Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Side 15
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002 31 JOV Sport ' Brynjar valinn bestur Eins og ávallt í körfuboltabúöum var valið stjörnulið búðanna og voru það þjálfararnir sem völdu lið- ið. Sex strákar voru valdir og sögðu þjálfararnir að erfitt hefði veriö að velja liðið þar sem mikið var af jöfn- um leikmönnum i körfuboltaskólan- um. Þeir sem voru valdir komu frá Qórum félögum en tveir KR-ingar komust í liöið og einnig tveir úr Fjölni. Hér á myndinni til hliðar má sjá þá sem valdir voru í stjörnu- liðið en þeir eru frá vinstri: Davíð Þór Fritzon, ÍR, Þorsteinn Sverris- son, Fjölni, Hrafnkell Einarsson, Fjölni, Vésteinn Sveinsson, ÍA, Birkir Veigarsson, KR, og Brynjar Björnsson, KR. Brynjar var einnig valinn besti leikmaðurinn í körfu- boltaskólanum. Hann er hér fyrir neðan hlaðinn verðlaunum en hann sigraði einnig í keppninni um bestu boltatæknina. Þess má geta að Brynjar er að spila upp fyrir sig í 9. flokki en hann er ennþá í 8. flokki. DV-myndir Ben Körfuboltaskóli KKÍ og And 1: Vel tekið á því - tæplega 50 metnaðarfullir drengir tóku þátt og æfðu undir stjórn hæfra þjálfara Körfuknattleikssambandið stóð fyrir körfuboltaskóla um helgina fyr- ir drengi í 9. flokki en áður hafði ver- ið skóli fyrir drengi í 10. flokki fyrr í vetur. Pattersons meö troöslusýningu Góð þátttaka var í skólanum og voru rétt tæplega 50 drengir alls stað- ar af landinu, m.a. frá Hólmavík, Stykkishólmi, Hrunamannahreppi, Akranesi, Hvammstanga, svo ein- hverjir staðir séu nefndir. Æft var undir stjórn reyndra og hæfra þjálfara, bæði innlendra og er- lendra. Þá komu i heimsókn leik- menn á borð við Tyson Pattersons, sem leikur með Grindavík í úr- valsdeildinni en þessi knái kappi, sem er 168 cm á hæð, gerði sér lítið fyrir og hélt smá troðslusýn- ingu fyrir drengina sem gerðu ekki ráð fyrir að hann gæti troðið yfirhöf- uð. Þá kom Cedrick Holmes, sem leik- ur með ÍR, Jón Amór Stefánsson, sem leikur með KR, og félagi hans í bæði KR og ís- lenska landslið- inu, Helgi Magn- ússon. Lögð var áhersla i skólan- um á að kenna strákunum sem mest yfir helgina og var farið yfir sendingar, boltatækni, kenndar hreyfingar þegar menn eru með bak- ið í körfuna á blokkinni og aðferöir til að sækja að körfunni. Þá voru skotleikir og keppnir og reyndu strákamir fyrir sér í driplkeppni einnig. Gott framtak hjá KKÍ Þátttakendur fengu ýmis verölaun fyrir framúrskarandi frammstöðu frá And 1. Ekki var annað að sjá en all- ir væru ánægðir meö skólann og ljóst að þetta framtak KKÍ er eitthvað sem ætti að vera komið til að vera. -Ben Umsjón: Benedikt Guðmundsson Hér á myndinni eru allir þátttakendurnir sem voru í körfuboltaskóianum sem Sigurliöiö í fimm á fimm mótinu en þessir fræknu strákar unnu 5 leiki af átta. fram fór i Seljaskóla. DV-mynd Ben DV-mynd Ben Hlynur vann skotkeppnina Hlynur Hallgrímsson úr KR sigraði í 3ja stiga keppninni í körfubolta- skólanum en hann nýtti 60% skota sinna sem er frábær nýting hjá þessum knáa pilti. Allir þátttak- endurnir spreyttu sig fyrir utan 3ja stiga línuna og fóru 10 efstu i úrslit. Þar reyndist Hlynur sterkastur á svellinu. -Ben

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.