Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2001, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2001
Skoðun
DV
Spurning dagsins
Hvað finnst þér skemmti-
legast að gera?
Birta Rúnarsdóttir, 5 ára:
Mér finnst skemmtilegast aö vera á
Barónsborg, leikskólanum mínum.
Mekkin Guðmundsdóttir, 4ra ára:
Að leika mér I dúkkuhúsinu
í Barónsborg.
Sara Helena Bjarnadóttir, 4ra ára:
Aö fara í tækin I tívolíinu meö
mömmu og pabba.
Sigurveig Helgadóttir, 4ra ára:
Aö fara í tækin í tívolíinu
niöri á höfn.
Eva Þóra Hallgrímsdóttir, 5 ára:
Aö fara í bílana í tívolíinu niöri á
höfn meö vinum mínum.
Sóirún Kjartansdóttir, 6 ára:
Aö leika mér viö alla vini mína sem eru
meö mér í leikskólanum Barónsborg.
R-listinn og fylgi-
fiskar hans
Karl Ormsson
deildarfulltr. skrifar: eins
Margir eru þeir
pistlamir sem ég
og aðrir hafa
skrifað til að
reyna að benda
fólki á hverrar
stjórnmálatrúar
það fólk er sem R-
‘ Í listinn stendur
fyrir. Þaö er t.d.
og sumu
sé alveg
sama hvað það greiðir í skatta og
gjöld, aðeins ef það er frá R-listan-
um ættað. Það er á allra vitorði að
R-listinn hefur skuldsett borgina
um milljarða króna á meðan rikt
hefur góðæri og fjöldi fyrirtækja
hefur verið að skila hundruðum
milljóna í hagnað ár eftir ár.
Sérstaklega eru það þó tveir
stuðningsmenn R-listans sem ég
ætla að beina orðum mínum til í
þessari grein. Það eru Einar Bragi
rithöfundur og Bubbi Morthens.
Þeim væri hollt núna og ævinlega
að minnast orðanna „það er of seint
að iörast eftir dauðann".
Einar Bragi skrifar grein i Morg-
unblaðið 29. júlí og harmar athafnir
R-listans. Greinina nefnir hann Er
hrunadansinn hafinn? Þarna kvart-
ar Einar Bragi yfir nokkrum gjörð-
um R-listans, fyrst vegna Suðurgötu
8 (vegna eigin hagsmuna), síðan
heldur hann áfram að telja þær
raunir sem R-listinn „gamli og nýi“
(1978-1982 og 1994-2000) hefur valdið
honum og reyndar öllum borgarbú-
um.
Einar Bragi fer svo ófögrum orð-
um um allt er lýtur að gjörðum R-
listans að ég get ekki, samvisku
minnar vegna, haft það eftir og er ég
þó ýmsu vanur þegar ég les pistla eft-
Einar Bragi rithöfundur og Bubbi Morthens trúbador
-Töluöu hreint út.
„Ogfyrst nú tveir af stuðn-
ingsmönnum R-listans hafa
tjáð sig svona hreint út um
verk hans þá skora ég á þá
að hjálpa okkur sjálfstœðis-
mönnum að hrinda af borg-
arbúum þessari plágu að
vori 2002.“
ir vinstrimenn. Einar Bragi tekur
svo orðrétt orð okkar sjálfstæðis-
manna (t.d. að spor vinstrimanna
hræða) og er það vel. Þetta eru orð
að sönnu; spor vinstrimanna og
vinstristjóma hræða svo sannarlega.
Og þá er ég kominn að Bubba
sögu Morthens. Um nokkurn tíma
hefur hann í samstarfi við Olíufé-
lagiö veriö að vinna að góðu máli
sem er þakkarvert og ég þakka hon-
um fyrir. Nýlega var hann í Kast-
Ijósi þar sem talað var um það
ástand sem ríkir í miðbænum á
kvöldin og nóttunni og allir harma.
..Gísli Marteinn spurði hann: „Bubbi,
þú hefur nú mikið vit á þessu þar
sem þú hefur margt reynt (hugsan-
lega ekki nákvæmt orðað þó).“ „Já,“
segir Bubbi, „þetta rugl í miðbæn-
um kom með R-listanum þegar
hann komst til valda.“
Bubbi hefði mátt bæta við að R-
listinn hefur leyft að opna 180 bjór-
búllur í gömlu Reykjavík síðan 1994.
Og fyrst nú tveir af stuðningsmönn-
um R-listans hafa tjáð sig svona
hreint út um verk hans, þá skora ég
á þá að hjálpa okkur sjálfstæðis-
mönnum að hrinda af borgarbúum
þessari plágu að vori 2002.
Jafnvægi í efnahagsmálum?
J.M.G.
skrifar:
Verkalýðsleiðtoginn Halldór
Bjömsson sagði í útvarpi fyrir ekki
mjög löngu að jafnvægi efnahags-
málanna væri meira virði en allt
annað, og um það væru allir sam-
mála. - Veit Halldór Bjömsson
virkilega ekki t.d. um húsnæð-
isokrið í Reykjavík og hvernig
húsaleigan hefur hækkað og hækk-
að? Kallar hann það jafnvægi?
Hér áður voru verkalýðsleiðtogar
með fingurinn á slagæð þjóðlífsins.
Héðinn Valdimarsson lét t.d. byggja
verkamannabústaðina við Hring-
braut og minnismerkið um hann er
sömu megin götunnar. Ýmsir muna
líka eftir hinu svonefnda „júnísam-
„Og þótt Samfylkingin sé tal-
in eiga rœtur í verkalýðs-
hreyfingunni eru þingmenn
hennar fjarri hagsmunamál-
um alþýðu landsins. Þeir til-
heyra líka öðrum stéttum en
alþýðunni og eru óbundnir
sjónarmiðum hennar.“
komulagi". Og fleiri atriði mætti
minna á.
En nú eru breyttir tímar. Brýn-
ustu hagsmunamál fátæka fólksins
eiga ekki marga talsmenn hjá
verkalýðsfélögunum. Og þótt Sam-
fylkingin sé talin eiga rætur í
verkalýðshreyfingunni eru þing-
menn hennar fjarri hagsmunamál-
um alþýðu landsins.
Þeir tilheyra lika öðrum stéttum
en alþýðunni og eru óbundnir sjón-
armiðum hennar. Þeir minnast
aldrei á hagsmuni atvinnulausra og
mætti helst halda að þeir væru ekki
lengur til.
Það hefur verið gengið stanslaust
á rétt atvinnulausra. Og svo langt er
gengið að atvinnurekendur og ríkis-
valdið hafa seilst i sjóði verkalýðsfé-
laganna til að setja upp „námskeið"
og „átaksverkefni" af ýmsu tagi sem
engu skila. Enda hrein sýndar-
mennska. - Og það sem verst er;
verkalýðsforustan hefur jafnvel átt
aðild að þessum yfirgangi.
Hundur Pavlovs
Hvað gera pabbar þegar börnin þeirra hafa
verið óþekk? Jú, þeir skamma þau og reyna að
leiða þeim fyrir sjónir að gott sé og rétt að hegða
sér með öðrum hætti. Þetta er ekki flókið mál.
Sömu reglur gilda í öllum aðalatriðum um tengsl
íslenska embættismannakerfisins við landsfeð-
urna, sérstaklega Davíð Oddsson. Davíð hefur
komið á þeirri fostu reglu á íslenska þjóðarheim-
ilinu að í hvert sinn sem embættismenn og
stofnanir fara út af sporinu og gera eitthvað sem
landsföðurnum mislíkar þá grípur hann strax í
taumana með föstum og ákveðnum skömmum
þannig að enginn ætti að velkjast í vafa um hvar
markalínurnar liggja. Garri, sem er mikill aðdá-
andi Davíðs almennt, er þó alveg sérstaklega
hrifinn af uppeldisaðferðum hans, því þær bera
þess glögg merki að vera bæði úthugsaðar og
áhrifaríkar.
Hundaþjálfun
Garri þekkir nokkuð til hundaþjálfunar eftir
að hafa reynt fyrir mörgum árum að ala upp
blendingsgrey - svona hefðbundinn fjósahund úr
sveitinni. Þar kom berlega í ljós að árangurinn
var í réttu hlutfalli við það hversu samkvæmur
Garri var sjálfum sér í boöum og bönnum
þannig að i hvert sinn sem hvutti gerði eitthvað
af sér gat hann gengið að því vísu að
verða refsað. Fjósahundurinn is-
lenski var að þessu leyti ekkert öðru-
vísi en hinn frægi hundur Pavlovs,
sem fékk lengi vel mat í hvert sinn
sem bjöllu var hringt og var síðan
farinn að slefa við það eitt að bjöll-
unni var hringt. Garri hefur síðan
beitt sömu aðferð á börnin sin og
gengið vel. Krakkamir vita nokkurn
veginn aö það hefur eftirmál í för
með sér ef þau hrækja á gólfið eða sýna af sér
dónaskap og tillitsleysi gagnvart öðru fólki. Þau
eru því að þessu leyti líka eins og hundur
Pavlovs - nema hvað skilyrðingin er enn virkari
vegna þess að þau slefa jafnvel áður en bjöllunni
er hringt.
