Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 10
26
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002
Sport______________________________pv
Enska úrvalsdeUdin á laugardag:
Harkaleg maga-
lending hjá Ipswich
- Liverpool vann sex marka sigur á Portman Road - Newcastle heldur sínu striki
Michael Owen var á skotskónum á Portman Road á laugardag og geröi tvö mörk í 0-6 sigri Liverpool á Ipswich. Reuters
Liverpool fylgdi eftir góðum 4-0
sigri á Leeds fyrir rúmri viku með
sex marka sigri gegn Hermanni
Hreiðarssyni og félögum í Ipswich.
Newcastle hélt hins vegar sínu striki
og vann góðan sigur á Southampton.
Ekkert gengur hins vegar hjá Leeds
þessa dagana og nú missti liðið af
sigri gegn Middlesborough á síðustu
stundu. Graham Taylor byrjaði
stjóraferil sinn hjá Aston Villa með
jafnteíli við Chelsea. Sunderland
landaði hins vegar dýrmætum sigri í
Mlbaráttunni gegn Derby sem er nú
í vondum málum í botnbaráttu deild-
arinnar.
Liverpool hélt flugeldasýningu á
Portman Road í Ipswich og var 0-6
sigur liðsins síst of stór. Lið
Ipswich, sem fyrir þennan leik hafði
unnið sex af síðustu sjö leikjum sín-
um, steinlá gjörsamlega fyrir rauða
hernum í þessum leik. Andy Mars-
hall, markvörður Ipswich, kom í
veg fyrir stærra tap og bjargaði m.a.
liði sínu í þrígang áður en fyrsta
markið kom eftir stundarfjórðung.
Það mark var merkilegt fyrir þær
sakir að Abel Xavier, sem nýlega
var keyptur frá Everton og var að
leika sinn fyrsta leik fyrir Liver-
pool, skoraði markið en hann hafði
aldrei skorað í þeim 45 leikjum sem
hann spilaði fyrir Everton. Með
þessum úrslitum sýndi Liverpool að
liðið hefur alls ekki sagt sitt síðasta
í baráttunni um Englandsmeistara-
titilinn.
Phil Thompson, sem nú er fram-
kvæmdastjóri Liverpool, var í sjö-
unda himni eftir leikinn. „Þetta var
frábær fótbolti, frábær mörk og ein-
stök vinnsla í liðinu. Nú verðum við
að vera einbeittir og halda áfram á
sömu braut.“ Og um frammistöðu
Abel Xavier sagði Thompson: „Hann
er lukkutröllið okkar. Það er erfitt
að leika sinn fyrsta leik með nýju
liði og hann var frábær.
Newcastle með stórleik
Það sama má segja um Newcastle
sem vann Southampton á St. James
Park, 3-1, og það var fyrst og fremst
frábær fyrri hálfleikur sem tryggði
þeim sigurinn. Mörkin voru glæsi-
leg, mark Laurent Roberts kom beint
úr aukaspyrnu áður en Alan Sheraer
skoraði tvivegis, fyrst með skalla og
síðan úr vítaspyrnu. Það var þó fyrst
og fremst stórleikur hjá Craig
Bellamy og Norberto Solano sem
voru síógnandi allan tímann. Öll
mörkin komu í fyrri hálfleik og
Newcastle hefði getað skorað fleiri
mörk í seinni hálfleik, svo miklir
voru yflrburðir liðsins í leiknum.
Gordon Strachan sagði eftir leik-
inn að honum væri nákvæmlega
sama hverjir myndu hampa titlinum
í vor. „Fínt fyrir ykkur að hugsa
mikið um baráttuna um titilinn en í
fullri hreinskilni er mér alveg sama
hver vinnur hann. Ég veit einungis
að við eru bitlausir eins og er.“
Bobby Robson var hins vegar
hæstánægður. „Hann fór til vinstri,
svo til hægri, svo aftur til vinstri. Ég
gat ekki einu sinn sparkað boltanum
beint 30 metra vegalengd."
Leeds virðist hins vegar að missa
af lestinni í toppbaráttunni og nú
missti liðið af sigri gegn Middles-
boroguh á síðustu stundu. Leeds
komst meira aö segja tvisvar yfir 1
leiknum en það nægði þeim ekki til
sigurs. Fyrra jöfnunarmark
Middlesborough var afar skrautlegt
þar sem skot Paul Ince skoppaði á
þúfu á vellinum yfir Nigel Martin í
marki Leeds. Benito Carbone lék
sinn fyrsta leik fyrir Middles-
borough og homspyrna hans skap-
aði seinna jöfnunarmarkið fyrir
Dean Windass. í heild átti Boro skil-
ið að jafna leikinn en liðið lék þenn-
an leik prýðilega, sérstaklega eftir
að Alain Boksic kom inn á sem
varamaður í upphafi síðari hálf-
leiks.
Langþráöur sigur Bolton
Guöni Bergsson og félagar í
Bolton unnu sinn fyrsta sigur í 12
úrvalsdeildarleikjum þegar þeir
lögðu West Ham á heimavelli.
Ricardo Gardner skoraði sigur-
markið á mjög yfirvegaðan hátt.
Þessi sigur var gríðarlega kærkom-
inn fyrir Bolton, einnig af þeirri
ástæðu að þetta var fyrsti sigur liðs-
ins á heimavelli í sex mánuði. Lið
West Ham pressaði stíft en lítil ógn
var í sóknarleiknum hjá þeim og
því náði Bolton að halda pressuna
út. Danski landsliðsmaðurinn Stig
Tofting lék sinn fyrsta leik fyrir
Bolton og átti prýðisleik. Sigur-
markið kom m.a. upp úr löngu inn-
kasti frá honum. Guðni Bergsson
lék einnig allan leikinn fyrir Bolton.
Graham Taylor var ekki langt frá
því að vinna sigur í sínum fyrsta
leik síðan hann sneri aftur sem
framkvæmdastjóri Aston Villa. Paul
Merson kom Villa yflr í fyrri hálfleik
en í síðari hálfleik jafnaði Frank
Lampard eftir undirbúning Gian-
franco Zola sem hafði komið inn á
sem varamaður aðeins mínútu áður.
Þetta jöfnunarmark kom þvert á
gang leiksins því Aston Villa lék
gríðarlega vel í þessum leik og hefði
verðskuldað sigur. Þetta jafntefli
verður hins vegar endanlega til þess
að þessi lið munu berjast um sæti í
UEFA-keppninni.
Nial Quinn hélt upp á 200. leik
sinn fyrir Sunderland með því að
skora sigurmark liðsins í mikilvæg-
um 0-1 útisigri á Derby. Þessi sigur
hlýtur að létta gríðarlegri pressu af
framkvæmdastjóranum Peter Reid
en gengi liðsins hefur verið afar
slakt í síðustu leikjum og er liðið nú
komið í viðunandi fjarlægð frá fall-
svæðinu. Reid gerði sex breytingar á
liðinu frá síðasta leik og blés kirfi-
lega til sóknar og það bar þennan ár-
angur. Leikurinn var reyndar ekki
mikið fyrir augað og baráttan var
mikil á kostnað gæðanna, enda var
leikurinn mikilvægur fyrir bæði lið.
Robert Lee lék sinn fyrsta leik fyrir
Derby eftir að hafa verið keyptur frá
Newcastle.
Blackbum er komið í vandræði
eftir 2-0 tap gegn Fulham og
Leicester er í enn verri stöðu eftir
tap gegn Tottenham á White Hart
Lane. -HI