Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2001, Side 9
MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2001
23
Sport
I# aJUá
Andy Cole heldur hér um höfuð sér eftir að hafa misnotað gott marktækifæri gegn Bolton. Jussi Jasskelainen, markvöröur Bolton, sem átti stórleik í þessum
leik, hvetur sína menn til dáöa. Síðasta vika var slæm fyrir Manchester United, tvö töp á heimavelli. Reuters
Enska knattspyrnan:
Staða efstu liða í ensku
úrvalsdeildinni breyttist
ekki mikið um helgina þó
að flest toppliðanna hafi
tapað stigum. Leicester
virðist vera á hraðferð nið-
ur í 1. deild eftir ósigur
heima gegn Liverpool. Þá
gerðu Leeds og Chelsea
markalaust jafntefli í stór-
leik umferðarinnar.
Bolton gerði sér lítið fyrir
og vann Manchester United
á Old Trafford 1-2. Þar með
gáfu leikmenn Sam Allar-
dyce honum frábæra afmæl-
isgjöf, en hann varð 47 ára á
laugardag. Juan Sebastian
Veron kom United reyndar
yfir með marki beint úr
aukaspyrnu en Kevin Nolan
og Michael Ricketts tryggðu
Boiton fyrsta sigur sinn i
sjö leikjum í úrvalsdeild-
inni. Alex Ferguson gerði
átta breytingar frá liðinu
sem tapaði fyrir Deportivo í
meistaradeildinni en spurn-
ing er hvort hann hræri
eitthvað minna í liðinu
milli ieikja eftir þetta.
Afmælisbarnið Allardyce
var að vonum ánægður með
sigurinn. „Það er frábært
fyrir okkur að leggja ná-
granna okkar og keppinauta.
Við lékum frábærlega í
seinni hálfleik og markið hjá
Rickett var stórkostlegt."
Leeds og Chelsea gerðu
markalaust jafntefli á El-
land Road í miklum bar-
áttuleik og eru þessi lið þau
einu taplausu í deildinni.
Mark Bosnich fékk tæki-
færi annan leikinn i röö og
nýtti það vel, átti mjög góð-
an leik. Reyndar var Chel-
sea nálægt því að stela
sigrinum undir lokin þegar
aukaspyrna Emanuel Petit
var varin í þverslá Leeds-
marksins. David O’Leary,
framkvæmdastjóri Leeds,
var rekinn af leikvelli í hálf-
leik fyrir kröftug mótmæli.
Arsenal var nálægt sigri í
frábærum leik gegn Black-
bum á Highbury en fékk á
sig jöfnunarmark þegar
mínúta var komin fram yfir
venjulegan leiktíma. Þetta
stig kom Arsenal á toppinn,
þó aðeins í sólarhring.
Liverpool gerði góða ferð
á Filbert Street í Leicester
og vann 4-1. Robbie Fowler
gerði þrennu og þar með
fyrstu mörk sín í úrvals-
deildinni á þessari leiktíð.
Dennis Wise gerði að auki
sitt fyrsta deildarmark fyrir
Leicester. Þessi úrslit hljóta
að hafa glatt Gerard Houlli-
er, framkvæmdastjóra Liver-
pool, sem er enn á sjúkra-
húsi að jafna sig eftir hjarta-
aðgerð en er nú kominn af
gjörgæslu.
Aston Villa tapaði sínum
fyrsta leik í deildinni á
tímabilinu, gegn Everton á
útivelli, og voru Everton-
menn komnir í 3-0 eftir 65
mínútur. Markvörðurinn
Peter Smeichel skoraði síð-
ara mark Villa undir lokin.
Leikmenn West Ham
virðast ekki alveg dauðir úr
öllum æðum þrátt fyrir tvö
stór töp i síðustu leikjum og
unnu 2-0 sigur í botnslagn-
um við Southampton með
tveimur mörkum frá
Frederic Kanoute. Þá hélt
Fabrizio Ravanelli upptekn-
um hætti með Derby en
mark hans dugði þó ekki til
sigurs gegn Charlton því
Jason Euell náði að jafna
áður en yfir lauk. Ipswich
og Fulham gerðu 1-1 jafn-
tefli i leik þar sem Luis Boa
Morte misnotaði vítaspyrnu
fyrir Fulham áður en hann
var svo rekinn af leikvelli
og Tottenham vann sinn
fyrsta sigur gegn Newcastle
á St. James Park í átta ár,
0-2. -HI
C& ENGLAND
Guðni Bergsson lék að vanda allan leikinn
með Bolton gegn Manchester United og átti
mjög góðan leik.
Hermann Hreiðarsson átti einnig góðan leik
með Ipswich sem gerði 1-1 jafnteili við Fulham
í gær.
Heiðar Helguson lék síðustu 16 mínúturnar
með Watford í 3-0 útisigri á Grimsby.
Ólafur Gottskálksson og ívar Ingimarsson
léku allan leikin með Brentford í 2-0 sigri á
Bornemouth.
Brynjar Gunnarsson og Bjarni Guðjóns-
son léku allan leikinn með Stoke sem gerði 1-1
jafntefli við Port Vale á útivelli.
Helgi Valur Danielsson fór út af eftir 23 mín-
útur þegar Peterborough sigraði Blackpool 3-2.
Crystal Palace vann sinn sjöunda leik í röð í
deildinni þegar þeir unnu Wolves 1-0 á laugar-
dag. Þetta var annar tapleikur Wolves á heima-
velli í vikunni og höfðu liðin sætaskipti á toppi
1. deildar.
Sheffield Wednesday vann sinn fyrsta sigur í
11 leikjum á laugardag. Terry Yorath stýrir lið-
inu nú tímabundið.
