Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2002, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 7. MARS 2002
Fréttir
DV
Rætt um full-
trúa nýbúa
á F-lista
F-listi frjálslyndra og óháöra, sem
Ólafur F. Magnússon og Frjálslyndi
flokkurinn standa að, mun væntanlega
kynna nýjan fram-
boðslista sinn um
miðjan mars. Lík-
ur eru til að þar
muni að frnna ný-
mæli í íslenskri
pólitík sem er
fyrsti fslenski Taí-
lendingurinn og
trúlega fyrsti Asíu-
maðurinn sem sést
á framboðslista
hér á landi. Um er að ræða mann sem
búið hefur hér á landi um 15 ára skeið
og hefúr áhuga á að leggja málstað F-
listans lið. Einnig mun koma tfl álita
að Þráinn Stefánsson, sem verið hefur
talsmaður nýbúa hér á landi, verði á
listanum. Auk þess er búist við full-
trúa frá Sjálfsbjörg og SÍBS á listanum.
Ólafur F. Magnússon viil þó ekkert
staðfesta um ffamboðslistann og vísar
til þess að hann muni verða kynntur
þegar hann verði tilbúinn. „Eins og þú
hefur eflaust tekiö eftir höfúm við ekki
verið áberandi í umræðunni um hvaða
einstaklingar munu verða á lista hjá
okkur sem stafar af því að við leggjum
áherslu á málefni frekar en leiötoga,"
segir Ólafúr og vill ekki einu sinni gefa
upp hvort þeirra Margrétar Sverris-
dóttur muni skipa efsta sætið. -BG
Ólafur F.
Magnússon.
Vottorðum
nema rignir inn
Slæmt ástand er i ffamhaldsskólum
vegna flensu og fleiri pesta. A.m.k.
þrenns konar farandpestir hafa greinst
hérlendis aö undanfomu, hin árlega in-
flúensa, streptókokkahálsbólga og hita-
pest með kvefl, barkabólgu og bronkítis.
Berglind Halla Jónsdóttir, áfanga-
stjóri í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti,
segir að fjarvistir nemenda og kennara
hafi verið miklar. Svo virtist sem
flensufárið væri enn ekki í rénun.
„Þetta hefur farið illa með okkur,“
sagði hún. „Okkur virðist þetta augljós-
lega miklu meira en verið hefur áður.
Þeir sem veikjast af flensunni eru t]ar-
verandi í a.m.k. viku.“
Hjá Menntaskólanum í Kópavogi
fengust þær upplýsingar að talsvert
hefði verið um veikindi en svo virtist
sem vetrarpestimar væm á undanhaldi.
í sama streng tók viðmælandi DV í
MR. í fyrradag höfðu um 50 nemendur
þar tflkynnt sig veika.
„Það hafa verið þó nokkur veikinda-
forfóll hjá okkur að undanfömu," sagði
Jóhanna Rögnvaldsdóttir, á skrifstofu
MH.
„Það hefur rignt yfir okkur vottorð-
um núna undanfamar tvær vikur,"
sagði Jóhanna. „En þetta virðist heldur
vera að skána, sem betur fer.“ -JSS
Formaður Neytendasamtakanna viðurkennir mistök í bréfi til ÁTVR:
Hljómar líkt og
skoðanakúgun
- segir formaður efnahags- og viðskiptanefndar
Titringur er meðal starfsmanna
ÁTVR vegna frumvarps sem nú
liggur fyrir Alþingi um áfengi í mat-
vörubúðum og stuðning formanns
Neytendasamtakanna við frumvarp-
ið. Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, og Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna,
hafa átt í bréfaskriftum vegna máls-
ins og hafa Neytendasamtökin dreg-
ið umsögn sina um frumvarpið til
baka í kjölfarið. í hugleiðingu Hösk-
uldar, sem starfsmenn ÁTVR geta
lesið á heimasíðu stofnunarinnar,
spyr forstjórinn hver hvatinn sé að
yfirlýsingum formanns Neytend-
samtakanna.
Umsögn samtakanna var send
efnahags- og viöskiptanefnd Alþing-
is og var einhliða jákvæð sam-
kvæmt heimildum DV. í kjölfarið
lýsti Jóhannes þeirri skoðun í fjöl-
miðum að hann styddi frumvarpið
og tóku yfirmenn ÁTVR málið upp
á vinnufundi. Forstjóri ÁTVR
skýrði þá frá þvi að hann hefði ör-
uggar heimildir um að stjóm Neyt-
Vilhjálmur Jóhannes
Egilsson. Gunnarsson.
endasamtakanna hefði ekki verið
kunnugt um yfirlýsingu Jóhannesar
og því væri rangt að um yfirlýsingu
stjómar væri að ræða.
