Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 2
18 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002 Sport Undanúrslitaleikir verða í Laugardal Ákveðiö hefur verið að undan- úrslitaleikirnir í bikarkeppninni í knattspymu fari báðir fram á Laugardalsvellinum og sjálfur úrslitaieikurinn eins og áður. Ósk um þetta efni kom frá félög- unum sjálfum og ríkti ánægja með þessa ákvörðun því að nú geta þessir leikir farið fram viö bestu aðstæður og besta tíma. -JKS Lokið verði við stúkubyggingu í ávarpi Eggerts Magnússon- ar, formanns KSÍ, á þingi sam- bandsins um helgina kom fram að nú myndi aukast þrýstingur á borgaryfirvöld, ríkið og sam- bandið sjálft að ljúka endanlega við byggingu stúku á Laugar- dalsvellinum. Eftir að drátturinn í riðla- keppni Evrópumótsins var ljós hýsir leikvangurinn allt of fáa áhorfendur. Hvað heimaleikina við Skota og Þjóðverja áhrærir þá dugar engan veginn þessi að- staða sem nú er til staðar á vell- inum. Hægt væri að selja helm- ingi fleiri miða en gert er í dag ef fullbúin aöstaða væri fyrir hendi. Eggert Magnússon sagði brýnt að bjóða áhorfendum upp á sómasamlegar aðstæður þann- ig að þeir komist á stórleiki. -JKS Jón Kristján hlaut pennann Knattspyrnusamband Islands veitti á þinginu knatt- spyrnupennann fyrir árið 2001 og varð Jón Kristján Sigurðs- son, íþróttafréttamaður á DV, þess heiðurs aðnjótandi að þessu sinni. Penninn góði er veittur árlega íþróttafrétta- manni sem viðurkenning fyrir góða umfjöllun um knatt- spyrnu. Penninn er af Parker- Dufold tegund. -vbv Hanna danskur bikarmeistari Körfuknattleikskonan Hanna B. Kjartansdóttir varð í gær bik- armeistari í Danmörku með liði sínu Stevnsgade en Hanna gerði 10 stig í leiknum þar sem Stevns- gade vann BMS/Herlev, 63-71, þrátt fyrir að hafa veriö 40-29 undir í hálfleik. Þetta var fyrsti bikarmeistaratitill Stevnsgade í 11 ár en félagið hefur nú oröið bikarmeistari fjóruni sinnum; 1988, 1990, 1991 og SVO 2002. -ÓÓJ Kamerúnar Afríkumeistarar Kamerúnar urðu í gær Afríku- meistarar í knattspyrnu þegar þeir lögðu Senegal í úrslitaleik. Leikurinn var framlengdur og eftir það var enn markalaust. Kamerún sigraöi í vítaspyrnu- keppni, 3-2. -JKS Feofanova setti heimsmet Rússneska stangarstökksstúlkan Svetlana Feofanova setti heimsmet í stangarstökki á alþjóðlegu innanhússmóti i Ghent í Belgíu í gær. Feofanova fór yfir 4,73 metra og bætti eigið met um einn sentímetra. Það met var aðeins fjögurra daga gamalt og sett í Globen í Stokkhólmi. Feofanova hefur verið aö bæta sig hægt og bítandi á þessu nýja ári og mun eflaust veita Stacy Dragila harða keppni á mótum ársins. Á mótinu í Ghent í gær lenti Monique De Wilt frá Hollandi með stökk upp á 4,33 metra og yfir sömu hæð fór kínverska stúlkan Gao Shuying. Annað heimsmet leit dagsins Ijós í 10.000 metra hlaupi þegar Kenýu- maðurinn Mark Bett hljóp vegalengdina á 27:50,29 mínútum og sló metið sem var orðið 27 ára gamalt. -JKS Ingibjörg Hinriksdóttir fékk glæsilega kosningu í stjórn KSI i gær. Hér sést hún með Eggerti Magnússyni, formanni KSÍ. DV-mynd Jóhann DV Stórsigur hjá Essen Essen vann stórsigur á Hameln, 35-23, í þýsku úrvalsdeildinni í hand- knattleik í gær. Patrekur Jóhannesson lék ekki með Essen vegna meiðsla en hann verður frá næstu tvær vikumar. Guðjón Valur Sigurðsson var ekki á meðal markaskorara Essen. Sigurður Bjarnason gerði fimm mörk fyrir Wetzler sem tapaði fyrir Flensburg, 26-21. Gústaf Bjamason gerði flmm mörk fyrir Minden sem tapaði fyrir Bad Schwartau, 34-29. Lemgo er í efsta sæti með 31 stig og á leik til góða á Kiel, sem er í öðru sæti með 30 stig. Kiel sigraði Solingen, 25-30. Nordhorn, sem er í þriðja sæti með 27 stig, sigraði Schwerin, 26-23. Essen er í fjórða sæti með 26 stig. -JKS Bjarki laus eftir tvær vikur Bjarki Gunnlaugsson sem leik- ið hefur með enska fyrstu deild- arliðinu Preston North End hefur fengið samþykki tryggingarfélags síns í Bretlandi um aö hann geti ekki leikið í atvinnuknattspyrnu framar en hann má leika knatt- spyrnu í áhugamennsku. „Ég fékk símtal i síðustu viku um að tryggingarfélagið hafi sam- þykkt þetta enda ekki um annað að ræða. Ég fæ nóg út úr þessu til að geta byrjað nýtt líf á íslandi," sagði Bjarki Gunnlaugsson í sam- tali við DV-Sport í gær. Bjarki hefur verið lengi frá vegna meiösla eftir að hann fór til Preston