Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2002, Side 11
11
FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002_________________________________________________________________________________________
I>v Útlönd
Hlé gert á fangaflutningum til Kúbu:
Vísbendingar um árásir gegn
Bandaríkjunum víða um heim
Talsmenn Bandaríkjahers til-
kynntu í gær að hlé hefði verið gert á
flutningi fanga frá Afganistan til Gu-
antanamo-herstöðvarinnar á Kúbu á
meðan unnið væri að frekari upp-
byggingu aðstöðu á staðnum.
Þessi ákvörðun er tekin í kjölfar
aukinnar gagnrýni á meðferð og að-
stöðu fanganna 158 sem þegar eru
komnir til herstöðvarinnar en tals-
menn hersins segja það ekki ástæð-
una fyrir stöðvun flutninganna held-
ur sé nauðsynlegt að bæta við aðstöð-
una til að hægt verði að taka við fleiri
fóngum. Reynt verði að flýta uppbygg-
ingunni sem mest þannig að flutning-
arnir geti hafist aftur innan fárra
daga.
Yfirheyrslur yfir Kúbu-fóngunum
hófust í gær en þá voru sérstakir
rannsóknarmenn hersins væntanlegir
til starfa á Kúbu. Þá er ráðgerð ferð
bandarískra þingmanna til herstöðv-
arinnar á morgun þar sem þeir hyggj-
ast skoða aðstæður en Bush Banda-
John Walker kominn heim
Ströng öryggisgæsla var þegar
bandaríski talibaninn John Walker
Lindh var fluttur til Alexandríu þar
sem réttaö verðuryfir honum í dag.
John Walker
kominn heim
Bandaríski talibaninn John Wal-
ker Lindh var í gær fluttur heim til
Bandaríkjanna þar sem hann verð-
ur leiddur fyrir borgaralegan rétt og
m.a. ákærður fyrir samsæri um að
drepa landa sina á erlendri grund
og aðstoð við hryðjuverkasamtök
Osama bin Ladens.
Þessi 20 ára gamli Kaliforníubúi
var í gær fluttur í strangri öryggis-
gæslu frá Kandahar-flugvelli í
Afganistan til flugvallar í Was-
hington en hann hefur undanfarnar
vikur verið í gæslu í herskipinu
Bataan sem liggur fyrir akkerum á
Arabíuflóa.
Walker verður i dag leiddur fyrir
rétt í borginni Alexandríu í Virgin-
íuríki og verði hann sakfelldur á
hann yfir höfði sér lífstíðardóm. Að
sögn Johns Ashcrofts, dómsmála-
ráðherra Bandaríkjanna, á hann
frekar von á að ákæruatriðum gegn
Walker eigi eftir að fjölga eftir
vitnaleiðslur.
Mesta aukning
til hermála
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hefur kynnt áætlanir um að auka út-
gjöld til baráttunnar gegn hryðjuverk-
um um 48 milljarða dollara sem er
aukning um nærri 15 prósent og um
leið mesta aukning til hermála á milli
ára á síðustu tuttugu árum. Þetta kom
fram í ræðu forsetans á fundi með for-
ingjum þjóðvarðliðsins í gær og sagði
Bush að áætlanir gerðu m.a. ráð fyrir
auknum launagreiðslum til her-
manna, auk aukins fjármagns til
kaupa á nýjum hátæknibúnaði, eins
og varnarflaugum, ómönnuðum farar-
tækjum og hátæknivæddum búnaði
til landhernaðar. „Það hefur sýnt sig
að við þurfum það besta i baráttunni
gegn hryðjuverkaöflunum og það
kostar peninga. Þetta mun setja okkur
efnahagslegar skorður en þegar
kemur að vörnum landsins má ekkert
til spara,“ sagði Bush.
ríkjaforseti reyndi að róa þingheim í
gær eftir aukna gagnrýni úr ýmsum
áttum og sagði að þeir gætu verið
hreyknir af meðferð hersins á þessum
meintu hryðjuverkamönnum. Ari
Fleischer, talsmaður Hvíta hússins,
tók í sama streng í gær og bætti við að
margir fanganna væru öfgafullir
sjálfsmorðsliðar en hikuðu ekki við
að vinna voðaverk.
