Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2002, Qupperneq 23
A
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2002
I>V
_______27
Tilvera
David Bowie 54 ára
Afmælisbarn dagsins
er David Bowie sem
óumdeilanlega hefur
haft mikil áhrif á þróun
poppsins í gegnum tíð-
ina. Bowie, sem fæddist
í London og var skírður
David Jones, fór fljótt eigin leiðir í
poppinu. Eftir að hafa ströglað um
tíma snemma á sjöunda áratugnum
tók ferill hans snögga stefnubreytingu
eftir að hann sá kvikmynd Stanleys
Kunbricks, 2001: A Space Oddissey og
í kjölfarið kom platan Space Oddity út
og hann skapaði persónuna Ziggy
Stardust. Bowie hefur einnig leikið í
nokkrum kvikmyndum.
nHMAKláMMKJÉd
Gildlr fyrir miövikudaginn 9. janúar
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.):
I k Hugur þinn er mjög
frjór um þessar mimd-
ir. Þér gengur vel að
koma skoðunum
þínum á framfæri og á þig er
virkilega hlustað.
Fiskarnir (19. fehr.-?0. marsl
Það verða einhver
vandræði fyrri hluta
dags vegna loforðs
sem þér var gefið.
Síðari hlutinn verður mun betri
að öllu leyti.
Hrúturinn (21. mars-19. apríh:
Mikið verður um að
vera hjá einhverjum
þér nákomnum. Þú
hjálpar mest til með
þvi að sýna þolinmæði og æsa þig
ekki upp í öllum látunum.
Nautið (20, apríl-20. mai):
Það er ekki hægt að
tala um að stórslys
verði í dag en röð
óhappa einkennir
daginn í dag. Reyndu að forðast
öll vandræði.
oí
Tvíburarnir (21. maí-21. iúníi:
Þér hentar mun betur
að vinna einn en með
I öðrum í dag. Hætt er
við að ef þú reynir að
gefa einhverjum ráð í dag taki
hann það óstinnt upp.
Krabbinn (22. iúni-22. iúiíi:
Þú ert einum of auð-
i trúa og hefur
tilhneigingu til að
treysta þeim sem
eru ekki traustsins verðir.
Happatölur þínar eru 4, 13 og 29.
UÓnlð (23. iúli- 22. ágústl:
Þú ert óþarflega við-
kvæmur fyrir gagn-
rýni sem þú verður
fyrir. Þú ættir að
reyna að sláka pínulítið á.
Peningamálin standa vel.
IVIevian (23. áeúst-22. seot.):
Þú ert ekki sérlega
'tvft þolinmóður við þá
^^^JLsem þér leiðast og
' ^ f ólikur sjálfum þér að
ýmsu leyti. Þú færð sérstaka
ánægju út úr vinnunni.
Voein (23. sept.-23. okt.l:
J Þú þarft að hugsa þig
Oy tvisvar um áður en þú
Vtekur ákvörðun. Gefðu
/ f þér tíma fyrir það sem
þú hefur áhuga á.
Happatölur þínar eru 8, 17 og 25.
Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nóv.):
Þú ert óvanalega
snöggur upp á lagið.
>Það er ekki líklegt til
[ þess að afla þér vin-
sælda i vinahópi eða í samstarfi.
Happatölur þínar eru 18, 26 og 35.
11
Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.l:
verður beöinn um
að láta skoðun þina i
w ljós. Þetta snýst um
1j§§§S||lt, eitthvað innan heimil-
isins. Hætta er á stormasömu
timabili í ástarsamböndum.
Steingeitin (22. des.-19. ian.l:
Mildar framfarir og
breytingar verða á
lífi þínu. Þú ferð í
ferðalag sem
heppnast einstaklega vel.
Happatölur þínar eru 6, 9 og 30.
DV-MYNDIR EINAR J.
Ungir Mosfellingar
Mosfellingar á öllum aldri fjölmenntu á árlega þrettándabrennu bæjarins
á sunnudaginn.
Síðustu forvöð
Nokkrir jólasveinar létu sjá sig í
Mosfellsbænum og var vel fagnaö
af börnunum enda var þetta síð-
asta tækifæri þeirra að sinni til að
berja þessa skrýtnu karla augum.
Þrettándagleði
í Mosfellsbæ
Hátíð ljóss og friðar var kvödd
með blysförum, brennum og flug-
eldasýningum um land allt á sunnu-
daginn. Veðrið setti að vísu strik í
reikninginn víða og sums staðar
var jafnvel brennum aflýst. Mosfell-
ingar létu þó ekki veðrið slá sig út
af laginu heldur fjölmenntu þeir á
þrettándabrennu þar sem ýmsar
kynjaverur svo sem álfar og jóla-
sveinar létu sjá sig. Álfakóngurinn
og drottning hans stjórnuðu söng og
að lokum var boðið upp á glæsilega
flugeldasýningu sem lýsti upp þung-
búinn kvöldhimininn.
Kóngur og drottning
Álfakóngurinn og álfadrottningin leiddu mannskapinn í
gegnum alþekkta þrettándasöngva og önnur góð lög.
Jólakettir og tröllabörn
Ýmsar furðuverur fóru á stjá á þrettándanum svo sem
álfar, huldufólk, jólasveinar og hyski þeirra.
Nýárstónleikar íslensku óperunnar
íslenska óperan fagnaði nýju ári
með glæsilegum tónleikum ungra
og upprennandi söngvara á laugar-
daginn. Á tónleikunum tóku þeir
Davíð Ólafsson, bassi, og Tomislav
Muzek, tenór, aríur og dúetta úr
ýmsum áttum auk þess sem þeir
kyrjuðu ítalska amorssöngva og
vinsæl söngleikjalög. Hinn góð-
kunni píanóleikari Ólafur Vignir
Albertsson lék undir hjá þeim félög-
um en kynnir var Ólafur Kjartan
Sigurðarson.
I kjól og hvítt
Þátttakendur í tónleikunum voru léttir í lund þegar
Ijósmyndari leit til þeirra að tjatdabaki Frá vinstri:
Ólafur Vignir Albertsson píanóleikari, Ólafur Kjartan
Sigurðarson kynnir, Tomislav Muzek, tenór og Davíð
Ólafsson, bassi.
DV-MYNDIR EINAR J
Óperuunnendur
Bjarni Daníelsson óperustjóri ásamt eiginkonu sinni
Valgerði Gunnarsdóttur og Guðbjörgu Sigurðardóttur í
hléi.
DV-MYND EINAR J.
Geggjað að geta hneggjað
Pétur Kristjánsson, rödd og andlit Pops, fór á kostum á sviðinu
sem tvítugur væri og til í allt.
Árleg upprisuhátíð Pops
Gamlir hippar og blómabörn íjölmenntu á
Kringlukrána um helgina en þar hélt hin forn-
fræga unglingahljómsveit Pops tvenna tón-
leika. Sveitin, sem átti sitt blómaskeið þegar
amma var ung, hefur haft það fyrir sið á und-
anfornum árum að halda tónleika um eða eftir
áramótin við mikinn fögnuð gamalla aðdáenda.
Á tónleikunum um helgina rifjuðu þeir félagar
upp ýmsar rokkperlur fyrri ára úr smiðju
hljómsveita á borð við Kinks, Rolling Stones og
Bítlana. Áttu gestir erfitt með að halda aftur af
sér þegar gömlu, góðu lögin tóku að hljóma og
þustu út á dansólfið, sungu með og dilluðu sér
i takt.
Beyoncé áhuga-
laus um kærasta
Poppsöngkonan Beyoncé Knowles
úr stúlknasveitinni Destiny’s Child
hefur engan áhuga á að eignast
kærasta sem stendur. Henni finnst
vist hundleiðinlegt að fara á deit, eins
og það heitir í Ameríku. Og í viðtali
við breskt æsifréttablað segir hún að
hún hafi ekki verið í nánu sambandi
við karlmann í mörg ár.
„Það er erfitt að finna einhvern
sem skilur tætingslegan lífsstíl
minn,“ segir poppsöngkonan. Þá segir
hún að karlmenn eigi í mestu vand-
ræðum með að nálgast hana.
„Ég var á bensínstöð um daginn
þegar náungi reyndi að tala við mig.
Ég fékk algjört sjokk því það hafði
ekki gerst í mörg ár,“ segir Beyoncé.
Mulder misnotud
c
V
*
Fyrrum súpermódelið Karen Muld-
er, sem skaust upp á stjörnuhimininn
í byrjum tíunda áratugarins, sagði ný-
lega í viðtali að hún hefði verið mis-
notuð kynferðislega allt frá tveggja
ára aldri og hafi ítrekað verið nauðg-
að á unglingsárunum. „Þetta hófst allt
þegar ég var tveggja ára og það var
náinn fjölskyldumeðlimur sem átti
hlut að máli,“ sagði Mulder í viðtali
sem nýlega var birt i vikuritinu VSD
og er það fyrsta sem hún gefur kost á
síðan hún fór með málið fyrir dóm-
stóla í Frakklandi í október sl.
í viðtalinu, sem tekið var 3. nóvem-
ber sl., rétt áður en hún var lögð inn
á geðsjúkrahús þar sem hún dvelur
enn þá, kemur fram að hún hafi þjáðst
af minnisleysi frá uppvaxtarárunum
en hafi skyndilega farið að upplifa at-
burðina á sl. sumri með skelfilegum
afleiðingum.
Halle Berry
sýnir Bond allt
Bandaríska leikkonan Halle Berry
ku hafa fallist á það að fara úr hverri ~
einustu spjör í væntanlegri kvikmynd *
um ofurnjósnarann James Bond. Það
gerist í ástaratriði með Bond. Engin
Bondpía hefur áður farið úr öllu, að
sögn bandarísks tímarits.
Halle Berry vakti mikla athygli í
fyrra þegar hún fór úr að ofan í kvik-
myndinni Sverðfiski sem hér hefur
verið sýnd. Fyrir uppátækið ku leik- ,
konan hafa fengið hátt í fimmtíu
milljónir króna aukalega. Fastlega má
þvi gera ráð fyrir að dýrari verði Haf-
liða öll.