Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2001, Blaðsíða 4
18
MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2001
Sport__________________u’v
Handan viö hornið
- eru margir ungir strákar sem koma til með að láta að sér kveða í framtíðinni
DV-Sport heldur áfram að birta
lista yfir efnilegustu unglingana í
helstu íþróttagreinunum hér á
landi, áður hefur kvennahandbolt-
inn verið tekinn fyrir. Við höld-
um áfram í handboltanum og núna
eru það 20 efnilegustu drengirnir á
aldrinum 18-19 ára eða drengir
fæddir 1982 og 1983.
í annað sinn hjá sumum
Eins og i fyrra þá fékk DV-Sport
Heimi Ríkharðsson, núverandi
þjálfara meistaraflokks Fram, sér
til aðstoðar en Heimir hefur verið
með unglingalandsliðin undanfar-
Umsjón:
Benedikt Guðmundsson
in ár. Hann þekkir því vel til
þeirra drengja sem eru rétt hand-
anviðhornið. Margir af þeim sem
eru á listanum eru þegar farnir að
láta virkilega að sér kveða og
orðnir fastir menn í meistara-
flokki síns félags.
Hér til hægri eru þeir strákar
sem komust á listann og er þeim
raðað eftir stafróðsröð. Margir
hverjir voru á listanum í fyrra
líka en sumir eru nýjir.
Þá voru margir af strákunum að
spila með 18 ára landsliðinu sem
lék í sumar í Evrópukeppninni og
komst alla leið í úrslit. -Ben
Guðlaugur Hauksson leikmaður Víkings hefur verið öflugur það sem af er þessu tímabili og skoraö grimmt.
Körfuboltaskóli KKÍ
KKÍ og And 1 iþróttavörufram-
leiðandinn standa fyrir körfubolta-
skóla helgina 27.-28. október. Skól-
inn er fyrir drengi fædda 1986 og
fer fram í KR-heimilinu. Allir leik-
menn eru velkomnir. Skráning fer
fram á skrifstofu KKl í sima 514-
4100 eða með tölvupósti á pet-
ur@kki.is. Taka þarf fram fullt
nafn, félag, heimilisfang, símanúm-
er, hæð og hvaða stöðu viðkomandi
spilar. Þátttaka i körfuboltaskólan-
um kostar 3900 kr. og er ráðlagt að
menn skrái sig fyrr en seinna. All-
ir þátttakendur fá And 1 bol merkt-
an KKl og körfuboltaskólanum.
Mæting og greiðsla skólagjalda
er á milli 12.00 og 13.00 laugardag-
inn 27. október í KR-heimilinu.
Skólinn hefst kl. 13.00 og lýkur kl.
17.00. Á sunnudeginum er byrjað
kl. 14.00 og æft til 18.00. Þátttakend-
ur fá þvi 8 klukkustunda leiðsögn
frá leikmönnum islenska landsliðs-
ins, A-landsliðsþjálfaranum, þjálf-
urum yngri landsliða íslands, þjálf-
urum í úrvalsdeildinni og margra
annara þjálfara.
Körfuboltaskólinn leggur
áherslu að kenna leikmönnum und-
irstöðu körfuknattleiks, sóknar-
hreyfingar og hvernig hægt er að
bæta sinn leik svo eitthvað sé
nefnt. Þá fá þátttakendur fyrirlest-
ur um körfuboltann í Evrópu og
þann möguleika fyrir leikmenn að
fara þangað og spila, sem og fyrir-
lestur um körfuboltann í Banda-
ríkjunum og hvernig sé hægt að
komast þangað út í nám ásamt því
að leika körfubolta. Hæð allra leik-
manna verður mæld í skólanum.
Einnig verða keppnir og alls
konar verðlaun verða veitt þeim
sem skara fram úr. Keppt verður
um besta dripplarann og besta
skotmanninn i '86 árgangnum. Þá
verður mót í 5 á 5 og að því loknu
verður valið stjörnulið '86 árgangs-
ins. Ýmislegt annað verður gert og
fá þátttakendur að spjalla við
landsliðsmennina og geta fengið að
vita hvað þeir gerðu til að komast í
landsliðið. Þá geta landsliðsmenn-
irnir gefið þátttakendum góð ráð
um hvernig sé hægt að bæta sig.
-Ben
20 efnilegustu
- handboltastrákarnir á aldrinum 18-19 ára
Baldvin Porsteinsson (1982) vinstri hornamaður úr
KA
Mjög snöggur og útsjónasamur leikmaður. Er góður í gegn-
umbrotum og er þegar byrjaður að knýja dyra á hið unga meist-
araflokkslið KA.
Einar Hólmgeirsson (1982) hægri skytta úr ÍR
Einar er mjög efnilegur og fylginn sér. Hefur verið að leika með
meistaraflokki ÍR og staðið sig vel þar auk þess sem hann hefur
verið fastamaður í unglingalandsliðum íslands undanfarin ár.
Elías Már Halldórsson (1982) hægri hornamaður úr
HK
Elías skipti yfir í HK úr UMFA í haust en hann er einn efnileg-
asti leikmaður sem hefur komið fram undanfarin ár í Mosfellsbæ.
Vinnusamur og sífellt ógnandi inni á vellinum. Hann getur skor-
að bæði eftir gegnumbrot og með langskotmn þó lágvaxinn sé.
Guðlaugur Hauksson (1982) vinsti skytta í Víkingi
Guðlaugur hefur verið vaxandi undanfarin ár og nú farinn að
láta að sér kveða í meistaraflokksliði félagsins. Skotfastur og
sterkur vamarmaður.
Ingólfur Axelsson (1983) leikstjórnandi úr KA
Ingólfur er mjög góður skotmaður og sterkur í gegnumbrotum.
Mjög fjölhæfur og getur brugðið sér í flestar útileikmannastöður.
Jón Þorbjörn Jóhannsson (1982) línu-
maður hjá Vidar í Danmörku.
Jón Þorbjörn, sem kemur úr Fram fluttist til Danmerkur 1
haust en hefur verið fastamaður í unglingalandsliði íslands und-
anfarin ár. Um 200 cm á hæð, sterkur í vöm og hefur verið að
bæta sig mikið undanfarin ár.
Lárus Jónsson (1982) miðjumaður/vinstri skytta úr
Fram
Lárus hefur verið vaxandi undanfarin ár og hefur nú verið að
vinna sér sæti í meistaraflokksliði Fram. Sterkur varnarmaður og
góður leikstjórnandi, gott auga fyrir línu.
Ólafur Víðir Ólafsson (1983) leikstjórnandi úr HK
Samviskusamur leikmaður og góður leikstjórnandi. Hefur mjög
gott auga fyrir spili og leikur samherjana vel uppi. Er með góð
skot og fjölbreytt gegnumbrot.
Sigurður Eggertsson (1982) vinstri hornamaður úr
Val
Snöggur og góður gegnumbrotsmaður. Hans helstu kostir hans
sem leikmanns eru þeir að hann er mjög snöggur í hraðaupp-
hlaupum og hefur yfir að ráða góðum fintum.
Vilhjálmur Halldórsson (1982) vinstri skytta úr
Stjörnunni
Vilhjálmur er mjög hávaxinn leikmaður og mikil skytta auk
þess að vera sterkur varnarmaður Er mjög samviskusamur og vill
ná langt í íþróttinni, góður karakter sem þjálfari veit að leggur sig
ávallt 100% fram.
Næstu leikmenn:
Jón Björgvin Pétursson, Fram, Amar Sæþórsson, KA, Andri Berg
Haraldsson, FH, Einar Logi Friðjónsson, KA, Sigurður Ari Stefánsson, ÍBV,
Heiðar Jónsson, FH, Jón Árni Traustason, Vfkingi, Pálmar Pétursson, Val,
Sigurjón Þórðarson, Fram, Logi Geirsson, FH.
r
r
GERVIGRAS OG INNANHUSSKOR
JL stærðir 28-47
utherji
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • sími 588 1560
www.joiutherji.is
..■j: