Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Side 8
Viðskipti___________________________________________
Umsjón: Viðskiptabla&id
Samtök atvinnulífsins
semja við Streng
- um miðlægt fjárreiðu- og félagatalskerfi
Strengur hf.
I frétt frá Streng kemur fram aö Strengur varö fyrir valinu úr hópi hugbúnaöar-
fyrirtækja sem sendu inn tilboö.
Samtök atvinnulífsins, aðildarfé-
lög þess og Strengur hf. hafa gert
með sér samning sem tekur til
kaupa á fjárreiðukerfi og forritun á
félagatalskerfi fyrir samtökin. Þá er
gert ráð fyrir vistun og rekstri kerf-
isins i höndum Strengs hf.
1 frétt frá Streng kemur fram að
Strengur varð fyrir valinu úr hópi
hugbúnaðarfyrirtækja sem sendu
inn tilboð samkvæmt útboði þar
sem lausnir Strengs, þ.e. Navision
Financials bókhaldskerfið, staðlað-
ar sérlausnir og sérsmiðað félaga-
talskerfi, voru taldar hagkvæmastar
og koma best til móts við þarfir fé-
laganna. „Strengur hefur mjög
mikla reynslu á þessu sviði og hef-
ur sérhæft sig í lausnum sem falla
mjög vel að þörfum viðskipta- og at-
vinnulífsins," segir í tilkynningu
Strengs.
Þá er einnig um að ræða vef-
lausnir sem gera samtökunum
kleift að halda utan um kerfi allra
aðildarfélagana á einum stað og
nálgast nauðsynlegar upplýsingar í
gegnum vefinn (www.sa.is). „Vef-
lausnirnar skapa mikla möguleika
fyrir starfsmenn og félagsmenn
samtakanna til að nálgast upplýs-
ingar í félagatalinu, en það verður
háð nánari útfærslu þegar fram líða
stundir," segir Strengur.
„Þessi samningur er liður í því að
auka skilvirkni í starfsemi samtak-
anna, en SA og aðildarfélögin eru
átta samtals, og bæta þjónustuna
við félagsmenn. Markmiðið er að
tvíverknaður heyri sögunni til og
betri og tímanlegri upplýsingar
liggi fyrir á hverjum tíma,“ segir
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri SA.
Strengur hefur nú um nokkurt
skeið boðið upp á vistun og rekstur
kerfa. „Þessi þjónusta hefur gefist
mjög vel og skilar sér í miklu hag-
ræði fyrir alla aðila auk þess sem
rekstraröryggi viðskiptavina fyrir-
tækisins eykst og rekstrarkostnað-
ur verður fyrir fram þekkt stærð í
bókhaldinu. Meiri háttar fjárfest-
ingar eru úr sögunni og ekki þarf að
ráða mannafla með þekkingu á
tölvukerfum þar sem öll sú þjónusta
er í höndum sérfróðra starfsmanna
Strengs. Þannig geta báðir aðiiar
einbeitt sér að því að vinna við sitt
sérsvið. Ef upp koma vandamál þá
tekur þjónustudeild Strengs einfald-
lega skjámynd notandans yfir í
gegnum MetaFrame-hugbúnaðinn
sem keyrður er á öflugum IBM-
miðlurum og vandamálin eru leyst
á einfaldan og fljótlegan hátt. Tima-
spamaður verður gífurlegur með
þessu móti og staðsetning skiptir
ekki máli,“ segir í frétt Strengs.
„Við hjá Streng lítum á það sem
mikla viðurkenningu að Samtök at-
vinnulífsins kjósa okkur sem sam-
starfsaðila. Það staðfestir þá trú
okkar að stöðluð kerfi og hýsing
þeirra er mjög raunhæfur kostur í
nútímarekstri," segir Jón Heiðar
Pálsson, sölustjóri hjá Streng. „Mik-
ill tími sérfræðinga okkar hefur
verið notaður til þróunar á sér-
lausnum okkar og það hefur skilað
sér í ánægðum viðskiptavinum hér
á landi sem erlendis."
íslandsbanki og SPRON:
Spá 0,6-0,8% verðbólgu
Sameinast undir
nafninu Anza
Ákveðið hefur verið að nafn sam-
einaðs fyrirtækis Álits, Miðheima,
Nett og Veftorgs verði ANZA. Fyrir-
tækið tók til starfa 1. júlí í samræmi
við samruna-áætlun. Tilkynnt var
um fyrirhugaðan samruna fyrirtækj-
anna fjögurra þann 12. júní sl.
Fram kemur í frétt frá Anza að
fyrirtækið starfar á sviði tölvu-
rekstrarþjónustu og kerflsveitu með
sama hætti og samrunafyrirtækin
fjögur. Starfsmenn eru 130 og árs-
velta áætluð um einn milljarður
króna. Anza verður áfram staðsett á
höfuðborgarsvæðinu og Eyjafjarðar-
svæðinu en mun bjóða þjónustu sína
um allt land. Fyrirtækið stefnir á
hlutabréfamarkað innan tveggja ára.
Framkvæmdastjóri Anza er Guðni
B. Guðnason. Stjóm skipa Þórarinn
V. Þórarinsson, formaður, Agnar
Már Jónsson og Agnar Hansson,
varamenn í stjóm em Guðmundur
Jóhannsson og Bjami K. Þorvarðar-
son. Helstu eigendur Anza eru Sím-
inn, starfsmenn og Talenta-Hátækni.
Aðrir eignaraðilar eru Flugleiðir,
Búnaðarbankinn, Landsbankinn, Ár-
vakur, Sjóvá-Almennar og íslands-
banki.
„Sérsvið Anza er að annast rekstr-
arþjónustu á tölvukerfum fyrirtækja
og stofnana, ýmist innanhúss hjá
viðkomandi aðilum eða í gegnum
kerfisveitu. Anza veitir enn fremur
óháða ráðgjöf varðandi upplýsinga-
kerfi. Ávinningur fyrirtækja af því
að fela sérhæfðum aðila rekstur
tölvukerfa sinna felst m.a. í auknu
rekstraröryggi og því að kostnaður
vegna tölvukerfa verður fyrirsjáan-
legur. Einnig fá fyrirtækin aðgang
að sérþekkingu sem þau hefðu í fæst-
um tilfellum möguleika á að byggja
upp sjálf,“ segir Anza. „Með utanað-
komandi rekstrarþjónustu tölvu-
kerfa fæst jafnframt meiri sveigjan-
leiki. Kerfisrekstur þykir t.d. væn-
legur kostur fyrir nýstofnuð fyrir-
tæki og fyrirtæki sem ganga í gegn-
um endurskipulagningu og breyting-
ar,“ segir í frétt Anza.
Anza hefur yfir að ráða tveimur
fullkomnum samtengdum kerfisrým-
um, einu á Akureyri og einu í Múla-
stöð í Reykjavík.
Viðskiptastofa SPRON spáir 0,8%
hækkun á vísitölu neysluverðs milli
mánaða. Það samsvarar um 10%
verðbólgu á ársgrundvelli. Gangi
spáin eftir verður vísitala neyslu-
verðs miðuð viö verðlag í júlí byrj-
un 214,3 stig sem er 7,1% hækkun
síðustu 12 mánuði.
Helstu forsendur
spárinnar eru
Gert er ráð fyrir lítils háttar
hækkun á matvöru. Hækkunin hef-
ur um 0,15% áhrif til hækkunar á
vísitölu neysluverðs.
Ekki er gert ráð fyrir neinni
breytingu á áfengi og tóbaki. Ekki
er gert ráð fyrir mikilli breytingu á
fatnaði og skóm en vænta má að út-
sölur hefjist á næstunni.
