Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2002, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2002, Síða 20
24 ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2002 Tilvera I>V Mtiliai• Vr, 'lanjspílmi ttíiöar MJÓDD ^■| Upplýsingar í síma 550 5000 / 550 5777 fiiwví>ur ö s ajiiHifti Nýjar leiðir og afslættir hjá Strætó bs.: Hringleiðir og rautt kort helstu breytingarnar Leiö 112 Fer nú um Krínglumýrarbraut og Nýbýlaveg í staö þess aö fara Inn alla Mlklubraut elns og áöur. Eiríksgata Hjallavegur Leifsgata Kambsvegur Lindargata Langholtsvegur Klapparstígur Nýlendugata Breiðavík Vesturgata Hamravík DV-MYND E.ÓL. Deildarstjórar hjá Strætó bs. „Leiöakerfiö allt í endurskoöun og viö hjá Strætó erum aö þreifa fyrir okkur um hvernig best er aö haga þessu til framtíöar," segja þeir Þórhallur og Steindór. Breytingar voru gerðar á leiða- kerfi Strætó bs. í gær, eins og margir farþegar fyrirtækisins hafa eflaust tekið eftir. Þá var einnig tekið í notkun nýtt afsláttarkort, Rauða kortið, sem getur sparað því fólki verulegar íjárhæðir sem notar strætó mikið. Þeir Steindór Steinþórsson, deildarstjóri akst- ursdeildar, og Þórhcdlur Hafsteins- son, deildarstjóri farþegadeildar, sátu fyrir svörum blaðamanns og fræddu hann um helstu breyting- arnar. Hríngleiðir endurvaktar „Byltingin í leiöakerfinu er fyrst og fremst hjá vögnum nr. 10 og 11 sem tengja nú saman Árbæjar- hverfið og Breiðholtiö," segir Steindór og heldur áfram: „Svo ég lýsi því aðeins nánar er leið Tí- unnar óbreytt frá Hlemmi upp í Þingás, þar fer hún um Breiðholts- brautina í Seljahverfið og tengist leið 11 með því að fara Jaðarsel og svo niður í Mjódd rangsælis við 11-leiðina, sem nú er orðin spegil- mynd af 10. Hringleiðir 14 og 15 í Grafarvogi eru líka mjög til bóta. Þær aka frá Ártúni og alla leið upp á Bakka- staði í Staðahverfinu, á móti hvor annarri, og tengja öll hverfi Graf- arvogs. Síðan er talsverð breyting á ferðum vagns 112 sem fer nú um Kriglumýrarbraut og Nýbýlaveg á leið sinni milli Lækjartorgs og Mjóddar í stað þess að fara inn Miklubraut, eins og áður. Það fara svo margir vagnar um Miklubraut en Nýbýlavegurinn hafði orðið dá- lítið út undan svo við erum að reyna að bæta úr því. Eftir að nýju mislægu gatnamótin komu við Reykjanesbrautina skapaöist möguleiki á því. Þaðan fer 112 sína hefðbundnu leið upp í Fella- og Hólahverfi." var teygð núna upp í Hamraborg," heldur Steindór áfram lýsingum sínum á hinum nýjum leiðum Strætó bs. Hann segir þrýsting hafa komið fram um þá breytingu en nú þyki sumum ferðatíminn úr hálfmæddur. Svo minnist hann á nokkrar óverulegar breytingar í viðbót. „Númer 16 og 17, sem aka hvor á móti annarri, fara nú um Fífuhvammsveg í stað Amar- smára áður. Áttan var lögð niður sem númer en leiðin er samt við lýði og heitir nú 14. Hún fer frá Mjódd og upp í Ártún og tengir þannig Breiðholts- og Grafarvogs- leiðirnar. Nían var líka felld niður og heitir 13 i dag. Hún ekur í nýja Grafarholtshverfið og tekur nú nýjan hring, inn Reynisvatnsveg upp í holtið og kemur svo Maríu- bauginn til baka.“ Hringleiöir 10 og 11 Tengja saman Árbæjar- og Breiðholtshverfi Leiö 18 teygö upp í Hamraborg „Leið 13 heitir 18 í dag. Hún liggur á milli Mjóddar og Linda- og Salahverfisins í Kópavogi og Lindahverfi upp í Mjódd vera orð- inn langur, þar sem spölurinn milli þeirra staða sé ekki langur í beinni línu. „Svona er nú erfitt að gera öllum til hæfis,“ segir hann, Stór sparnaöur í Rauða kortinu „Leiðakerfið allt er í endurskoð- un og við erum að þreifa fyrir okk- ur um hvernig best er að haga þessu til framtíðar," segir Þórhall- ur. Nú er komið að honum að segja frá rauða afsláttarkortinu sem gildir í 90 daga og kostar 9.900 krónur. „Fólk sem tekur strætó að meðaltali einu sinni á dag sparar 8.100 krónur á gildistíma kortsins, miðað við að borga annars 200 króna fargjald. Svo er kortiö hand- hafatengt þannig að öll fjölskyldan getur skipst á um það. Fólk tekur þessu afar vel og ég er næstum undrandi hvað það hefur selst strax á fyrsta degi. Þetta er hag- kvæmt fyrir skólafólk en það þarf að halda vel utan um það og passa að týna því ekki.“ -Gun. Enrique neitaði *að kyssa Önnu Latínusmjörkakan Enrique Iglesis, sonur vinar okkar Júlla í Glasi, neit- aði að kyssa rússnesku tenniskonuna Önnu Kournikovu við upptökur á nýju tónlistarmyndbandi. Stráksa þótti sem þokkadísin Anna væri ekki nógu hrein í kringum munninn, það er að húð hennar var víst eitthvað óhrein. Aumingja Önnu brá mjög við þessi viðbrögð sjarmatröllsins og brast hreinlega í grát, enda tilbúin að taka á móti kossi söngvarans. En stjórnandi myndbandsupptök- unnar dó ekki ráöalaus, enda maður reyndur á þessu sviði. Hann sendi ^ínnu bara til fórðunarmeistarans með þeim orðum að klína skyldi ein- hverju yfir óhreinindin. Enrique lét sér það vel líka og kyssti tennisstjöm- una eins og til var ætlast. Skylmingaþræll vill eignast barn Skylmingaþrælsleikarinn Russell Crowe hefur áhuga á að verða faðir hið fyrsta. Vandinn er bara sá að hann vantar konu til að aðstoða hann við verkið. „Mig hefur lengi dreymt um að verða faðir en ég get það bara ekki ^einn míns liðs,“ segir Russell sem er orðinn 37 ára og farinn að finna óþyrmilega fyrir tímans tönn. „Jafnvel þótt ég gifti mig á morgun og eignist barn verð ég orðinn 57 ára þegar bamið verður tvítugt. Ég verð alveg vitlaus við tilhugsunina." Á kvennamálavettvanginum er í Russell sennilega þekktastur fyrir stutt og stormasamt samband við Hollywoodskvísuna Meg Ryan. Þau : hættu saman fyrir ári og siðan hefur í hann verið orðaður við ýmsar stúlkur, svo sem villipoppstjörnuna Courtney ' Love. HLEMMUR LÆKJAKTORG © Vpmns GRENSÁS{ •HSI l'íir-íTil! fstwuh ímmm KofMiwþtr Blaðberar óskast í eftirfarandi götur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.