Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002 21 DV Sport Stjarnan-ÉBV 21-21 2-0, 5-2, 5-7, 8-8, 10-10 (11-13), 15-13, 17-14, 18-15, 19-19, 20-20, 21-21. Stiarnan: Mörk/víti (skot/viti): Bjami Gunnars- son 6/4 (14/4), Ronnie Smedsvik 5 (7), Magnús Sigurðsson 5 (18/1), Vilhjálmur Halldórsson 2 (5), Gunnar Ingi Jóhanns- son 1 (2), David Kekelia 1 (2), Þórólfur Nielsen 1 (4/1). Hraðaupphlaupsmörk: 2 (Gunnar, David). Viti: Skorað úr 4 af 6. Fiskuö viti: Magnús 2, Þórólfur, Vilhjálm- ur, Ronnie, Bjami. Varin skot: Ámi Þorvarðarson 16/1 (35/4, hélt 8, 46%), Guðmundur Karl Geirsson 0 (2/2, 0%) Brottvisanir: 8 mínútur. ÍBV: Mörk/viti (skot/víti): Petras Raupenas 6 (12), Minauska Adriuska 5/5 (6/6), Arnar Pétursson 4 (12), Sigurður Bragason 2 (5), Sigþór Friðriksson 1 (1), Jón Andri Finnsson 1 (1), Kári Kristjánsson 1 (2), Sigurður Ari Stefánsson 1 (7), Sindri Ólafsson (1), Svavar Vignisson (2). Hraóaupphlaupsmörk: 4 (Sigurður B., Kári, Sigþór, Jón Andri). Víti: Skorað úr 5 af 6. Fiskuð viti: Svavar 3, Sigurður B„ Sig- urður Ari, Sigþór. Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 21/2 (42/6, hélt 8, 50%). Brottvísanir: 4 mínútur. Dómarar (1-10): Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson (7). Gœöi leiks (1-10): 6. Áliorfendur: 80. Maöui' Leiksins: Hörður Flóki Ólafsson. ÍBV Haukar-KA 30-30 1-0, 4-1, 7-6, 10-11, 13-14 (15-15), 16-15, 21-17, 21-21, 24-24, 27-26, 29-29, 30-30. Haukar: Mörk/viti (skot/viti): Halldór Ingólfs- son 8/6 (11/7), Aron Kristjánsson 6 (10), Ásgeir Öm Hallgrímsson 5 (6), Einar Öm Jónsson 4 (6), Rúnar Sigtryggsson 4 (7), Aliaksandr Shamkuts 2 (2), Þorkell Magnússon 1 (1), Jón Karl Bjömsson (1). Hraöaupphlaupsmörk: 5 (Aron 2, Ein- ar, Ásgeir, Shamkuts). Viti: Skorað úr 6 af 7. Fiskuó vitU Aron 3, Ásgeir, Shamkuts, Hail- dór, Rúnar. Varin skot: Magnús Sigmundsson 12 (33/3, hélt 7, 36%), Bjarni Frostason 3/1 (12/2, hélt 1, 25%, eitt víti í stöng). Brottvisanir: 4 mínútur. KA: Mörk/viti (skot/viti): Halldór J. Sigfús- son 10/4 (13/5), Andrius Stelmokas 5 (6), Sævar Ámason 5 (7), Heimir Árnason 5 (12), Jónatan Magnússon 4 (9/1), Jóhann G. Jóhannsson 1 (1), Heiðmar Felixson (1). Hraóaupphlaupsmörk: 6 (Sævar 3, Stelmokas 2, Heimir). Víti: Skorað úr 4 af 6. Fiskuó vitU Sævar 2, Heimir 2, Jónatan, Stelmokas. Varin skot: Egidijus Pedkevicius 12/1 (38/5, hélt 5, 32%), Hans Hreinsson 4 (8/2, hélt 2, 50) Brottvisanir: 10 mínútur. Dómarar (1-10): Bjami Viggósson og Valgeir Ómarsson (7). Gceöi leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 550. Maður leiksins: Halldór J. Sigfússon, KA Afturelding-Fram 23-23 1-0, 4-1, 5-3, 7-3, 8-5, (11-8), 12-8, 13-10, 13-13, 15-15, 16-17, 18-18, 18-21, 20-21, 21-23, 23-23 Aftureldins: Mörk/viti (skot/viti): Magnús Már Þórðarson 7 (10), Páll Þórólfsson 7/3 (12/5), Daði Hafþórsson 4 (7), Valgarð Thoroddsen 3/1 (4/1), Hilmar Stefánsson 1 (1), Bjarki Sigurðsson 1 (3), Hjörtur Amarson (1), Sverrir Bjömsson (1). Hraðaupphlaupsmörk: 3 (Hilmar, Páll, Magnús). VitU Skorað úr 4 af 6. Fiskuð vitU Magnús 3, Daði 2, Sverrir 1. Varin skot: Reynir Þór Reynisson 20 (42/3, hélt 14, 48%), Ólafur H. Gíslason 0 (1/1, 0%) Brottvisanir: 10 mínútur. Fram: Mörk/viti (skot/vtti): Hjálmar Vil- hjálmsson 7 (9), Maxim Fedioukine 5/2 (8/2), Þorri Gunnarsson 4 (5), Róbert Gunnarsson 4/2 (6/2), Björgvin Björg- vinsson 3 (6), Ingi Þór Guðmundsson (1), Magnús Arngrímsson (1), Guðjón Finn- ur Drengsson (2). Hraðaupphlaupsmörk: 7 (Þorri 3, Ró- bert 2, Maxim 2). VitU Skorað úr 4 af 4. Fiskuö viti: Maxim 2, Róbert, Hjálmar. Varin skot: Sebastian Alexandersson 12/2 (29/5, hélt 8,41%), Magnús Erlends- sin 4 (9/1, hélt 1. 