Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 6
22
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002
Sport
r>v
Bæði liðin
sigurvegarar
- KR bikarmeistari eftir framlengingu en Njarðvík getur vel við unað þrátt fyrir tap
Þaö voru ekki margir sem spáðu
jöfnum og spennandi leik í bikar-
keppni KKÍ og Doritos í kvenna-
flokki en önnur varö raunin. Njarð-
víkingar sýndu það og sönnuðu í
þessum leik að það er ýmislegt hægt
þegar liðið stappar í sig stálinu og
sýndu leikmenn liðsins hvers
hópurinn er megnugur. KR fór með
sigur af hólmi, 81-74, eins reiknað
var með fyrir fram en það þurfti
framlengingu til og óhætt að segja
að bæði lið hafi farið af velli sem
sigurvegarar að þessu sinni.
Njarðvík leiddi nánast alian fýrri
hálfleikinn en munurinn varð aldrei
stór. Eins og við var að búast spilaði
Njarðvík svæðisvörn frá upphafi td
enda og hittu KR-stelpur illa. Þær
fengu þó að taka mikið af sóknar-
fráköstum í byrjun en Njarðvik náði
að skrúfa fyrir þau þegar leið á leik-
inn.
KR skipti síðan einnig yfir í 2-3
svæðisvöm en illa gekk að ráða viö
Ebonu Dickinson á meðan spiluð
var maður á mann vörn. Leikmenn
Njarðvíkur freistuðust aö taka mik-
ið af 3ja stiga skotum til að byrja
með, með slæmum árangri, en fóru
þegar leið á leikinn að sækja meira
að köríúnni, sérstaklega Dickinson
sem var dugleg að koma sér á víta-
línuna.
Helga jafnaði
Njarðvík hafði forustu í hálfleik,
28-31, og voru einu stigi yfir eftir
þriðja leikhluta, 46-47. Þær komust
mest sex stigum yfir í fjórða og síð-
asta leikhlutanum en þá skoraöi
KR 13 stig gegn aðeins tveimur og
sneri dæminu við. Leikmenn
Njarðvíkur voru ekki hættir, þó
svo að flestir í Höllinni teldu að
þetta væri loksins komið hjá KR,
og jafnaði Dickinson og kom Njarð-
vík yflr upp á eigin spýtur, 66-67.
Þá kom stór 3ja stiga karfa frá
Helgu Þorvaldsdóttur og hún kom
KR yflr, 68-66, þegar aðeins 12 sek-
úndur voru eftir. Njarðvík fékk
siðustu sóknina og þegar tvær sek-
úndur voru eftir fékk Helga Jónas-
dóttir tvö vítaskot og hún gerði sér
lítið fyrir og skoraði úr báðum.
Því varð að framlengja og þar var
KR-liðið mun sterkara og ljóst að
Dickinson var búin með hvern ein-
asta bensíndropa enda fór hún ekki
út af í eina sekúndu í leiknum.
KR spilaði ekki sinn besta leik í
vetur og má liðið vera ánægt með
að hafa unnið leikinn yflr höfuð.
Hittnin var í lágmarki og ljóst að
breiddin skilaði þessum sigri og
skipti ekki máli þó að Helga og
Guðbjörg færu út af með fimm
villur heldur tóku aðrar við. Liðið
er greinilega í góðu líkamlegu
ástandi og kom þaö sér vel þar sem
leikurinn var framlengdur.
Helga Þorvaldsdóttir fór á kostum
og skoraði mikilvægar köríur hvað
eftir annað. Þegar Helga sat á
bekknum í framlengingunni tók
Kristín af skarið og skoraði stórar
körfur sem skildu liðin að þegar upp
var staðið. Gréta átti alhliða leik og
lék vel og Carrie Coffman var mis-
jöfn en komst ágætlega frá sínu þeg-
ar allt kemur til alls. Hildi Sigurðar-
dóttur gekk betur að mata samherja
sína með góðum sendingum en finna
körfuna sjálf og fór ekki bolti ofan í
hjá þesum frábæra leikmanni að
þessu sinni nema af vítalínunni.
Guðbjörg hitti einnig illa en lét til sin
taka í fráköstunum og spilaði fina
vörn.
KR-Njarðvík 81-74
0-2, 9-9, 11-15, (16-17), 16-21, 22-27,
(28-31), 32-31, 40-36, 4(M2, (46-47),
50-50, 50-56, 59-57, 64-59, 64-64,
(68-68), 72-68, 79-70, 81-74.
Stig KR: Helga Þorvaldsdóttir 24,
Carrie Coffman 19, Kristín Jónsdóttir
17, Gréta Grétarsdóttir 10, Guðbjörg
Norfjörð 7, Hildur Siguröardóttir 4..
Stig Njarðvíkur: Ebony Dickinson
27, Helga Jónasdóttir 15, Eva
Stefánsdóttir 10, Auöur Jónsdóttir 8,
Pálína Gunnarsdóttir 7, Guðrún
Karlsdóttir 5, Díana Jónsdóttir 2.
Fráköst: KR 52 (18 í sókn, 34 í vörn,
Guðbjörg, Coffman 12), Njarövik 52
(13 í sókn, 39 í vörn, Dickenson 18).
Stodsendingar: KR 28 (Hildur 10),
Njarðvík 20 (Dickinson 7).
Stolnir boltar: KR 16 (Gréta 6),
Njarðvík 11 (Dickinson 5).
Tapaóir boltar: KR 15, Njarðvík 18.
Varin skot: KR 11 (Coffman 4),
Njarövík 10 (Helga 3).
3ja stiga: KR 19/5, Njarðvík 20/3.
Víti: KR 21/12, Njarðvík 29/21.
Dómarar (1-10): Rúnar Gíslason og
Rögnvaldur Hreiðarsson (7).
Gœði leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: 500.
Maður leiksins:
Helga Þorvaldsdóttir, KR
Fóru illa meö sniðskotin
Njarðvíkur-stelpur gáfu allt sem
þær áttu í leikinn og hrifu marga
með mikilli baráttu og frábæru
viðhorfi. Með aðeins meiri heppni
hefði bikarinn verið þeirra og einnig
fóru stelpurnar nokkrum sinnum
illa að ráði sínu í opnum sniðskotum
sem að öllu eðlilegu hefðu ratað
undantekningalaust ofan í.
Hjá Njarðvík var Dickinson mjög
góð og ljóst án hennar hefði róður-
inn orðið erfiðari fyrir liðið. Hún
sannaði að það var rétt ákvörðun hjá
stjórn Njarðvíkur að fá hana hingað
til lands til að spila þennan leik og
fyrir vikið fengu körfuboltaáhuga-
menn góðan og spennandi leik. Það
er vonandi fyrir liðið að það eigi eft-
ir að njóta hennar aftur næsta vetur.
Það var þó ljóst að hún er enginn
leikstjómandi heldur tók hún að sér
að koma boltanum upp þegar aðrir
leikmenn liðsins lentu í vandræðum.
Helga Jónasdóttir sýndi að hún er
eitt mesta eöii kvennaboltans í dag
og sýndi hún mikinn andlegan styrk
þegar hún jafnaði leikinn í lok
venjulegs leiktima úr tveimur víta-
skotum. -Ben
Stelpurnar í Njarövík voru sárar og svekktar aö leik loknum. Þær stóöu sig þó frábærlega á móti gríðarlegu sterku
liöi KR. DV-mynd Hari
' f fp , w
iiS®
KR-stelpur fögnuöu ógurlega í leikslok og hér sjást þær, frá vinstri, Linda Stefánsdóttir, Guðbjörg Noröfjörö, Gréta María Grétarsdóttir, Kristín Jónsdóttir og Helga Þorvaldsdóttir. DV-mynd Hari