forstjóri
Máls og menningar frá stofnun 1937 sem
hann stýrði með miklum menningar-
brag og af fádæma dugnaði og hagsýni.
Auk þess að vera dugandi forstjóri
var Kristinn þingmaður í Qögur ár og
áhrifamikill hókmenntafræðingur. í
þeim efnum var hann nestor kommún-
ista og fleirri vinstri manna. Hann
samdi yfirlitsritið íslenzkar nútíma-
bókmenntir 1918-1948 sem var mikið
lesið. Kristinn var formaður Sovétvina-
félagsins og sat í stjórn Menningar-
tengsla íslands og Ráðstjórnarríkjanna
enda virðist hann ætíð hafa verið samifærð-
ur kommúnisti. Hann lést 20. ágúst 1973.