Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2001, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2001
17
Sport
Óvænt mót-
spyrna Fram
Framstúlkur veittu stöllum sín-
um úr Víkinni óvænta mótspyrnu
þegar liðin mættust í Víkinni á
laugardag. Með góðum enda-
spretti og stórleik Guðbjargar
Guðmannsdóttur náðu Víkings-
stúlkur þó að tryggja sér sigurinn
og unnu 22-18.
íbyrjun einkenndist leikurinn
af því að Víkingsstúlkum virtist
liggja einhver ósköp á að klára
leikinn. Sóknarleikur Fram var
ekki burðugur og skot þeirra
lentu oft í hávörn Víkinga en þeg-
ar Víkingsstúlkur fengu síðan
boltann hentu þær honum iðulega
beint í hendurnar á Frömurunum
þegar möguleiki var á hraðupp-
hlaupum. í stöðunni 6-7 kom góð-
ur kafli hjá Framstúlkum sem
gerðu þrjú mörk í röð, reyndar
með því að klúðra aðeins færri
sóknum en andstæðingarnir.
Framstúlkur höfðu síðan óvænt
þriggja marka forskot í leikhléi.
Framstúlkur gerðu fyrsta mark
seinni hálfleiks en síðan fór smátt
og smátt að draga af þeim og Vík-
ingsstúlkur minnkuðu muninn
jafnt og þétt. Þær voru búnar að
jafna leikinn eftir rúmar 11 mín-
útur og voru eftir það með tveggja
marka forskot áður en þær geröu
svo tvö síðustu mörk leiksins.
Það sem kannski aðallega skóp
sigurinn hjá Víkingum var stór-
leikur Guðbjargar Guðmannsdótt-
ur, sem nýtti færi sín einstaklega
vel og skoraði átta mörk í síðari
hálfleik. Helga varði einnig ágæt-
lega hjá Víkingum og Guðmunda
átti góðan leik og virðist óðum
vera að ná fyrri styrk.
Framstúlkur gerðu vel i aö
standa í Víkingum framan af en
styrkleikamunur liðanna kom
svo í ljós þegar á leið. Sóknarleik-
urinn snerist mikið í kringum
Ingibjörgu Ýr Jóhannsdóttur,
enda gerði hún rúmlega helming
marka liðsins. Þá varði Guðrún
Bjartmarz vel í fyrri hálfleik. -HI
Sanngjarn sig-
ur Stjörnunnar
Stjarnan lagði KA/Þór sann-
gjamt á heimavelli sínum í Ás-
garði í Garðabæ á laugardag.
Jafnræði var með liöunum
fyrstu fimm mínúturnar en sið-
an sigu Stjörnustúlkur fram úr,
staðan í hálfleik var 16-10, og
hélst sú forysta til loka.
„Þetta var erfið fæðing,“ sagði
Siggeir Magnússon þjálfari
Stjörnunnar. „Við vorum að
prófa sex núll vörn og hún gekk
ekki nógu vel. KA-Þór liðið er
baráttulið og gefst aldrei upp og
það kom svolítil værukærð yfir
okkur. Annars í heildina er ég
ánægður með að vinna þennan
leik,“ sagði Siggeir að lokum.
„Við vorum bara lakara liðið,"
sagði Hlynur Jóhannesson, þjálf-
ari KA-Þórs. „Við náðum aldrei
að komast inn í leikinn en það
þýðir ekki að gráta þetta, við eig-
um eftir að mæta þeim fyrir
norðan og þá verður tekið
hraustlega á þeim.“
Jelena Jovanovic var best
Stjörnustelpna en hjá KA-Þór var
Ásdís Sigurðardóttir best. -EH
SL PEHP KVENNfl
Stjarnan 4 3 1 0 89-76 7
Haukar 4 3 0 1 102-64 6
ÍBV 4 3 0 1 77-64 6
Grótta/KR 3 2 0 1 61-53 4
Valur 3 1 1 1 66-60 3
FH 3 1 0 2 60-72 2
Víkingur 3 1 0 2 48-65 2
Fram 4 1 0 3 75-96 2
KA/Þór 4 0 0 4 74-102 0
Valur-FH 24-27
1-0, 3-1, 3-4, 5-9, 8-11, (10-13). 10-14,12-17,
14-20, 17-22, 20-26, 24-27.
Valur:
Mörk/viti (skot/víti): Hrafnhildur
Skúladóttir 10/3 (14/3), Ámý B. ísberg 6
(9), Elfa Björg Hreggviðsdóttir 3 (4),
Hafrún Kristjánsdóttir 2 (4), Drífa
Skúladóttir 2 (5), Marín Sörens Madsen 1
(3) , Kolbrún Franklín (1).
Mörk úr hradaupphlaupum: 2 (Elfa).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 3.
Fiskuð viti: Ámý 2, Hrafnhildur 1.
Varin skot/viti (skot/viti á sig). Berglind
Hansdóttir 7 (23/4 hélt 1, 28%, víti
framhjá), Sóley Halldórsdóttir 6/1 (17/3, 4,
31%)
Brottvísanir: 6 mínútur
FH:
Mörk/viti (skot/viti); Hafdís
Hinriksdóttir 8/6 (11/8), Ragnhildur
Guðmundsdóttir 6 (8), Hildur Pálsdóttir 4
(6), Sigrún Gilsdóttir 3 (3), Dröfn
Sæmundsdóttir 3 (8), Harpa Vífilsdóttir 2
(4) , Eva Albrechtsen 1 (6).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 1 (Harpa).
Vitanýting: Skorað úr 6 af 8.
Fiskuð viti: Harpa 3, Eva 2, Ragnhildur,
Sigrún, Hildur.
Varin skot/viti (skot/víti á sig). Jolanta
Slapikene 7 (21/1, hélt 1, 33%), Kristín M.
Guðjónsdóttir 3 (13/2, hélt 2, 24%).
Brottvisanir: 2 mínútur
Dómarar (1-10): Ingvar Guðjónsson og
Jónas Eliasson (7). Gœði leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 50.
Maður leiksins: Ragnhildur
Guðmundsdóttir, FH
Stjarnan-KA/Þór 25-19
0-1, 3-2, 4-4, 7-5, 11-6, 13-7, 15-9, (16-10),
16-11, 18-12, 19-14, 23-16, 24-17, 25-19.
Stiarnan:
Mörk/viti (skot/viti): Anna B. Blöndal 6
(9), Margrét Vilhjálmsdóttir 5 (5), Ragn-
heiður Stephensen 4/2 (8/2), Jóna M.
Ragnarsdóttir 3 (5), Inga L. Þórisdóttir 3
(4), Herdís Jónsdóttir 2 (3), Kristín J.
Clausen 2 (4).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 7 (Margrét
2, Anna 2, Inga Lára 2, Herdís).
Vítanýting: Skorað úr 2 af 2.
Fiskuð viti: Kristín 2.
Varin skot/viti (skot/viti á sig): Jelena
,Jovanovic 19/3 (37/7, hélt 6, 51%) Ólína
Einarsdóttir 2 (3/1, hélt 0, 67%).
Brottvísanir: 6 mínútur.
KA/Þór
Mörk/viti (skot/viti): Ásdís Sigurðar-
dóttir 6/1 ( 16/2), Ebba Brynjarsdóttir 5/1
(12/1), Elsa Birgisdóttir 5/3 (10/4), Sólveig
G. Smáradóttir 2 (4), Ása M. Gunnarsdótt-
ir 1 (1), Inga Dís Sigurðardóttir (4), Þór-
hildur Björnsdóttir (2), Sandra Jóhannes-
dóttir (1/1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 1 (Elsa)
Vítanýting: Skorað úr 5 af 8
Fiskuð viti: Ebba 3, Ása 2, Þórhildur 1,
Þóra Bryndís Hjaltadóttir 1, Inga 1.
Varin skot/viti (skot/viti á sig): Selma S.
Malmqvist 6 (28/2, hélt 4, 21%), Sigurbjörg
Hjartardóttir 2 (5, hélt 0, 40%).
Brottvisanir: 4 mínútur.
Dómarar (1-10): Hörður Sigmarsson og
Þórir Gíslason (7). Gœði leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 135.
Maður leiksins: Jelena
Jovanovic, Stjörnunni.
ÍBV-Haukar18-14
1-0, 2-3, 5-4, 8-6, (10-8), 10-9, 13-10, 15-11,
15-13, 18-14.
ÍBV:
Mörk/viti (skot/viti): Ana Perez 6/1
(17/2), Andrea Atladóttir 4 (15/1), Isabel
Ortiz 3 (5), Milana Mileuzic 2 (4), Dagný
Skúladóttir 2 (4), Ingibjörg Jónsdóttir 1 (1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 2 (Milana,
Andrea)
Vitanýting: Skorað úr 1 af 3
Fiskuð viti: Ingibjörg, Dagný, Andrea.