Justin Edinborough skoraði sitt fyrsta deild-
armark i 10 ár þegar Portsmouth vann Sheffi-
eld United. Síðasta mark hans, og reyndar það
fyrsta, kom þegar hann lék með Tottenham og
var markið skorað í apríl 1991, líka gegn Sheffi-
eld United.
Daily Mirror greindi frá því í gær að
Barcelona væri að undirbúa 10 milljón punda
(1,5 milljarða króna) tilboð í Eið Smára
Guðjohnsen. Ekkert hefur verið staðfest um
þetta hjá Barcelona eða Chelsea. -HI/JKS
ENGLAND
Úrvalsdeild
Arsenal-Blackbum...........3-3
O-l Gillespie (41.), 1-1 Pires (48.), 2-1
Bergkamp (53.), 2-2 Dunn, 3-2 Henry
(78.), 3-3 Dunn (89.)
Derby-Charlton .............1-1
1-0 Ravenelli (15.), 1-1 Euell (73.)
Everton-Aston Villa.........3-2
1-0 Watson (31.), 2-0 Radzinski (59.),
3-0 Gravesen (62.), 3-1 Hadji (71.), 3-2
Schmeichel (90.)
Leicester-Liverpool ........1-4
0-1 Fowler (5.), 0-2 Hyypia (10.), 0-3
Fowler (43.), 1-3 Wise (58.), 1-4
Fowler (90.)
Man. Utd.-Bolton............1-2
1-0 Veron (25.), 1-1 Nolan (35.), 1-2
Ricketts (84.)
West Ham-Southampton.......2-0
1-0 Kanoute (53.), 2-0 Kanoute (81.)
Fulham-Ipswich..............1-1
1-0 Hayles (22.), 1-1 Wright (55.)
Newcastle-Tottenham.........0-2
0-1 sjálfsmark (8.), 0-2 Poyet (20.)
Leeds-Chelsea...............0-0
Staðan í úrvalsdeild
Leeds 9 5 4 0 12-3 19
Arsenal 9 5 3 1 21-8 18
Man. Utd 9 5 2 2 26-16 17
Liverpool 8 5 1 2 15-9 16
Aston Villa 8 4 3 1 13-6 15
Bolton 10 4 3 3 12-11 15
Chelsea 8 3 5 0 12-7 14
Everton 9 4 2 3 15-12 14
Tottenham 10 4 2 4 16-14 14
Newcastle 9 4 2 3 15-13 14
Blackburn 10 3 4 3 18-14 13
Sunderland 9 3 3 3 9-10 12
Charlton 8 2 4 2 8-8 10
Fulham 9 1 5 3 8-11 8
Middlesbro 9 2 2 5 8-17 8
West Ham 8 2 2 4 7-16 8
Ipswich 9 1 4 4 7-12 7
Derby 9 1 3 5 7-16 6
S’hampton 8 2 0 6 5-14 6
Leicester 10 1. 1 2 deild 7 6-23 5
Birmingham-Bradford.........4-0
1-0 Marcelo (37.), 2-0 Sonner (39.), 3-0
Marcelo (45.), 4-0 Marcelo (48.)
Burnley-Bamsley.............3-3
1-0 Morgan (23. sjálfsm.), 2-0 Briscoe
(36.), 2-1 Lumsdon (45.), 2-2 Morgan
(52.), 3-2 Payton (86.), 3-3 Barnard
(88.)
Grimsby-Watford..............0-3
0-1 Hyde (19.), 0-2 Hyde (58.), 0-3
Noble (44.)
Millwall-Nott. Forrest ......3-3
1-0 Chaill (14.9, 1-1 John (59.), 1-2
John (63.), 2-2 Ifill (86.), 2-3 John (88.),
3-3 Sadier (90.)
Portsmouth-ShefT. Utd........1-0
1-0 Edinburgh (40.)
Sheff. Wed-WalsaU............2-1
0-1 Byfield (19.), 1-1 Sibon (71.), 2-1
Bonvin (90.)
Stockport-Rotherham..........0-1
0-1 Talbot (43.)
Wimbledon-GiUingham .........3-1
1-0 Cooper (43.), 2-0 Cooper (53.), 3-0
Hughes (61.), 3-1 Butters (82.)
Wolves-Crystal Palace........0-1
0-1 Kirovski (45.)
Coventry-Crewe...............1-0
1-0 Hughes (30., v.)
Preston-Man. City ...........2-1
0-1 Huckerby (38.), 1-1 Healy (51.), 2-1
Macken (67.)
Staöan í 1. deiid
Crystal P. 12 9 0 3 32-16 27
Wolves 13 8 3 2 23-11 27
Norwich 13 8 1 4 17-15 25
Coventry 13 7 3 3 15-9 24
Burnley 13 7 2 4 30-22 23
W.B.A. 13 7 1 5 16-12 22
Birmingh. 13 6 3 4 23-16 21
Portsmouth 13 6 3 4 23-18 21
Man. City 13 6 2 5 30-24 20
Nott. Forest 13 5 5 3 15-11 20
Wimbledon 13 5 4 4 24-20 19
Preston 13 5 4 4 17-18 19
Millwall 12 5 3 4 19-15 18
Watford 12 5 2 5 20-18 17
Bradford 13 5 2 6 22-24 17
Crewe 13 5 2 6 12-20 17
Sheff. Utd 14 3 7 4 14-16 16
Grimsby 14 4 3 7 15-27 15
Rotherham 14 3 5 6 14-21 14
Gillingham 12 4 1 7 18-20 13
Sheff. Wed 14 2 5 7 13-26 11
Barnsley 13 2 4 7 14-27 10
Walsall 13 2 3 8 11-22 9
Stockport 13 1 4 8 18-27 7