Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2002, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2002, Blaðsíða 28
Opel Zafira FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 Ríkisstjórnin ræöir verðþenslu í dag. Guðni Ágústsson bjartsýnn: Þensla sem blés út um áramót matarkarfa DV hefur hækkað um 17,5% á tæpu ári ,Finnur Árnason. Guðni Ágústsson Sigurður Jónsson. vörur hefðu hins vegar hækkað verulega vegna gengismálanna eða frá 16%-25%. „Menn hafa mátt hafa sig alla við,“ segir Finnur um afkomu stórmark- aðanna. Mikil einföldun „Það er auðvitað enn þensla í pípunum sem var að fá útrás um áramót,“ sagði Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra og varafor- maður Framsóknarflokksins, í samtali við DV um hækkun matar- körfunnar og hækkun vísitölu neysluverös. Halldór Björnsson, varaforseti Así og formaður Starfsgreinasambandsins, og fleiri hafa gagnrýnt stjórnvöld harðlega fyrir að stuðla að aukinni verð- ** bólgu með ákvörðunum um hækk- un á ýmiss konar opinberri þjón- ustu. Halldór segir þessa þróun „skelfilega". Guðni er hins vegar bjartsýnn á framtíðina því margt lofi góðu i samstarfi stjórnvalda, verkalýðshreyfingar og atvinnu- rekenda í efnahagsmálum. Ókomnar aögeröir Guðni kvaðst minna á að enn væru ókomnar aðgerðir sem hafa myndu áhrif á lækkun vísitölunn- ar. „Ég nefni lækkun grænmetis- ' verðs sem dæmi. Einnig má búast við lækkun bensínverðs á næst- unni. Mér finnst vera góðir straumar í loftinu og trúi að verð- bólgan verði i lágflugi á árinu,“ sagði Guðni og vildi undirstrika aö allir aðOar yrðu að halda vöku sinni ef ná ætti stöðugleikanum í viðunandi horf. Hann kvaðst og búast við að rík- isstjómin myndi á fundi sínum nú í morgunsárið ræða þessa hækkun vísitölu neysluverðs. DV kannaði í gær verð á matar- körfum í helstu stórmörkuðum og í ljós kemur að hún hefur hækkað um 17,5% að meðaltali frá því fyr- ir 11 mánuðum. Á sama tima hef- ur krónan lækkað um 13-19% gagnvart helstu erlendum gjald- miðlum. Mestu hækkunina var aö finna i 11-11 og Krónunni, eða 26%. Matarkarfan hefur hækkað um 20% í 10-11 og 18% í Nýkaupi og Bónus. Minnsta hækkunin á körfunni var í Samkaupum í Hafn- arfirði þar sem hún hækkaði um 9% og Fjarðarkaupum sem var með 10% hækkun. Þar á eftir eru svo Nettó með 15% hækkun, Hag- kaup með 16% og Nóatún með 17% hærra verð á matarkörfunni nú. Sé meðaltal alira verslananna reiknað kemur í ljós að hækkunin nemur um 17,5%. Gengið vegurþungt Finnur Árnason, framkvæmda- stjóri Hagkaups, sagði í samtali við DV í morgun að fráleitt væri að ætla að meðalverð á matvöru í Hagkaupsbúðunum hefði hækkað um 16% sl. 11 mánuði. Innfluttar Sigurður Jóns- son, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að þessar síðustu hækkanir séu meiri en samtökin hafi talið. Hækkunin undanfarna mánuði sé áhyggjuefni. Hann benti á að þrátt fyrir að krónan hefði styrkst undanfarið hefði þess varla séð stað nema í undantekningartilfell- um. Það væri hins vegar mikil einfoldun að ætla að kenna smá- sölunni alfarið um. Núningur væri milli heildsala og smásala og benti Sigurður á að samtökin hefðu ásamt ASÍ viljað taka upp vísitölu heiidsöluverðs matvæla þannig að menn sæju við hverja væri að sakast. „Ég bendi á að stjórnvöld hafa sjálf valdið mikl- um hækkunum. Kannski eru mestu hækkanimar af þeirra völdum," sagði Sigurður í samtali við DV í morgun. Sjá ítarlega umfjöllun á bls. 6, 8 og 12 -gk/BÞ/sbs Banaslys á " Grindavíkurvegi Banaslys varð á Grindavíkurvegi á fimmta tímanum í