Alþýðublaðið - 18.03.1969, Page 5

Alþýðublaðið - 18.03.1969, Page 5
Alþýðubliaðið 18. marz 1969 5 Madras 3. 3. 1969. Ég fór á kappakstur í gær í fyrsta sinn á ævinni. Kappaksturbrautin er kippkorn ítorðan við Madras meðfram vegin- um til Kalkútta. Hún er gamall flugvöllur sem hefur ekki verið notaður síðan á striðsárunum, tölu- vert stór en ekki heppilegur að lögun. Mikill mannfjöldi var þarna sam- ankominn í steikjandi hita og brennandi sól, flestir stó^u undir pálmablaðaskvlutp, en hátt uppyfir var stúkan, lauslega upphrófað gálgatimbur, og ekki laust við að sumir væru hræddir um að hún 'hryndi niður með öllu fólkinu. Keppt var á venjulegum indversk- um bílum sem ekki geta talizt hrað- fara, sportbílum sem smíðaðir eru í ýmsum löndum, svo og mótorhjól- um. Ekki urðu nein slys, enginn bíll valt svo ég sæi, enginn árekstur varð, en nokkrir mótorhjólagæjar flevttu kerlingar eftir brautuniim er 'hjól þeirra biluðu eða fóru um koll. Engum varð meint af, hekl ég, því allir voru pakkaðir inn í gúmí og trefjar svo diúpt var á beini. Þetta var töluvert hörð keppni. Fólk klappaði og hrópaði eins og það hafði þrek 'til. F.n þegar hitinn er 32 stig 1 skugea þá er maður ekki eins hress að klappa og ólátast og í stormbelgingnum á Melavellin- um í Revkiavík. Enda þótt menn sýnilega fvlgdust mpð af áhuga var ekki nærri eins kröftugl-ga látið og ég á að veninst frá Evrópu tf eitt- livað áþekkt fer fram. Kannski eru I.ndverjar meiri prúðmenni en við? Að mörgu levti er ég víst hálf- gerður umskiptingur, hef enda oft fengið að heyra að ég sé ekki cins og fólk er flest fa";'- vita livað átt er við með þvíO. F.g horfi oftast nær á einhverja aðra hlið en annað fólk. A hvers konar kappleikjum hef ég t.d. miklu meiri áhuga á að sjá áhorfendur en keppnina. Og á skemmtistöðúm finnast mér þeir sem eru að skemmta sér alltaf bezta skemmtiatriðið. Skemmtiatriði eru nefnilega alltaf eins. F.ngum dvtti í hug að troða upp með atriði sem enginn vissi fyrirfram hvað væri. Skemmtiatriði er því aðeins skemmtilegt að menn viti fvrirfram að það sé skemmti- legt. Sama gildir um kappleiki yfir- leitt. Skemmtanir og kappleikir minna mig á revfára og leynilög- réglusögur, maður véit allt fyrir- fram. Oll spcnnan liggur í ein- hverri furSulegri óvissu um einhver ómerkileg smáatriði. En áhorfendurnir eru alltaf nvir. Það skemmtilega við mnnnfólkið er nefnilega að það er alltaf ekta, líka þegar það revnir mest að sýnast, því með þvt hvernig það hagar sér við að revna að sýnast veitir það merkilegar upplýsingar um' hvernig það er. Þess. vegna' er í rauninni alveg sáma hvort menn ljúga eða segja satt, þeir segjá kannski aldrei meira satt en þegar þeir Ijúga (shr. Halldór Laxness: Kristnihald undir jökli, örð biskups á bls. 19). Þegar . menn eru að horfa á keppni 'er ekki einasta gaman að athuga hvernig einstaklingarnir bregðast við, það er líka gaman að fvlgjast með allri heildinni. Stund- um er eins og vindur bæri gras, þá er sem alda fari yfir skarann. Yfirleitt eru áhorfendur alveg á valdi keppninnar, ekkert syfjaðir, spennan heldur þeim vakandi, rnuna í mesta lagi eftir að næra sig á ís og kók, því hér býr siðmenntað fólk og étur samkvæmt tízku. Eg held kennarar mættu vera ánægðir ef nem. fylgdust með af slíkum með“ hvers málstað þeir gera að sín- um. Þá fyrst er garnan, þá fyrst eru þeir sjálfir á vígvellinum. Þétta sýnir hve menn eru óskap- lega hundleiðinlega persónulegir. Ef það væri keppnin sem hugur- inn beindist að mundu þeir hafa meira gaman af vopnaviðskiptum en leikslokum, og mig grunar að venjuleg keppni rnundi þá missa sitt aðdráttarafl. Oft er hún alls ekki íþrótt sem unnt er að horfa á og fylgjast með hversu leikin er — alls ekki neitt á borð við íslenzka glímu þar sem leikurinn skiptir jafn- vel meira máli en úrsiltin — heldur hana-at sem ekkert hefur sér til ágætis nema úrslitin, sem auðvitað verða alltaf einhver. Þessi sífellda sókn manna eftir að vera r-sjálfur keppantli og vinna gengur geðbilun næst, og kannsk* er luín einmitt sú geðbilun sem veld ur því að þessi heimur er eins og vitfirringahæli þar sem vitfirring- unum hefur tekizt að „lækna<r læknatia. I Eitthvað svipað gildir þegar. mentv eru að horfa á kvikmynd eða lesa skáldsögu. Þar þarf alltaf að vera einhver skúrkur, einhver til aS vera „á móti“, og líka hetja til að vera „ég“ sjálfur. Og það þarf að vera einhver sérstakur endir ',á öllu. snman, sagan eða myndin má ekki- hætta í lausu lofti. Þetta þarf allt aS ganga einsog „ég“ sjálfur geti veriði nteð í spilinu, og helzt þurfa enda- lokin að verða eins og „ég“ gcc hugsað mér mín eigin sögulok, ekki satt? „Eg“ þarf annað hvort að verða stórkostleg hetja eða hágöfug- ur píslavottur, til þess að svp meg* verða má ekki vanta skúrkana, því við eitthvað þarf að rniða, og svo verður kannski reist af „mér‘r myndastvtta á almanna færi! —• gaman, gaman! Þannig er hægt að taka sjálfur þátt í ævintýrinu. En í mannlífinu er enginn sérstak- ttr skúrkur og engin hetja. Mann- kynið er guðsblessunarlega laust við hetjur, annars væri það farið norð- uí og niður fyrir löngu. I mann- lífinu eru bara ég og þú og allir hin ir, nauða-hversdagslegt fólk sém aldrei lendir í ævintýrum, og þótt eitthvað komi fyrir einhvern þá er það ekki ævintýri fyrr en farið er að segja frá því. I mannlífinu er líka allt upphafs- laust og endalaust. Flesta langar víst til að komast í einhvers konar himnaríki og þess vegna vilja þeir Framhald á bls. 6. V áhuga. Hvers végna hafa menn svona gaman af keppni? Tuttugu bilar fara allir af“stað“í' einu, eiga að aka einhverja leið sem allir þekkja og þar að auki er hund- ómerkileg, allir vita að einhver kemur fyrst að rnarki, og hver það er — ja, hvaða máli.skiptir. það? , Flvað er spennandi við þetta? Raunverúlega er það ekki keppn- in sem menn hafa mest gaman af.- Fáir fylgjast í sannleika með keppn- inni. Það sem mönnum þykir gafn- an að er sú árátta sem mest er áberandi í öllu mannlífi: að sigra, verða sjálfur sá sem vinnur - fræg- ur. snjall og mikill. Langfæstir hafa unún af keppni liema þeir hafi einhvern til að „halda með“, og þá eru þeir ,,á móti“ öllum hinum. Jafnvel þótt menn þekki engan sem þátttekur í keppni þurfa þeir að velja sér einhvern til að „halda

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.