Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2002, Side 22
34
FIMMTUDAGUR 7. MARS 2002
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
85áre___________________
Hulda Sigurjónsdóttir,
Hafnarstræti 7, Akureyri.
80 ára___________________
Haraldur Guömundsson,
Suðurbraut 10, Hafnarfiröi
Ragnhildur Magnúsdóttir,
Bröttuhlíð 17, Hveragerði.
75 ára___________________
Þórarinn Guðmundsson,
Huldugili 2, Akureyri.
70 ára___________________
Friöþjófur Þórarinsson,
Goðabraut 22, Dalvik.
60 ára______________________
Sigurlina Káradóttir,
Hafnargötu 34, Siglufiröi.
Valur Símonarson,
Njarðvíkurbraut 7, Njarðvík.
50 ára
Arnar Þór Jóhannsson,
Greniteigi 7, Keflavík. vél-
stjóri. Sambýliskona hans
er Rebecca Sicat. Þau
taka á móti gestum á
heimili sínu laugard. 9.3.
frá kl. 19.00.
Árni Pálsson,
Bjarkarstíg 4, Akureyri.
Guömundur Guðjónsson,
Litlagerði 3, Húsavík.
Helga Jörundsdóttir,
Lambalæk, Hvolsvelli.
Hildur Gunnarsdóttir,
Espigerði 2, Reykjavík.
Ingvar Ólafsson,
Bæjargili 74, Garðabæ.
Sigrún Gunnarsdóttir,
Móabarði 30b, Hafnarfirði.
Unnsteinn Gísiason,
Rekagranda 7, Reykjavík.
40 ára_____________________
Aöalheiöur Aðalsteinsdóttir,
Hraunási 10, Hellissandi.
Alfreö Gústaf Maríusson,
Breiðvangi 26, Hafnarfirði.
Ari Einarsson,
Gónhóli 5, Njarðvík.
Björn Lárusson,
Safamýri 46, Reykjavlk.
Bylgja Birgisdóttir,
Klyfjaseli 9, Reykjavík.
Goran Kristófer Micic,
Sjávargrund 6a, Garðabæ.
Hrafnhildur Kristjánsdóttir,
Hlíöarvegi 58, Kópavogi.
Jóhanna Guöríöur Ólafsson,
Hrísmóum 3, Garðabæ.
Kjartan Daníetsson,
Hraunbæ 174, Reykjavík.
Kristín Björg Eggertsdóttir,
Heiðarvegi 17, Keflavík.
Kristrún Kristinsdóttir,
Safamýri 73, Reykjavík.
Lárus Gunnsteinsson,
Reyðarkvísl 1, Reykjavík.
Páll Hilmar Ketilsson,
Bragavöllum 15, Keflavík.
Rúnar Pálsson,
Fellstúni 8, Sauðárkróki.
Smáauglýsingar
Allt til alls
►I 550 5000
Andlát
wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmíM^
Eyjólfur Óskar Eyjólfsson, fýrrv. varð-
stjóri, Hamrahvoli, Stokkseyri, andaöist
á Sjúkrahúsi Suðurlands aðfaranótt
mánud. 4.3.
Páll Jónsson, fyrrv. starfsmaöur RARIK,
Eiðsvallagötu 32, Akureyri, andaðist á
hjúkrunarheimilinu Seli aðfaranótt laug-
ard. 2.3.
Örn Egilsson símsmiður, Fróðengi 6,
Reykjavík, er látinn.
Guöný Einarsdóttir frá Morastöðum í
Kjós, síðast til heimilis á Dalbraut 21,
lést á Landspítalanum viö Hringbraut
sunnud. 3.3.
Aldís Pálsdóttir frá Litlu-Sandvík lést á
hjúkrunarheimilinu Ási, Hverageröi, að-
faranótt mánud. 4.3.
Gyöa Haraldsdóttir, Þverási 20, Reykja-
vík, andaðist föstud. 1.3.
x>v
Leó M. Jónsson
iðnaðar- og véltæknifræðingur í Höfnum
Leó M. Jónsson, iðnaðar- og véla-
tæknifræðingur, Sólvangi, Höfnum,
er sextugur í dag.
Starfsferill
Leó fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Vesturbænum og Hlíðun-
um. Hann lauk prófum frá Banka-
mannaskóla íslands 1962, Vélskóla
íslands 1964, Bergens Tekniske
Skole, Driftsteknisk Linje 1966, lauk
tæknifræðiprófi frá Stockholms
Tekniska Institut 1969, prófi frá
AGB Stockholm, CAV Serviceskol-
an 1969, Svenska MTM Föreningen í
vinnurannsóknum 1969 og frá
General Motors Institute í þjónustu-
stjórnun 1969.