Robert Muller, yfirmaður banda-
risku alríkislögreglunnar, FBI, sem
nú er á ferð í Afganistan, sagði í gær
þegar hann heimsótti bandarísku her-
stöðina í nágrenni Kandahar þar sem
stríðsmenn talibana og al-Qaeda sam-
taka Osama bin Ladens eru í haldi að
við yfirheyrslur á fongunum hefðu
komið fram vísbendingar um fyrir-
hugaðar hryðjuverkaárásir gegn
Bandaríkjunum víðá um hejm.
Þar á meðal eru vísbendingar um
árás al-Qaeda samtakanna á sendiráð-
ið í Jakarta í Indónesíu en fimm liðs-
menn samtakanna munu hafa komið
Ken Lay, stjómarformaður og að-
alframkvæmdastjóri oliufyrirtækis-
ins Enron, sagði af sér í gær. Lay,
sem stjórnaði fyrirtækinu frá stofn-
un þess árið 1986, sagði ástæðuna
vera þá að hann geti ekki einbeitt
sér að rekstri fyrirtækisins vegna
anna. Mestur tími hans fer nú í að
svara fyrirspurnum þeirra mörgu
hópa sem nú eru að rannsaka gjald-
þrot olíurisans Enron. Lay situr
áfram í stjóm fyrirtækisins og á
rétt á ellilífeyri upp á tæpar 48 millj-
ónir króna á ári ef hann situr í
stjórninni fram yfir 65 ára aldur.
Hann er nú 59 ára.
Lay, sem er gamall vinur George
W. Bush Bandaríkjaforseta, liggur
undir grun um að hafa hvatt starfs-
menn Enron til að kaupa bréf í fé-
laginu síöastliðinn september jafn-
vel þótt hann hafi vitað af gríðEurleg-
um fjárhagsörðugleikum fyrirtækis-
ins. Yfirmenn fyrirtækisins eru sak-
Fangabúöirnar á Kúbu
Einn fanganna látinn liggja á meöan
fangavöröur opnar hliö út
á æfingasvæöi.
Ken Lay
Er ásakaöur um aö hafa hvatt
starfsfólk Enron til aö kaupa þrátt
fyrir vitneskju um fjárhagsörðugleika.
til landsins frá Jemen i júlí sl. með
ráðagerðir í farteskinu um að
sprengja sendiráðið í loft upp.
En fyrir hreinan klaufaskap
indónesískra yfirvalda tókst al-Qaeda-
liðunum að laumast úr landi eftir að
flett hafði verið ofan af áætlunum
þeirra.
Þær fréttir bárust frá Afganistan í
gær að afganski herinn hefði með að-
stoð bandariskra sérsveita hafið af-
vopnun liðssveita stríðsherra í suður-
hluta landsins og hafi verið lagt hald
á töluvert magn vopna án minnstu
mótstöðu. Afvopnunin fór fram í kjöl-
far aukinnar áherslu á að uppræta og
leita uppi liðsmenn talibana og al-Qa-
eda liða sem enn gangna lausir og hef-
ur verið gegnið hús úr húsi í fjórum
bæjum í Helmand-héraði þar sem
grunur leikur á að Mullah Mo-
hammed Omar, trúarleiðtogi tali-
bana, fari nú huldu höfði. Engar vís-
bendingar hafa þó fundist um felustað
hans, að sögn stjórnvalda.
aðir um að hafa selt sín hlutabréf í
fyrirtækinu á sama tíma og grætt
stórfé.
Starfsmaður endurskoðendafyrir-
tækisins, Andersen, sem rekinn var
fyrir að tæta bókhaldsgögn frá En-
ron, neitaði í gær að vitna frammi
fyrir rannsóknarnefnd bandaríska
þingsins nema hann nyti friðhelgi.
Þvi hefur verið hafnað af rannsókn-
arnefndinni nema dómsmálaráðu-
neyti Bandarikjanna samþykki það.
Þá hefur talskona Dicks Cheneys,
varaforseta Bandaríkjanna, sagt að
skrifstofa Cheneys muni ekki af-
henda gögn um afskipti Enron af
gerð stefnu ríkisstjórnar Bush for-
seta í orkumálum sem leggur
áherslu á borun eftir olíu og gasi
sem og kjarnorku. Skrifstofa Chen-
eys hefur áöur neitað að afhenda
þessi gögn. Vitað er að Cheney hitti
fólk frá Enron á meðan stefnumörk-
unin átti sér stað.
