Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Qupperneq 10
10
Útlönd
MIDVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001
DV
Ekki einn aö verki
McVeigh er talinn hafa notiö aöstoð-
ar Nichols og jafnvel fleiri.
Ákæra ekki
ákveðin
Nýr saksóknari Oklahoma-fylkis í
Bandaríkjunum, Wes Lane, segist
ætla að taka sér góðan tíma til að
ákveða hvort hann muni lögsækja
Terry Nichols fyrir morð frammi
fyrir alríkisrétti. Nichols er sakaður
um að hafa aðstoðað Timothy
McVeigh þegar sá síðarnefndi
sprengdi opinbera byggingu í Okla-
homa-borg.
Ef Lane ákveður að sækja Nichols
þýðir það að sóst verður eftir dauða-
dómi. Lane segist vera skuldbund-
inn til þess að gefa sér góöan tima
til að íhuga málið, almenningur bú-
ist við því. Þess vegna komi ákvörð-
un ekki fyrr en með haustinu. Hann
gerir sér grein fyrir því að allar
ákvarðanir muni valda deilum.
Diplómatar íraka
fá hæli I BNA
Tveir háttsettir diplómatar íraka
hjá Sameinuðu þjóðunum hafa beð-
iö um hæli í Bandaríkjunum, sam-
kvæmt bandarísku fréttastofunni
CNN. Mohammed al-Humaimidi,
aðstoðarsendiherra íraks hjá SÞ,
mun hafa gengið inn í lögreglustöð
í New York-borg á föstudag og beð-
iö um pólitískt hæli fyrir sig og fjöl-
skyldu sína. Málinu var vísað til
Bandarísku alríkislögreglunnar.
Auk hans er sagt að annar háttsett-
ur diplómati íraks hjá SÞ hafi beðið
um hæli, en hann átti aö snúa aftur
til Iraks í þessum mánuði. Ekki hef-
ur heyrst frá honum frá því í síð-
ustu viku.
Bandarísk yfirvöld hafa neitað að
staðfesta hælisumsóknirnar. Utan-
ríkisþjónusta íraka segist heldur
ekki kannast við málið. Sendiherra
íraks hjá SÞ sagði aö diplómatarnir
hefðu lokið starfi sínu í New York í
lok síðasta mánaðar en hann vOdi
ekki tjá sig um hvort þeir hefðu
reynt að fá hæli í Bandaríkjunum.
Milosevic fær
sér lögfræöinga
Dragoljub Ognjanovic, einn af
lögfræðingum Slobodans Milosevic,
fyrrverandi forseta Júgóslavíu,
sagði í gær að Milosevic myndi lík-
lega þiggja lögfræðiaðstoð við vörn
sína gegn ákærum um stríðsglæpi.
Hann mætti í gær fyrir rétt án lög-
fræðinga og hafði lýst því yfir að
hann myndi verja sig sjálfur.
Viðbrögð við framkomu Milos-
evic frammi fyrir dómurum stríðs-
glæpadómstólsins í Haag hafa verið
misjöfn. Flestir eru þó þeirrar skoð-
unar að hann hafi einungis komið
fram sem stjórnmálamaður og allar
yfirlýsingar hans hafi verið í þá átt-
ina.
Ognjanovic segir að Milosevic
trúi því einnig statt og stöðugt að
stríðsglæpadómstóllinn sé stjórn-
málalegur dómstóll en ekki lagaleg-
ur. Hann hafi því ætlað að byggja
vörn sina á því og vegna þess neitað
að nýta sér lögfræðinga sína.
í dag mun Milosevic líklega hitta
Snýst hugur
Milosevic sá stríösglæpadómstólinn
sem stjórnmálalegan dómstól.
í fyrsta skipti síðan hann var flutt-
ur til Haag konu sína Mira
Markovic. Ekki hefur enn fengist
staðfest hvort hollensk yfirvöld hafi
veitt Markovic vegabréfsáritun inn
í landið þar sem hún er á svörtum
lista hjá Evrópusambandinu. Tals-
maður utanríkisráðherra Hollands
sagði viö fjölmiðla að hollensk
stjórnvöld hefðu fengið beiðni frá
stríðsglæpadómstólnum um að veita
Markovic áritun ef hún sækti um
hana.
Milosevic ræddi við konu sína
eftir komu í réttarsalinn í gær að
sögn Zdenko Tomanovic, eins lög-
fræðings forsetans fyrrverandi.
Tomanovic sagði enn fremur að
Markovic hygðist jafnvel kaupa eða
leigja íbúð í Haag á meðan réttar-
höldin yfir manni hennar standa yf-
ir. Milosevic var hins vegar meinað
að hringja í son sinn, Marko
Milsevic, í gær til að óska honum til
hamingju með afmælið.
143 farast í flugsiysi
Tuplev 154 flugvél frá flugfélaginu Vladivostok Avia fórst skammt frá borginni Irkutsk í Síberíu í gærkvöld. 133 farþeg-
ar voru um borö ásamt tíu mann áfhöfn og létust allir. Fréttir eru enn óljósar en samkvæmt fréttum rússneskra fjöl-
miöla haföi vélin gert tvær tilraunir til lendingar á flugvellinum í Irkutsk áöur en hún hrapaöi. Tuplev 154 er mikið not-
uö i langflug innan Rússlands og er þetta í þriöja skiþtiö frá 1994 sem slík vél ferst og meö þeim rúmlega 350
manns.
