Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2001, Blaðsíða 2
16
MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2001
Sport
„Tilbúnir aö
kaupa Sigfús“
Útsendari frá þýska hand-
knattleiksliðinu Essen var á leik
Vals og Þórs á íslandsmótinu á
Hlíðarenda sl. laugardag. Hann
var sendur til íslands gagngert
til að fylgjast með Sigfúsi Sig-
urðssyni, linumanninum sterka
úr Val.
Eins og áður hefur komið
fram hefur þýska liðið Mag-
deburg fylgst náið með Sigfúsi
að undanförnu og kom fram-
kvæmdastjóri félagsins hingað
til lands á dögunum til að skoða
leikmanninn. Fleiri erlend lið
eru með Sigfús undir smásjánni.
Ekki er loku fyrir þaö skotið að
Sigfús fari utan á næstunni til að
líta á aðstæður hjá umræddum
liðum í Þýskalandi. Ljóst má
vera að kapphlaup er hafið á
milli þessara liða um að fá Sig-
fús til sín fyrir næsta tímabil.
Hafa mikinn áhuga
Alfreð Gíslason, þjálfari Mag-
deburg, sagðist í samtali í gær
ekki leyna því að hann hefði
mikinn áhuga á að fá Sigfús Sig-
urðsson í sínar raðir.
„Ef út í það yrði farið erum
við tilbúnir að kaupa Sigfús
strax ef Valsmenn léðu máls á
því,“ sagði Alfreð og sagði að
vonandi kæmi Sigfús út til að
skoða aðstæður á næstunni.
-JKS
Guðmundur
góður á Ítalíu
Guðmundur Hrafnkelsson,
landsliðsmarkvörður í hand-
knattleik, átti góðan leik með
Conversano þegar liðið lagði
Ascoli, 22-29, á útivelli í ítölsku
1. deildinni i gær. Guðmundur
varði vel á mikilvægum augna-
blikum í leiknum. Svíinn Pierre
Thorsson var markahæstur í liði
Conversano með fimm mörk.
Hilmar Þórlindsson gerði sex
mörk fyrir Modena sem tapaði
fyrir Fasano, 26-23. Þegar fimm
umferðum er lokið er Bologna
efst með 15 stig. Conversano og
Trieste koma í næstu sætum
með 12 stig. Hilmar og samherj-
ar hans í Modena er í 8. sæti
með sex stig.
-JKS
Ólafur bestur
hjá Magdeburg
Ólafur Stefánsson var í essinu
sínu i gærkvöld þegar lærisvein-
ar Alfreðs Gíslason í Magdeburg
sigruðu Hameln, 19-27, á útivelli
í þýsku Bundeslígunni í hand-
knattleik. Ólafur skoraði átta
mörk fyrir Magdeburg og er orð-
inn markahæstur i deildinni
með alls 59 mörk.
„Við misstum einbeitingu á
kafla i leiknum, létum dómarana
fara í taugarnar á okkur. Við
lékum skínandi vel í síðari hálf-
leik og tryggðum að lokum ör-
uggan sigur. Við erum búnir að
leika sjö erfiða útileiki og ég hef
engar áhyggjur af framhaldinu.
Þetta er allt saman að korna,"
sagði Alfreð.
Toppliðið Lemgo heldur sínu
striki, sigraði Solingen, 30-21.
Minden tapaði á heimavelli fyrir
Eisenach, 24-25, og komst Gústaf
Bjarnason ekki á blað hjá
Minden. Sigurður Bjarnason var
ekki á meðal markaskorara
Wetzlar sem gerði jafntefli við
Kiel, 22-22. Af öðrum úrslitum
má nefna að Göppingen vann
Gummersbach, 25-27, Flensburg
sigraði Bad Schwartau, 27-30, og
Grosswaldstadt og Wallau
Massenheim skildu jöfn, 22-22.
Lemgo er efst með 14 stig en í
2. -3. sæti eru Flensburg og Kiel
með 13 stig. Magdeburg hefur 12
stig en hefur leikið tveimur
leikjum meira en liðin fyrir
ofan.
-JKS
Ragnar átti stórleik
- skoraði ellefu mörk fyrir Dunkerque gegn Nimes
Ragnar Óskarsson átti stórleik
með Dunkerque í franska hand-
boltanum um helgina. Liðið lék á
útivelli gegn Nimes og fór með sig-
ur af hólmi, 21-25. Ragnar var allt í
öllu hjá sínu liði og gerði ellefu
mörk i leiknum. Með sigrinum er
Dunkerque komið í þriðja sætið í
deildinni.
Paris St. Germain með Gunnar
Berg Viktorsson mátti á hinn bóg-
inn sætta sig við stórtap fyrir
Istres á útivelli, 30-21, og skoraði
Gunnar Berg eitt mark i leiknum.
Montpellier, sem af mörgum var
spáð franska meistaratitlinum fyr-
ir tímabilið, trónir í efsta sætinu
með 15 stig. Istres er í öðru sæti
með 14 stig og Ragnar og félagar
eru komnir í þriðja sætið með 13
stig ásamt Chambery, núverandi
meisturum, og Paris St. Germain.
Við erum á réttri braut
„Þetta var geysilega sætur sigur
en Nimes er mjög erfitt heim að
sækja og því hafa mörg lið fengið
að kynnast í gegnum tíðina. I sjálfu
sér kom þessi sigur ekki á óvart
þvi við höfum mjög sterku liði á að
skipa. Það er kátina í herbúðum
liðsins því þetta var þriðji sigurinn
á útivelli í röð. í fyrra voru útileik-
imir vandmál en nú virðist sem
við höfum unnið bug á því og erum
svo sannarlega á réttri braut,“
sagði Ragnar Óskarsson í samtali
eftir leikinn í gær.
Ragnar var tekinn úr umferð í
síðari hálfleik en engu að síður
bætti hann þá við fimm mörkum.
Ragnar sagði þetta hafa örugglega
verið sinn besta leik á þessu tíma-
bili. Dunkerque hefur aðeins tapað
einum leik til þessa
„Það hefur gengið vel það sem af
er og má víst telja að við verðum í
toppbaráttunni ef fram heldur sem
horfir. Ég hef staðiö mig alveg
ágætlega en það má alltaf gera bet-
ur og að því verður stefnt. Vömin
er tvímælalaust sterkasti hlekkur
liðsins en sóknarleikurinn er samt
allur að koma til,“ sagði Ragnar
Óskarsson sem er í hópi marka-
hæstu leikmanna í deildinni. -JKS
Gústaf hættur í Keflavík
- ekki gekk saman milli hans og stjórnar liðsins
Gústaf Björnsson hættur að þjálfa
Keflvíkinga í knattspyrnu.
Gústaf Björnsson lét af störfum
sem þjálfari úrvalsdeildarliðs Kefl-
vikinga í knattspyrnu um helgina.
Þetta varð ljóst eftir fund hans með
stjórn knattspyrnudeildar Kefla-
víkur en vilji félagsins var að
knýja fram nýjan samning við
Gústaf.
„Það gekk ekki saman. Það er
ekkert launungarmál að við ætlum
að fá alla samninga niður fyrir
næsta tímabil. Gústaf var tilbúinn
að koma til móts við okkur en ekki
nóg að okkar mati. Nú er bara
næst mál á dagskrá að flnna þjálf-
ara í stað Gústafs. Við höfum eng-
an í sigtinu sem stendur og ætlum
að skoöa það mál í rólegheitum,"
sagði Rúnar V. Arnarson, formaö-
ur knattspymudeildar Keflavíkur,
í samtali við DV 1 gær.
Að sögn Rúnars er alveg ljóst að
nokkrar breytingar verða á leik-
mannahópnum. Rúnar sagðist þó
viss um að þeir myndu ná samn-
ingum við þá leikmenn sem þeir
vildu hafa á næsta timabili.
-JKS
Löng bið á enda
- fyrsta skóflustungan tekin að yfirbyggðu knattspyrnuhúsi á Akureyri
„Loksins, loksins." Þórarinn B.
Jónsson, formaður íþrótta- og tóm-
stundaráðs Akureyrar orðaði þessa
hugsun margra Akureyringa á laug-
ardag í tölu sinni þegar tekin var
fyrsta skóflustungan að nýju fjöl-
nota íþróttahúsi á félagssvæði Þórs
í Glerárhverfi á Akureyri. Þaö var
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri
á Akureyri, sem hóf verkið, reyndar
með tveimur stungum með ólíkum
tækjum, stunguspaða og beltagröfu,
og bar sig vel að. íþróttahúsið mun
fullrisið kosta bæjarfélagið um 450
milljónir króna en það eru íslenskir
aðalverktakar sem sjá um verkið og
eru áætluð verklok í desember 2002.
Aðstaða til knattspyrnuiökunar á
Akureyri hefur farið hratt versn-
andi siðustu áratugi og því margir
sem fagna þessu og ekki síst bæjar-
stjórinn sem sagði í ræðu sinni að
undirskrift verksamnings lokinni
að ef árangurinn yrði áfram í sam-
ræmi við aðstöðuna myndu menn á
Akureyri þurfa að líta til Evrópu til
að vinna sigra eftir að húsið verður
komið upp.
-ÓK
Allt galopið
í Noregi
Rosenborg fagnaði ekki
norska meistaratitlinum í
knattspyrnu eins og flestir
hölluðust að fyrir helgina. Ros-
enborg, sem unnið hefur titil-
inn sl. tíu ár, mætti Stabæk i
næstsíðustu umferð á laugar-
dag og tapaði, 0-1, en með sigri
hefði Rosenborg orðið norskur
meistari. Það var enginn annar
er Tryggvi Guðmundsson sem
skoraðu mark Stabæk í leikn-
um. Auk hans voru Pétur
Marteinsson og Marel Bald-
vinsson í byrjunarliði Stabæk í
leiknum.
Lilleström, sem berst við
Rosenborg um titilinn, sigraði
Moss, 2-0. í síðustu umferðinni
um næstu helgi mætir Rosen-
borg liði Brann á útivelli en
Lilleström á heimaleik við
Tromsö sem er nánast fallið.
Gylfi Einarsson var í byrjunar-
liði Lilleström.
Helgi Sigurðs-
son skoraði eitt
mark fyrir Lyn,
sem sigraði
Tromsö á útivelli,
2-3. Helgi og Jó-
hann B. Guð-
mundsson voru
báðir i byrjunarliði Lyn. -JKS
Michael Jordan er þarna í þann veginn að troöa boltanum í körfuna gegn New
Jersey Nets en hann skoraði 41 stig í leiknum og er til alls líklegur í vetur.
Jordan hefur
engu gleymt
Michael Jordan virðist vera að
komast í sitt gamla form ef eitthvað
er að marka æfingaleikinn gegn
New Jersey Nets í fyrrinótt. Vanda-
málið fyrir Jordan er að eftir því
sem hann verður betri þeim mun lé-
legri verða samherjar hans i Was-
hington Wizards. Jordan skoraði 41
stig gegn Nets og sýndi að hann get-
ur enn troðið, tekið yfir leiki og eig-
inlega gert nákvæmlega það sem
honum sýnist á körfuboltaveilinum.
Það dugöi þó ekki til því New Jers-
ey vann leikinn, 102-95, þökk sé
samherjum Jordans sem sumir
hverjir voru ekki í sambandi.
„Mér líður vel og leikurinn í
kvöld sýnir að ég er á réttri leið.
Vandamálið er bara að samherjar
mínir verða að fylgja mér og það
eru þeir ekki að gera eins og staðan
er í dag,“ sagði Jordan. Washington
skoraði 16 fleiri stig en Nets þegar
Jordan var inni á en skoraði 23
færri stig þegar Jordan var utan
vallar. Þessi staðreynd segir meira
en mörg orð.
Michael Jordan hefur nú leikið
fjóra æfingaleiki með Washington
Wizards í NBA-deildinni í körfu-
bolta og hefur aukið stigaskor sitt í
hverjum leik frá því að gera 8 stig í
fyrsta leiknum gegn Detroit 11.
október þar til að hann gerði 41 stig
gegn New Jersey í nótt. Jordan hef-
ur alls gert 91 stig á 94 mínútum í
þessum fjórum leikjum og er með
22,8 stig og 4,5 fráköst að meðaltali í
leik. Þá hefur Jordan hitt úr 52,4%
skota sinna (33 af 63), þar af 75%
fyrir utan þriggja stiga línuna (3 af
4).
Jordan hefur einnig verið dugleg-
ur að komast á vítalínuna en hann
hefur tekið 27 vítaskot og sett 81,5%
þeirra niður. Jordan hefur sýnt
framfarir í hverjum leik en liðið
hefur þó aðeins unnið einn leik,
leikinn gegn Miami þar sem Jordan
spilaði aðeins í 12 mínútur.
-ósk/JKS