Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2002, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2002, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 DV Fréttir Deilt um byggðakvóta víða um land: Ókeypis kvóti er iákvæð mismunun - nokkrum samningum rift, segir starfsmaður Nýsis Stefán Þórarinsson, ráðgjafi hjá Nýsi, hefur haft með það að gera að gera tillögur fyrir hönd Byggða- stofnunar um hvert byggðakvóta skuli úthlutað. Stefán hefur einnig eftirlit með því að einstök fyrir- tæki standi við gerða samninga um byggðakvóta. Þannig féll það í hans hlut að kanna hvort stæðust ásakanir meirihlutar hreppsnefndar Búða- hrepps á hendur eigendum Vað- horns á Fáskrúðsfirði um að þeir ekki við stæðu ákvæði samnings- ins um að þrefalda byggða- kvótann til vinnslu heima. Stef- án segir að . niðurstaðan hafi orðið sú að horfa verði á úthlutun til fimm ára í heild sinni en ekki á aðeins eitt ár í senn. „Þessir aðilar lýsa þvi yfir að á fimm ára tímabili ætli þeir að fá ákveðna útkomu. Að mínu mati er ekki hægt að taka eitt og eitt ár úr. í sumum tilvikum hefur gengið hægt að úthluta kvótanum, svo W'&'jSdeilurv^a. ÁFáskrúösfírð.ggaakadnirgangaJ byggðakfjf0g deilurnar naBur báða hð faraoddviti er sa gð sveitar^'iotistinn'f11 um að hfla obygðak^. þar, Þórður Jónsson ehf., hafi leigt frá sér kvóta og ekki staðið við samninga. Þar er skeggrætt um að Jón Þórðarson, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi, hafi beitt áhrif- um sínum innan bæjarstjómar til að ná út byggðakvóta. Stefán stað- festir að sögusagnir eigi ekki við rök að styðjast og fyrirtækið hafi unnið afla langt yfir þeim mörkum sem samningurinn kveði á um. Hann segir aðalatriðið vera það að mörg þeirra fyrirtækja sem þiggja byggðakvóta séu að ná þeim mark- miðum sem sett eru. Dæmi séu um tvö fyr- irtæki sem bætt hafi upp' það sem þau fóru undir á síðasta fisk- veiðiðári. „Það er svokölluð jákvæð mismunun að sumir fá ókeypis kvóta. Hugsunin er sú að styrkja .staði á landsbyggðinni þar sem atvinnu- líf í sjávarútvegi var að dragast saman. Ákveðin formúla réð því hvernig staðimir voru fundnir. Hugmyndin var sú að við- komandi aðilar nýttu sér þennan kvóta í tiltekinn árafjölda til að geta síðan staðið á eigin fótum. Þetta er ekki bara hvítt og svart en ég kem að þessu á faglegum grund- Grímseye. 92 tonn Bakkafjöróur Bíldudalur Breiðdalsvík Borgarfjöröur eystri Drangsnes Fáskrúðsfjöröur Ýmsar útgerðir Þóröur Jónsson Útgeröarfélag Fiskverkun Karls Úthlutun Vaöhorn ehf.. Breiödælinga, Sveinssonar ehf. ófrágengin fiskvinnsla fiskvinnsla Ýmsar útgerðir Grimsey Sigurbjörn ehf., fiskvinnsla Sæbjörg ehf., fiskvinnsla Ýmsar útgeröir Hofsós ísafjöröur Höföihf., Fjölnirhf.. fiskvinnsla fiskvinnslá Seyöisfjöróur Stöövarfjörður Úthlutun Skútuklöpp, ófrágengin fiskvinnsla sem gerðist á Fáskrúðsfirði. Þar var því ekki aðgangur að kvótan- um allt fiskveiðiárið. Þrátt fyrir þetta er fyrirtækið ekki fjarri því að standa við yfirlýst markmiö um tvöföldun," segir Stefán. Mistök við samningsgerö Hann staðfestir að í samningi Byggðastofnunar og Vaðhorns sé ákvæði um að fyrirtækið skuli vinna allt að 300 tonn af fiski á Fá- skrúðsfirði en tekur undir með eigendum Vaðhoms um að mistök hafi átt sér stað við gerð samn- ingsins. „Þarna urðu ákveðin mistök sem tengjast aðila á vegum At- vinnuþróunarfélagsins á staðnum. Sett var inn í samninginn önnur tala um margfeldi byggðakvótans en sú sem fólkið sjálft hafði lagt fram. Bréflegt álit liggur fyrir um það atriði," segir Stefán sem við- urkennir aðspurður að Vaðhoms- fólk hafi sjálft skrifað undir það að landa umræddum 300 tonnum. „Þegar aðili er að bæta sig þá stígur maður ekki á hann. Það er ekki mennskt að gera slíkt,“ segir hann. Ásakanir hafa verið uppi í Vest- urbyggð að þiggjandi byggðakvóta velli en ekki pólitískum,“ segir Stefán. Hann segir nokkur dæmi vera til um að samningum um byggða- kvóta hafi verið rift. Þar hafi kom- ið á daginn að fyrirtæki hafi ekki geta staðið við samninga um vinnslu. Samkvæmt heimildum DV er þar meðal annars um að ræða fyrirtæki á Stöðvarfirði sem ekki stóð við samning. „Hjá