Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Blaðsíða 28
Jói útherji
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • sími 588 1560
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá t síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Verð frá
35.500 EVRÓ
Allar stærðir
Komust út
við illan leik
Eldur kom upp í sendibíl á Suður-
landsvegi, vestan við Rauðalæk, um
sexleytið í gærmorgun. í honum
voru tveir iðnaðarmenn á leið til
vinnu sinnar. Þeir vissu ekki fyrr
til en eldur kom upp í bílnum og
fylltist hann á örskammri stundu af
rey k. Að sögn lögreglunnar á Hvols-
velli mátti ekki tæpara standa fyrir
mennina að komast út. -aþ
Engin svör
Kaupþing hefur bent á að sl. föstu-
dag hafi verið tilkynnt að íslensk
erfðagreining yrði væntanlega tekin
inn í Russel 3000 vísitöluna sem mæl-
ir ávöxtun hlutabréfa í 3000 stærstu
skráðu fyrirtækjunum í Bandaríkjun-
um (preliminary list). Þetta kunni að
hafa haft áhrif á hækkunina sem varð
á bréfum deCODE skömmu áður en
nýr risasamningur var kynntur milli
ÍE og Roche.
Hins vegar eru skiptar skoðanir um
hvað gerðist, eins og DV hefur greint
frá, sbr. frétt blaðsins í gær um að
hugsanlega hafi e.k. upplýsingaleki
átt sér stað. Aðrir segja að hrun á
tölvukerfi Nasdaq gæti einnig hafa átt
þátt í atburðarásinni.
Forstjóri deCODE segir að hann
kunni illa að skýra hræringarnar á
gengi bréfanna. -BÞ
íslensk miðlun verður CRM og nýr framkvæmdastjóri ráðinn:
Mér líst glimrandi vel á
íslensk miðlun, sem barist hefur
fyrir tilveru sinni að undanfornu, hef-
ur verið lögð niður og nýtt fyrirtæki
stofnað á rústum hennar. Fyrirtækið
var kynnt starfsmönnum á fundi á
mánudaginn og heitir CRM sem
stendur fyrir Customer Relationship
Management upp á ensku.
Hátt í 50 starfsmenn hafa verið
launalausir í tvo mánuði. Eitthvað
rættist þó úr þeim málum fyrir helgi,
eða eins og símastúlka fyrirtækisins
orðaði það: „Ég fékk maílaunin á
fóstudaginn en ég á eftir að fá fyrir
júní.“
Það eru stórfyrirtækin Tæknival,
Kaupfélag Árnesinga og Sparisjóður
Hafnarflarðar sem stóöu að íslenskri
miðlun, lögðu það niður og stofnuðu
CRM ásamt Gylfa Þórissyni sem er
nýr framkvæmdastjóri fyrirtækisins
og tekur við af Hilmari Þór Sævars-
syni. Gylfi Þórisson var áður við-
skiptastjóri GSM-deildar Íslandssíma
og þar áður starfsmaður Tæknivals og
Stöðvar 2.Nýja fyrirtækið yfirtekur
tæki og tól gamla fyrirtæksins svo og
húsnæði og verkefni.
„Mér líst glimrandi vel á þetta nýja
fyrirtæki," sagði Gylfi Þórisson, sem
fyrst kom inn í húsnæði starfseminn-
ar síðastliðinn sunnudag og hefur síð-
an verið að ræða við starfsfólk og
undirbúa nýja sókn. „Ég veit að mark-
aðurinn er nú tilbúinn til að greiða
rétt verð fyrir þá þjónustu sem við
veitum og verkefnin eru næg.“
íslensk miðlun sérhæfði sig í upp-
lýsingasöfnun og þjónustu fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki og rak um tíma
starfstöðvar í samvinnu við bæjarfé-
lög víða á landsbyggðinni „með afleit-
um árangri," eins og sveitarstjórnar-
maður á Raufarhöfn orðaði það.
-EIR
Lykilhótel
dæmd
Jón Ragnarsson.
Jón Ragnarsson, eigandi Lykilhót-
ela, hefur verið dæmdur til að greiða
Norðlensku framtaki ehf. 2,4 milljónir
króna með dráttarvöxtum vegna veit-
ingasölu á Akureyri. Lykilhótel höfð-
uðu gagnsakarmál en Héraðsdómur
Norðurlands eystra hafnaði því.
Skýrslur fyrir
dómi gáfu gagn-
stefndu Marinó
Sveinsson, fyrr-
verandi fram-
kvæmdastjóri að-
alstefnanda, og
Jón Vídalín Ólafs-
son, stjórnarfor-
maður aðalstefn-
anda, Jón Ó. Ragn-
arsson, framkvæmdastjóri aðal-
stefnda og Ragna Ragnarsdóttir bók-
ari. í dóminum segir að málsaðila í
aðalsök greini ekki á um að stefnda
hafi móttekið allan þann mat sem
reikningar stefnanda byggja á. Þá
greini hins vegar á um hvert endur-
gjaldið fyrir hann eigi að vera.
