Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Blaðsíða 24
28
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001
Tilvera I>V
lí f iö
fslensk tunga
og málrækt
Ari Páll Kristinsson, forstööu-
maður íslenskrar málstöðvar,
heldur fyrirlestur í dag kl. 15 í
Norræna húsinu um íslenska
tungu og málrækt. Á eftir svarar
Ari Páll spurningum viðstaddra.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
norsku og er liður í fyrirlestra-
röðinni Menning, mál og samfé-
lag.
Ténleíkar
OBOSPUNI I KETimUSINU
Jaqueline Fitzgibbon leikur óbó-
spuna viö sýningu Kristbergs
Péturssonar í Ketilhúsinu á Akureyri
í kvöld. Byrjar kl. 20.30.
HARMÓNÍKUTÓNLEIKAR Á
SEYÐISFIROI Harmóníku-
hljómsveitin Stormurinn heldur.
tónleika í kvöld í kirkjunni á
Seyöisfiröi er hefjast kl. 20.30.
Þeir eru lióur í tónleikröðinni Bláa
kirkjan. Efnisskráin erflölbreytt og
víða er komið við, frá léttri sveiflu til
klassískrar tónlistar. Eftir tónleikana
veröur haldiö áfram með
harmóníkubaiii í Skaftfelli,
menningarmið'stóð' á Seyðisfirði.
Popp
TÓNLEIKAR Á INQÓIJFgTORÓi
Hljórhsveitimar Kuai og Sofandi ,
stíga á svið á Ingólfstorgi ( dag.
Tónleikarnir eru haldnir af Hinu
hýsinu í samstarfi við Tal, Rás 2 og
FÍH og bera nafnið Taltónleikar Hins
hússins og Rásar 2. Þeir hefjast kl.
17.
Klúbbar
BREAKBEAT A 22 Klúbbakvöld .
Breakbeat.is klíkunnar halda áfram
að rúlla á 22. í kvöld mun einn harö-
asti plötusnúöur landsins, DJ Héö-
inn, troða upp.
Krár
ÉÝJÓlFUR ÁFTÚR Á kAFFI
REYKJAVIK Popparinn Eyjólfur
Kristjáns mætir aftur á Kaffi
Reykjavík í kvöld. Þar spilar hann á
kassagítarinn frá klukkan 22 til 01.
SORTI Á GAUKNUM Svartklæddu
kapparnir í hljómsveitinni í svörtum
fötum eru á Gauknum í kvöld.
Leikhús
WÁKE ME Up BÉFÓRE ÝÓÚ GÓ
GO Söngleikurinn Wake me up
before you go go eftir Hallgrím
Helgason verður frumsýndur í kvöld
klukkan 20 í Borgarleikhúsinu.
Sýningar
ÞORRI í LONKOTI Þorri Hringsson
hefur sýningu sína í Galleríi Sölva
Helgasonar að Lónkoti í Skagafirði
og stendur hún til 7. júlí.
NANNA BAYER í LISTHÚSI
OFEIGS Nanna Bayer frá Finnlandi
er með leirlistasýninguna Neriage
Postulín í Listhúsi Ófeigs við
Skólavörðustíg. Nanna beitir
japanskri aðferð við leirinn.
UNNAR í GALLERÍ HLEMMI Unnar
Orn Auöunsson hefur opnað sýningu
í gallerí hlemmur.is. Þar hristir hann
saman hluti úr sínu daglega lífi eins
og mat, heimili og íþróttir.
GUNNAR í VEISLUGALLERÍI OG
LISTACAFE Gunnar Gunnarsson
sýnir 27 málverk frá árunum
1994-2000 í Veislugalleríinu og
Listacafé í Listhúsinu í Laugardal.
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
DV-MYNDIR EINAR J.
Foreldrar stóöu í rööum meö börn
(nema hvaö) á heröunum.
Latbæingar í heimsókn
Nenni níski, Solla stiröa og fleiri orkubúnt Latabæjar lögöu leiö sína í
Elliöaárdalinn á sunnudaginn.
Afmælishátíð Orkuveitunnar:
Fjölskylduhátíð
í Elliðaárdalnum
Orkuveita Reykjavíkur fagnaði 80
ára afmæli rafstöðvarinnar í Elliða-
árdal um helgina og náðu hátíðar-
höldin hápunkti á sunnudaginn þeg-
ar Reykvíkingum var boðið upp á
skemmtidagskrá við hús stöðvar-
innar. Meðal annars gafst fólki
tækifæri til að skoöa gömlu raf-
stöðvarbygginguna og safn Orku-
veitunnar en þar er hægt að fræðast
um allt sem viðkemur rafmagni og
vatnsorku. Þá brugðu nokkrir bæj-
arbúar Latabæjar á leik við góðar
undirtektir yngstu kynslóðarinnar.
Frá sér numin
Börnin fylgdust dolfallin meö hetjunum frá Latabæ.
Einn á lúöurinn
Börnunum gafst meöal annars tækifæri til aö lumbra
svolítiö hvert á ööru. Ekki er vitaö til aö nokkur hafi
slasast í barsmíöunum:
Sumarið með Dickens
Stúlku leitað
fyrir Eminem
Kvikmynda-
framleiðendur
standa nú fyrir
leit að stúlku
sem gæti leik-
ið kærustu
rapparans of-
beldishneigða,
Eminems, í
nýrri kvik-
mynd.
Myndinni er
lýst sem Satur-
day Night
Fever fyrir
ungu kynslóð-
ina í dag. Að
Eminem sé
jafn lipur á gólfinu og John Tra-
volta er enn ósannað.