Afgönsk flóttabörn í Ástralíu kalla eftir hjálp
Flóttamannavandamálið í Ástralíu hefur nú breiöst út til fleiri flóttamannabúða og hafa um 50 af um 200
flóttamönnum í Woomera-búðunum nú hafiö hungurverkfall meö þvt aö sauma saman varir sínar. Þetta gera þeir til
aö leggja áherslu á kröfur sínar um aö fá landvistarleyfi í Ástralíu en fóikiö óttast aö veröa sent aftur heim til
Afganistans eftir aö ný þjóöstjórn hefur tekiö viö völdum í landinu eftir fall talibanastjórnarinnar.
Enn aukast vandræöi olíufyrirtækisins Enron:
Forstjórinn segir af sér
lan Duncan Smith
Gagnrýnir stjórn Verkamannaflokks-
ins á breska heilbrigöiskerfinu.
Breskt sjúkrahús
pólitískt bitbein
Ian Duncan Smith, leiðtogi
breska íhaldsflokksins, gagnrýndi í
gær ástand breska heilbrigðiskerfls-
ins í fyrirspurnatíma með Tony Bla-
ir, forsætisráðherra Bretlands, á
breska þinginu. Hann notaði sem
dæmi kvartanir aðstandenda 95 ára
konu sem lögð var inn á neyðarmót-
töku spítala í Norður-London. Dunc-
an Smith segir að dóttir konunnar
hafi sagt að meðferðin á henni hafi
ekki hæft hundi.
Tony Blair vísaði þessum ásökun-
um á bug og álasaði Duncan Smith
fyrir að bera upp þessar ásakanir
án þess að tala við spítalann fyrst,
hvers talsmenn hafa neitað ásökun-
unum. Seinna notaði talsmaður Bla-
ir sjúkraskýrslur nokkurra sjúk-
linga til að sýna fram á að fólk fengi
almennilega þjónustu án þeirrar
vitneskju. Báðir aðilar hafa verið
víttir fyrir þessi mál.
Tævan:
Ríkisstjórnin
stokkuð upp
Lee Yung-san, stjórnarformaður
Kínverska alþjóðaviðskiptabank-
ans, var í morgun settur sem fjár-
málaráðherra Tævan. Þá var
Christine Tsung sett í embætti efna-
hagsráðherra en hún átti stóran
þátt í að snúa við lélegri stöðu flug-
félagsins China Airlines.
Þetta tvíeyki á að hjálpa til við að
endurreisa hnignandi efnahag í
landinu. Yung-san þarf að endur-
skoða fjármál landsins sem og lé-
lega stöðu banka í landinu sem eru
plagaðir vegna óviturrar lána-
stefnu. Talið er að Tsung og Yung-
san komi með ný sjónarmið, auk
þess sem þau eru ekki tengd stjórn-
arflokknum sem mun auðvelda
samstarf við stjórnarandstöðuna.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Ásgarðsvegur 11, Húsavík, þingl. eig.
Vigdís Þórðardóttir og Haraldur Guð-
mundsson, gerðarbeiðandi Lands-
banki íslands hf., höfuðst., þriðjudag-
inn 29. janúar 2002 kl. 10.00.
Bakkavegur 5, Þórshöfn, þingl. eig.
Steinunn Leósdóttir og Friðrik Jóns-
son, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður,
föstudaginn 1. febrúar 2002 kl. 16.00.
Sandhaugar, Bárðdælahreppi, þingl.
eig. Auðunn Ingvar Pálsson, Vignir Þór
Antonsson og Þórunn Björg Bjarna-
dóttir, gerðarbeiðendur íbúðalána-
sjóður og Lánasjóður landbúnaðarins,
þriðjudaginn 29. janúar 2002 kl. 14.00.
Skútustaðaskóli ásamt tækjum, vélum
og búnaði, Skútustaðahreppi, þingl.
eig. Lykilhótel hf., gerðarbeiðendur
Byggðastofnun, Hlíf, lífeyrissjóður,
Húsasmiðjan hf., Ríkisfjárhirsla, Sjó-
vá-Almennar tryggingar hf. og Skútu-
staðahreppur, þriðjudaginn 29. janúar
2002 kl. 16.00.
Sólvellir 1, Húsavík, þingl. eig. Þor-
valdur D. Halldórsson, gerðarbeiðend-
ur Búnaðarbanki íslands hf., Fjár-
mögnun ehf., Húsasmiðjan hf., Kaup-
félag Þingeyinga og Sigurður Axels-
son, þriðjudaginn 29. janúar 2002 kl.
10.30.
SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK