Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Síða 27
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001
35
I>V
Tilvera
~
S
Chick Corea sextugur
Hinn þekkti
djassmaður Chick
Corea á stórafmæli
í dag. Corea hefur
spilað á píanó frá
því hann var sex
ára og byrjaði sem
atvinnudjassmaður
tuttugu ára og spilaði með Stan Getz,
Herbie Mann og fleirum áður en hann
hóf ferO í eigin nafni. Corea er einn af
frumherjum í rafmögnuðum djassi og
ásamt hljómsveit sinni Return to For-
ever áhrifavaldur á yngri tónlistar-
menn. Hann hefur verið 25 sinnum
verið tilnefndur til Grammy-verðlaun-
anna og átta sinnum fengið þau.
i ..
-v :
Glldir fyrir miðvikudaginn 13. júní
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l:
■ Heppnin verður með
þér fyrri hluta dagsins
og þú færð tækifæri
sem þú hefur beðið eft-
. Það verður mikið um að
vera í félagslífinu í kvöld.
Rskarnir (19. febr.-20. mars):
■Næstu dagar gætu verið
mikilvægir hvað fram-
tíðina varöar. Hugaðu
að þvi sem þú þarft að
gera á næstunni. Það er mikilvægt
að þú skipuleggir þig vel.
Hrúturinn (21. mars-19. apríll:
. Þú ert hugmyndaríkur
*þessa dagana. Þú finn-
ur fyrir andstöðu við
_ tillögur þínar en það
gæti hjálpað þér að bæta hug-
myndir þínar.
Nautlð (20. anríl-20. maíi:
Þú verður fyrir
óvæntri en skemmti-
legri reynslu. Reyndu
__ að nýta daginn sem
best og skipuleggðu tíma þinn.
Happatölur þinar eru 3, 17 og 19.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúníl:
Dagurinn verður
■■skemmtilegur með til-
liti til félagslífs. Eitt-
hvað óvænt gerist á
þeim vettvangi. Happatölur þinar
eru 4, 15 og 18.
Krabbinn m.. ifmí-22. íúiti:
Þú átt annríkt í dag og
i þiggur alla hjálp með
1 þökkum. Vertu viðbú-
inn undir óþolinmæði
og trékju i vinnunni.
Happatölur þinar eru 3, 29 og 32.
Liónið (23. iúlí- 22. áeúst):
j Þér finnst óþægilegt
hve mikil afskipti
ákveðin persóna hefur
af vinnu þinni. Reyndu
að leiða það hjá þér eins og þú
framast getur.
IVIevlan (23. áeúst-22. sept.i:
Þú ert að velta ein-
hverju fyrir þér og það
»gæti tekið dálitinn
tíma að komast að nið-
urstöðu. Vertu þolinmóður.
Happatölur þínar eru 9, 24 og 36.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
J Þú kemur viða við i
dag en dvelur stutt við
\ f hvert verkefni.
f f Reyndu að einbeita þér
svo að þú getir afkastað sem
mestu.
Sporðdreki (24. okt.-2i. nóv.):
Þú átt rólegan dag og
þér gefst tími til að
(úhuga ýmis mikilvæg
mál. Þú eyðir miklum
og góðum tima með fjölskyldunni.
Margt kemur þér á óvart í dag.
Bogamaður (22. nóv.-21. des.):
-Jafnvel það sem þú ert
*vanur að gera á
hverjum degi verður
einhvem veginn öðm-
vísi í dag en vant er.
Happatölur þínar era 1, 22 og 27.
Steingeltin (22. des.-19. ian.):
Þér er vel tekið hvar
sem þú kemur í dag.
Þú átt auðvelt með að
vinna fólk á þitt band
en~þú ættir þó að fara varlega í
viðskiptum.
I/ \i '%i 'll ié' tl' j <1
DV-MYNDIR EINAR J
Rýnt í myndirnar
Myndir Cartiers-Bressons vöktu veröskuldaöa athygli gesta en fáir komast meö tærnar þar sem hann hefur hælana
þegar kemur aö því aö sameina hiö afgerandi augnablik og óaöfinnanlega myndbyggingu.
Parísarmyndir Henris Cartiers-Bressons:
Sendiherrann og forstöðumaðurinn
María Karen Sigurðardóttir, forstööumaöur Ljósmynda-
safns Reykjavíkur, flytur ávarp viö opnun sýningarinnar.
Aö baki henni giuggar sendiherra Frakka í sýningar-
skrána en hann opnaöi sýninguna formlega.
Mesti ljósmyndari
20. aldar
Um helgina var opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
sýning á Parísarmyndum franska ljósmyndarans Henris
Cartiers-Bressons. Fjölmargir lögðu leið sína í safnið til
að berja verkin augum en þetta er í fyrsta sinn sem sýn-
ing á verkum meistarans er sett upp í höfuðborginni.
Óhætt er að segja að hér sé um einn markverðasta við-
burð í íslensku listalífi að ræða en Cartier-Bresson er al-
mennt álitinn einn mesti ljósmyndari sem uppi hefur
verið og gætir áhrifa hans enn víða.
Lærisveinar Cartiers-Bressons
DV-ljósmyndararnir Hilmar Þór Guömundsson og Þor-
valdur Örn Kristmundsson létu ekki Cartier-Bresson
sýninguna fram hjá sér fara enda báöir miklir aödá-
endur meistarans.
Þorri og Sigrún
Þorri Hringsson myndlistarmaöur og Sigrún Halla Hall-
dórsdóttir frönskukennari voru meöal gesta í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur.
Herferð gegn reykingum í grunnskóla Siglufjarðar:
Tveir slökktu í rettunni
og fimm hættu fiktinu
DV, SIGLUFIRÐI:
I vetur hefur staðið yfir átak í
Grunnskóla Siglufjarðar við að hjálpa
nemendum að hætta að reykja. Átak-
ið er samstarfsverkefni Heilbrigðis-
stofnunar Siglufjarðar og grunnskól-
ans. Margir styrkja verkefnið fjár-
hagslega og má þar nefna Siglufjarð-
arbæ, Krabbameinsfélag Siglufjarðar,
Siglufjarðarapótek, Lionsfélagið og
Sparisjóð Siglufjarðar.
Sjötíu og fjórir nemendur eru í
þremur efstu bekkjum skólans sem
átakið nær til. í haust var staðan sú
að 16 reyktu að staðaldri og 5 fiktuðu
við sígarettur af og til. Fjórum mán-
uðum eftir að verkefnið fór af stað eru
þessir 5 alveg hættir og tveir af hin-
um. Allir hafa hætt um tíma, jafnvel
oftar en einu sinni, en fallið aftur.
Ljóst er þó að reykingar þeirra hafa
minnkað til mikilla muna.
Að sögn Eyjólfs Sturlaugssonar
skólastjóra var í upphafi stofnað til
leiks sem fólst í því að í lok skólans
nú i vor fá allir reyklausir nemendur
eldri deilda gjöf. Auk þess var stofnað
til happdrættis meðal nemenda og fær
vinningshafinn ferðavinning fyrir
tvo. Þetta er m.a. gert til að verðlauna
þá sem valið hafa þann lífsstíl að
hafna reykingum. í upphafi átaksins
var boðið upp á einstaklingsviðtöl
hjúkrunarfræðings bæði við nemend-
ur og foreldra. Eftir að átakið hófst
hefur hjúkrunarfræðingur komið fyr-
irvaralaust í skólann einu sinni til
tvisvar í mánuði og prófað nemendur
með mæli þannig að niðurstaðan er
óyggjandi.
Eyjólfur sagðist telja að árangur af
þessu væri ágætur og undirtektir
mjög jákvæðar, jafnt hjá nemendum,
foreldrum og styrktaraðilum. Hann
sagðist sérstaklega vilja þakka Mál-
fríði Þórðardóttur hjúkrunarfræðingi
og Haildóru Jónsdóttur, formanni
Krabbameinsfélags Siglufjarðar, fyrir
mikinn áhuga og ómælda vinnu við
þetta verkefni. -ÖÞ
Rokkstrákurinn
og glæsikvendin
Skítugi rokkarinn Kid Rock dreg-
ur að sér fallegar konur, þrátt fyrir
augljósan skort á heillandi útliti.
Áður hefur hann meðal annars ver-
ið viöloðandi söngkonuna Sheryl
Crow og leikkonuna Jamie King.
Nú er hann með enga aðra í takinu
en baðstrandargelluna með ígræddu
kútana, Pamelu Anderson. Strákur-
inn segir að þau séu ástfangin og
jafnframt eigi þau í allsvakalegu
líkamlegu sambandi. Fyrrverandi
rekkjunautur Pamelu, rokkarinn
Tommy Lee, segir hins vegar að
stúlkan sé ennþá yfir sig ástfangin
af honum og að hún hafi komið með
yfirlýsingar þess efnis.
Eiginmaðurinn
bitinn af eðlu
Það á ekki fram af Sharon Stone
að ganga. Nú á leiðinni í réttarsal-
inn vegna framhalds á myndinni
Basic Instinct kemur enn meira
mótlæti inn í líf hennar. Eiginmað-
urinn, blaðasnápurinn Phil Bron-
stein, var bitinn af þriggja metra
langri eðlu í dýragarði í Los Angel-
es á dögunum. Bronstein var í búri
eðlunnar þegar atvikið átti sér stað,
en frægu fólki gefst oft tækifæri til
að komast bakvið tjöldin í dýragarð-
inum. Sharon eiginkona hans fylgd-
ist með fyrir utan búrið þegar eðlan
beit í fótinn á Bronsteinn og kastaði
honum til og frá. Hann var lagður
inn á sjúkrahús með verulega
skaddaða stóru tá. Eðlan árásar-
gjarna gengur undir tegundarheit-
inu Komodo dreki og er afar fágæt.
Hún hefur hingað til þótt gæf en er
nú í einangrun.
Sérfraeðingatr
í fluguveiði
Nælum stangir,
splæsum linur
og setjum upp,
tiui
gúv J
iur Æk
PP-^^Í
Sportvörugerðin lif-,
Skipliolt 5, s. 562 8383.
DV-MYND ÖRN PÓRARINSSON
Lítiil reykur
Hluti af nemendum í níunda bekk á Sigló viö vinnuboröiö í handavinnu-
stofunni. Nemendur hafa flestir hverjir tekiö þáihárréttu ákyöröun aö
vaöa ekki reyk. Staöan eftir veturinn 60 reyklab'siií.'ú4 i kófinu.
inuinnnnMmuMmmMiininiiii—bi—wmmwBHm——i
5DYRA
HÁTT 0G LÁGT DRIF I
Meöaleyðsla 9,31
2.345.000