44%) Brottvisanir: 12 mínútur (Ingi Þór rautt fyrir 3x2 mín.) Dómarar (1-10): Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson (6). Gœði leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 154. Maöur leiksins: Reynir Þór Reynisson, Aftureldingu Mikill mis- takaleikur - þegar Afturelding og Fram skildu jöfn í Mosfellsbænum, 23-23 Spenna á Ásvöllum Haukar og KA-menn skildu jafnir í Essódeild karla i hand- knattleik á Ásvöllum í gær, 30-30. Leikurinn var nokkuð íjörugur og ansi spennandi undir lokin en niðurstaðan var sanngjörn þegar á heildina er litið. Bæði lið voru nokkuð þung- lamaleg til að byrja með en voru fljót að ná af sér ryðinu og leikur- inn var jafn allan fyrri hálfleikinn og liðin skiptust á um að hafa for- ystuna þótt gestirnir næðu smávegis frumkvæði upp úr miðj- um hálfleiknum. í upphafi seinni hálfleiks virt- ist sem Haukamaskínan væri komin í gang því að eftir tæplega tíu mínútna leik hafði liðið náð fjögurra marka forskoti, 21-17, og virtist líklegt til þess aö hrista norðanmennina af sér. Það gerðist þó ekki því að gestirnir bitu í skjaldarrendur og voru fljótir að ná áttum að nýju og jafna, 21-21. Eftir þessar sveiflur liðanna var jafnt á með þeim það sem eftir lifði leiks og lokamínúturnar voru þrælspennandi. KA jafnaði leikinn, 30-30, þegar ein mínúta og tuttugu sekúndur voru eftir og bæði lið fengu tækifæri til þess að klára leikinn. Haukar voru þó öllu betri en eins og áður sagði varð niðurstaðan sanngjarnt jafntefli. Þetta er fyrsta stigið sem Hauk- ar tapa á heimavelli í vetur og að- eins annað í það heila en greini- legt var að lykilleikmenn liðsins voru þreyttir eftir EM og af þeim lék aðeins Aron Kristjánsson af eðlilegri getu en Rúnar Sigtryggs- son og Einar Örn Jónsson voru þó sæmilegir. Magnús Sigmundsson var góður í markinu í fyrri hálf- leik og Ásgeir Örn Hallgrímsson átti mjög góða spretti en varnar- leikur liðsins var langt frá því að vera sannfærandi en sóknin var yfirhöfuð nokkuð góð. Hjá KA var Halldór J. Sigfússon mjög góður og þeir Sævar Árnason, Andreas Stelmokas, Jónatan Magnússon og Heimir Örn Árnason áttu ágæt- an leik. Greinilegt er að KA-liðið er á góðri leið með að ná fullum styrk eftir erfitt meiðslatímabil og verður án efa til alls liklegt með hækkandi sól. Jónatan Magnússon, leikmaður þeirra, hafði þetta að segja eftir leikinn: „Að hluta til er ég sáttur við leik okkar en nokkuð svekkt- ur yfir að við skyldum ekki vinna leikinn því að mér fannst við eiga það skilið. Við vorum orðnir hungraðir í að spila þótt liðin væru bæði smátíma í gang og ég tel að við séum á góðri leið með að ná aftur fyrri styrk.“ Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, sagði þetta í leikslok: Ég er svekktur yfir að hafa tapað stigi hér heima en miðað við gang leiksins vorum við á hælunum og náðum aldrei neinum takti í varn- arleik okkar þótt sóknin væri öllu skárri. Það voru dálítil þyngsli í landsliðsmönnum okkar eftir afar erfiða törn og ekki auðvelt að ná upp stemningu eftir erfiða Evr- ópukeppni en þó er greinilegt að KA-liðið er á uppleið." -SMS Það var rólegt yfir leik Aftureld- ingar og Fram þegar liðin mætt- ust í Mosfellsbæ í gærkvöld. Stað- an eftir 10 mín. var 2-1 fyrir Aft- ureldingu og eftir 20 mínútna leik var búið að skora 