Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 16
32 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002 Vala önnur í Gautaborg Vala Flosa- dóttir stangar- stökkvari varð í öðru sæti á alþjóðlegu móti innanhúss sem haldið var í Gautaborg um helgina. Vala fór yfir 4,18 metra og stökk jafnhátt og sigurvegarinn, Hanna Mia Persson. Vala bætti árangur sinn frá því í Stokkhólmi í síðustu viku um þrjá sentímetra. -JKS Johann Muehlegg frá Spáni, í miðið, fagnar hér gullverölaunum sínum í 30 km göngu með frjálsri aðferö. Honum á hægri hönd er Christian Hoffmann frá Austurríki og landi hans Mikhail Botvinov á þá vinstri. Símamynd Reuter Vetrarólympíuleikarnir hafnir i Salt Lake City: Spænskur stal senunni Heimsmetið tvíbætt 5000 metra skautahlaup karla var sögulegt á vetrarólympíu- leikunum í Salt Lake City um helgina. Bandaríkjamaðurinn Derek Parra sló heimsmetið þegar hann hljóp á 6:17,98 mín- útum en Hollendingurinn Jochem Uytdehaage, sem hljóp nokkrum mínútum síðar, gerði enn betur og setti heimsmet á tímanum 6:14,66 mfn- útum. 5000 metra skauta- hlaupið hef- ur lengi verið sér- grein Hol- lendinga en þetta eru fyrstu verð- laun Jochem og örugglega ekki þau síðustu því þarna er á ferð mikið efni sem Hollendingar binda mikla vonir við í framtíðinni. -JKS Gull til Norðmanna Hin 28 ára norska stúlka Kari Traa vann tii gullverðlauna í Salt Lake City þegar hún sigr- aði í svonefndu hólasvigi. Þetta þykir mjög erfið grein skíða- íþrótta og reynir ekki hvað síst á hraða og tækni. Þá reynir hóla- svigið ekki hvað síst á hné kepp- enda og hafa nokkr- ir farið illa með þau síð- Kari Traa frá an farið var Noregi. að keppa í þessari íþrótt. Kari Traa vann til silfurverð- launa á leikunum fyrir fjórum árum og markmið hennar á þessum leikum gengu fullkomn- lega upp. Hún hlaut 25,94 stig fyrir æfingar sínar. Sharon Barhke frá Bandaríkjunum lenti í öðru sæti með 25,06 stig og japanska stúlkan Tae Satoya varð í þriðja sæti með 24,85 stig. -JKS Dagný fánaberi við setninguna Dagný Kristjánsdóttir, einn íslensku keppendanna á vetrar- ólympíuleikunum í Salt Lake City, var fánaberi íslenska liðs- ins við setningu leikanna um helgina. Auk Dagnýjar keppa Björgvin Björgvinsson, Krist- inn Bjömsson, Jóhann Friðrik Haraldsson, Kristinn Magnús- son og Emma Furuvik fyrir hönd íslands á leikunum. Aðal- fararstjóri liðsins er Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ. Islensku keppendumir hefja keppni í Salt Lake City í dag þegar þær Dagný Kristjánsdótt- ir og Emma Furuvik keppa í bruni. -JKS Spánverjinn Johann Muehlegg kom, sá og sigraði i 30 km göngu karla með frjálsri aðferð á vetrar- ólympíuleikunum í Salt Lake City um helgina. Johann er Þjóðverji en fékk spænskt ríkisfang fyrir nokkrum árum. Johann stal sen- unni og sigraði með miklum glæsi- brag en á leikunum í Nagano fyrir fjórum árum varð hann i sjöunda sæti. Hann hafði undirbúið sig af kostgæfni fyrir þessa leika og stefndi markvisst á gullverðlaunin og hann uppskar laun erfiðisins. Spánverjar eru að vonum mjög hreyknir af sínum manni og er hann orðinn nánast þjóðhetja en Spánverjar höfðu ekki verið frægir að vinna til verðlauna á vetrar- ólympíuleikum fram að þessu. Þetta voru þriðju verðlaun Spánverja á vetrarleikum frá upphafi og annað gullið sem þeir hreppa i sögunni. Johann Muehlegg hafði mikla yf- irburði í göngunni og kom tæpum tveimur mínútum á undan Christi- an Hoffmann frá Austurríki í mark- ið. Austurríkismaðurinn Mikhail Botvinov hreppti bronsverðlaunin þegar hann kom þriðji í mark. Það vakti óneitanlega athygli að enginn Norðurlandabúi komst á pall. Hamingjusamur maöur „Ég var ákveðinn að taka foryst- una strax i göngunni og halda henni til loka. Þetta gekk eftir og ég er mjög hamingjusamur maður í dag,“ sagði Johann eftir gönguna. Italska stúlkan Stefania Belmondo vann sín áttunda verð- laun á vetrarólympíuleikum þegar hún sigraði 1 15 km göngu kvenna með frjálsri aðferð. Belmondo varð heimsfræg þegar hún vann til sjö verðlauna á leikunum i Albertville í Frakklandi fyrir tíu árum. Sigurinn hjá Belmondo um helg- ina var ekki átakalaus því hún háði harða keppni við rússnesku stúlk- una Larissu Lazutinu en hafði betur á lokasprettinum. Lazutina er eng- inn aukvisi i þessari íþrótt en á keppnisferlinum hefur hún unnið til átta verðlauna á ólympíuleikum. Stórkostleg stund „Ég er í sjöunda himni og þetta er stór stund í minu lífi. Ég gerði mér vonir um að komast á verðlaunapail en að vinna gullið er stórkostlegt," sagði Belmondo. -JKS Stu Stuart ráðinn til Ægis - Wermelskirchen á fórum Kanadamaðurinn Stu Stuart hefur verið ráðinn þjálfari hjá Sundfélaginu Ægi. Stuart tekur við þjálfuninni af Þjóðverjanum Bodo Wermelskirchen en hann heldur til Lúxemborgar í þjálfun og fór af landi brott um helgina. Það tók nokkrun tíma fyrir Ægis- menn að finna nýjan þjálfara en á þessum árstíma eru ekki margir slíkir á lausu. Stýrir Ægi í Eyjum Stuart mun koma til landsins í byrjun mars og stjómar þá Ægis- mönnum í fyrsta sinn á innan- hússmeistaramótinu í Vestmanna- eyjum. Þangað til munu Ragnar Friðbjamarson og Jóhanna Gylfa- dóttir sjá um þjálfunina sam- kvæmt æfingaáætlun frá Wermelkirchen sem þjálfað hafði hjá félaginu í þrjú ár. Stu Stuart hóf þjálfaraferil sinn í Kanada og þá við unglingaþjálf- un. Hann hefur alið upp unga sundmenn til afreka á síðari ár- um. Hann hefur mikla reynslu í uppbyggingu sundfélaga auk þess sem hann hefur þjálfað sundmenn upp í heimsklassa. Hann tók sér síðan frí frá þjálfún í tíu ár og vann þá sem hagfræðingur en hann er menntaður slíkur. 1997 réð hann sig sem þjálfari í Flórída og 1999 við hlið Paul Bergen sem er sundþjálfari í fremstu röð. Síðastliðin tvö ár hefur Stuart ver- ið yfirþjálfari hjá félagi í Arizona. -JKS Ragnar einn þjálfara danska landsliðsins - sem fer á HM í sundi Ragnar Guðmundsson verður annar þjálfara danska landsliðs- ins í sundi sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu innanhúss í Moskvu sem haldið verður dag- ana 3.-7. apríl. Afreksnefnd danska sundsambandsins hefur valið 14 sundmenn til þátttöku í heimsmeistaramótinu, átta konur og sex karla. Mette Jakobsen, besta sundkona Danmerkur, gefur ekki kost á sér í liðið að þessu sinm vegna anna í prófum. íslenskir þjálfarar gera þaö gott i Danmörku Ragnar Guðmundson hefur get- ið sér mjög gott orð sem þjálfari í Danmörku og er mikill heiður fyrir hann að vera valinn annar þjálfara liðsins en hinn er Ari Palve. Ragnar var á síðasta ári kjörinn þjálfari ársins í Dan- mörku af danska þjálfarasam- bandinu. Ragnar er yfirþjálfari sundfélagsins i Álaborg. Islenskir þjálfarar geta sér gott orð i Danmörku en Eðvarð Þór Eðvarðsson er að gera það gott hjá VAT 89 í Kaupmannahöfn. Þess má geta að Sundsamband íslands vinnur að því að Brian Marshall verði með íslenska landsliðið í sundi fram yfir ólympíuleikana í Aþenu 2004. Starf landsliðsþjálfara er hluta- starf en á stefnuskrá SSÍ er stefnt að því að þetta starf verði fullt starf í framtíðinni. -JKS Jochem Uytdehaage brest- ur í grát eftir sigurinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.