Alþýðublaðið - 18.03.1969, Page 4

Alþýðublaðið - 18.03.1969, Page 4
4 Alþýðublaðið 18. marz 1969 X’jóðleikhúsið: FIÐLARTNN Á ÞAKINU Bvggður á sögum eftir Scholom Aleichem /- Lejkritun: Jpseph Stein Músik: Jerry Bock Söngtextnr: Sheldop Harnick Upphafleg syiðsetning og dansar: Jeroine Robbins . J'ýðing: F.gill Bjarnason Sviðsetning og koreografía: Stella Claire Leikstjúrn: Stella Claire og Benedikt Árnason Leiktjöld og búningateikningar: Ounfiar Bjarnason 'Hljómsveitarstjórn: Magnús Blöndal Jóhannsson Hljómsveit: Sinfóníuhljómsveit íslands. i Amerísk músíköl lifa einkenni- legu sníkjulífi á góðum og gildum bókmenntum, klassísk og hálfklass- ísk bókmenntaverk eftirlætisvið- fangsefni músíkal-höfunda, að um- . semja þau til sinna nota, og nægir að nefna til dæmis verk eins og My Fair Lady og West Side Story. Shakespeare og Shaw þykja víst ekki dónalegur selskapur, ekki aldeilis, en því miður er ég ekki nægjanlega kunnugur sögum Sho- lom Aleichem til að leggja mat á það hve mikið eitni eftir af hinum upprunalega kúabónda, Tevje, í músíkalinu um Fiðlarann á þakinu. Sjálf táknmynd leiksins, þess lífs og samfclags sem hann lýsir, mynd fiðlungs uppi á þaki, mun þó ekki kynjuð frá Sholom Aleichem sjálf- um, heldur er hún upprunnin á frægu málverki eftir annan mik- > inn gyðing og mikinn listamann, . Marc Chagall. Chagail var eins og á Sholom Aleichem rússneskur gyð- ; íngur að ætt og eðli, niðji hinnar jiddísku menningar sem þreifst og 1 dafnaði í ríkjum zarsins á oldinni ; sem leið og ekki leið til fullnustu | undir lok fyrr en með blóðveldi i þvzkra nazista á þessari öld. Var 1 V° alltaf grunnt á gyðingahatri og i ofsóknum í Rússaveldi hinu forna, i eins jog vikið er að í Fiðlaranum á j þakinu sem Iýkur í pógrómunuin ■ 1905j og í Pójlandi hefur gyðinga- í hatur verið landlægt og illkynjað - franí á þennan dag. En nú á dögum I munu viðhaldsmeiin jiddískrar ! tunpj, hókmennta og menningar ; helzf fyrirfinnast í Bándaríkjunum : þar íem Sholom Aleichem lézt land- j flóttá árið I9Ió; og þar er nú uppi . höfundur á jiddísku, Isaac Bashevis Singer, sem á seinni árum liefur orðið viðlíka kunnur og viðlesinn höfundur og Sholom Aleichem á undan Iiónum’, báðir tveir miklir sögumenn sém aúsa af ótæmándi brunni jiddískrar sögu og siða, þjóð- tr.úar og menningar sinna heima Itaga sem nú virðást svo ótrúlega langt undan bæði í tíma og rúmi. Ætla má að það sé híð framandi og annarlega andrúmsloft sem Sholom Aleichem lýsir, siðvenja, hugsunarháttur, þjóðtrú og siðir hinna fornu gvðingaþorpa sem einn- ig hafa innblásið myndlist Chagalls, sem einkum og sér í lagi hefur laðað hina amerísku músíkal-höf- unda, Stein, Bock, Harnick, Robb- ins, að sögum hans um Tevje kúa- bónda, ekki söguefnin sjálf og ekki heldur lýsing Tevjes sent í eðli sínu er alvarleg, jafnvel tragísk mannlýsing. Músíkalið er eins og fyrr getur sníkjuform listar sem einkum og sér í lagi virðist til þess fallið að útþynna, útvatna alvar- legar bókmenntir alveg eins og amerískar kvikmyndir á blómaskeiði Hollywood; og mannlíf gyðinga- þorpsins í sögum og málverkum Sholom Aleichems og Chagalls, LEIKHÚS þykir hæfilega rómantiskt, fjarri daglegu lífi og veruleika, skrýtið og skemmtilegt efni að tilreiða það við milljónasmekk, efni sem engum kemur lengur við en ævintýralegur bragur þess gerir öllum áhugavert. Sigurför Fiðlarans um lönd og álfur, nú síðast upp á svið Þjóð- leikhússins okkar, sýnir ljóslega til hverrar hlítar þetta hefur tekizt. F.nda er Fiðlari á þakinu verk sem ótvírætt er samið af mikilli hag- virkni, leikni og kunnáttu, langri reynslu hinnar öflugu iðngreinar sem amerískur show-business er, sniðið til að geðjast hinum fjöl- mennu skörúm hvarvetna um lönd- in sem sí og æ hungrar og þyrstir eftir nýrri og nýrri afþreyingu. Það má kannski einu gilda hversu trúlega söngleikurinn um fiðlung uppi á þaki fari með söguefni Sholom Aleichems. Hvernig sem því er háttað er lýsing Tevjes þunga miðja leiksins, hins góða drengs í sínu náttúrlega trúnaðarsambandi við drottin sinn og skapara; og upp- runalegur þokki þessarar mannlýs- ingar er jafn óumdeilanlegur og dramatískir möguleikar hennar. Ut af þeim er ekkert veður gert í leikn- um, áhugi hans beinist einkum og sér í lagi að því gyðinglega og smá- skrýtna í Anatevka, og mannlífið í þorpinu er einhliða gott og blessað í Ieiknum. F.n hlutverk Tcvjes held- ur leiknum saman, kringum hann hverfist hið litskrúðuga, skrýtna og skemmtilega mannlíf þorpsins; at- burðarásin í leiknum, hjúskapar- sögur dætra hans þriggja, er einung- is tilefni leiksins til að draga upp sína rómantísku mynd hins frum- stæða, saklausa og góða lífs sem hann iýsir. Samhengi sitt og merk- ingu fær sú lýsing af lýsingu Tevjes sem óumdeilanlega gefur mikilhæf- um leikara mörg og margvísleg tækifæri tii að slá strengi tiífinn- inga í brjósti áhorfenda sinna, frá hlátri til gráts og allt þar í milli. Vafalaust hefur það þótt sjálfsögð ákvörðun í Þjóðleikhúsinu að fela Róbert Arnfinnssyni þetta hlutverk, og óumdeilanlega á ltann mjög verulegan þátt í þeim sigri sem vannst með frumsýningu leiksins á föstudagskvöld. Heiður þeim sem hciður ber — en heiðurinn af sýn- ingunni er auðvitað engan veginn allur Róberts Arnfinnssonar þó bágt sé að sjá hver annar hefði getað komið í staðinn hans. Fiðlari á þakinu er eitthvert stærsta og viða- mesta „show” sem Þjóðleikhúsið þefur færzt í fang, og að líkindum það sem bezt hefur tekizt til þessa. Þær sýningar sem helzt koma í hug til samanburðar eru O, þetta er indælt stríð og Marat/Sade und- ir leikstjórn Kevin Palmers, þó ólíku sé saman að jafna; en vera má að Fiðlarinn njóti að sínu leyti ávaxtanna af fyrra starfi og sýning- um. Hvað sem því Iíður hefur þeim Stellu Claire og Benedikt Árnasyni auðnazt að gera verulega svipsterka, samfellda og enda beinlínis fallega leiksýningu úr Fiðlara á þakinu í Þjóðleikhúsinu, sem í senn auðkenn- ist af þrótti og fjöri leikhópsins, ögun og smekkvísi sýningarinnar í heild sinni. Fins og endranær á stórum og fóiksfrekum sýningum er að vísu ljóst að leikhúsið á ekki á að skipa því úrvali Ieikara sem nægði öllum hlutverkum leiksins. En eins og stundum áður kom á daginn að slíka erfiðleika má yfir- vinna að verulegu leyti með nógu sterkri og kunnáttusamri leikstjórn. Róbert Arnfinnsson hefur leikið hvert stórhlutverk af öðru í Þjóð- leikhúsinu undanfarið, Sade ( Marat/Sade, Jón Hreggviðsson, Púntila Brechts svo nokkur dæmi séu nefnd. Vera má að Tevje kúa- bóndi sé meir vlð almenningsskap en þessir herrar; minnsta kosti man ég ekki dæmi þess að leikari hafi verið hylltur jafn innilega að leiks- lokum og Róbert í Þjóðleikhúsinu á föstudagskvöld. Þar fyrir hygg ég að ómaklegt væri að láta Tevje skyggja á önnur ágæt verk Róbert Arnfinnssonar undanfarið. En því má líka slá föstu að hlutverk Tevjes er með hinum beztu, þó það teljist vart með tilkomumestu verkum Róberts Arnfinnssonar, og ekki minna urn hlutverkið vert þó það kunni að þykja einfalt { sniðunum, mannjeg hlýja og spaugsemi þess af biliegra tagi. Þar er við að sakast eðli leiksins sjálfs en ekki leikar- ann; Róbert Arnfinnssyni tókst ein- mitt mætavel að forðast öfgar til- finningasemi og/eða hetjugerving- ar í hlutverki Tevjes; og að því skapi naut sín náttúrlegur þokki hlutverksins í meðförum hans. Onnur hlutverk eru miklu minni í leiknum, einnig Goldu, konu Tev-jes, forsjá hans næst drottni al- máttugum. Mér er ekki Ijóst hvers Frh. á 12. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.