Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Side 46
LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002 DV 54 Islendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson S Laugardagurinn 12. janúar 80 ára_________________________ Elín Sigurjónsdóttir, Baugstjörn 22, Selfossi. 75 ára_________________________ Guórún Anna Jónsson, Vjiðtúni 10, Isafirði. Guórún Erla Ásgrímsdóttir, Öldustíg 2, SauðSrkróki. Stefán Þórarinsson, Borg, Mývatnssveit. 60 ára_________________________ Siguróur K. Kristbjörnsson, Hofsvaliagötu 16, Reykjavík. Stefanía Stefánsdóttir, Hamraborg 22, Kópavogi. Ólafur S. Gústafsson, Funalind 13, Kópavogi. Baldur Ólafsson, Hjallabraut 96, Hafnarfirði. Jóhanna Þorbjörg Arnoddsdóttir, Vanabyggö 4e, Akureyri. 50 ára_______________,_________________ María Óskarsdóttir, Reyrhaga 12, Selfossi. Eiginmaður hennar er Unnar Ólafsson. I tilefni afmælisins taka þau á móti ættingjum og vinum í Félagsheimilí Karlakórs Selfoss, Gagnheiði 40, Selfossi, milli klukkan 17.00 og 21.00 á afmælisdaginn. Snjólaug Benediktsdóttir, Krókamýri 14, Garðabæ. Hún tekur á móti gestum á heimili dóttur sinnar, Björtusölum 2, Kópavogi, laugardaginn 12.1. frá kl. 14.00. Guólaug Helgadóttir, Lundarbrekku 4, Kópavogi. Hjalti Pétursson, Álfatúni 6, Kópavogi. Marteinn Hafsteinn Gíslason, Hvammabraut 10, Hafnarfirði. Diljá Sigríóur Markúsdóttir, Garðbraut 37, Garöi. Aóalsteinn Sveinsson, Hlíöarvegi 38, Isafirði. Jónheióur Kristjánsdóttir, Dvergagili 11, Akureyri. 40 ára_______________________ Garóar Hilmarsson, Reynihlíð 12, Reykjavík. Áslaug Þóra Karlsdóttir, Grenimel 13, Reykjavík. Steinunn E. Friöriksdóttir, Hólmgarði 11, Reykjavík. Siguröur Bjarni Gunnarsson, Eiðismýri 28, Seltjarnarnesi. Snorri Wium, Gnípuheiöi 4, Kópavogi. Drífa Skúladóttir, Báröarási 19, Snæfellsbæ. Kristján Ólafsson, Uröarvegi 41, Isafirði. Guörún Hlíf Guðjónsdóttir, Ási, Ásahreppi, lést miðvikud. 9.1. Kristín Ingibjörg Stefánsdóttir, Aðalstræti 7, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíö; miðvikud. 9.1. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Fáöu þér miöa í 800 6611 eöa á hhí.is Smáauglýsingar Allt til alls ►I 550 5000 Sjötugur Sveinn Elías Jónsson ferðaþjónustubóndi í Ytra-Kálfsskinni á Árskógsströnd Sveinn Elías Jónsson, feröaþjón- ustubóndi í Ytra-Kálfsskinni, Ár- skógsströnd, verður sjötugur á morgun. Starfsferill Sveinn fæddist í Ytra-Kálfsskinni og ólst þar upp. Hann lauk lands- prófi frá Laugaskóla, stundaði nám við Ryslinge Hojskole í Danmörku, lærði húsasmíði í Reykjavík, lauk sveinsprófi 1959 og öðlaðist meist- araréttindi 1962. Sveinn hefur stundað húsasmíði og búskap í Ytra-Kálfsskinni frá 1959, hefur starfrækt ferðaþjónustu að Ytri-Vík frá 1983 og síðar jafn- framt í Kálfsskinni, ásamt fjöl- skyldu sinni, stofnaði Sportferðir ehf. ásamt sonum sínum 1994, var einn af stofnendum Tréverks hf. á Dalvík 1962 og byggingarfélagsins Kötlu ehf. 1985. Þá hefur hann stundað kennslu við Árskógarskóla. Sveinn sat í stjórn ungmennafé- lagsins Reynis, var formaður þess, sat í stjórn og var formaður UMSE, sat í stjóm Búnaðarsambands Eyja- fjarðar 1969-84 og formaður 1973-84, búnaðarþingsfulltrúi 1978-94, Stétt- arsambandsfulltrúi 1979-84, sat í hreppsnefnd Árskógshrepps 1970-94 og oddviti 1985-94, situr í bæjar- stjóm Dalvíkurbyggðar frá 1998, var skólanefndarformaður Árskógar- skóla í aldarfjórðung, formaður Fræðsluráðs Eyjafjarðarsýslu 1968-74 og safnaðarfulltrúi Stærri- Árskógskirkju í nokkur ár. Sveinn var formaður Félags fri- merkjasafnara á Akureyri og frí- merkjafélagsins Akka á Dalvík og nágrenni, sat í stjórn Félags ís- lenskra frímerkjasafnara og Lands- sambands íslenskra vélsleðamanna, ritstýrði blaðinu Vélsleðanum í tvö ár, sat í stjórn Sparisjóðs Árskógs- strandar 1980-90,1 stjórn Sparisjóðs Svarfdæla frá 1993 og formaður hans frá 1995 og hefur setið í stjóm ýmissa hlutafélaga, s.s. Ferðaþjón- ustu bænda ehf. Fjölskylda Sveinn kvæntist 30.8. 1958 Ásu Marinósdóttur, f. 9.2. 1932, Ijósmóð- ur. Foreldrar hennar: Marinó Steinn Þorsteinsson, bóndi í Engi- hlíð á Árskógsströnd, og Guðmunda Ingibjörg Einarsdóttir ljósmóðir. Börn Sveins og Ásu: Jón Ingi, f. 5.6. 1959, framkvæmdastjóri hjá Kötlu ehf., búsettur á Árskógs- strönd, kvæntur Guðbjörgu Ingu Ragnarsdóttur skrifstofumanni og eru börn þeirra Ásrún Ösp, Sveinn Elías og Einar Oddur; Margrét, f. 27.9. 1960, forstöðumaður hjá ís- landsbanka - eignastýringu, búsett á Seltjarnarnesi, gift Óla Birni Kárasyni, ritstjóra DV, og eru börn þeirra Eva Björk, Kári Björn og Ása Dröfn; Erla Gerður, f. 15.4. 1966, læknir í Garðabæ, gift Geir Borg, þróunarstjóra hjá Gagarin ehf. og er sonur þeirra Jökull Elí Borg; Mar- inó Viðar, f. 11.9. 1971, fram- kvæmdastjóri Sportferða ehf. en fyrrv. sambýliskona hans er María Bragadóttir, f. 2.12.1974, hjúkrunar- fræðingur, og er sonur þeirra Gabriel Daði. Hálfsystkini Sveins, samfeðra: Brynhildur, f. 24.6. 1916, búsett í Hveragerði; Gunnhildur, f. 24.6. 1916, d. 17.10. 2001, bjó á Árskógs- strönd og í Keflavík; Helga Stein- unn, f. 2.2. 1921, búsett i Hrísey; Bergrós, f. 2.2.1921, búsett í Hafnar- firði; Einar, f. 12.11. 1922, búsettur í Kópavogi; Þórey, f. 30.8. 1927, búsett á Árskógsströnd. Foreldrar Sveins: Jón Einarsson, f. 12.10. 1892, d. 21.11. 1981, bóndi í Ytra-Kálfsskinni, og Jóhanna Mar- grét Sveinbjarnardóttir, f. 4.12.1893, d. 16.12. 1971, húsfreyja. Ætt Jón var bróðir Steingríms Ey- fiörðs, læknis á Siglufirði. Jón var sonur Einars, b. á Hömrum og á Bakka í Öxnadal, bróður Jónasar í Stóragerði, afa Magnúsar ráðherra, Baldurs, rektors KHÍ, og Halldórs Þormars sýslumanns Jónssona. Ein- ar var sonur Jóns, b. á Barká, Ólafs- sonar, bróður Einars, langafa Ein- ars Olgeirssonar alþm. Einar var einnig afi Sigríðar, langömmu Stef- áns Baldurssonar þjóðleikhússtjóra. Móðir Einars á Hömrum var Þórey Gísladóttir, systir Myrkár-Helgu. Móðir Jóns var Rósa Loftsdóttir, b. á Skáldalæk, bróður Hallgrims, langafa Guðjóns B. Ólafssonar, for- stjóra SÍS. Loftur var sonur Hall- grims, b. á Stóru-Hámundarstöðum, Þorlákssonar og Gunnhildar Lofts- dóttur. Móðir Rósu var Guðrún Jónsdóttir. Jóhanna Margrét var systir Sig- urveigar, ömmu Sigurjónu, konu Halldórs Ásgrímssonar utanríkis- ráðherra. Jóhanna Margrét var dóttir Sveinbjörns, b. á Hillum, Bjömssonar, og Hallfríðar Sigvalda- dóttur. Sveinn er að heiman á afmælis- daginn. Ása, kona hans, verður sjö- tug þann 9.2. nk. í tilefni afmælanna taka þau á móti gestum í Árskógi, laugard. 