Verð á rafmagni og hita hækkaði
um 4,9% en gert er ráð fyrir lækk-
unum á húsnæðisverði. Hækkanir
hafa orðið á opinberri þjónustu eins
og strætisvagnafargjöldum og
heilsugæslu.
Verð á bensíni hefur lækkað tölu-
vert og er útlit fyrir frekari lækkan-
ir á næstunni. Lækkunin síðustu
vikur hefur 0,2% áhrif til lækkunar
á vísitölu neysluverðs. Á móti koma
miklar hækkanir á varahlutum og
viðgerðarþjónustu.
Viðskiptastofa SPRON gerir ráð
fyrir almennri hækkun á innflutt-
um neysluvörum og að hækkanir
vegna lækkunar krónunnar eigi eft-
ir að halda áfram að koma út í verð-
lagið í sumar. Sömuleiðis má búast
við frekari hækkunum á innlendri
vöru og þjónustu vegna lækkunar
gengisvísitölunnar og launahækk-
ana að undanfomu.
Greining ÍSB spáir að vísitala
neysluverðs m.v. verðlag í júlíbyrj-
un verði 213,9, sem merkir hækkun
um 0,6% frá fyrri mánuði. Rætist
spáin mun verðbólgan hafa mælst
6,9% á síðustu tólf mánuðum og
5,7% það sem af er þessu ári.
1 spánni er gengið út frá því að
bensínverð hafi lækkað um tæp 3%,
húsnæðisverð hafi lækkað, matvara
hækkað um 4-8%, verð á nýjum bif-
reiðum hækkað sem og rafmagn.
Gengislækkun krónunnar undan-
farið er rótin aö mörgum af þessum
verðhækkunum sem og launahækk-
anir, en vænta má þess að þessir
tveir þættir valdi aukinni verðbólgu
hér á landi á næstu mánuðum. Hag-
stofa íslands birtir vísitölu neyslu-
verðs ll. júlí næstkomandi.
2,8 milljarðar sofnuð-
ust í útboði Straums
Á fostudaginn þann 29.
júní lauk hlutaíjárútboði
Fjárfestingarfélagsins
Straums hf. Nýtt hlutafé
að nafnverði 1000 milljón-
ir króna var selt og var
gengi á fyrsta söludegi
3,0, en gat breyst á sölu-
tímabilinu í samræmi við
breytingar á markaðs-
verðmæti eigna félagsins.
Meðalgengi í útboðinu
var 2,81 og söluvirði
hlutafiárins nam
2.805.884.169 krónum að
söluverði.
í tilkynningu frá
Straumi kemur fram að
samtals skráðu 12 kaupendur sig
fyrir hlutafé í útboðinu. Hluthafar
Utboö Straums
Meöalgengi í útboöinu var 2,81 og söluviröi hlutafjárins nam
2.805.884.169 krónum að söluveröi.
félagsins höfðu ekki forgangsrétt til
áskriftar aö hinum nýju hlutum, en
Islandsbanki skráði sig
fyrir hlutafé og heldur
um 20,0% hlutdeild
sinni í félaginu.
Hlutafé Fjárfestingar-
félagsins Straums hf.
eftir útboðið er
2.804.584.794 krónur að
nafnverði.
Samkvæmt 3. gr. sam-
þykktar Fjárfestingarfé-
lagsins Straums hf. hef-
ur stjórn félagsins heim-
ild til hækkunar hluta-
fiár um allt að 500 millj-
ónum króna til ársloka
2004.
Söluaðili útboðsins
var Eignastýring íslandsbanka.
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001
I>V
Þetta helst
csaiÆiMrjdiiimi._______________,
HEILDARVIÐSKIPTI 4000 m.kr.
Hlutabréf 400 m.kr.
Sparisklrteini 1300 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
i Q Baugur 37 m.kr.
i @ íslandsbanki 22 m.kr.
| 0 Þorbjörn Fiskanes 17 m.kr.
MESTA HÆKKUN
! Q Flugleiðir 4,3% i
o
10
; MESTA LÆKKUN
0 Þormóður rammi-Sæberg 4,5%
: Q Landsbankinn 4,5%
I 0 Delta 3,4%
ÚRVALSVÍSITALAN 1059 stig
- Breyting Q 1,52%
EJS tekur við
rekstri Hýsingar
EJS hf. hefur tekið við rekstri Hýs-
ingar hf. en Hýsing er kerfisveita sem
sérhæfir sig í miðlægri hýsingu tölvu-
kerfa. Fyrirtækið var stofnaði í árs-
byrjun 2000 af EJS og Islandssíma hf.
til að mæta þörf fyrir ábyggilega hýs-
ingarþjónustu á íslenska markaðnum.
Íslandssími mun áfram eiga hlut í
Hýsingu.
í tilkynningu sem Islandssími hefur
sent Verðbréfaþingi segir að það sé
mat forsvarsmanna beggja fyrirtækja
að þessi breyting styrki til muna starf-
semi fyrirtækisins. Íslandssími býr
yfir mikilli sérþekkingu á sviði gagna-
flutninga og EJS býr yfir mikilli þekk-
ingu og reynslu í þjónustu við við-
kvæmustu upplýsingakerfi landsins.
Eyþór Amalds, forstjóri íslands-
síma, lýsir ánægju sinni með breyting-
una og segir þennan farveg ákjósan-
legan í harðnandi samkeppni. „Þetta
er í takt við þau markmið um rekstur
dóttur- og hlutdeildarfélaga íslands-
síma sem við lýstum yfir fyrir skrán-
ingu félagsins á Aðallista Verðbréfa-
þings íslands. EJS og Íslandssími
munu eiga fyrirtækið eins og áður en
EJS tekur alfarið að sér reksturinn.
Tæknilegt
rekstraröryggi
Kaupþings aukið
Kaupþing hefur gert þjónustu-
samning við Símann um hýsingu á
miðlægum tölvubúnaði fyrirtækisins.
Kaupþing er fyrsta fiármálafyrirtækið
á íslandi sem gerir slíkan samning en
mörg fordæmi eru fyrir samstarfi af
þessu tagi erlendis.
„1 þjónustuveri Símans er allur
tölvubúnaðurinn vaktaður allan sólar-
hringinn, sjö daga vikunnar, auk þess
sem vatnsvamir og varaafl eru af
bestu gerð. Öryggiskröfur eru mjög
strangar og hefur allur búnaður verið
sérstaklega tekinn út af aðilum sem
koma að öryggismálum. Fyrir utan að
auka enn frekar rekstraröryggi tölvu-
kerfa sinna nýtur Kaupþing nú ná-
lægðar við fjarskipta- og upplýsinga-
net Símans en fyrirtækið kappkostar
að hámarka aðgengi viðskiptavina
sinna að öllum flutningsleiðum há-
tækninnar," segir í fréttatilkynningu
frá Símanum.
04.07.2001 kl. 9.15
KAUP SALA
jfcjpollar 104,080 104,610
SEiPund 146,330 147,070
B*ÍKan. dollar 68,960 69,390
I Dönsk kr. 11,8160 11,8810
HSNorsk kr 11,0920 11,1530
ÍSSænsk kr. 9,5540 9,6070
iHHn. mátk 14,7959 14,8848
jFra. franki 13,4113 13,4919 :
1 i ÍBelg. franki 2,1808 2,1939
3 Sviss. franki 57,8500 58,1700
.QhoII. gyllini 39,9201 40,1600
”|Þýskt mark 44,9796 45,2499 ;
Lj ít. lira 0,04543 0,04571 ;
3 ’ Aust. sch. 6,3932 6,4316 i
‘ Port. escudo 0,4388 0,4414
^jSpá. peseti 0,5287 0,5319
[ * |jap. yen 0,83290 0,83790 ,
B f jírskt pund 111,701 112,373
SDR 129,5200 130,3000 ,
gjECU 87,9724 88,5011