Hundar Davíös
Skipulagsstofnun hefur verið óþekk upp á
síðkastið. Hún úrskurðaði gegn stefnu ríkis-
stjómarinnar í virkjanamálum og alveg óháð
efnisforsendum málsins ætti öllum að vera ljóst
að slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. Stofnun-
in er greinilega að bjóða landsföðurnum birginn
og slíkt óstýrilæti er erfitt að þola á þjóðarheimli
sem stærir sig af þokkalegum aga. Þess vegna
hlaut landsfaðirinn
Davíð Oddsson að
grípa inn í og
skamma Skipulags-
stofnun, eins og
raunar kom á dag-
inn. Davíð hefði
ekki mátt sleppa því
að skamma stofnun-
ina fyrir þennan úr-
skurð, því þá hefði
hann í raun ekki
verið samkvæmur
sjálfum sér - eins og
er svo mikilvægt í
þessari uppeldisaðferð. Hann hefur skammað
Bjarna Fel. fyrir Bermúdaskálina, fræðslufull-
trúa kirkjunnar fyrir smásöguna, Hæstarétt fyrir
dóma sina, Þjóðhagsstofnun fyrir spár sínar og
auðvitað hlaut hann að skamma Skipulagsstofn-
un fyrir úrskurð sinn. Embættismenn landsins
þurfa því ekki að vera í vafa um hvað gerist ef
þeir fara út fyrir þann ramma sem þeim er
skammtaður. Það er einmitt þessi vissa sem er
svo skilvirk og því er hún aðal uppeldisaðferðar
Davíðs. Embættismennirnir eru því - í jafnvel
enn ríkari mæli en böm Garra - mun fljótari til
að fara að slefa en hundur Pavlovs. Á embættis-
hunda Daviös þarf engar bjöllur, þeir fara nú
hvaö úr hverju að slefa af _
sjálfu sér. GaiTI
Hallarekstur flugfélaga
Þar á meöal eru lendingargjöldin
sem ítrekaö hafa veriö hækkuö.
Hallarekstur í flugi
Krjstinn Sigurðsson skrifar:
Ríkið á mikinn þátt í hallarekstri
flugfélaganna hér. Hér er t.d. ekki
hægt að reka flug innanlands því rík-
ið býr til ný og ný gjöld ár hvert sem
skipta tugum milljóna. Þar á meðal
eru lendingargjöldin sem ítrekað hafa
verið hækkuð. Er ekki skynsamlegra
að fella hin og þessi gjö'ld niður eða
lækka þau um svo sem 50%, heldur
en að þurfa að styðja félögin. Sam-
gönguráðherra á nú leik.
Kynþáttahatur
svartra
Eiríkur Jóhannesson skrifar:
í frétt Stöðvar 2 um sl. helgi var
frétt frá Simbabve og sagt frá blökk-
um „skæruliðum" sem eru að hrekja
hvíta bændur frá jörðum sínum. Ég
skil ekki þennan feluorðaleik hjá
fréttastofu Stöðvar 2 og fleiri flölmiðl-
um. Mann, sem er rekinn áfram af
hatri i garð hvita mannsins og klæð-
ist venjulegum hversdagsfatnaði, eins
og sást á myndum með fréttinni, á
ekki að flokka sem skæruliða, heldur
kynþáttahatara. Það er engu líkara
en þeir sem skrifa fréttir fyrir lands-
menn telji að kynþáttahatur tíðkist
ekki hjá svörtum í garð hvítra. Þeir
menn sem ég sá á þessum fréttamynd-
um, kastandi steinum í dýr og brenn-
andi hús hvítra eru ekki skæruliðar
heldur kynþáttahatarar.
Tóbaksauglýsingar
K. Einar Sigurösson skrifar:
Á íslandi er
bannað að auglýsa
tóbak og nýverið
sameinuðust öfga-
menn um fasísk
lög sem íslenskir
þingmenn sam-
þykktu, flestir án
þess að hafa kynnt
sér þau. Ég var að horfa á Formúlu 1-
keppnina í Ríkissjónvarpinu. Þar
voru á skjánum endalausar auglýs-
ingar fyrir ákveðna tóbakstegund og
bílar ökuþóra voru skreyttir tóbaks-
auglýsingum. Því spyrja margir:
hvers vegna má Ríkissjónvarpið eitt
íslenskra íjölmiðla auglýsa tóbak hér
á landi? Um þetta ættu fréttamiðlar
að spyrja Tóbaksvarnarnefnd og for-
mann þingnefndarinnar sem vann
lagafrumvarpið. Eða finnst þing-
mönnum sem samþykktu þessi geggj-
uðu lög bara í lagi að Ríkissjónvarpið
brjóti þau með samfelldum tóbaks-
auglýsingum í fjórar klukkustundir á
besta útsendingartima um helgar þeg-
£ir fjöldi ungs fólks er að horfa? Þetta
sama fólk má svo ekki sjá sömu vöru-
tegund í hillum verslana þegar það
fer út í sjoppu.
Kínverskar mann-
drápsfleytur?
Ólafur Gunnarsson hringdi:
Ég fæ ekki betur séð en þessir kín-
versku bátar sem hingað eru komnir
séu manndrápsfleytur þar til þeim
hafa verið gerð betri skil hvað örygg-
isbúnað snertir. Allavega fá þeir ekki
haffærisskírteini fyrr en búið er að
gefa út stöðugleikavottorð fyrir þá.
Hvað ef bátarnir, glænýir, hefðu nú
farið á sjó án þess að þeir væru skoð-
aðir? Eða var vitað um þetta er þeir
voru afhentir? Eitthvað virðist bogið
við smíðina, svo mikið les maöur út
úr fréttunum um þessa kínversku
báta. Gott að tekið var í taumana í
tæka tíö.
Ur Formúlu-
keppni.
framsmnm.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.