10 mörk. Staðan fyrir Mosfellinga var þá 7-3. Bjarki Sigurðsson kom þá inn á en hann var aðeins með í tíu mín- útur og skoraði eitt mark og hafa þau oft verið fleiri á þeim bænum. Haukur Sigurvinsson fór úr axlar- lið i fyrri hálfleik og spilaði ekki meira með og óvíst er um fram- haldið hjá honum. Seinni hálfleikurinn var öllu líf- legri en sá fyrri og heimamenn náðu strax fjögurra marka for- skoti en strákunum hann Heimis Ríkharðssonar tókst að jafna leik- inn í 13-13 eftir aðeins sex mín- útna leik. Síðan var allt í járnum. Framarar misstu sterkasta varn- armann sinn, Inga Þór Guð- mundsson, út af fyrir þriðju brott- vísun hans þegar aðeins 10 mínút- ur voru liðnar af seinni hálfleik og því ætluðu margir að á bratt- ann yrði að sækja fyrir Fram. Svo var þó aldeilis ekki og liðið náði mest þriggja marka forskoti þegar tiu mínútur voru til leiksloka. Lokatölur urðu svo 23-23 í leik sem ekki verður minnst fyrir góð- an handknattleik. Mikið var um mistök á báða bóga og leikmenn gerðu sig seka um ótrúlega hluti inni á vellinum, og eins dómara- parið, og virtist sem leikmenn og dómarar hefðu misst taktinn í þessu langa hléi sem varð að gera vegna EM. Tvö atvik áttu sér stað í leikn- um sem undirritaðan langar til að að spyrja dómaranefnd HSÍ um. a) Þegar A-maður á skýrslu fær gula spjaldið missir hans lið þá bolt- ann? b) Þegar varið er með fæti á þá að vísa út af í tvær mínútur? Eru þessi mál ekki eins hér og á Magnús Már Þórðarson reynir hér að brjótast í gegnum vörn Fram en Ingi Þór Guðmundsson leitast við að stöðva hann. DV-mynd E.ÓI. Evrópumeistaramótinu? Bestu leikmenn Fram í leiknum í gær voru Hjálmar Vilhjálmsson, sem átti mjög góðan sóknarleik, og Sebastian Alexandersson sem varði á köflum vel. Maxim Fedioukine átti einnig góðan leik, svo og Róbert á línunni. Hjá Aft- ureldingu stóðu þrir menn upp úr. Reynir Þór var frábær í markinu, Páll var góður fyrir utan, bæði sem skytta og leikstjórnandi, og Magnús Már átti mjög góðan leik á línunni. -vbv Þunglama- legt jafntefli Leikur Stjömunnar og ÍBV í efstu deild karla endaði með jafn- tefli í gær á heimavelli Stjörnunn- ar, 21-21. Sennilega voru það sanngjörnustu úrslitin miðað við það hvernig þessi leikur spilaðist. Stjörnumenn byrjuðu betur og náðu forystu en hún entist ekki lengi. Eyjamenn jöfnuðu og höfðu forystu það sem eftir lifði háifleiks og leiddu með tveim mörkum í hálfleik. Heimamenn komu síðan mun einbeittari til leiks í síðari hálf- leik. Þeir spiluðu mjög öfluga vörn og svo varði ungur markmaður þeirra, Ámi Þorvarðarson, vel í markinu. Hann var í markinu í stað Birkis ívars Guðmundssonar sem Stjörnumenn lánuðu til Spán- ar nú í vikunni. Gestunum tókst hins vegar að jafna leikinn og komast yfir þegar stutt var eftir. Stjömumönnum tókst hins vegar að jafna eftir að Eyjamönnum hafði mistekist að nýta sér þrjár sóknir á lokakaflanum sem hefðu komiö þeim tveimur mörkum yfir. Stjarnan átti síðustu sóknina í leiknum og hefði hún getað tryggt þeim sigur í leiknum en góöur markmaður þeirra ÍBV-manna, Hörður Flóki Gunnarsson, varði vel skot frá Magnúsi Sigurðssyni. Hjá Stjörnunni stóð áðurnefnd- ur Ámi Þorvarðarson sig vel en hjá ÍBV var það Hörður Flóki Gunnarsson sem lék best. Leikur- inn bar merki um langt hlé hand- boltamanna frá deildarkeppninni þvi handknattleikurinn var ekki mjög burðugur. Leikmenn virtust þungir og stundum áhugalitlir um að gera vel. -MOS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.