9.2. frá kl. 20.00. Sjötíu og fimm ára Aðalsteinn Finnur Örnólfsson vélfræðingur í Kópavogi Aðalsteinn Finnur Örnólfsson vélfræðingur, Gullsmára 7, Kópavogi er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Aðalsteinn fæddist á Suðureyri. Hann fór sex- tán ára til sjós, varátog- urum og sigldi með fisk til Englands öll stríðsár- in, var á sumrin á skipum Ríkis- skipa með vélskólanámi og síðan til ársloka 1958. Aðalsteinn var vaktstjóri við Sementsverksmiðju ríkisins 1958-73, var á skuttogurum og hval- bátum 1974-78, aftur hjá Ríkisskip- um, fór með Esju III til Grænhöfðaeyja 1983 er hún var seld, var formaður á verkstæði Rík- isskipa 1983-88 og eftir það húsvörð- ur hjá Sunnuhlíðarsamtökunum til sjötugs. Fjölskylda Kjartan kvæntist 30.10.1954 Elínu Eiríksdóttur, f. 10.9.1927, húsmóður og saumakonu. Foreldrar hennar voru Eiríkur Guðmundsson, f. 7.1. 1895, d. 25.6. 1976, og Ragnheiður Pétursdóttir, f. 11.9.1892, d. 1.1.1989, búsett á Dröngum. Börn Aðalsteins og Elínar eru Ei- ríkur Sævar, f. 14.7. 1954, vélfræð- ingur hjá Slysavarnaskólanum Sæ- björgu, en kona hans er Ingibjörg Jónmundsdóttir og eiga þau þrjú börn; Sigurður Örn, f. 8.10. 1955, drukkn- aði í Þingvalalvatni 26.5. 1975, en kona hans var Ingibjörg Sveinsdóttir og þeirra börn eru tvö; Aðal- steinn Viðar, f. 1.1. 1958, vélstjóri og kafari, starfar 'í ísaga, en kona hans er Birna Kristbjörnsdóttir og eiga þau fjögur börn; Ragnar f. 6.12. 1960, vélvirki, en kona hans er Ingi- björg Jónsdóttir hárgreiðslumeistari og eiga þau tvær dætur; Margrét f. 11.2. 1964, húsmóðir og verslunar- kona, gift Steinari Magnússyni, skip- stjóra og eiga þau fimm börn. Aðalstein var yngstur sextán systkina. Þrettán komust á legg en þrjú dóu í fæðingu. Nú eru aðeins tvö á lífi, Aðalsteinn og Svanfríður Petrína, gift Óskari Þórðarsyni frá Haga. Foreldrar Aðalsteins voru Örnólf- ur Jóhannesson, f. 22.8. 1879, d. 11.7. 1955, verkamaður, sjómaður og fisk- matsmaður á Suðureyri, og Margrét Þorlaug Guðnadóttir, f. 11.11.1883, d. 31.1. 1960, húsmóðir. Þau bjuggu á Suðureyri í Súgandafirði og síðar í Reykjavík frá 1943. Aðalsteinn vill njóta nærveru frændgarðs, vina og kunningja í þjónustukjallaranum að Gullsmára 13, Kópavogi, í dag milli kl. 17.00 og 19.00. Arnór Stígsson húsasmíðameistari á ísafirði Arnór A. Stígsson hús- gagnasmíðameistari, Hlíð- arvegi 32, ísafirði verður áttræður á mánudaginn. Starfsferill Amór fæddist á Homi í Sléttuhreppi og ólst upp í Homvík. Hann lærði hús- gagnasmíði og hefur unn- ið að iðn sinni á ísafirði. Arnór hefur sungið í kórum á ísafirði í rúma hálfa öld. Auk þess hefur hann farið mikiö á skíði og tekið þátt i skiðamótum. Er Arnór átti heima á Horni seig hann í björg eftir eggjum og var það kall- að að vera fyglingur og fór hann nokkur vor norður, eftir að hann settist að á ísafirði. Einnig hefur hann frá 1976 farið í skíðaferðir norður á Strandir með góðum félög- um, sem kalla sig Norðurfara, frá árinu 1976. Fjölskylda Arnór kvæntist 26.6.1949 Máifríði Halldórsdóttur, f. 22.5.1931, húsmóð- ur og lengi starfsmanni við félags- starf aldraðra á ísafirði. Foreldrar hennar: Svanfríður Aibertsdóttir og Halldór Fr. Sigurðsson á ísafirði. Börn Arnórs og Málfríðar: Jóna, f. 18.3. 1949, d. 10.3. 1961; Stigur, f. 11.8. 1952, verktaki, maki Björk Helgadóttir, f.. 20.11. 1959, en böm þeirra eru Arnór Ari og Helga Björk og stjúpsonur Stígs er Davíð Sveinsson; Svan- fríður, f. 18.3. 1945, maki Jóhann G. Sigfússon, f. 21.8. 1954, en börn þeirra eru Valdimar, Aðalheið- ur og Jóhann Friðgeir; Elfa Dís, f. 21.7. 1957, maki Gunnar Örn Hauks- son, f. 15.7. 1950, en böm Elfu frá því áður eru Sig- rún Jóna og Kristbjörn Eydal Guðmundarbörn og börn Elfu og Gunnars eru Haukur Ársæll og Jóhann Örn. Systkini Arnórs eru Haraldur Stígsson, búsettur í Reykjavík; Bergmundur Stígsson, nú látinn, búsettur á Akranesi; Sigrún Krist- jana Stígsdóttir, nú látin, búsett í Kópavogi; Rebekka Stígsdóttir, bú- sett á ísafirði; Anna Stígsdóttir, bú- sett í Reykjavík; Helga Friðrikka Stígsdóttir, búsett á ísfirði; Guðný Stígsdóttir, nú látin, búsett í Kópa- vogi; Stígur Stígsson, búsettur á Isa- firði. Foreldrar Arnórs voru Stígur B.V. Haraldsson, f. 13.9.1892, f. 1954, bóndi, og Jóna E. Jóhannesdóttir, f. 1.9. 1892, d. 1984, húsfreyja. Þau bjuggu lengst af á Horni og á ísa- firði. Ættingjum og vinum er boðið til afmælisveislu i Frímúrarahúsinu á ísafirði, laugard. 12.1. milli klukkan 15.00 og 18.00. Sjötugur Oddur Thorarensen fyrrv. sóknarprestur á Hofsósi Oddur Thorarensen, fyrrv. sókn- arprestur, Hringbraut 50, Reykja- vík, er sjötugur í dag. Starfsferill Oddur fæddist við Fjölnisveginn í Reykjavík og ólst upp í Reykjavík og á Móeiðarhvoli. Hann lauk stúd- entsprófl frá MR 1953, kennaraprófi frá KÍ 1957 og embættisprófi í guð- fræði frá HÍ 1958. Oddur var kennari við Vogaskóla 1958-60, sóknarprestur að Hofi í Vopnafirði 1960-63 og sóknarprest- ur í Hofsósprestakalli 1963-66, starfsmaður Vélamiðstöðvar Reykjavíkurborgar 1966-68, safn- vörður í sýningarsal Náttúrufræði- stofnunar íslands frá 1968-99. Oddur var jafnframt kennari við Barna- og unglingaskólann á Vopnafirði 1960-63. Þá hefur hann stundað ritstörf og unnið að kristin- dómsmálum á vegum kristniboðsfé- laganna í Reykjavík. Fjölskylda Oddur kvæntist 7.6. 1957 Helgu Jarþrúði Jónsdóttur, f. 22.2. 1939, snyrtisérfræðingi. Þau skildu. For- eldrar hennar voru Jón Pétursson, f. 1.3. 1896, d. 23.1. 1973, prófastur á Kálfafellsstað og síðar kennari í Reykjavík, og k.h., Þóra Einarsdótt- ir, f. 10.2. 1913, d. 14.4. 2000, húsfreyja og formað- ur Vemdar. Synir Odds og Helgu Jarþrúðar eru Óskar Ingi, f. 16.4. 1958, myndlistar- maður í Reykjavík, en sambýliskona hans er Ingeborg Linda Péturs- dóttir Mogensen, f. 22.4. 1955, offsetskeytingamað- ur;Jóhann, f. 19.6. 1959, jarðfræð- ingur í Reykjavík, en sambýliskona hans er Arna Björk Þorsteinsdóttir, f. 24.6. 1960, landfræðingur. Systkini Odds: Eggert, f. 26.5. 1921, forstjóri BSR; Guðrún, f. 1.4. 1923, fyrrv. gjaldkeri; Þorsteinn, f. 26.8. 1927, rithöfundur og bókaútgef- andi; Skúli, f. 12.1. 1932, fógeti í Hafnarfirði; Sólveig, f. 9.9. 1933, menntaskólakennari; Ásta G., f. 10.7. 1937, hús- móðir og gjaldkeri toll- stjóra. Foreldrar Odds: Óskar Þ. Thorarensen, f. 24.9. 1887, d. 20.9. 1953, hrepp- stjóri á Móeiðarhvoli, síð- ar forstjóri BSR, og k.h., Ingunn Eggertsdóttir Thorarensen, f. 7.1. 1896, d. 12.3.1982, húsfreyja. Óskar var sonur Þorsteins S. Thorarensens, hreppstjóra á Móeið- arhvoli, og k.h., Sólveigar Guð- mundsdóttur. Ingunn var dóttir Eggerts Páls- sonar, prófasts og alþm. á Breiða- bólstað, og k.h., Guðrúnar Her- mannsdóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.