Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 4. JULI 2001 27 DV Tilvera Victoria Abril er 42 ára Spánska leikkonan Victoria Abril, sem meðal annars hefur unnið sér það til frægðar að leika í ís- lenskri kvikmynd, 101 Reykjavík, er af- mælisbarn dagsins. Victoria, sem skírð var Victoria Mérida Rojas, fæddist í Madríd. Hún byrjaði feril sinn sem dansari og það var einn kennari hennar sem hvatti hana til að reyna fyrir sér í kvikmyndum. Hún hefur nú unnið með öllum þekktustu leikstjórum Spánar og það var í myndum Pedros Almodovars sem hún hlaut heimsfrægð. Gildir fyrir fímmtudaginn 5. júlí Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.r , Vinur biður þig um pen- ingalán. Þér finnst þú hafa mikið að gera en verið getur að þínir nán- ustu hafi það líka. Reyndu að sýna sanngimi í samskipum við aðra. Fiskarnir (19. febr.-20. mars): MGalgopaskapur ein- kennir daginn í dag og svo virðist sem ekki beri að taka eitt orð alvarlega. Óllu gamni fylgir þó nokkur alvara. Hrúturinn (21. mars-19. aprTU: . Þú færð fréttir sem ' koma róti á huga þinn. Ekki er þó ástæða til að hafa áhyggjur. Ást- in blómstrar hjá þér. i ... -íi þess að það Nautið 120. anril-70. maír Gerðu eins og þér finnst réttast í máli sem þú þarft að taka ákvörðun í. Þú ættir ekKÍ einu sinni að leita ráða, málið er þess eðlis. Tvíburarnir (21. maí-21. iúníu Þú vinnur að sérstöku "gæluverkefni um þess- ar mundir og á það hug þinn allan. Gættu þess að það bitni ekki á fjölskyld- unni. Krabbinn (22. iúní-22. iúiíi: Kunningjar þinir gætu | komið þér í vandræði þó að það sé hreint ekki ætlun þeirx-a. Þú i sýna sjálfstæði, þá fer allt Liónið (23. iúlí- 22, áeúst): Ef þú ferð ekki eftir ' innsæi þínu eru meiri líkur á að þú lendir í ógöngum en ef þú hlýðir á þinn innri mann. Happatölur þínar eru 5, 8 og 21. Mevian (23. ágúst-22. sept.): íw Þú ert fullur sjálfs- trausts um þessar ^^V^l^mundir og ekki ^ f minnkar það við viðurkenningu sem þú færð á opinberum vettvangi. Vogin (23. sept.-23. okt.): Þér hættir til að velta þér óþaiflega núkið upp úr lítilfjörlegum vandamálmn og hafa af 'þeim meiri áhyggjur en vert er. Gerðu þér glaðan dag. Sporðdreki t?4. okt.-?i. nóv.i: I Þú lest eitthvað sem vekur áhuga þinn svo jum munar. Þegar til lengri tíma er litið á þetta eftir aö hafa mikil áhrif. Happatölur þinar eru 13,17 og 25. Bogamaður 122. nóv.-21. des.l: |Allt sem þú tekur þér rfyrir hendur í dag gengur vel. Þú ert full- ur bjartsýni og tilbú- inn að reýna eitthvað nýtt. Kvöldið verður skemmtilegt. Steingeitin (22. des.-19. ian.l: Greiðvikni borgar sig ávallt betur en stirfni og leiðindi. Þetta áttu _ eftir að reyna á eftim- innilegan hátt í dag. Happatölur þínar eru 2, 11 og 18. VUKIII IZJ. st & af peim me Fjórtánda árið í röð Árni isleifs, djassleikari og primus motor djasshátíöarinnar á Egilsstööum. Djasshátíð Egilsstaða: Ungliðarnir heimta að spila með - segir Árni ísleifs Árni ísleifs, tónlistarmaður held- ur uppteknum hætti í sumar og stendur fyrir fiórtándu djasshátíð- inni á EgUsstöðum um næstu helgi. Hátíðin er fyrir löngu orðin lands- þekkt og í fyrra var fjallað um hana í þýskri bók og sagt að hún væri ein af hundrað virtustu djasshátíðum í Evrópu. Árni kenndi lengi tónlist austur á Héraði og smitaði marga af djassbakteríunni. Hátíðin, sem er í Hótel Valaskjálf, stendur í þrjá daga, frá 5.-7. júlí. „Það sem mér finnst standa upp úr á hátíðinni í ár,“ segir Árni, „er sem stendur fyrir hinni Kristjana Stefánsdóttir söngkona og Guðmundur Pétursson blúsleikari, hann er ótrúlega beittur og Krist- jana er búin að læra djasssöng í mörg ár i útlöndum. Þetta er þriðja árið í röð sem unglingar í Ungliða- bandi Djasssmiðju Austurlands spila á hátíðinni. Margir sem hafa verið í Ungliðabandinu eru reyndar fluttir af staðnum en þeir taka ekki annað í mál en að fá að spila með. Árni er framkvæmdastjóri hátíð- arinnar fyrir Djassklúbb Egilsstaða og þetta er í fjórtánda sinn sem hann stendur fyrir henni. „Við höf- árlegu djasshátíð um einu sinni fengið norrænan styrk og danska sendiráðið hefur verið mjög hjálplegt við að fá hing- að menn eins og Sven Asmundsen o. Árni segir að það sé stór hópur djassáhugafólks á Egilsstöðum, í Neskaupstað, á Stöðvarfirði og ná- grenni. „Þetta verður alveg þokkaleg há- tíð þó að við höfum aðeins haldið niðri í okkur andanum en við ætl- um að hafa hana enn glæsilegri á næsta ári þegar við höldum upp á fimmtán ára afmælið." -Kip Tommy Lee, rokkari og fyrrver- andi eiginmaður Pamelu Ander- son, lendir í málaferlum vegna drukknunar fjögurra ára drengs í sundlauginni heima hjá honum. Atvikið varð i afmæli sonar Tommy og Pamelu á heimili þess fyrrnefnda. Litli drengurinn gekk afsíðis en fannst fljótandi í sund- lauginni með andlitiö ofan í vatn- inu. Foreldrar drengsins hyggjast nú kæra Tommy og krefjast 113 millj- óna dollara eða tæplega 12 millj- arða króna í skaðabætur. Þau voru ekki sjálf í afmælisboðinu þegar slysið varð og vilja meina að Tommy hafi vanrækt að passa barnið. Lee bestur í Bandaríkjunum Tævanski leikstjórinn Ang Lee var kjörinn besti leikstjóri Banda- ríkjanna af Time tímaritinu á helginni. Kjörið er liður í nýjum þætti í tímaritinu sem er tileink- aður þeim bestu í Bandaríkjunum á ákveðnum sviðum. í yfirlýsingu frá Time kemur fram að Lee sé á hátindi sköpunargáfu sinnar og ágæti og hafi áhrif á aðra. Þá seg- ir tímaritið að Lee sanni enn einu sinni að bandarísk kvikmynda- gerð vaxi og dafni með framlögum útlendinga. Ang Lee hefur búið í tvo áratugi í Bandaríkjunum og er þekktur fyrir leikstjórn sína á Crouching Tiger, Hidden Dragon og Sense and Sensibility. Brosmildur feröamaöur í Laugardalnum Þau eru mörg tungumálin sem töluö eru á sumrin á tjaldstæöinu í Laug- ardal en þangaö flykkjast útlendingar meö bakpoka sína, annaöhvort áöur en lagt er í ferö um landiö eöa eftir aö búiö er aö hjóia eöa fara á puttanum um landiö. Ljósmyndari DV var á feröinni i Laugardalnum einn góöviörisdag og hitti þennan glaölynda feröamann sem var aö hvíla lúin bein eftir skemmtilega ferö. Þorvaldsdalsskokkið: Óbyggða- hlaup DV, PALVÍK: A laugardaginn fer fram hið árlega óbyggðahlaup eftir endilöngum Þor- valdsdal í Eyjafirði. Skokkið hefst við Fornhaga í Hörgárdal og endamarkið er við Árskógsskóla. Vegalengdin er um 26 kílómetrar. Skokkið hefst kl. 10 en menn mæta við Árskógsskóla kl. 9 til skráningar. Þorvaldsdalsskokkið er ætlað öllum, bæði konum og körlum, sem telja sig komast þessa leið hlaupandi, skokk- andi eða gangandi. Tímatöku verður hætt eftir 6 tíma. Keppt er í aldurs- flokkum 16-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára, 60-69 ára og 70 ára og eldri. Þrir fyrstu í hverjum aldursflokki karla og kvenna fá sérstaka verðlaunapeninga og auk þess fá allir pening sem komast í mark á tilskildum tíma. Árangur allra þátttakenda verður siðan birtur i dagblöðum. Þorvaldsdalsskokkið hefur verið haldið árlega siðan 1994. Þátttakendur hafa verið á milli 20 og 50 og sá sem hraðast hefur hlaupið var 2 tíma og 7 mínútur og elsti þáttakandinn var 79 ára. -hiá SUZUKI Skeifunni 17.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.