Leó starfaði við dísilvélaviðgerðir
og stUlingar við stilliverkstæðið
Dísil 1961-63, hjá Landsbanka ís-
lands, Austurbæjarútibúi 1963-66,
var tæknifræðingur í hönnunar-
deild hjá íslenska álfélaginu hf.
1969-71, var ráðgjafi á sviði iðnaðar-
og framleiðslutækni hjá Stýringu sf.
Véla- og framleiðslutækni 1971-73,
var hagræðingarráðgjafl hjá Kaup-
mannasamtökum Islands 1973,
stundaði hagræðingarstörf á fram-
leiðslusviði hjá Plastprenti hf.
1973-74, starfaði hjá Gosefnanefnd
iðnaðarráðuneytisins 1975 við
perlusteinsverkefni, var deildar-
tæknifræðingur og stundaði verk-
efnastjórnun, iðnþróunaráætlanir
og upplýsingamiðlun hjá Iðnþróun-
arstofnun íslands sem breyttist í
Iðntæknistofnun 1976-79, var fram-
kvæmdastjóri Skrifstofutækni hf.
1979-81, stundaði ráðgjafarstörf á
eigin vegum á sviði upplýsinga-
tækni 1981-85, var ritstjóri við út-
gáfufélagið Fjölnir hf. 1985-87, út-
gáfufélagið Fróða hf. 1987-97 og
tímaritið Bíllinn 1987-99 og hefur
sinnt ritstjórn og rekstri í sam-
vinnu við Humal hf, og Bílabúð
Benna ehf. frá 1999.
Leó var stundakennari við Vél-
skóla íslands 1974, Tækniskóla Is-
lands 1975-77, við Meistaraskóla
Iðnskólans í Reykjavík 1978, kenndi
skipulagstækni og vinnurannsóknir
á Verkstjómamámskeiðum og var
leiðbeinandi á vegum Stjómunarfé-
lags íslands 1980 á námskeiðum í
verkefnastjómun með CPM/PERT-
H-tækni.
Leó hefur skrifað greinar í dag-
blöð og tímarit um ýmis efni frá
1974, fastar greinar um stjórnun og
tölvutækni í Frjálsa verzlun
1979-93, var ritstjóri tímaritsins Iðn-
aðarmál 1974-78, hefur sinnt al-
mennri blaðamennsku og þýðingar-
störfum frá 1978, var ritstjóri tíma-
ritsins Viðskipta- og tölvublaðið
1985-88, ritstjóri tímaritsins Bónd-
inn 1987-92, ritstjóri tímaritsins
Bíllinn 1987-99 .
Leó hefur búið í Höfnum frá 1978.
Fjölskylda
Eiginkona
Leós er Sigrún
Dröfn Jónsdótt-
ir, f. 3.1.1945, rit-
ari hjá ÍAV í
Reykjavík. For-
eldrar hennar:
Jón Sigurðsson,
f. 16.3. 1927,
fyrrv. trompet-
leikari í Sinfón-
iuhljómsveitinni
og kennir við
Tónlistarskól-
ann í Reykjavik,
og Björg Péturs-
dóttir, f. 24.3.
1923, d. 16.10.
2000, starfaði
m.a. við fata-
framleiðslu.
Böm Leós og Sigrúnar Drafnar
eru Jón Orri, f. 30.5. 1967, kerfis-
fræðingur THÍ, búsettur á Selfossi;
Björg, f. 21.1. 1971, kerfisstjóri en
sonur hennar og Viðars Inga Odds-
sonar er Leó Ingi Viðarsson, f. 25.12.
1997; Eyjólfur Leós, f. 27.1. 1973, bif-
vélavirki en dóttir hans og Lóu
Kristínar Kristinsdóttur er Margrét
Eyjólfsdóttir, f. 28.9. 1995.
Systkini Leós eru Ingunn Jóns-
dóttir, f. 19.4. 1943, íþróttakennari í
Reykjavík en eiginmaður hennar er
Gunnar Þór Kristjánsson vélfræð-
ingur; Kristín Jónsdóttir, f. 29.1.
1946, ritari í Reykjavík en eiginmað-
ur hennar er Öm Jónsson rafvirkja-
meistari; Böðvar Leós Jónsson, f.
6.11. 1956, myndlistarmaður í
Reykjavík.
Foreldrar Leós: Jón Halldór Leós
f. 9.12. 1901, d. 16.2. 1978, deildar-
stjóri í Landsbanka Islands, og
Svanlaug Böðvarsdóttir, f. 24.12.
1918, fyrrv. verslunarmaður í
Reykjavík.
Leó er að heiman á afmælisdag-
inn.
Fimmtugur Fertugur
Einar Ole Pedersen
bóndi í Álftártungukoti
Einar Ole Pedersen bóndi, Álftár-
tungukoti í Borgarbyggð, varð
fimmtugur í gær.
