Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Blaðsíða 24
28
ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001
Tilvera X>V
í f iö
Kvöldganga
í Viöey
í kvöld, þriðjudaginn 21. ágúst,
verður farið í næstsíðustu
kvöldgönguna í Viðey í sumar.
Farið verður um vesturenda
eyjunnar sem hefur að geyma
listaverk Richards Serra, merks
myndhöggvara frá Ameríku. Er
verk hans voru sett niður á sínum
tíma fundust steinar með
áletrunum á frá því búið
var á eynni á 19. öld, en Jónas
Hallgrímsson hafði á sínum tíma
skrifað að eyjan hefði þannig
steina að geyma. Áður en í
gönguna er haldið verður farið
með ferju frá Sundahöfn kl. 19.30
og hefst sjálf gangan í eynni við
Viðeyjarkirkju. Ekkert gjald er
tekið fyrir leiðsögnina, en hins
vegar er ferjutollur, aðeins 400 kr.
fyrir fullorðna og 200 kr. fyrir
böm. Fólk er beðið um að búa sig
vel eftir veðri og er brýnt að vera í
góðum skóm.
Klassík
SUMARTONLEIKAR I LISTASAFNI
SIGURJONS OLAFSSONAR A
næstsíöustu sumartónleikum í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
þriðjudaginn 21. ágúst nk. klukkan
20.30, koma fram þau Kristín Mjöll
Jakobsdóttir fagottleikari og Jón
Slgurðsson píanóleikari. Þau munu
leika Rómönsu eftir Robert
Schumann, Fagottssónötu eftir
Ríkarö Örn Pðlsson, Sonatensatz
eftir Mikhail Glinka, Rapsódíu fyrir
fagott eftir Willson Osborne og
verkið La Muerte del Angel eftir
Astor Piazzolla.
Myndlist
ANDLEGT FÓÐUR FRÁ FÆREYJUM
Sýning á steinþrykksblöðum frá
Grafiska Verkstaðnum í Listasavni
Foroya í Þórshöfn Færeyjum, var
opnað í sal félagsins íslensk grafík
á menningarnótt í Reykjavík í Hafn-
arhúsinu. Sýnendur eru listamenn-
irnir Bárður Jákupsson, Rannvá
Kunoy, Olivur við Neyst, Torbjprn 01-
sen, Kári Svensson og Hansina Iver-
sen frá Færeyjum, Paul Anker Bech,
Jesper Christiansen og Per Kirkeby
frá Danmörkuog Roj Friberg frá Sví-
þjóö.Sýningin stendur til 9.
september og er opin frá klukkan
14 til 18 fimmtudaga til sunnudaga.
HREINN FRIÐFINNSSON SÝNIR í
UOSAKLIFI I HAFNARFIRÐI
Mynlistarsýning Hreins
Friöfinnssonar, Eitthvað hvítt,
eitthvaö svart og eitthvað hvorki
hvítt né svart stendur nú yfir í
Ljósaklifi í Hafnarfirði. Sýningin er
opin föstudaga, laugardaga og
sunnudaga frð kl. 14 til 18 til 3.
september. Aögangur er ókeypis.
HELGI ÞORGILS í BORGARNESI
Um þessar mundir stendur yfir
sýning Helga Þorgils í Listasafni
Borgarness sem ber yfirskriftina
Landslag. Þar sýnir listamaðurinn í
fyrsta skipti á sínum ferli
landslagsmyndir einvöröungu og er
myndefniö einkum sótt til
náttúrufegurðar Borgarfjaröar og
Dala. Listasafn Borgarness er til
húsa í Safnahúsi Borgarfjarðar,
Bjarnabraut 4-6, Borgarnesi, og
verður sýningin opin a sama tíma og
safnið, þriðjudaga- og fimmtudaga
frá kl. 13-20 en alla aðra daga frá
kl. 13 til 18, fram til 25. ágúst en
aö þeim tíma liðnum er lokað um
helgar. Sýningin stendur til 7.
september.
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
DV-MYNDIR EINAR J.
Söngelskir bræður
Otsen-bræöur léku á als oddi á Broadway um helgina, sungu, spiluöu og
spjölluöu viö gesti.
Olsen Olsen
á Broadway
Hilmar
-w-t- S 1 f* 1 • • S "pv / Karlsson
Kinversk ofurlogga 1 Paris
Upprennandi Olsen-bræður
Þessir ungu menn sátu hugfangnir á fremsta bekk og nutu tóniistarinnar.