Varin skot/viti (skot/viti á sig): Vigdís
Sigurðardóttir 20/3 (34/6, hélt 11, 59%, eitt
víti í stöng)
Brottvisanir: 6 mínútur
Haukar:
Mörk/viti (skot/viti): Nina K. Bjömsdótt-
ir 4/2 (10/4), Harpa Melsted 3/1 (6/2), Inga
Fríöa Tryggvadóttir 2 (4), Brynja Steinsen
1 (4/1), Björk Hauksdóttir 1 (1), Sonja Jóns-
dóttir 1 (4), Hanna Stefánsdóttir 1 (4),
Heiða Erlingsdóttir 1 (1).
Mörk úr hraðaupphlaupunu 1 (Hanna).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 7.
Fiskuð viti: Brynja 3, Harpa, Hanna,
Heiða, Sandra.
Varin skot/viti (skot/viti á sig): Jenný
Ásmundsdóttir 18/2 (36/3, hélt 7, 50%)
Brottvisanir: Tvær mínútur
Dómarar (1-10): Ámi Sverrisson og
Guðmundur Stefánsson (3). Gœði leiks
(1-10): 6. Áhorfendur: 187.
Maður leiksins: Vigdís
Sigurðardóttir, ÍBV
Hafdís Hinriksdóttir FH-ingur er hér tekin föstum tökum af Valsvörninni. Hún skoraöi átta mörk fyrir FH í leiknum.
DV-mynd E.ÓI.
FH a uppleið
- sigraöi Val örugglega ■ ■ að Hlíðarenda
FH sótti gull í greipar Vals þeg-
ar liðin mættust á laugardaginn
að Hlíðarenda í efstu deild kvenna
í handbolta.
Sigur gestanna var öruggur og
sanngjarn þótt heimaliðið hefði
byrjað betur og virkað til alls lík-
legt enda hefur það verið á
blússandi siglingu undanfarið. Að
þessu sinni sigldi liðið í strand,
varnar- og sóknarlega séð, og hug-
myndaleysið var eftir því en
reyndar átti andstæðingurinn að
þessu sinni mjög góðan dag. Bar-
áttan, leikgleðin, aginn og kjarkur-
inn var í góðu lagi hjá FH-liðinu
sem spilaði eins og ein stérk heild
þar sem hver leikmaður stóð sína
Víkingur-Fram 22-18
0-1, 3-1, 4-4, 5-7, 6-10, (7-10), 7-11, 9-12,
15-12,16-15, 17-16, 20-17, 22-18.
Vikingur:
Mörk/viti (skot/viti): Guðbjörg Guð-
mannsdóttir 9 (10), Guömunda Ósk Krist-
jánsdóttir 5 (16), Anna Kristín Árnadóttir 4
(5), Helga Guðmundsdóttir 1 (2), Steinunn
Þorsteinsdóttir 1 (2), Ragnheiður Ásgeirs-
dóttir 1 (2/1), Margrét E. Egilsdóttir 1 (3/1),
Steinunn Bjamarson (3), Guðrún Drífa
Hólmgeirsdóttir (3), Helga Birna Brynjólfs-
dóttir (4/1).
Mörk úr liraóaupphlaupum: 8 (Guðbjörg
6, Steinunn Þ., Anna).
Vitanýting: Skorað úr 0 af 3.
Fiskuð viti: Helga Bima 2, Margrét.
Varin skot/viti (skot/viti á sig): Helga
Torfadóttir 18 (36/3, hélt 8, 50%, 1 víti í
stöng)
Brottvisanir: 4 mínútur
Fram:
Mörk/viti (skot/viti): Ingibjörg Ýr Jó-
hannsdóttir 10/3 (24/4), Inga M. Ottósdótt-
ir 3 (10), Berta Björk Amardóttir 2 (8),
Ingibjörg Magnúsdóttir 1 (1), Díana Guð-
jónsdóttir 1 (3), Guðrún Þ. Hálfdánardóttir
1 (3), Katrín Tómasdóttir (5).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 1
(Ingibjörg Ýr).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 4.
Fiskuð viti: Díana 2, Þórey Hannesd.,
Guðrún.
Varin skot/viti (skot/viti á sig): Guðrún
Bjartmarz 10/1 (32/1, hélt 5/1,31%, eitt víti
í stöng og eitt í slá).
Brottvisanir: 8 mínútur
Dómarar (1-10): Einar Hjaltason og
Ingvar Reynisson (6). Gœði leiks (1-10):
3. Áhorfendur: 100.