/
JLX 4x4 • ALVORU JEPPI
Meðaleyðsla 7,8 I
1.595.000,-
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
STÝRANLEGUR - BOR
BORARALLTAÐ 300metra
^ OFNASMIÐJA REYKJAVÍKUR HF
Þrjátíu verslanir
jafnaðar við jörðu
Ríkisstjórn ísraels
ákvað á fundi í gær
að vinna áfram sam-
kvæmt vopnahléi,
sem komið var á fyr-
ir tilstuðlan Banda-
ríkjanna, þrátt fyrir
aukið ofbeldi undan-
fama viku. Stjórnin
hélt sig þó viö þá
stefnu að skjóta á alla
þekkta hryðjuverka-
menn sem taldir eru
ógna öryggi ísraela.
Shimon Peres, utan-
ríkisráðherra Israels,
viðurkenndi þó að
vopnahléið héngi á
bláþræði. Hann sagöi
að deiluaðilaar
þyrftu að gera allt
sem í þeirra valdi stæði til að koma
í veg fyrir frekara ofbeldi.
Engar fréttir komu af mannfalli í
gær. Hins vegar réð-
ust ísraelskir her-
menn á um 30 versl-
anir á mörkum yfir-
ráðasvæðis Palest-
ínumanna og jöfnuðu
þær við jörðu með
jarðýtum. Að sögn
talsmanns hersins
voru verslanimar
reistar án tilskilinna
leyfa. Auk þess voru
þær taldar vera ógn-
un við öryggi her-
manna og annarra
ísraela.
Igor Ivanov, utan-
rikisráðherra Rúss-
lands, hringdi í gær í
Yasser Arafat, leið-
toga Palestínumanna,
og Ariel Sharon, forsætisráöherra
ísrael, og hvatti þá til viðræðna til
að binda enda á ofbeldið.
Shlmon Peres
Segir vopnahlé hanga
á bláþræöi.
Fundaöi með páfa
Silvio Berlusconi,
forsætisráðherra
Ítalíu, hélt sinn
fyrsta opinbera fund
með Jóhannesi Páli
páfa öðrum í gær.
Þeir ræddu alþjóða-
væðingu og G8-fund-
inn sem haldinn
verður í Genúa í mánuðinum.
Hitabylgja og rafmagn
Vandræði hafa veriö með raf-
magnsframboð í Kaliforníu síðustu
daga vegna hitabylgju sem ríður yf-
ir fylkið. Naumlega tókst að komast
hjá rafmagnsleysi í fyrradag.
Ofbeldi í Zimbabwe
Tveir létust og sex slösuðust í
bensínsprengjuárás í Zimbabwe í
gær. Tveggja daga allsherjarverkfall
lamar Zimbabwe í dag og í gær.
Friðarviðræður voru teknar upp
að nýju á milli slava og Albana í
Makedóníu í gær með hjálp vest-
rænna sendifulltrúa. Skuggi féll á
umleitanirnar þegar albanskir
skæruliðar drápu makedónskan
hermann í umsátri.
Gegn innflytjendum
Norðurbandalagið á Ítalíu, sem á
aðild að nýskipaðri ríkisstjóm
landsins, lagði til hert lög gegn inn-
flytjendum í gær. Flokkurinn vill að
enginn flytji til landsins án þess að
hafa tryggt sér starf áður.
Víll fá Chirac fyrir rétt
Almennur sak-
sóknari í París vill
að dómari yfirheyri
Jacques Chirac
Frakklandsforseta.
Forsetinn komi sem
vitni fyrir dómara
og svari spurning-
um um greiðslur
vegna ferðalaga í
borgarstjóratíð hans í Paris. Chirac
ætlar sér endurkjör á næsta ári og
hefur neitað að svara spumingum
um hvort hann hafi brotið spilling-
arlög.
Sakaður um morð
Dómari í borginni York í Penn-
sylvaniu í Bandaríkjunum hefur
stefnt borgarstjórann fyrir rétt
vegna morðmáls. Hann er sakaður
um að hafa verið í múgi sem skaut
blökkúkonu árið 1969.
Morð skyggir á viðræður
Tony Blair, for-
sætisráðherra Breta,
og Bertie Ahem,
írskur kollegi hans,
funda í dag vegna
ástandsins á Norð-
ur-írlandi. Maður
var skotinn þar til
dauða i morgun og
er spenna vaxandi á svæðinu.
Planaði aldamótasprengju
Alsírskur maður játaði í dag í
fyrsta skipti að hafa ætlað að
sprengja flugvöllinn í Los Angeles á
aldamótunum.
Rósagarður fyrir Díönu
Vinna mun á næstunni hefjast
við nýjan rósagarð norður af Lund-
únum sem tileinkaður er minningu
Díönu, prinsessu af Wales. Garður-
inn verður opinn almenningi.