Starfsferill
Einar Ole fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk gagnfræða-
prófi frá Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar og búfræðiprófi frá Bænda-
skólanum á Hvanneyri 1970. Þá
stundaði hann nám við Landbúnað-
arskólann í Höng í Danmörku og
lauk þaðan prófum 1972.
Einar Ole vann á gerlarannsókn-
arstöð danska ríkisins síðar hluta
árs 1972, var mjólkureftirlitsmaður
hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík
1973-78 og hefur búið í Álftártungu-
koti frá 1977.
Einar Ole hefur starfað mikið í
ungmennafélagshreyfingunni, var
m.a. formaður ungmennafélagsins
Egils Skallagrímssonar í fjögur ár
og gjaldkeri þess síðustu ár, sat í
stjóm Ungmennasambands Borgar-
ijarðar, UMSB í ellefu ár og var
sambandsstjóri þess í átta ár og hef-
ur sinnt ýmsum íþrótta- og æsku-
lýðsmálum.
Einar Ole sat í hreppsnefnd Álfta-
nesshrepps í tólf ár og var oddviti
hans í átta ár, sat í stjóm Samtaka
sveitarfélaga á Vesturlandi í fjögur
ár, var umboðsmaður skattstjóra
1984-98 og hefur gegnt starfi fram-
kvæmdastjóra Ræktunarsambands
Mýramanna frá 1993 ásamt ýmsum
öðrum félags- og trúnaöarstörfum.
Fjölskylda
Einar Ole
kvæntist 22.9.
1974 Helgu
Hannesdótt-
ur, f. 15.11. 1954, húsfreyju. Foreldr-
ar hennar: Hannes Torfason, f. 13.8.
1916, d. 12.7. 1964, bóndi á Gils-
streymi í Lundarreykjadal, og Guð-
rún Einarsdóttir, f. 8.10. 1918, hús-
freyja.
Börn Einars Ole og Helgu eru
Halldór Torfi, f. 21.2. 1974, kerfis-
fræðingur en sambýliskona hans er
Guðrún Halldóra Guðmundsdóttir,
f. 23.8. 1978, kennari og er dóttir
þeirra Helga Karen, f. 3.8. 2001; Ein-
ar Bjami, f. 6.3. 1978, d. 23.7. 1978;
Einar Bjarni, f. 20.11. 1979, vélsmið-
ur; Henný Bima, f. 6.3. 1982, fram-
haldsskólanemi; Helga Björk, f. 22.9.
1985, framhaldsskólanemi.
Systkini Einars Ole eru Halldór
Kristinn, f. 23.5. 1946, d. 7.3. 1947;
Halldór Kristinn, f. 21.12. 1947,
starfsmaður Kirkjugarða Reykjavík-
ur; Bendt, f. 24.8. 1949, lagermaður
hjá Heildverslun Jóhanns Ólafsson-
ar hf; Auður Anna Kristín, f. 2.12.
1957, húsmóðir í Garðabæ.
Foreldrar Einars Ole: Ole Peder
Pedersen, f. 22.9. 1913, d. 27.12. 1984,
garðyrkjustjóri frá Norður-Sjálandi
í Danmörku, og Kristín Halldórs-
dóttir, f. 1.2.1924, húsfreyja.
Einar Ole tekur á móti gestum í
félagsheimilinu Lyngbrekku, fóstu-
daginn 8.3. frá kl. 20.00.
Páll Ketilsson
ritstjóri Víkurfrétta í Keflavík
Páll Ketilsson, ritstjóri
Víkurfrétta, Bragavöllum
15, Keflavik, er fertugur í
dag.
Starfsferill
Páll er fæddur í Kefla-
vík og hefur alið manninn
þar alla tíð. Páll lauk
grunnskólaprófi frá Holta-
skóla í Keflavík og stúd-
entsprófi frá Fjölbrautaskóla Suður-
nesja 1981.
Páll starfaði sem gjaldkeri í Út-
vegsbankanum að loknu námi í
tæpt ár áður en hann stofnaði Vík-
urfréttir ehf. og tók samtímis við
rekstri samnefnds blaðs, tvítugur að
aldri.
Páll hefur samhliða útgáfustörf-
um hjá Víkurfréttum stundað frétta-
mennsku fyrir Stöð 2 og Bylgjuna
og haft umsjón með golfi á Stöð 2 og
Sýn. Þá hefur hann undanfarin ár
haft umsjón með útgáfu tímaritsins
Golf á íslandi fyrir Golfsamband Is-
lands og Hamar í Hafnarfirði.
Páll hefur setið í stjórn Golf-
klúbbs Suðurnesja, Oddfell-
owstúkunnar Njarðar í Keflavík,
samtökum bæjar- og héraðsfrétta-
blaða á íslandi og er nú formaður
stjómar Matarlystar/Atlanta veit-
ingafyrirtækisins.