nótt. Að sögn lögreglu í Keflavík voru tveir varnarliðsmenn þar á ferð í bifreið sem lenti utan vegar, en fljúgandi hálka var á veginum og akstursskilyrði mjög slæm. Annar mannanna lést og er ekki ljóst hvort það var ökumaðurinn eða farþeg- inn, en hinn meiddist nokkuð og var fluttur á sjúkrahús. Þetta er fjórða banaslysið í umferðinni á þeim hálfa mánuði sem liðinn er af árinu. -gk Verðbréfaþing og Kaupþing: Lítið aðhafst enn Starfandi framkvæmda- stjóri Verðbréfaþings íslands, Helena Hilmarsdóttir, sagði í samtali við DV í morgun að ekkert væri að frétta af at- hugun þingsins gagnvart Kaupþingi. Samkvæmt heim- ildum DV hefur þingið enn ekki kallað formlega eftir skýringum á því að fjöldi stjórnenda Kaupþings, keypti hlut fyrir um hálfan milljarð í Kaupþingi skömmu áður en tilkynnt var um viljayfirlýsingu um kaup á Sigurður Einarsson. in hafi sænska verðbréfafyrirtækinu Aragon. Aðspurð hvort þetta væri rétt sagðist Helena ekki geta upplýst um einstök efnis- atriði málsins á þessu stigi. Hún teldi hins vegar líklegt að á næstu dögum skýrðist hvort þingið myndi grípa til einhverra ráðstafana. Stjórnendur Kaupþings, s.s. Sigurður Einarsson for- stjóri, halda fast við að kaup- verið lögleg. -BÞ Drullupollafundur Veðrid hefur verið með eindæmum óvetrarlegt síðustu vikurnar. Hlýindi með rigningu hafa verið einkennandi, þótt nú sé miður janúar. Svona nokkuð býð- ur upp á rækilegt sull í drullupollum meðan málin eru rædd. Veðurspáin er á svipuðum nótum og áður, einhver úrkoma, slydda eða rigning til skiptis. GAMLA VILLTA VESTRIÐ! Slúður sprengdi meirihlutann - segir fráfarandi forseti bæjarstjórnar í Vesturbyggð Slitnað er upp úr samstarfi meirihluta bæjarstjórnar í Vesturbyggð. Átta bæjarfull- trúar Sjálfstæðisflokks og Sam- stöðu mynduðu meirihluta en einn bæjarfulltrúi Vestur- byggðarlistans sat í minni- hluta. Nú hafa sjálfstæðismenn myndað meirihluta með Vest- urbyggðarlistanum. Þetta ger- ist í kjölfar illvígra deilna um byggðakvóta þar sem Jón Þórðarson, bæjarfulltrúi Samstöðu og útgerðarmaður á Bíldudal, hefur ver- ið sakaður um að þiggja byggðakvóta en misnota síðan með því að leigja frá sér eða landa erlendis. Engar sannan- ir hafa verið lagðar fram fyrir þvt að bæjarfulltrúinn hafi misnotað kvótann og DV hefur ekki fundið nein gögn sem rökstyðja það. Haukur Már Sigurðarson, fráfarandi forseti bæjar- stjórnar, sagðist í samtali við DV í morgun þegar hafa sagt af sér embætti. Hann segist ekki hafa aðrar skýr- ingar á slitum á samstarfi en byggðakvótamálið. „Trúnaðarbrestur er alfarið sjálf- stæðismannamegin. Það var slúður einstakra bæjarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins um byggðakvótann sem sprengdi meirihlutann," segir Haukur Már. Hann segir að sjálfstæðismenn hafi í úórum til fimm tilvikum undanfarið myndað meirihluta með fulltrúa Vest- urbyggðarlistans þannig að í raun hafi meirihlutinn verið löngu sprung- inn. Á bæjarstjómarfundi á morgun tekur Jón B.G. Jónsson, oddviti Sjálf- stæðismanna, við forsetaembættinu en Kolbrún Pálsdóttir, bæjarfulltrúi Vesturbyggðarlistans, verður formað- ur bæjarráðs. Titringurinn vegna byggðakvótans nær inn í raðir stjórnarflokkanna. Sjá einnig bls. 6 -rt Haukur Már Slgurðarson. merkiuélin ! fyfirfagmenn og fyrirtœlii, heimili og sköla, fyrirrSð ogregtu, mig og þig. | nðbýlauegi 14 • sfmi 554 4443 • If.is/rafport ^kirkidkikirkik^k iGitaHnnl ☆ Stórhöfða 27, ik Í? s. 552 2125. VWV>V%V^V>V>V>V>V>V KKKKKKKKKK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.