í 5. gr. laga nr. 39, 1922 um lausa-
fiárkaup segir, að séu kaup gerð, en
ekkert fastákveðið um hæð kaup-
verðsins, beri kaupanda að greiða það
verð, sem seljandi heimti, ef eigi verði
að telja það ósanngjarnt. „Er það álit
dómsins, að fallast verði á kröfu aðal-
stefnanda með vísan til nefndrar
greinar. -BÞ
Krakkar í kanó
Það viöraöi vel til sjóferöa í Nauthólsvík í gær og krakkarnir á siglinganámskeiði ÍTR voru kampakátir og mannalegir þegar þeir héldu út á víkina.
aö aö sjá en allir kunni handtökin og séu öryggið uppmálað enda í björgunarbeltum og undir öruggu eftirliti leiðbeinanda.
DV-MYND ÞOK
Ekki er ann-
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001
Hótelstjórinn á Tærgesen-gistiheimilinu á Reyðarfirði:
Með myndavél
á salerninu
- lögreglan gerði tölvu- og tækjabúnað upptækan
Erlendar stúlkur, sem dvöldu á
Tærgesen-gistiheimilinu á Reyðar-
firði, kærðu hótelstjórann fyrir að
vera með myndbandsupptökuvél á
salerninu. Höfðu stúlkurnar farið
nokkrum sinnum á salemið áður
en þær uröu myndavélarinnar
varar.
Eftir að kæran barst lögreglunni
á Eskifirði fór hún þegar á staðinn
og tók hótelstjórann til yfir-
heyrslu. Kom þá í ljós að mynda-
vélin á salerninu var beintengd
við tölvubúnað á skrifstofu hótel-
stjórans og gat hann því fylgst með
ferðum og gerðum gesta sinna á
salerninu. Aðeins eitt salerni er á
Tærgesen-gistiheimilinu . Lögregl-
an lagði hald á tölvubúnað hótel-
stjórans; þar með talið myndavél-
ina á salerninu.
TÆRGESEN
GISTIHEIMIUÐ 0474-1447
Gistiheimiliö Tafrgesenhús. Búðar^óta 4. T30 fif;....-...474 1447
- Fa* .................................................474 1547
- fíettená................. ......gistireyi?'mtnfidia.is
Tærgesen-gistiheimiliö
Þar sem gamla kaupfélagshótelið
var áður, í hjarta Reyðarfjarðar.
„Ég vil ekkert um .þetta tala,“
sagði hótelstjórinn þegar DV vakti
hann i morgun en hann var yfir-
heyrður af lögreglu í gærdag.
„Myndataka sem þessi er óheim-
il og andstæð lögum. Menn verða
að geta treyst því að ekki sé fylgst
með þeim á slíkum stöðum. Það
verða að liggja mjög sérstakar
ástæður að baki til að fylgjast
megi með salernum; svo sem
stríðsástand eða grunur um
hryðjuverkastarfsemi. Þá verður
líka að gera grein fyrir því og að-
vara fólk,“ sagði Ragnar Aðal-
steinsson hæstarréttarlögmaður í
morgun.
Tærgesen-gistiheimilið er til
húsa í gamla kaupfélagshótelinu
gegnt kaupfélagsbyggingunni á
Reyðarfirði. Gistiheimilið var rek-
ið í fyrrasumar af mönnum „...sem
komu að sunnan," eins og heima-
menn orða það, en var lokað í vet-
ur. Rekstur var svo hafinn að nýju
fyrir örfáum vikum. Tærgesen-
gistiheimilið er rekið sem farfugla-
heimili með 10 herbergjum. í gisti-
heimilinu er krá sem selur pitsur
og öl á kvöldin.
-EIR/-aþ
Þroskaþjálfar: ||
Slitnar upp ,
úrviðræðum f
við ríkið i
Upp úr slitnaði í samningavið-
ræðum samninganefnda Þroska-
þjálfafélags ís-
lands og samn-
inganefndar rík-
isins síðdegis í
gær. Sólveig
Steinsson, for-
maður Þroska-
þjálfafélagsins,
sagði viðræðurn-
ar hafa strandað
á launaliðnum.
Sólveig
Steinsson.
„Að okkar mati
felur tilboð rikisins ekki í sér
næga hækkun heildarlauna,“ segir
Sólveig. Hún kveðst hafa verið
bjartsýn að loknum samningafundi
á mánudag og það séu vonbrigði að
næsti fundur sé ekki boðaður fyrr
en að viku liðinni, þann 11. júlí.
„Við ætlum að hittast í dag og
meta stöðuna en það gerist vænt-
anlega ekkert fyrr en i næstu viku.
Um 130 þroskaþjálfar hjá ríki og
sjálfseignarstofnunum eru í verk-
falli og bitnar það á þjónustu við
um 1100 þroskahefta einstaklinga.
-aþ