sumum sveitarfélögum hef- ur þetta gengið mjög vel og sam- staða ríkir um ráðstöfun kvótans. Annars staðar hefur þetta gengið miður og fólk er að kroppa hvað úr ööru augun. Nokkur dæmi eru VtÐ UIUM t>|G VlU ÞtGMt t>(j HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Fáöu þér míöa 1800 6611 eða á hhi.ls um að samningum hafi verið rift. Þar er oftast um að ræða útgerðir sem þá hafa gjarnan viljað losna undan kvöðum byggðakvótans. Þar er í flestum tilvikum um að ræða útgerðir smærri báta en einnig er dæmi um að fyrirtæki varð gjaldþrota. Þetta hefur alls staðar verið í fullu samráði við heimamenn," segir hann. -rt N or ð vesturk j ördæmið: VG í sveit- arstjérnarslag Kjördæmisráð Vinstrihreyfingarinn- ar - græns framboðs í hinu nýja Norðvest- urkjördæmi var stofhað á Hólmavik um helgina. Hildur Traustadóttir, Borg- arfirði, var kjörin for- Jón maður kjördæmis- Bjarnason. ráðsins. Fram kom í almennum umræð- um að VG-framboðið hefur fullan hug á að láta til sín taka í kosningum til sveit- arstjóma á vori komanda. VG á nú einn þingmann í hinu nýja Norðvesturkjör- dæmi, Jón Bjamason. -BÞ Auglýsing um fasteignagjöld í Reykjavík árið 2002 Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík árið 2002 verða sendir út næstu daga, ásamt gíróseðlum vegna fyrstu greiðslu gjalda, og umsóknareyðublaði vegna greiðslu gjalda með boðgreiðslum á greiðslukortum. Gjöldin eru innheimt af Tollstjóranum í Reykjavík, en einnig er hægt að greiða gíróseðlana í sparisjóðum, bönkum eða á pósthúsum. Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, holræsagjald, vatnsgjald og sorphirðugjald. Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem fengu lækkun á fasteignaskatti og holræsagjaldi á liðnu ári, fá einnig að óbreyttu lækkun árið 2002, að teknu tilliti til tekju- og eignaviðmiðunar. Framtalsnefnd mun yfirfara framtöl lífeyrisþega eftirframlagningu skattskrár Reykjavíkur. Úrskurðar hún endanlega um breytingar á fasteignaskatti og holræsagjaldi hjá þeim er eiga rétt á þeim samkvæmt þeim reglum er borgarstjórn setur, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, ásamt 87. gr. vatnalaga nr. 15/1923, sbr. einnig lög nr. 137/1995. Verður viðkomandi tilkynnt um breytingar ef þær verða. Á fundi borgarráðs þann 11. desember s.l. var samþykkt að tekjumörk vegna lækkunar fasteignaskatts og holræsagjalds á árinu 2002 hækki um 19% á milli ára og verði sem hér segir: (Miðað er við tekjur liðins árs). 100% lækkun: Einstaklingar með tekjur allt að Hjón með tekjur allt að kr. 1.155.000- kr. 1.615.000- 80% lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 1.155.000- til kr. 1.330.000- Hjón með tekjur á bilinu kr. 1.615.000- til kr. 1.860.000- 50% lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 1.330.000- til kr. 1.530.000- Hjón með tekjur á bilinu kr. 1.860.000- til kr. 2.140.000- Til að flýta fyrir afgreiðsiu geta þeir sem ekki fengu iækkun á sl. ári sent framtalsnefnd umsókn um lækkun, ásamt afriti af skattframtali 2002. Fulltrúar framtalsnefndar eru til viðtals alla þriðjudaga milli kl. 16.00 og 17.00 í Ráðhúsi Reykjavíkur, frá 5. febrúar til 30. apríl n.k. Á sama tímabili verða upplýsingar veittar í síma 552-8050, alla þriðjudaga kl. 10.00 til 12.00. Hreinsunardeild, Umhverfis- og heilbrigðisstofu, Skúlatúni 2, veitir allar upplýsingar varðandi álagningu og breytingar á sorphirðugjaldi í síma 567-9600, og í bréfasíma 567-9605. Orkuveita Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 34, veitir þær upplýsingar sem snerta álagningu og breytingar á vatnsgjaldi í síma 585-6000, og bréfasíma 567-2119. Fjármáladeild, Ráðhúsi Reykjavíkur, gefur upplýsingar um álagningu annarra fasteignagjalda og breytingar á þeim í síma 563-2062, og bréfasíma 563-2033. Gjalddagar ofangreindra gjalda umfram kr. 15.000- fyrir árið 2002 eru: 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní og 1. ágúst. Gjalddagi gjalda undir kr. 15.000-, og gjalda þeirra gjaldenda er völdu eingreiðslu fasteignagjaldanna í maí, er 1. maí. Reykjavík, 15. janúar 2002 Borgarstjórinn í Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.