Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2001, Page 10
24
MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2001
Sport
DV
B YSSUSKÁPAR
SPORTVÖRUGERÐIN
Skipholti 5 Sími 562 8383
> >
. > ' ^
Rjúpnaveiöin hefur veriö róleg hjá flestum veiöimönnum
fyrstu viku tímabilsins. DV-Sport hefur haft spurnir af
mörgum veiöimönnum sem ekkert hafa fengiö én mesti
afli sem viö vitum um til þessa eru 80 rjupur á einum og
hálfum degi hjá tveimur skyttum.
DV-mynd G. Bender
Rjúpnaveiðin:
Færri og færri rjúpur til skiptana
Bœndur hafa verið grimmir
að verja landareignir sínar fyrir
rjúpnaveiðimönnum í byrjun
veiðitímabilsins. Bændurnir slá
eign sinni á heilu heiðamar og
margir skotveiðimenn hafa ekki
verið ánægðir með framkomu
bændanna. Flestir hafa þeir
hins vegar lent í vandræðum
þegar veiðimenn hafa beðið þá
um að framvísa afsali fyrir
landareigninni upp til heiða.
Svo virðist sem fleiri og fleiri
skotveiðimenn fari fyrr til
rjúpna en má. Sögur af þessu
hafa heyrst víða um land og við
fréttum af einum norðan heiða
deginum áður en mátti byrja.
Hann fékk eitthvað af rjúpu og
endur. Þetta hafði hann gert líka
tvo ár á undan, reyndar með
litum árangri.
Eirikur St. Eiríksson, ritstjóri
Veiðimannsins, er byrjaður að
vinna næsta blað, en hann var
ráðinn ritstjóri blaðsins fyrir
skömmu síðan. Blaðið er
væntanlegt í desember og
verður spennandi að sjá hverju
Eiríkur breytir á blaðinu.
Lítió hefur frést af Setbergsá á
Skógarsströnd í sumar, en
landeigendur hafa víst selt
veiðileyfi i ána. Af veiðiskap og
aflatölum hefur líka lítið frést.
Þaö sama má segja um
Svínafossá á Skógarsströnd, sem
margir hafa haft á leigu.
Eitthvað veiddist af laxi en ekki
mikið.
Ef vió höldum okkur við
svæðið, veiddust víst flestir
laxarnir í Laxá á Skógarsströnd
síðustu daga veiðitímans. Þegar
vatn óx í ánni, en gallinn var
bara sá að veiðitíminn var útí.
Nóg er víst af fiski í ánni núna
til að hrygna.
Það eru margir spenntir að
komast í Hrútafjarðará á næsta
sumri, enda mikið spurt um
hana, eftir að ljóst var að
Þröstur Ellióason og
Veiöiþjónustan Strengir yrði
með hana næstu árin.
G.Bender
„Klakveiðin gekk vel í Hrúta-
fjarðará og við fengum nokkra
laxa. Þeir veiddust í Réttastreng
og í ármótum Hrútu og Skíká,“
sagði Þröstur Elliðason, en hann
skrifar undir saming á ánni í dag
og verður samingurinn til 6 ára.
„Við fengum laxa í klakið og
Réttarstrengurinn var mjög sterk-
ur. Það er greinilega eitthvað af
fiski í ánni og í ármótahylnum
voru líka laxar. Mér lýst vel á
þetta verkefni, áin hefur að geyma
marga fallega veiðistaði," sagði
Þröstur í lokin.
En um síðustu helgi var farið
í Hrútafjarðará og dregið í klak,
veiðiskapurinn gekk vel.
Þeir staðir sem voru skoðaðir,
voru með fiska.
Réttarstrengurinn kom sterkur
út enda faliegur flugustaður. Að-
eins innar var Réttarfossinn.
Þegar við fórum af staðnum
voru menn enn þá á kafl í hyljum
árinnar og eina hreyfingin voru
nokkrar rjúpur sem voru fyrir
neðan Réttarfossinn.
Við héldum heim en klakveiðin
hefur gengið víða ágætlega, menn
hafa náð í þá fiska sem þeir þurfa
og til þess er leikurinn gerður.
Það þarf ekki nema nokkrar
hrygnur og einn, tvo hænga til að
hluturinn gangi upp.
Það er það sem hefur náðst í
mörgum laxveiðiám.
-G. Bender
„Ég hef heyrt í veiðimönnum
víða um land og þeir segja allir það
sama, það er minna af rjúpu en oft
áður. Það er niðursveifla f
stofninum," sagði Jóhann
Vilhjálmsson byssusmiður i samtali
við DV-Sport í vikunni, en hann
hefur heyrt í þeim mörgum fyrstu
daga veiðitímans.
„Menn er að fá rjúpur, en alls
ekki neinn mikinn afla, enda eru
menn kannski ekki að gera út á
helling af fugli. Aflatölur eru ekki
mjög háar,“ sagði Jóhann og snéri
sér að næsta viðskiptavin sem var
að fara á rjúpur um helgina.
Það er fjölmennt til rjúpna en
veiðin hefur oft verið betri en núna.
Margir eru að bíða eftir snjónum,
sem vonandi kemur bráðum fyrir
skotveiðimenn.
En margir fóru tU rjúpna um
helgina og ætla næstu helgar,
tímabilið er að byrja fyrir alvöru.
G.Bender
■ --
■
'*
Óðinn H. Jónsson og Örn Sigurhansson voru í óöa önn að veiöa laxa í
klakveiði þegar DV-Sport bar að garði. Fallegir fiskar og sá stærri nálægt 18
pundum. DV-mynd G. Bender
- veiði í klak gekk vel í
Hrútafjarðará fyrir skömmu
Veiðivon
suimnno
Skór og vöðlur
Flugustangir