Innanbúðarmaður hjá kvik-
myndafyririrtækinu sem hefur
myndina í bígerð segir að stúlkan
sem sé leitað verði að vera falleg,
líta út fyrir að vera átján og þykjast
vita allt. Kannski íslendingar fái
sinn fulltrúa þangað. Við erum jú
þekkt fyrir að eiga góða staðgengla.
Lennon
flugvöllurinn
Yflrvöld i bítlaborginni Liverpool
ákváðu að endurskíra aðalflugvöll
borgarinnar í höfuðið á einum af
sínum uppáhaldssonum, John
Lennon. Athöfnin fór fram á mánu-
daginn og var Yoko Ono, ekkja bít-
Usins, viðstödd athöfnina.
Hugmyndin á bak við þetta uppá-
tæki er bæði að heiðra Lennon
heitna sem og ýta frekar undir ferð-
mannaiðnaö í borginni, sem nú þeg-
ar fær um 20 milljónir punda út á
forna frægð Bítlanna.
FlugvöUurinn hefur fengið nýtt
slagorð. Það er „Above us only sky“
sem tekið er úr texta
Lennon við lagið
Imagine.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
skrifar.
Óneitanlega hvarflar oft að
mér að friðsælustu samskiptin
sem gagnrýnandi geti átt við
rithöfunda sé við þá sem hvUi í
gröfmni. Þetta segi ég alls ekki
af óvirðingu við þá þrjá raun-
verulegu vini sem ég á í rithöf-
undastéttinni. Ég kann sannar-
lega að meta þá, en ekki allar
bækur þeirra. Það er bara eins
og aö finnast börn vina sinna
vera óþolandi. Tilfinning sem
fyllir mann sektarkennd. Sem
minnir mig skyndUega á skáld-
konuna sem ég hitti fyrir
nokkrum árum um jólaleytið í
Austurstrætinu. Hún sagði: „Ég
veit að þú átt eftir að dæma
bókina mína. Hún er barnið
mitt og manni er ekki sama
hvernig komið er fram við
bamið manns“. Ég las bókina
og tókst að koma þeirri skoðun
minni tU skUa opinberlega að
afkvæmið væri vanskapað. Eft-
ir það mætti ég skáldkonunni
nokkrum sinnum á götu. Mér
leið eins og ég hefði kyrkt bam-
ið hennar. Hún horfði á mig
augnaráði sem sagði mér að
hún vildi ekki að ég hefði frek-
ari afskipti af börnum hennar.
Þaö er vegna atvika eins og
þessa sem sumarið er timinn þegar
„Eftir Dickens veröur tilfinningin sem þetta
sumar skilur eftir sig sú aö íslenskir höf-
undar séu einungis aö skrifa tilbrigöi viö
skáldsögur. Ég mun jafna mig á þeirri til-
finningu, en ég hlakka til aö snúa aftur til
Dickens."
ég sný mér að erlendu rithöfund-
unum. Maður þarf ekki að óttast
að mæta þeim á götu efth lestur-
inn. Og ef mér líka ekki bæk-
urnar hendi ég þeim bara í
ruslið. Ég nenni ekki að hafa
leiðindi uppi í hillu. Þess vegna
fækkar í bókasafninu með
hverju ári. Maður verður nefni-
lega gagnrýnni með aldrinum.
Það er reyndar alls ekki það
sem ég átti von á. Hér áður fyrr
beið ég þess að verða eldri því
ég hélt að um leið yrði ég um-
burðarlyndari og skilningsrík
ari. Mér miðar ekkert í þá átt
Um daginn fóru tveir nóbels-
verðlaunahafar í ruslið. Ég þori
ekki að segja hverjir þeir eru af
ótta við hefnd menningar-
mafiunnar. En þetta eru afskap-
lega „politically correct" höf-
undar sem vilja vel með verk-
um sínum en þeh drógu úr mér
allan mátt með leiðindum.
Reyndar er það nú þannig að
það eru ekki einungis íslensku
bókmenntaverðlaunin og Menn-
ingarverðlaun DV sem geta bil-
að, virðulegri akademíur geta
einnig staðið fyrir kúnstugu
vali.
Það má ætið leita huggunar
hjá dauöum höfundum. Þeir
sem voru ofmetnir á sínum tima
fást ekki lengur prentaðh. Hinh
lifa. Eins og Dickens minn. Alþýð-
an hafði þetta ljómandi góða bók-
menntamat og elskaði hann. Og
hann er enn þá hrein dásemd. Ég
ákvað að hafa þetta sumar gott og
tók þær bækur hans sem ég á úr
hillunni og setti á náttborðiö.
Fjórtán bækur og ég held að mig
vanti bara eina, Dombey and Son.
Það var reyndar uppáhaldsbók,
Ödu, dóttur Byrons, sem á dánar-
beði kallaði Dickens til sín og bað
hann að lesa úr bókinni fyrir sig.
Ég hefði sannarlega ekkert á móti
því að deyja þannig, með besta
skáldsagnahöfund heims á rúm-
stokknum. Maður gerh sér svo
óraunhæfar væntingar um fram-
tiðina.
En hvað um það. Nú í byrjun
júlí er ég búin að lesa Pickwick
Papers (898 blaðsíður), Oliver
Twist (480 síður) og David Copp-
erfield (950 síður). Næst er The Old
Curiosity Shop (541 síður). En svo
verður hlé á Dickens. íslensk jóla-
bókavertíð kemur. Með 180 síðna
skáldsögum. Eftir Dickens verður
tilfinningin sem þetta sumar skil-
ur eftir sig sú að íslenskir höfund-
ar séu einungis að skrifa tilbrigði
við skáldsögur. Ég mun jafna mig
á þehri tilfínningu, en ég hlakka
tO að snúa aftur til Dickens. Hann
er mín heimahöfn.