Þaö fytgir ekki sögunni hvort þeir eru bræöur en kannski eiga þeir ein-
hvern tíma eftir aö troöa upp sjálfir meö kassagítar aö vopni.
Olsen-bræðumir dönsku heilluðu
gesti skemmtistaðarins Broadway
upp úr skónum um helgina. Bræð-
urnir knáu, sem sigruðu glæsilega í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva um árið með laginu Fly on
the wings of love, héldu tvenna tón-
leika í borginni og var fullt út úr
dyrum i bæði skiptin og stemningin
eftir því. Áhorfendur voru á öllum
aldri, allt frá bömum til gamal-
menna. Húsmæður á besta aldri
voru þó sérstaklega áberandi í
áhorfendahópnum enda eiga
hjartaknúsaramir auðvelt með að
töfra þær með söngvum
sínum.
Sam-bíóin - Kiss of the Dragon
Kínversk lögga í Paris
Jet Li sýnir hvaö i honum býr í vel útfæröri slagsmálamynd.
Á síðustu árum hafa Jackie Chan
og Jet Li tekið við af Steven Seagal
og Jean Claude Van Damme sem of-
urhetjur slagsmálanna og er ástæð-
an fyrst og fremst þeirra útfærsla á
austurlenskum sjálfsvamaríþrótt-
um þar sem þeir nánast gera atrið-
in að ballett. Þeir félagar Chan og Li
eru þó sama marki brenndir og
Seagal og Van Damme að of mikið
er um endurtekningar að ræða í
myndum þeirra. Til að losna út úr
viðjum vanans hóf Jackie Chan far-
sælt samstarf við Chris Tucker sem
sjá má í Rush Hour myndunum
tveimur og Jet Li færði sig til
Frakklands þar sem Luc Besson tók
honum opnum örmum og saman
unnu þeir handritið að Kiss of the
Dragon, sérlega líflegri og oft á tíð-
um skemmtilegri slagsmálamynd
þar sem allt raunsæi er látið liggja
milli hluta og eingöngu hugsað um
að hafa hraðann sem mestan, stíl-
færa slagsmálatriði og gera stóran
greinarmun á þvi góða og hinu illa.
Segja má að Kiss of the Dragon sé
í útfærslu byggð upp eins og teikni-
mynd í anda Supermans og Bat-
mans, svo einhverjar ofurhetjur
teiknimyndanna sé nefndar. Við
höfum ofurhetjuna, kínverskan lög-
regluþjón, Liu (Jet Li), sem kemur
til Parísar til að aðstoða frönsku
lögregluna við að leysa sakamál
sem tengist Kína. 1 París kemur í
ljós aö versti óvinurinn er franski
lögregluforinginn, Richard, (Tchéky
Karyo) sem er miskunnarlaust fól
(þó aldrei komi almennilega í ljós af
hverju hann hefur snúið sér að
glæpum í stað þess aö sinna lög-
reglustörfum) og hefur hann alla
frönsku lögregluna á bak við sig. Og
þar sem Liu getur reynst honum
hættulegur þá er ekki sökum að
spyrja að hann er hundeltur um alla
París og áður en yfir lýkur er hann
búinn að fækka lögreglunni í París
að minnsta kosti um helming.
Skemmtangildi Kiss of the
Dragon felst í hinum íjölmörgu
slagsmálaatriðum sem krydduð eru
með húmor sem stundum er nokkuð
dökkur. Dæmi um góðan húmor og
listilega vel útfært bardagaatriði er
þegar Liu ræðst til inngöngu á lög-
reglustöðina í París og lendir óvænt
í sal þar sem um þrjátíu franskir
lögreglumenn eru í júdókennslu. Að
sjálfsögðu liggja þeir allir í valnum
þegar Liu hefur lokið sér af. Þetta
atriði og önnur álíka gera það að
verkum að Kiss of the Dragon er
bíóferðarinnar virði. Á móti kemur
væmin saga um góðu melluna sem
kínverska löggan vorkennir og
bjargar hann henni og barni hennar
úr klónum á Richard. Sú ágæta leik-
kona Bridget Fonda á ekki góðan
dag i þessu litlausa hlutverki.
Lelkstjóri: Chris Nahon. Handrit: Robert
Mark Kamen og Luc Besson, eftir hug-
mynd Jet Lis. Kvlkmyndataka: Thierry
Arbocast. Tónlist: Craig Armstrong. ABal-
hlutverk: Jet Li, Bridget Fonda og Tchéky
Karyo.