Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2002, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002
DV
Fréttir
7
Vertíðarsjómenn undrandi á Fiskistofu:
Hert aðhald með
grásleppuveiðum
- leikrit, segir útgerðarmaður
„Þeir sjómenn sem ég hef heyrt í
eru undrandi á þessum vinnubrögð-
um,“ sagði útgerðarmaður i Þor-
lákshöfn í samtali við DV. Fiski-
stofa hefur sent bréf til útgerðar-
manna 234 vertíðarbáta þar sem
vakin er athygli á þvi að grásleppu-
veiðar séu háðar sérstöku leyfi. Sjó-
menn telja hins vegar að hægara sé
sagt en gert að komast hjá því að
grásleppur slæðist í netin.
„Veiðar annarra en leyfishafa á
grásleppu eru óheimilar. Grásleppu-
afli sem þannig er fenginn telst vera
ólögmætur, sem sætir álagningu
gjalds,“ segir í bréfi Fiskistofu. Seg-
ir að útgerðir fiskiskipa sem veiði
grásleppu án leyfis og/eða utan
leyfilegs veiðitíma megi búast við
því að gjald verði lagt á þær, sem
nemi andvirði afla. „Athygli yðar er
vakin á þessu nú til þess að þér get-
ið hagað veiðum á þann máta að
ekki leiði til gjaldtöku,“ segir í bréf-
inu.
Útgerðarmaðurinn sagðist velta
því fyrir sér hvað Fiskistofa væri í
raun að fara með þessum aðgerðum.
„Grásleppan slæðist með í netin, oft
fimm til tíu fiskar í hverri veiðiferð
á vetrarvertíðinni. Það er sem sagt
bannað; ég má ekki heldur koma
með grásleppu að landi og allir vita
að ekki má henda afla. Hvaða leik-
rit er þetta?“
í samtali við DV sagði Sigurjón
Aðalsteinsson hjá Fiskistofu að orð
útgerðarmannsins væru að sínum
dómi oftúlkun. Hann sagði Fiski-
stofumenn gera sér fullljóst að grá-
sleppa geti slæðst með í net báta
sem ekki hafi leyfi til veiða á slík-
um fiski. Hitt beri svo á að líta að á
síðustu vetrarvertíð hafi til fisk-
markaða komið 300 tonn af grá-
sleppu. Það sé sprenging í magni frá
árinu áður. Sagði Sigurjón að raun-
ar hefði Fiskistofa vísbendingar um
að ákveðnir sjómenn legðu sig eftir
því að fá grásleppu í netin;
magnaukning hjá einstaka útgerð-
um benti til þess. Því væri ekki
nema eðlilegt að menn greiði til
hins opinbera fyrir grásleppuaflann
gjald sem samsvari til skilaverðs frá
fiskmörkuðum, en það er um 20 kr.
á kg. Stefnt er að slíkri gjaldtöku i
næstu framtíð - sem Sigurjón telur
vera sanngimissjónarmið gagnvart
þeim sjómönnum sem grásleppu-
leyfi hafa. -sbs
DV-MYND VALDEMAR
Vetur á Suðureyri
Þústar að í
Súgandafirði
Fyrir nokkru brá til norðlægra
vinda með tilheyrandi kulda og
snjókomu fyrir vestan. Þetta var
kærkomin breyting á veðurfari því
slydduhraglandinn og myrkrið var
orðið allþreytandi. Sól hækkar nú
óðum á lofti og birtutíminn lengist í
samræmi við það. Snjórinn hjálpar
mikið til við að lýsa upp skammdeg-
ið. Hann kemur líka í góðar þarfir
þegar maður er lítill og þarf að kom-
ast heim úr leikskólanum. Þá er
mun skemmtilegra að láta mömmu
draga sig heim á snjóþotu heldur en
að vera að paufast þetta á tveimur
jafnfljótum í krapa og regni. -VH
Hæstiréttur:
Dæmir Mýrdalshrepp
til að kaupa borholu
Hæstiréttur dæmdi Mýrdalshrepp
í síðustu viku til að greiða Stefáni
Gunnarssyni 640.000 krónur auk
dráttarvaxta vegna borholu sem Stef-
án hafði látið bora á jörðinni Dyrhól-
um í Mýrdal meðan hann bjó á jörð-
inni og var með umfangsmikla fram-
leiðslu á lífrænt ræktuðum garð-
ávöxtum, aðallega gulrótum. Hafnað
var kröfu um að greitt yrði fyrir gróð-
urhús og fleira sem byggt var upp á
staðnum. Ábúandi hafði ekki leitað
eftir samþykki jarðareiganda fyrir
framkvæmdum sem hann stóð fyrir á
ábúðartímanum.
Þegar Stefán tók eystri og vestri
Dyrhólajarðirnar á leigu af Mýrdals-
hreppi árið 1980 hafði verið rekinn
hefðbundinn búskapur á þeim um
árabil. Stefán fór hins vegar strax út
í grænmetisræktun og nýtti bygging-
ar sem voru fyrir í þá starfsemi.
Stefán leitaði eftir því við Mýrdals-
hrepp að fá jarðirnar keyptar. Vegna
ákvæða í gjafabréfi fyrir jörðinni
Vestri-Dyrhólum um að hreppurinn
mætti ekki selja hana gat Stefán að-
eins fengið eystri' Dyrhólajörðina
keypta. Hreppurinn bauð Stefáni
eystri Dyrhólajörðina en undanskildi
eignarhluta jarðarinnar í Dyrhólaey í
gagntilboði sínu. Stefán sætti sig ekki
við að nokkur hluti jarðarinnar yrði
undanskilinn í kaupunum og sagði
því upp ábúðarrétti sínum frá og með
fardögum 1999.
í framhaldi af uppsögn Stefáns var
gerð úttekt á jörðinni 1. júlí 1999 og
mátu úttektarmenn öll mannvirki og
umbætur í eigu Stefáns á Dyrhólum
samtals á 25.265.739 krónur. Stefán
sætti sig ekki við niðurstöðu úttekt-
armanna og fór því fram yfirúttekt á
jörðinni. Mátu yfirúttektarmenn að
heildarverðmæti eigna áfrýjanda á
jörðinni næmi 26.867.000 krónum.
Alls nam greiðsla Mýrdalshrepps
til Stefáns vegna framkvæmda við
íbúðarhús, flós og hlöðu ásamt metn-
um endurbótum 16.886.000 krónum og
fór að matsverði yfirúttektarnefndar.
Eignir sem undanskildar voru, sam-
kvæmt yfirúttekt, voru gróðurhús,
úðunarkerfí í gróðurhúsum, gróður-
rammar, kaldavatnsborhola og dælu-
búnaður, kaldavatnslagnir, rafstöð og
braut að borholu. Stefán sótti í máli
sínu Mýrdalshrepp um 9.981.000 krón-
ur fyrir það sem undanskilið var og
telur hann að innleysa eigi þessar
umbætur á jörðinni í samræmi við
yfirúttektargerðina. Mýrdalshreppur
hélt því aftur á móti fram að áfrýj-
andi hefði ráðist í þessar fram-
kvæmdir án þess að afla samþykkis
hans. -NH
Subaru Legacy GL 2000106/955 gíra,
ek. 115 þús., sumar- og vetrardekk,
rafm. o.fl.
Verð 940 þús.
Toyota Rav 4 2wd 10/005 gíra, ek. 25
þús., ABS, geislasp., krókur, sumar- ;
og vetrardekk, rafm. o.fl.
Verð 1.890 þús.
bíulB’
Mazda Premacy Exclusive 12/005
gíra, ek. 14 þús., ABS, geislasp.,
þjófavörn, sumar- og vetrardekk, rafm.
o.fl.
Verð 1. 620 þús.
Suzuki Grand Vitara 05/99ssk. ek. 30j
þús., ABS, geilsasp., leður, hraðastillir,;
30“ dekk, álfelgur, vindskeið, rafm. o.fl.i
Verð 2.390 þús.
auiÍBfir
BpRÝr^
Nissan Primera L/B 1600, 02/015
gíra, ek. 11 þús, geislasp.,
ABS.álfelgur, vindskeið, sumar- og
vetrardekk, rafm. o.fl.
Verð 1.750 þús. Áhv. 1.400 þús.
M.Benz ML 230 01/995 gíra, ek. 71
þús, ABS, krókur, álfelgur, rafm. o.fl.
Verð 3.190 þús.
BíÖTlbgí
MMC Pajero long dfsil turbo 12/96,
ssk. ek. 108 þús., topplúga, álfelgur,
krókur, hækkaður fyrir 33“rafm. o.fl.
Verð 2.090 þús.
M.Benz E 200 11/94 ssk., ek. 96 þús,
ABS, topplúga.álfelgur, rafm. o.fl.
Verð 1.490 þús.
BMW 520IA 05/96ssk. ek. 69 þús,
ABS, topplúga, álfelgur, suma- og
vetrardekk, spólvörn, rafm. o.fl.
Verð 1.990 þús.
Ford Econoline 150 4x4 06/90 ssk.
ek. 220 þús., álfelgur, krókur, 33“ dekk,!
9 manna, rafm. o.fl.
Verð 790 þús.
Vísa- og Euro-
raðgr.
Löggild bílasala.
Vantar bíla á skrá
Daewoo Lanos 1,6 SX. 06/015 gíra. ek. 10 þús., ABS, geislasp.,álfelgur, þjófavörn, rafm. o.fl. Tilboð 1.090 þús.
r—ri|*’fi,/fnflrn :
|58MLBGi|3|
1
^ J
t^áhk-. jdKBib. i . j. j
w
Daihatsu Terios SX 1300cc, 05/98, 5
gíra, ek. 38þús, 4x4, álfelgur, rafm. o.fl. Verð 990 þús. Áhv. 620 þús.
Opel Combo 1,4. 02/015 gíra, ek. 14
þús., álfeigur, VSK-bíll, sumar- og
vetrardekk.
Verð 1.290 þús. Áhv. 1.000 þús.
og á staðinn.
www.
bilahollin.is
Góð ryðvörn tryggir
endingu, endursölu
og eykur öryggi
ykkar í umferðinni.
Bílaryðvörn
Bíldshöfða 5
sími 587 1390
Bíldshöfða 5 • S. 567-4949
bilahollin.is