Fjölskylda
Páll kvæntist 10.9. 1988 Ásdísi
Björk Pálmadóttur, f. 31.7. 1963, hár-
greiðslumeistara. Hún er dóttir
Katrínar Bjarkar Frið-
jónsdóttur húsmóður og
Pálma Viðars Óskarsson-
ar, leigubílstjóra, en þau
eru búsett í Njarðvík.
Böm Páls og Ásdísar
eru Valgerður Björk, f.
18.4.1987; Hildur Björk, f.
14.12. 1990; Páll Orri, f.
22.2. 1999.
Systkini Páls eru Vil-
hjálmur Ketilsson, f. 13.04. 1950,
skólastjóri Myllubakkaskóla í Kefla-
vík; Magnús Ketilsson, f. 29.04.1951,
verslunarmaður í Reykjavík, Sigur-
gísli Ketilsson, f. 30.08. 1954, varð-
stjóri hjá Brunavörnum Suður-
nesja; Valur Ketilsson, f. 6.12. 1963,
skrifstofustjóri hjá Keflavíkurverk-
tökum.
Foreldrar Páls eru Ketill Vil-
hjálmsson, f. 14.8. 1929, fyrrv. bif-
reiðastjóri, og Valgerður Sigurgísla-
dóttir, f. 13.4. 1931, fyrrv. verslunar-
kona. Þau eru búsett í Keflavík.
Ætt
Valgerður er dóttir Guðmundar
Sigurgísla, skósmiðs og sjómanns í
Keflavík Guðjónssonar, formanns
og útgerðarmanns i Keflavík Þor-
kelssonar. Móðir Sigurgísla var Val-
gerður, saumakona i Keflavík Gisla-
dóttir. Móðir Valgerðar Stefania
Vilhjálmsdóttir.
Páll og kona hans Ásdís taka á
móti vinum og ættmgjum í tilefni
afmælisins í golfskálanum í Leiru
föstudaginn 8.3. kl. 20.00-23.00.
Merkir Islendingar
Sigurður Ólafsson, lyfsali í Reykjavíkur
Apóteki, fæddist á Brimilsvöllum á
Snæfellsnesi 7. mars 1916. Hann var son-
ur Ólafs Bjamasonar, bónda þar, og k.h.,
Kristólínu Kristjánsdóttur, systur Guð-
bjargar, ömmu Einars Magnússonar
lyfjafræðings.
Sigurður lauk stúdentsprófi frá MR
1936, stundaði nám í læknisfræði við
HÍ í tvö ár og síðan í lyfjafræði í
Reykjavíkur Apóteki og Lyfjafræðinga-
skóla íslands, lauk lyfjafræðiprófi 1941,
stundaði framhaldsnám við Phila-
delphia College of Pharmacy and Science
og lauk þaðan B.Sc.-prófi 1943.
Sigurður vann allan sinn starfsferil við
Reykjavíkur Apótek. Þar var hann lyfjafræð-
Sigurður Ólafsson
ingur frá 1943, oft staðgengill lyfsalans frá
1950 og lyfsali í Reykjavíkur Apóteki frá
1961-1982 er hann nýtti sér lögfræðilega
sérstöðu Reykjavíkur Apóteks og afhenti
Háskóla Islands lyfsöluleyfi þessa elsta
apóteks landsins. Þetta gerði hann
vegna þess að hann var ætíð mjög vel-
viljaður Háskólanum og var umhugað
um vandaða lyfjafræðikennslu hér á
landi. Hann var síðan forstöðumaður
Lyfjabúðar Háskóla íslands til 1991.
Sigurður tók saman bókina Lyfja-
samheiti sem er þekkt og mikið notað
uppflettirit víða um heim. Hann var
þrisvar kosinn formaður Lyfjafræöinga-
félags íslands og var auk þess formaður Apó-
tekarafélags íslands. Hann lést 14. ágúst 1993.
Matthías Hannesson og Snorri Norð-
fjörö Haraldsson sem fórust með
Bjarma þriðjud. 23.2. sl., verðajarð-
sungnir frá Keflavíkurkirkju föstud. 8.3.
kl. 14.
Haukur Jörundarson kennari, Aflagranda
40, Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Grensáskirkju föstud. 8.3. kl. 13.30.
Jarðarför Gunnars Guðmundssonar fer
fram frá Kópavogskirkju 8.3. kl. 13.30.
Eyjólfur Hermannsson, Hjálmholti 1,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
föstud. 8.3. kl. 13.30.
Heiðveig Sörensdóttir frá Múla, Auð-
brekku 8, Húsavík, verður jarðsungin frá
Grenjaðarstaðakirkju 9.3. kl. 14.
Útför Gísla Engilbertssonar málara-
meistara, Hásteinsvegi 64, Vestmanna-
eyjum, veröur gerð frá Landakirkju laug-
ard. 9.3. kl. 14.