Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 I>V 29 Þrjár stjörnur á skólabekk Þrjú þekkt andlit úr íslenskum samtíma hafa ákveðið að venda sínu kvæði í kross og setjast á skólabekk. Þetta eru þau Pétur Maack, fyrrum framkvæmdastjóri og varaformaður Verslunar- mannafélags Reykjavíkur, Hjálm- ar Blöndal, stjórnandi netveldis Jóns Ólafssonar, og Elín Málm- fríður, Ungfrú ísland 2000. Þre- menningarnir hafa látið skrá sig til náms í Viðskiptaháskólanum i Bifröst í Borgarfirði og heíja þar nám í haust. Pétur Maack var sem kunnugt er bolað úr starfl og trúnaðarstörf- um hjá Verslun- armannafélaginu eftir harðvítug átök við Magnús L. Sveinsson, for- mann félagsins. Var honum meðal annars borið á brýn að vera ómenntaður. Úr því ætlar Pétur nú að bæta. Hjálmar Blön- dal, sem hefur haft yfirumsjón með Veraldar- vefnum, sem er samheiti á net- fyrirtæki Jóns Ólafssonar í Skífunni, hefur undanfarna mánuði starfað við eitt af netfyrir- tækjum fjölmiðlakóngsins á Majorka. Hjálmar lætur nú af störfum hjá Jóni og sest á skóla- bekk enda nýorðinn stúdent. Ungfrú ísland 2000 ætlar að setjast á skóla- bekk því fyrir utan aðaláhuga- málin, sem eru ferðalög, útivist og lestur góðra bóka, veit Elin Málmfríður að menntun er gulls ígildi. „Við Pétur eigum það líklega sameiginlegt að vilja nú frekar reyna að troða einhverju viti inn i kollinn á okkur í stað þess að troða illsakir við aðra,“ sagði Hjálmar Blöndal við komuna til landsins, frá Majorka með stefn- una á Borgarfjörð. GSM? GSM-símar ættu í raun að heita GSFMC- símar. Tveir stafir hafa verið látnir nið- ur falla í alþjóðlegri skammstöfun fyrir Global System For Mobile Communication. GSM er viðtekið heiti á farsímum víðast hvar í Evrópu en hefur þó aldrei náð fót- festu vestanhafs. í Bandaríkjunum heita GSM-símar Cell Phones. Leiðrétting I kvikmyndinni The Tomb Raider, sem nú er sýnd í Reykjavík fyrir fullu húsi, kemur fram að við Jökulsárlón í Austur-Skaftafells- sýslu búi eskimóar meö sleðahunda. Hið rétta er að þar búa íslendingar á jeppum. Sjöfn spákona slær í gegn: Spáöi forsetabrúð- kaupi í Færeyjum - og nafnbreytingu á Skjá einum Ein magnaðasta spákona landsins kom fram á Skjá einum fyrir skemmstu og spáði þar forsetabrúð- kaupi í Færeyjum og líka hinu að Skjár einn myndi skipta um nafn innan fárra ára. Spákonan heitir Sjöfn Sigurðardóttir og hefur það fram yfir aðrar spákonur á höfuð- borgarsvæðinu að spár hennar ganga undantekningarlítið eftir. Ritari hjá stórfyrirtækjum „Ég bjó í Kanada um átta ára skeið þegar ég var barn og byrjaði strax þá að spá. Ég spái í spil, kristalkúlu og jafnvel lauíblöð og mér til aðstoðar er Grímur heitinn Magnússon læknir en ég get ekki spáð nema hafa mynd af honum á borðinu hjá mér,“ segir Ólafur og Dorrit Eyjarnar bíða. Sjöfn sem þrátt fyrir vanheilsu geislar af lífsorku og lætur sér fátt fyrir brjósti brenna. Kímni hennar er einnig með afbrigðum góð. Hún starf- aði áður fyrr sem einkaritari hjá Cad- burys og Air Canada. „Ég fann þetta mjög sterkt með for- setabrúðkaupið i Færeyjum. Forset- inn og Dorrit voru einmitt í opinberri heimsókn þar þegar þessi framtíðar- sýn birtist mér. Ég held að Dorrit hafi heillast svo af Færeyjum að hún hafi stungiö upp á þessu við unnusta sinn. Ég held að hún sé búin að því,“ segir Sjöfn og er viss í sinni sök. Ekki Las Vegas íslenskt forsetabrúðkaup í Fær- eyjum myndi að sjálfsögðu leysa margan vanda. Gagnrýnisraddir á forsetann og prjál hans myndu þagna því hver getur fárast yfir brúðkaupi sem fer fram í kyrrþey í öðru landi. Svo lengi sem Ólafur Ragnar og Dor- rit gifta sig ekki í Las Vegas: „Ég er vel klár á þessu,“ segir Sjöfn. Fulibókuð í fyrrgreindum sjónvarpsþætti, þar sem Sjöfn spáði og fór mikinn, kom einnig fram að Skjár einn mun skipta um nafn innan fárra ára hvort sem það verður vegna samruna við annað fyrirtæki eða annars. Þetta sá Sjöfh einnig mjög skýrt. Tímabundnir erfið- leikar sem sjónvarpsstöðin stendur nú frammi fyrir, að sögn Sjafnar, verða auðveldlega yfirstignir. Breytingar á Skjá einum Nýtt nafn innan tíðar. Nýir menn koma til sögunn- ar og í kjölfarið fylgir nafnbreyting: „Skjár einn á eftir að blómstra sem aldrei fyrr þó formið verði ef til vill annað en það sem við nú þekkjum," segir Sjöfn sem hefur ekki haft undan við að spá eftir að hún lét til sín taka á skjánum. Hún spáir jafnvel yfir haf- ið fyrir fólk í útlöndum og tekur þá langlínugjald. Sjöfn er fullbókuð út júlímánuð en síminn hjá henni er 553 1499. Ilmtær í bíl Aðallega keyptar af ungu fólkl - en líka venjulegu fólki. Rannsókn grunnskóladrengs á ilmtám: í átjánda hverjum bíl - gífurlegar vinsældir koma á óvart Ingvi Hrafn út í sandinn „Samningaviðræðumar runnu út í sandinn og því verður ekk- ert af þessu að sinni,“ segir Sig- urður Hlöðversson hjá Hausverk hf. sem gerði tilboð í rekstur á morgunsjónvarpi Stöðvar 2. Hugmyndin var að skipta um þáttarstjórnendur og fá Ingva Hrafn Jónsson, fyrrum frétta- stjóra Stöðvar 2, til að stjórna þættinum ásamt ungri stúlku. „Við eigum hins vegar öll gögnin og getum gert þetta ódýr- ara fyrir hvern sem er,“ segir Sigurður Hlöðversson sem hefur ekki gefið upp vonina um ódýr- ara og betra morgunsjónvarp. Ekki er ólíklegt að Skjá einum verði boðinn pakkinn. Morgunsjónvarp Stöðvar 2 heldm því áfram göngu sinni með sömu stjórnendum og áður; frá og með miðjum ágúst. Ellefu ára drengur, í sumarfríi úr Austurbæjarskóla, hefur gert sjálf- stæða rannsókn í miðbæ Reykjavík- ur á fjölda ilmtáa í bílum. Ilmtær þessar hafa selst gífurlega að undan- fórnu og í slíkum mæli að tala má um táæði bíleigenda. Hins vegar er ekki ljóst hvað veldur þessum mikla áhuga því tærnar eru ekki augna- yndi. Þær lykta þó vel og eru hengd- ar á baksýnisspegil bifreiðarinnar þar sem þær dingla. Að kvöidlagi „Ég gerði fyrstu rannsóknina í Bergstaðastræti að kvöldlagi þegar bílar voru í öllum stæðum. Mér tO mikiUar furðu reyndust þessar tær vera í átjánda hverjum bíl. Ég bjóst ekki við að þetta væri svona al- mennt,“ sagði grunnskóladrengurinn sem ekki vUl láta nafns síns getið af hógværð. „Þegar ég sá þessar tær í tveimur bUum í röð þá gat ég þurft að bíða í 36 bíla þar tU ég fann næstu tá. En það brást ekki.“ Eftir rannsóknina á Bergstaða- stræti lét drengurinn frænda sinn aka eftir Miklubrautinni, frá gatna- mótum Njarðargötu, inn að Elliðaám og tU baka og niðurstaðan varð sú hin sama. Ilmtærnar voru í átjánda hverjum bíl. Þriðja rannsóknin var svo gerð í þremur bílastæðahúsum í miðborginni svo og á bílastæðum við Alþingishúsið og í Pósthússtræti og sýndi sömu niðurstöðu. Lífga upp loftið „Þetta er til í íjórum litum lit- um; hvítu, rauöu, fjólubláu og bláu. Ilmurinn er mismunandi eftir lit,“ sagði Höskuldur Ellerts- son á bensínstöð Olís við Ána- naust. „Tærnar eru framleiddar hjá Medo Industries í Mexíkó og kosta 299 krónur stykkið. Það er aðaUega ungt fólk sem kaupir þetta en líka venjulegt fólk,“ sagði Höskuldur. „Það er fin lykt af þessum tám. Þær lífga upp á loft- ið í bUnum.“ Súper-tvíburar með rlsasnlgll Breki og Brynjar Arndal eru tvíburar í Garðabæ. Þeir fengu súpermannbún- inga fyrir tveimur mánuðum og hafa ekki viljaö fara úr þeim síðan. Um dag- inn fóru þeir í könnunarieiöangur i búningunum og fundu þá risasnigil. Þeir höfðu aldrei fyrr séð svona stóran snigil og kölluöu hann því risaeölusnigil.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.