og lengi vel var ekki vitað hvað amaði aö. Meiðslin sem um ræðir er skrið sem mynd- aðist á brjósk á mjaðmarkúlu- beininu. Skálin kemur ofan á kúl- una en þar myndaðist rifa og það var ekkert mál að laga. En þegar læknar spegluðu mjööm Bjarka kom í ljós þetta skrið á brjóskinu. Við því er ekkert hægt að gera og Bjarki Gunnlaugsson verður að lifa með því. Hann lék tvö ár með Preston, var þar á undan með KR en er uppalinn á Skaganum. Bjarki er 28 ára og ætti að vera á toppi knattspyrnuferils síns. -vbv Gestur á förum til Danmerkur Gestur Gylfason, knattspyrnu- maður úr Keflavík, er á forum til danska annarrar deildarliðsins Hjörring. Samningurinn er tO eins árs og segir Gestur að honum lítist vel á aðstæður hjá félaginu. „Þetta er klárt, ég fer utan næsta föstudag. Það má alveg reikna með því að ég reyni að læra eitthvað með þessu. Samningurinn er fínn, íbúð, bíll, vinna og fleira og þetta er alveg nóg fyrir mig sem er að enda ferilinn,“ sagði Gestur í sam- tali við DV-Sport í gær. Gestur er 33 ára gamall og er hann fimmti leikjahæsti leikmað- ur Keflavíkur frá upphafi með 158 leiki. Gestur hefur af og til verið orðaður við Grindavik að undan- förnu og þótti það líklegra í stöð- unni en að hann færi utan til Dan- merkur. Lið Hjörring er í annarri deild eins og kom fram hér að framan en í Danmörku er úrvalsdeild sem þýðir að félagið er, upp á gamla mátann, í þriðju deild. -vbv 56. ársþing KSI var haldið um helgina: Gleðiefni hve afkoma sambandsins er sterk - segir Eggert Magnússon sem var endurkjörinn formaður 56. ársþing Knattspyrnusam- bands íslands var haldið um helg- ina í Reykjavík. Eggert Magnús- son var endurkjörinn formaður til næstu tveggja ára en hann hef- ur gegnt formennskunni frá ár- inu 1989. Ein breyting varð á stjórn sambandsins en Anna Vignir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu én hún hafði setið í stjórn í fjögur ár. Sæti hennar tók Ingibjörg Hinriksdótt- ir og fékk hún glæsilega kosn- ingu. Að sögn Eggerts Magnússonar var þingið málefnalegt og þing- fulitrúar voru duglegir að láta skoðanir sínar í ljós og það er það sem skiptir máli. „Menn eiga að tjá sínar skoðan- ir á þessum vettvangi en ekki þar sem það á ekki við. Við erum á þessum þingum að ákveða næsta starfsár, fjárhagsáætlun og hvernig starfið á að vera. Á þing- unum á að takast á við hlutina," sagði Eggert Magnússon í samtali við DV í þinglok. Kostnaöi haldiö niöri og tekjur hafa aukist - Hvaða mál stóðu upp úr á þinginu að þínu mati? „Það er gleðiefni hve afkoma sambandsins er góð. Okkur hefur tekist að halda kostnaði niðri, tekjur hafa að sama skapi aukist verulega og það er ég mjög ánægður með. Það skilar enginn hagnaði til lengri tíma nema það sé mikið aðhald í starfseminni á öllum sviöum. I annan stað voru veigamikil mál sem nú eru að fara af stað í hreyfingunni. Þar á ég við m.a. félagaskiptamálin sem tóku miklum stökkbreytingum núna út af Evrópusambandinu. Þar að lútandi komu nýjar reglur frá FIFA og UEFA. Þetta er stórt mál sem á eftir að verða í sviðs- ljósinu á næstunni. Þá eru þaö svonefnd leyfi sem UEFA skyldar öll aðildarsambönd sín að fara inn í fyrir sín lið í efstu deildum. Þau fá til að mynda ekki að taka þátt í Evrópukeppni nema að uppfylla þessi leyfi. Þau lúta m.a. að því að þau þurfa að skila reikningum sem eru áritaðir af löggildum endurskoðanda. Með þessu kemur í ljós hvort rekstur liðanna sé í lagi. Þetta er aðlögun sem tekur einhvern tíma, fyrstu skrefin hafa verið tekin en 2010 á þetta að verða að fullu tekið til framkvæmda," sagði Eggert. Á þinginu um helgina var ákveðiö að þingið skyldi hér eftir aðeins standa í einn dag í stað tveggja áður. Hagnaður KSÍ var um rúmar 20 milljónir en sambandið borgaði til félaganna tíu milljónir sem fært var á síðasta starfsári. Það má því segja að raunhæfur hagn- aður hafi verið um 30 milljónir. Bjart fram undan og kraftur í hreyfingunni „Það er bjart fram undan í þessari hreyfingu og mikill kraft- ur í henni. Það sýndi sig og sann- aði á þessu þingi, menn eru sam- stiga, en auðvitað deila menn um ýmsar leiðir. Ég er ánægður þeg- ar skiptar skoöanir eru um hluti en það sýnir sig aö menn eru eitt- hvað að gera og framkvæma. Það geta ekki allir verið sáttir,“ sagði Eggert Magnússon, formaður KSÍ. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.