Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2001, Blaðsíða 12
Kjörísbikarinn:
Breiðablik og Tindastóll unnu
Tveir leikir fóru fram í Kjörís-
bikarkeppninni I körfuknattleik á
föstudagskvöldið.
Breiðablik bar sigurorð af Ham-
ar, 90-78, í Smáranum í Kópavogi.
Staðan í hálfleik var 49-48, Breiða-
blik í vil. Pálmi Sigurgeirsson var
stigahæstur hjá Breiðablik með 21
stig og Kenneth Richards skoraði
15. Nathaniel Poindexter var allt í
öllu hjá Hamri og skoraði 29 stig.
Þá vann Tindastóll öruggan sig-
ur á Seifossi, 115-93, á Selfossi.
Staðan i hálfleik var 56-34 fyrir
Tindastól. Leon Perdue var stiga-
hæstur Selfyssinga með 38 stig,
Gestur Guðjónsson gerði 21. Hjá
Stólunum var Axel Kárason með 31
stig og Brian Lucas 24. Tveimur
leikjum var síðan frestað vegna
þoku, Þór-Grindavík og
KFÍ-Keflavík. -Hl/ósk
UHarkasmírkápur,
stuttar og síðar.
Heils árs kápur, þunnar
og þykkar,úlpur og
jakkar.
\<#HI/I5IÐ
Mörkinn 6 • sími 588 5518.
Opiö laugardaga frá kiukkan 10 til 15.
MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2001
sigur Hamarstúlkna
Annar
Kvennalið Hamars hefur
byrjað tímabilið vel i 2.
deild kvenna í körfu og á
laugardaginn unnu þær
sinn annan sigur í röð,
66-52, á liði ÍR-Breiðabliks.
Hamar vann Tindastól í
fyrsta leik en liðið vann
samtals fjóra leiki síðasta
vetur. Hamar leiddi 31-22 i
hálfleik en blikastúlkur
minnkuðu muninn í eitt
stig i þriðja leikhluta, 37-36,
en þá komu niu stig frá
Hamar í röð sem tryggðu
sigurinn.
Daði Steinn Árnason,
þjálfari Hamarsstúlkna var
ánægður með leikinn.
„Þetta var sætt og það er
frábært og mikilvægt fyrir
sjálfstraust liðsins að vinna
fyrstu tvo leikina. Það er
líka gaman að sjá að allt lið-
ið er að bæta sig mikið frá
því í fyrra".
Ragnheiður Magnúsdótt-
ir gerði 16 stig fyrir Hamar,
Eygerður Tómasdóttir var
með 11 og þær Hlín Guðna-
dóttir og Maria Krija-
novckja voru með 10 stig
hvor. Lára Rúnarsdóttir
skoraði 13 stig fyrir Breiða-
blik og Gunnur Ósk Bjarna-
dóttir gerði 10 stig. -ÓÓJ
Grindavík vann fyrsta deildarsigurinn í Keflavik frá upphafi:
Sögulegur sigur
- Jessica Gaspar og Birna Valgarðsdóttir voru báðar með 34 stig
Grindavíkurstúlkur halda
áfram að koma á óvart með frá-
bærri frammistöðu í kvenna-
körfunni og á laugardag vann
Grindavík sinn annan leik í röð
og jafnframt sinn fyrsta deildar-
sigur í Keflavík í sögunni. Kefla-
vík hafði unnið fyrstu 25 viður-
eignir liðanna í Bítlabænum.
Bæði liðin höfðu unnið fyrsta
leik timabils og sitja Grindavík-
urstúlkur nú á toppi 1. deildar
kvenna. Grindavík vann leikinn
65-75 eftir að hafa unnið alla
fjóra leikhlutana.
Keflavíkurliðið komst aldrei
yfir eftir að Grindavík komst í
0-5 og 2-12 en Grindavíkurstúlk-
ur mættu mjög ákveðnar til leiks og
náðu meðal annars sex sóknar-
fráköstum og stálu niu boltum af
Keflavíkurliðinu i fyrsta leikhlutan-
um sem endaði 12-16 fyrir Grinda-
vík.
Jessica Gaspar átti frábæran leik
fyrir Grindavíkurliðið og kann
greinilega mjög vel við sig í íþrótta-
húsi Heiðarsskóla en í fyrra skoraði
hún 30 stig og tók 16 fráköst í sigri
KFÍ á Keflavík þar og nú skoraði
hún 34 stig og hitti úr 12 af 21 skot-
um og 9 af 11 vítum sínum.
Grindavíkurliðið studdi líka vel
við bak Gaspar, sérstaklega í vörn-
inni þar sem þær stálu 19 boltum og
þvinguðu Erlu Þorsteinsdóttir til að
klikka á 11 af 17 skotum auk þess
sem liðið nýtti 87% víta sinna (20 af
23).
Þrátt fyrir að Bima Val-
garðsdóttir hafi farið mik-
inn í Keflavíkurliðinu
dugðu ekki stór framlög
hennar en hún gerði 34
stig og tók 13 fráköst og
hefur nú skoraði 30 stig að
meðaltali í fyrstu tveimur
deildarleikjum Keflavíkur
í vetur. Restin af liðinu
nýtti hinsvegar aðeins 9 af
30 tveggja stiga skotum
sínum og 24 tapaðir boltar
hjá Keflavíkurliðinu
spilltu einnig mikið fyrir.
Stig Keflavíkur: Birna
Valgarðsdóttir 34 (13 fráköst, 5 í sókn, 4
varin skot, 4 stolnir), Erla Þorsteinsdóttir
14 (11 fráköst), Kristín Blöndal 9 (5 stoðs.),
Gréta Guðbrandsdóttir 2, Theódóra Kára-
dóttir 2, Svava Ósk Stefánsdóttir 2, Guð-
rún Guömundsdóttir 2.
Stig Grindavíkur: Jessica Gaspar 34
(11 fráköst, 7 stoðsendingar, 6 stolnir),
Sigríður Anna Ólafsdóttir 14 (7 fráköst),
Sólveig Gunnlaugsdóttir 12, Jovana Stef-
ánsdóttir 8, Erna Rún Magnúsdóttir 4,
Ólöf Helga Pálsdóttir 3. -ÓÓJ
MAGNAÐRI MANUDAGAR
Survivor 3 hefst í kvöld, nýr stjórnandi
Mótor oq Þátturinn með Dóru og Birni
Jörundi ferskur á nýjum stað.
19.30 Mótor
20.00 Survivor 3
21.00 Law & Order SVU
21.50 Fréttir og Málið
22.00 Þátturinn
22.50 Jay Leno
SKJARE/NN