Maður leiksins: Guðbjörg
Guömannsdóttir, Víkingi.
vakt með sóma og árangurinn var
í samræmi við það.
Hrafnhildur Skúladóttir var
best í Valsliðinu og er greinilega
óðum að ná sínu gamla formi en
henni urðu á afar klaufaleg og dýr-
keypt mistök þegar fyrri hálfleik-
ur var að syngja sitt síðasta.
Þannig var mál meö vexti að
Harpa Vífilsdóttir, leikmaður FH,
fékk boltann þegar þrjár sekúndur
voru eftir af hálfleiknum og henti
boltanum fram völlinn þar sem
Hrafnhildur stöðvaði hann með
fæti og hélt greinilega að leiktím-
inn væri liðinn sem hann var
ekki. Fyrir vikið fékk Hrafnhild-
ur tveggja mínútna brottvísun og
FH aukakast rétt við vítateig
Vals. Úr aukastinu skoraði síðan
Dröfn Sæmundsdóttir og í staðinn
fyrir að Valur væri tveimur mörk-
um undir í hálfleik og jafnt í liðum
var munurinn þrjú mörk og liðiö
einum leikmanni færri fyrstu
tvær mínútur síðari hálfleiks.
Það er skemmst frá því að segja
FH gerði nánast út um leikinn með
því að skora fyrstu tvö mörk hálf-
leiksins og Valur sá aldrei almenni-
lega til sólar eftir það þótt á stundum
kæmu ágætar rispur hjá liðinu en
líklega voru það bara dauðakippir. í
heild lék allt FH-liðið vel en þeirra
besti maður var Ragnhildur Guð-
mundsdóttir. -SMS
Haukartopuðu
óvænt í Eyjum
Bikarmeistarar ÍBV tók á móti ís-
landsmeisturunum úr Haukum á
laugardag. Haukar höfðu verið á
miklu skriði í upphafi móts, þrír sig-
urleikir i fyrstu þremur leikjunum,
en skammt undan voru Eyjastúlkur.
Það verður seint sagt að góður hand-
bolti hafi einkennt leikinn en áhorf-
endur fengu hins vegar mikla bar-
áttu og spennandi leik. Heimastúlk-
ur komu mun ákveðnari til leiks og
sigruðu með fjórum mörkum, 18-14.
Heimastúlkur byrjuðu leikinn bet-
ur og voru fyrri tU að skora mestan
hluta fyrri hálfleiksins. Það var svo
ekki fyrr en undir lok hálfleiksins að
Andrea Atladóttir kom ÍBV í 8-6 og
sá munur hélst út hálfleikinn.
Seinni hálfleikur byrjaði fjörlega.
Eyjastúlkur áttu þó auðveldara um
vik í sínum sóknarleik en gestirnir
og komust fljótlega þremur mörkum
yfir þrátt fyrir að vera einum leik-
manni færri. Þegar forystan var orð-
in fjögur mörk, 15-11 tóku gestirnir
við sér og skoruðu tvö mörk í röð.
En þá upphófst um tíu minútna
leikkafli mistaka, bæði leikmanna og
dómara sem voru aldrei í takti við
leikinn. Hvorugu liði tókst að nýta
sér það að vera einum leikmanni
fleiri en það var loksins fyrirliði
heimaliðsins sem dró vagninn og
tryggði ÍBV sigurinn.
Bæði lið sýndu það í leiknum að
enn er langt í land að þau séu komin
á fullt skrið fyrir veturinn. Þau spil-
uðu reyndar ágæta vörn, ÍBV heldur
sterkari varnarleik enda skoruðu
meistararnir aðeins fjórtán mörk.
Markverðir liðanna, þær Vigdís Sig-
urðardóttir og Jenný Ásmundsdóttir
voru bestar.
Vigdís sagði að ieikmenn ÍBV
hefðu undirbúið sig vel fyrir leikinn.
„Við áttum von á jöfnum leik því við
höfum undirbúið okkur vel. Það er
alltaf gaman að vinna Haukanna,
manni finnst að við höfum verið að
vinna titil."
Ragnar Hermannsson, þjálfari
Hauka, var ekki eins kátur. „Þetta
var barnaskólahandbolti sem við
buðum upp á. Það var allt of mikið
einstaklingsframtak í gangi. Við
fengum tækifæri til að sigra en
klúðruðum fjórum vítum. Viö náum
okkur aldrei á strik á hraðaupp-
hlaupum en það má hins vegar segja
að fyrst við þurftum að eiga slæman
leik þá var það ágætt að það var á
móti ÍBV hér í Eyjum." -jgi