í kjölfarið sendi forstjórinn Jó-
hannesi athugasemd og brást Jóhann-
es við með svarbréfi sem DV hefur
undir höndum. Þar viðurkennir Jó-
hannes að vegna mistaka hafi athuga-
semd farist fyrir hjá einum stjómar-
manni Neytendasamtakanna þegar
samtökin fengu frumvarpið til um-
sagnar. Sú athugasemd hefði átt að
leiða til þess að málinu væri vísað til
stjórnar samtakanna en það hafi ekki
verið gert.
„Þannig hefur
þetta frumvarp
ekki það gildi að
vera umsögn
Neytendasamtak-
anna,“ skrifar Jó-
hannes og segir
að því hafi um-
sögnin verið dreg-
in til baka.
Vilhjálmur Eg-
ilsson, formaður efnahags- og við-
skiptanefndar og 1. flutningsmaður
frumvarpsins, segir að það veki at-
hygli ef fyrirtæki eins og ÁTVR sé
komiö með mann í stjóm Neytenda-
samtakanna. Yfirleitt sé það þannig
að formaður hafi leyfi til að túlka
skoðanir samtaka sinna og 67%
þjóðarinnar séu fylgjcmdi frelsi í
þessum málum skv. skoðanakönn-
unum. Vilhjálmur segir athyglis-
vert ef minnihlutinn eigi að kúga
meirihlutann i málinu. Málið lykti
af skoðanakúgun, því mikill meiri-
hluti sé fyrir þessu máli. -BÞ
DV-MYND HARI
Fyllsta öryggis gætt
Skaflarnir skyggja á litlu börnin á leiö heim úr Korpuskóla í Reykjavík. Gangbrautarvöröurinn fyigist grandvar meö
umferöinni. Enn var kalt í Reykjavík í morgun, tæplega fimm gráöu frost í bítiö, en hrollur var reyndar um allt land og
sýnu kaidast eins og vanaiega á Hveravöllum, ríflega 12 gráöu frost kl. 6 í morgun.
Forstjóri Skeljungs segir nauðsynlegt að fá niðurstöðu Héraðsdóms áður en annað er ákveðið:
Tomas Oral sigraði
Tékknesku skák-
mennirnir Tomas
Oral og Jan Votova
tefldu til úrslita í
gærkvöld á Minn-
ingarmótinu um
Dan Hansson og stóð
sá fyrmefndi uppi
sem sigurvegari. Það
var Taflfélagið Hrókurinn sem stóð
að mótinu sem talið er eitt sterkasta
atskákmót sem haldið hefur verið
hérlendis.
Samningur endurnýjaður
Geir Haarde fjármálaráðherra og
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra, fyrir hönd ríkissjóðs, endur-
nýjuðu í gær samning við Bændasam-
tök íslands um verkefni samkvæmt
búnaðarlögum og framlög rikisins á
árabilinu 2003 til 2007. Samningurinn
var undirritaður á Búnaðarþingi og
munu framlög ríkisins á timabilinu
nema 2,8 milljörðum króna. Eftirlit
með framkvæmd samningsins verður
hjá landbúnaðarráðuneyti en Bænda-
samtökin annast ráðstöfun fjárins.
Dregur framboð til baka
Hreggviður Jóns-
son, fyrrum forstjóri
Norðurljósa, dró
framboð sitt til
stjórnar íslands-
banka til baka í gær.
Hann sagði í yfirlýs-
ingu að nafn hans
hefði ranglega verið
tengt hópi hluthafa en það mun vera
listi svokallaðs Orca-hóps. Sjálfkjörið
verður í bankaráð íslandsbanka og
verður það skipað Kristjáni Ragnars-
syni, Víglundi Þorsteinssyni, Einari
Sveinssyni, Helga Magnússyni, Gunn-
ari Jónssyni, Jóni Ásgeiri Jóhann-
essyni og Þorsteini Má Baldvinssyni.
Átta dómarar vanhæfir
Átta dómarar við Hæstarétt hafa
sagt sig frá dómsmáli sem snýst um
meint brot Jóns Steinars Gunnlaugs-
sonar hæstaréttarlögmanns gegn frið-
helgi stúlku, sem kærði fóður sinn
fyrir kynferðislega misnotkun. Mað-
urinn var sýknaður í Hæstarétti.
Stúlkan höfðaði siðar mál gegn Jóni
Steinari vegna umræðna sem sköpuð-
ust í kjölfar dómsins haustið 1999.
Héraðsdómur Reykjavikur komst að
þeirri niðurstöðu að Jón Steinar
hefði brotið gegn fr iðhelgi stúlkunnar
og var honum gert að greiða henni
100 þúsund krónur auk málskostnað-
ar. Jón Steinar áfrýjaði dóminum til
Hæstaréttar. Aðeins einn dómara
Hæstaréttar dæmir í málinu en hinir
átta hafa borið fyrir sig vanhæfí. -aþ
Djúpur ágreiningur olíufélaganna
- samráð erfitt í eintölu, segir Kristinn Björnsson sem kannast ekki við lögbrot
„Mér finnst með öllu óviðunandi
annað en að niðurstaða Héraðsdóms
liggi fyrst fyrir um það hvort sú
framganga og sú framkoma sem
sýnd var af hálfu Samkeppnisstofn-
unar við haldlagningu gagnanna á
skrifstofum félagsins þann 18. des-
ember hafi í raun og veru veriö í
samræmi við þær heimildir, reglur
og lög sem Samkeppnisstofnun á að
starfa eftir. Þegar það liggur fyrir
þá er hægt að halda áfram og ræða
málin og hugsanlega skoða þau efn-
isatriði sem um er að ræða,“ segir
Kristinn Bjömsson, forstjóri Skelj-
ungs, um það hvort til greina komi
að Skeljungur leiti eftir samvinnu
við Samkeppnisstofnun við að upp-
lýsa um meint ólöglegt samráð olíu-
félaganna. Eins og fram hefur kom-
ið í DV reið Olíufélagið Esso á vað-
ið og óskaði eftir samvinnu við
Samkeppnisstofnun um að upplýsa
um meint ólöglegt samráð og önnur
hugsanleg brot á
samkeppnislög-
um og hefur Sam-
keppnisstofnun
svarað því til að
ef fyrirtæki komi
með mikilsverð-
ar upplýsingar
muni hugsanlega
fást afsláttur af
sektum. Lögmað-
ur Olíufélagsins
lýsti því svo yfir i gær að fyrirtæk-
iö mundi leggja fram viðbótargögn
og hugsanlega falla frá málsókn
sinni fyrir Héraðsdómi gegn Sam-
keppnisstofnun. Þessa málsmeðferð
afla telur Kristinn Bjömsson vera
algerlega ótímabæra meðan niður-
staða Héraösdóms liggur ekki fyrir
og er því greinilegt að bullandi
ágreiningur er mflli olíufélaganna
um afstöðuna tfl rannsóknar Sam-
keppnisstofnunar. Kristinn segir að
þrátt fyrir að svo
virðist sem aUar
bréfaskriftir
milli Oliufélags-
ins og Samkeppn-
isstofnunar, frá
„fyrstu ávarps-
orðum tU kveðju-
orða“, hafi birst í
fjölmiðlum þá
hafi ekki komið
fram nákvæm-
lega hvað það er sem verið er að
bera olíufélögunum á brýn. Að-
spurður hvemig hann bregðist þá
við því að í raun hafi Olíufélagið
með bréfaskriftum sínum tU Sam-
keppnisstofnunar verið að gangast
við hugsanlegum lögbrotum félag-
anna og þar á meðal um samráð seg-
ir Kristinn: „Ég geri mér grein fyr-
ir því að það er afskaplega erfitt að
hugsa sér eitthvert samráð í eintölu
þó það geti verið mikUvægt að vera
í góðu samkomulagi við sjálfan sig
og eigin samvisku en þarna brýtur
á miUi okkar og þeirra," segir Krist-
inn. Hann kannast ekki við þann
glæp sem Olíufélagið telji hugsan-
legt að hafi verið framinn. Það sem
hann hafi séð frá Olíufélaginu um
þetta sé það sem fram hafi komið i
blöðum og lúti m.a.að samrekstri á
bensínstöðvum sem séu vissulega
dæmi um á stöðum þar sem bæjar-
stjómir haíi óskað þess sérstaklega.
„Mér dettur bara ekki tU hugar að
ef það er þetta sem væri að angra
Samkeppnisstofnun og væri brot á
lögum, af hverju hafa þeir þá ekki
sent okkur línu um það fyrir löngu.
Það er ekki eins og menn hafi verið
að fela þetta, eða að olíufélögin ættu
saman birgðastöðina í Örfirsey,"
segir Kristinn. Hann segir þó að
stjóm félagsins hafi enn ekki komið
saman tU að taka formlega afstöðu
tU þessara mála. -BG
f ókus
t Á MORGUN
Klósettmenning á
skemmtistöðum
Rí Fókus á morgun
er kíkt á nokkra
skemmtistaði í
Reykjavík og kannað
hvemig klósettmenn-
ingin er þar. Við skoð-
um málið vandlega og
gefum stöðunum
stjömur fyrir aðbúnað
og fleira. Halla Viihjálmsdóttir leUdist-
amemi segir frá dvölinni í London og
hljómsveitin Stripshow er með ferskar
sögur úr rokkheiminum. Þá kikjum við
á hvenær stjömumar í Hollywood fóm
að lifa kynlífi og birtum úttekt Fókuss á
því af hverju bresk ungmenni sækja svo
mikið í skemmtanalíflð hér á landi. Er
ástandið svo slæmt í London? í Lífmu
eftir vinnu fmnurðu að vanda aUt sem
er að gerast í djammi og menningu og
ömgglega eitthvað fleira.
Geir
Magnússon.