Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2002, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2002, Qupperneq 16
20 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 Skoðun I>'V Spurning dagsins Stundarðu einhvers konar líkamsrækt? Heimir Jónasson verkamaður: Nei, og mig langar ekkert sérstak- lega til þess. Ég hreyfi mig ágætlega í vinnunnni. Jón Jósep Snæbjörnsson tónlistarmaður: Já, ég fer í Betrunarhúsið 5 sinnum í viku. Ingvar Valgeirsson farandsöngvari: Já, ég geng stundum í vinnuna en reyni að forðast það. Jón Kjartan Ingólfsson kórdrengur: Ekki neitt, en mikið rosalega langar mig stundum til þess. Ásgeir Óskarsson tónlistarmaður: Eina líkamsræktin sem ég stunda er að halda á hljóöfærunum mínum á milli staða nokkrum sinnum í viku. Gunnella Þorgeirsdóttir þjóðfræðingur: Ja, ég geng meö börnin til og frá leikskóla alla virka daga. Læknafingur vösum öryrkj í a Albert Jensen skrifar: Öryrkjar eru þeir sem af slys- forum eöa öörum orsökum eru dæmdir til að vera samfélaginu háðir að öllu eða flestu leyti, verða nær ósjálfbjarga og neyðast til að nota hjólastól í ' stað fóta. Það er meira en hægt er að leggja á þá heppnu að skilja. Öðru máli gegnir um þá sem hafa sérhæft sig i vanda- málum þessa fólks en virðast til- finningalausir þursar þegar til þeirra er leitað. Það er leitt til þess að vita að til Tryggingastofnunar ríkisins, sem stofnuð er til hjálpar þeim óheppnu, skuli ráðast möppudýr eða kerfis- fólk, eins og einn drengskaparmað- ur nefndi þau, sem eru án hugsjón- ar, góðvildar eða skilnings. Ástæða þessara skrifa er að kerf- ið hefur á sumum sviðum snúist upp í andhverfu þess tilgangs sem því er ætlað. Hagsmunaaðilar í gervi lækna virðast halda að Trygg- ingastofnun sé fyrir þá og loka eig- inlega öllum skilningarvitum ef það auðveldar þeim starflð. Þeir virðast forðast að taka ákvarðanir sem auka ábyrgð þeirra og vinnu. Áralangar legur á sjúkrahúsum og endurhæfingarstofnunum og eft- irmeðferð í sjúkraþjálfun hafa kom ið fólki úr kvalafullu ástandi í við unandi stöðu miðað við aðstæður Margir eru þó svo illa farnir að fái þeir ekki lágmarksþjálfun fara þeir í kör og þeir spastískustu kreppast saman á kvalafullan hátt. Heilsu lamaðs fólks hefur hrakað vegna I sjúkraþjálfun. Greiðsla til tveggja aðila? „Fólk hefur lengi undrast tregðu lœkna stofnunarinn- ar við að gefa langtímavott- orð fyrir þá sem augljóslega eiga enga batavon. “ framkomu lækna Tryggingastofnun- óir. Fólk hefur þegar misst af stórum hluta sjúkraþjálfunar sem því er lífsnauðsynlegur vegna hroka þess- ara manna og sérhagsmunagæslu. Hægt er að sanna að þeir bera ekki hag sjúklinga eða ríkis fyrir brjósti því kostnaðarsömu smá- skammtarnir þeirra krefjast fjár úr vasa öryrkja á bótum svo og ríkis. Þvi fleiri vottorð því meiri peninga úr vasa þeirra sem minnst hafa og það fyrir nánast ekkert. Stór hluti vottorða er útfylltur af sjúkraliðum sem fá ekkert fyrir og læknirinn skrifar nafn sitt og fær allt þótt fáir geti lesið úr nafninu. Fólk hefur lengi undrast tregðu lækna stofnun- arinnar við að gefa langtímavottorð fyrir þá sem augljóslega eiga enga batavon. Það er ekki drengilegt að drýgja laun sin með því að seilast í vasa þeirra sem minnst hafa. Læknar TR hafa leikið þann ljóta leik að neyða varanlega lamað fólk til að kaupa sér læknisvottorð fyrir örfá skipti í sjúkraþjálfun og fá svo greitt frá báðum. Vottorð á fimm ára fresti er viðunanlegt - og svo nákvæmrar smámunasemi sé gætt þá ógildist það við dauða. Hlutafé í erlendum gjaldmiðlum Snorri Jónsson skrifar: Ég las leiðara DV sl. fimmtudag þar sem m.a. var rætt um undirbún- ing aö frumvarpi til laga um að heimila íslenskum fyrirtækjum að skrá hlutafé í erlendum gjaldmiðl- um. Ég er mjög efins um þetta ráðslag, en vil þó ekki mótmæla þessari tilraun. í annars ágætum leiðara er talað um að þetta kynni að hafa jákvæð áhrif á stöðu krón- unnar íslensku og eftirspurn eftir henni aukast. Þetta kann lika að verða raunin. Ég vil þó gæta allrar varúðar í viðbrögðum íslendinga, þegar t.d. ársreikningar íslenskra fyrirtækja Hlutafé og ársskýrslur í er- lendum gjaldmiðlum. - „Þá verður líka stutt í að krón- an verði smátt og smátt út undan og ekkert verði tekið mark á krónunum í efna- hagslífinu. “ eru annars vegar. Tel að það leiði til þess að menn krefjist enn frekari út- gönguleiða í gjaldmiðilsviðskiptum okkar, þar til allur almenningur verður farinn að nota meira og minna erlendan gjaldmiðil í við- skiptum sín í milli, t.d. samningum, stórum og smáum. Þá verður líka stutt í, að krónan verði smátt og smátt út undan, og ekkert verði tek- ið mark á krónunum í efnahagslíf- inu. Verði hins vegar leyft að skrá hlutafé í erlendum gjaldmiðlum og sömuleiðis ársreikninga fyrirtækja, finnst mér að beina ætti öllum þess- um færslum eingöngu í farveg þeirra mynta, sem stærstu erlendir fjárfestar hér á landi nota, nefnilega dollara og svissneska franka. - Þar tek ég undir með Hannesi Hólm- steini og fleirum sem hafa reifað þessi mál, en hafa um leið gagnrýnt upptöku évrunnar sem framtíðar- gjaldmiðils okkar íslendinga. Björn Bjamason menntamálaráðherra lætur ekki deigan síga og er nú endanlega búinn að stimpla sig inn í forustuslaginn hjá sjálfstæðis- mönnum fyrir borgarstjómarkosningamar í vor. Snilli menntamálaráðherra felst þó ekki endilega í því einu út af fyrir sig að ákveða að skella sér í slaginn. Snilldin felst nefnilega í því að ákveða að hætta en láta ákvörðunina þó vera þess eðlis að hún gefi tilefni til áframhaldandi umræðu og vangaveltna. I sjálfu sér væri ekki mikið um það að segja þó Bjöm ákvæði að fara fram, umfram það að slíkt yrði eflaust frétt dagsins daginn sem hann gæfi út slíka tilkynningu. Hins vegar myndi sú frétt ekki lifa í marga daga og á þriðja degi frá tilkynningunni væri framboð Bjöms orðið sjálfsagður hlutur og þjóðin farin að tala um eitthvaö allt annað - t.d. handboltaleikina við Þjóðverja! Forprófkjör Þess vegna er það bráðsnjall leikur hjá Birni að snúa tillögu stjórnar fulltrúaráðsins um uppá- stungur um nýtt fólk upp í eins konar forpróf- kjör. Bimi hefur þannig tekist að snúa sakleysis- legum hugmyndum og tillögum fulltrúaráðsins upp í hárbeitt pólitískt vopn í baráttunni um leiðtogasætið. Enda eru stuðningsmenn Bjöms sagðir vera byrjaði aö hringja út til fulltrúaráðsmanna áminningar um að muna nú eftir aö nefna menntamálaráð- herra í uppástungum sínum. Hugmyndin er að þegar 80%, eða jafnvel 90%, fulltrúaráðs- manna hafi sýnt það með uppástungum sínum að þeir vilji Björn á listann verði ekki undan því vikist fyrir hann að fara fram í sjálfu leiðtogapróf- kjörinu. Ávinningurinn felst ekki hvað síst í þeirri stemn- ingu sem í kringum svona nokkuð skapast. Sá maður sem kemur inn í leiðtogapróf- kjörið verður sem sé enginn venjulegur maður - hann verður ástsæh foringi sem hinn almenni flokksmaður í Reykjavik hef- ur kallað sérstaklega eftir. Bjöm Bjarnason veð- ur þannig - ef þessi áform öll ganga eftir - hinn vinsæli maður fólksins, Víst vinsældakönnun Garri er nokkum veginn sannfærður um að hvorki stjóm fulltrúaráðsins né kjömefndin, sem sjá á um uppstilinguna á listann, hafi ætlaðist til að þetta færi svona. Það er al- veg sama hversu grimmilega menn slá höfðinu við stein- inn og neita því að könnun- in í fulltrúaráöinu sé for- , prófkjör eða vinsældakosn- ing. Könnunin verður alltaf túlkuð sem slik, Björn er þegar búinn að sjá til þess. Þau rök að segjast ekki einu sinni ætla að birta niður- stöðuna úr könnuninni eru vitaskuld óttalega máttlaus þvi kjörnefndin, jafnt sem aörir, veit mætavel að svona hlutum er ekki hægt að halda leyndum. Sannleikur- inn er einfaldlega sá að Bjöm Bjarnason er búinn að tefla bráðsnjalla pólitíska skák í þessu máli og þó hann flaggi ekki stór- meistaratitli þá hefur ráðherrann ekki sýnt lak- ari taflmennsku en sjálfur Margeir Pétursson. Spurningin núna er hins vegar sú hvernig fé- lagar Björns, sem starfað hafa í borgarstjórninni og hyggja þar á frekari frama, ná að vinna úr sínum málum. Það verður fróðlegt að fylgjast með þeirri sögu allri - en hún er nú rétt að byrja. CsfluCfL Björn teflir vel Stór á 400, lítill á 250! Aldís skrifar: Ég hef iðulega séð í blöðum, á gluggum og hurð- um veitingahúsa og nú síðast í Mbl. auglýsingu, sem samanstend- ur einungis af t.d. eftirfarandi: „Stór á 400 kr. - lítill á 250“ (verðið getur að vísu verið eitt- hvað misjafnt og ekki bundið við þessar tölur). All- ir vita við hvað er átt. Þarna er ver- ið að auglýsa áfengan bjór. Nú er ég alls ekki ekki á móti bjómum, ég er hins vegar eindregið á móti svona skinhelgi og lögbrotum, því það er bannað að auglýsa áfengi og verð á því opinberlega. Hvenær ætla stjórn- völd að hætta þessum fíflahætti í reglugerð um áfengi? Hvað er svona hættulegt við frelsið í áfengismálum? Kominn til að vera. - Verðiö samt leyndarmál - opinberlega. Skortur á karlmönnum Sigurjón Jónsson skrifar: „Kvenmannslaus i kulda og trekki / kúri ég volandi. / Þetta er ekki, ekki, ekki / ekki þolandi" - Svo kvað Steinn Steinarr forðum um skort á kvenfólki. Frá þvi var skýrt í blaði nýlega að konur í Reykjavík væru alls 56.666, en karlmenn 54.676. Þetta tel ég ekki nógu gott, enda álíta fræðimenn, að af slík- um mismun gæti stafað (þjóð)félags- legur vandi. Dæmi: Karlar gætu auð- veldlega freistast tO (aukins) framhjá- halds. Margsannað er að íslenskar konur vilja ekki fara út í dreifbýlið, en þar er nokkuð um ókvænta karla. Til þess að ekki verði jafn margar konur út undan á þessu sviði, legg ég til að hafinn verði innflutningur á karl- mönnum frá þeim þjóðum sem okkur eru skyldastar og á þar einkum við menn frá öðrum Norðurlöndum, Bret- landi og Þýskalandi. New York, New York. - Lokað til 12. mars! New York úr alfaraleiö? Friójðn hringdi: Einkennileg ráðstöfun hjá Flugleið- um að hætta flugi til New York. Flug- ferðir hófust þangað með Loftleiöum árið 1948 og síðan hefur verið flognar þangað allt að fjórar ferðir daglega þegar mest var á uppgangsárum Loft- leiða og síðar Flugleiða. Að leggja nið- ur tímabundið flug til New York sýn- ir að það er mikil meinloka í uppbygg- ingu á flugþjónustu félagsins. Að fljúga ekki til New York, ekki Brussel þar sem eru höfuðstöðvar ESB og ann- arra mikilvægra stofnana í Evrópu - úr því hætt var við Lúxemborgarflug- ið eru mistök. Ekki gleyma Durante Svala Jónsdóttir hringdi: Ég las bréf frá Agli í DV nýlega í tengslum við auglýsingu Háskóla- happdrættisins þar sem eitt laga hans er notað í auglýsingunni. Ég tek undir það að þessi frægi skemmti- kraftur mætti alveg koma á skjáinn á einhverri sjónvarpsstöðinni. Ég skora á forráðamenn sjónvarpsstöðv- anna að gleyma ekki Jimmy Durante og fleiri góðum slíkum frá fyrri árum. Já, svart/hvítar myndir eru orðnar gersemi og urmull af þeim á lausu. Ekki sist úr skemmti- og af- þreyingargeiranum. Ég segi eins og krakkarnir: „Please". Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangiö: gra@dv.ls Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV, Þverholti 11,105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.